Morgunblaðið - 23.07.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 4í0k
JONA
SIGURJÓNSDÓTTIR
+ Jóna fæddist 14.
jtílí 1920. Hún
Iést 13. júh' síðastlið-
inn. Jóna var fjórða
barn hjónanna Sig-
urjóns Jónssonar, f.
1882, d. 1957, bók-
sala, Þórsgötu 4,
Reykjavík, og Guð-
laugar Ragnhildar
Árnadóttur, f. 1891,
d. 1947. Systkini
Jónu voru; Gunnar,
cand. theol., f. 1913,
d. 1980, kvæntur
Vilborgu Jóhannes-
dóttur, Árni, banka-
fulltrúi, f. 1916, d. 1999, Þor-
björg Hólmfríður, f. 1918, gift
Friðriki Vigfússyni, og Svan-
laug, f. 1923, gift Heiðari Har-
aldssyni. Auk systkinanna Hmm
var Bjarni Eyjólfsson ritsljóri til
heimilis hjá Sigurjóni og Guð-
laugu frá unglingsaldri.
Jóna giftist 30. júní 1945, séra
Jóni Árna Sigurðssyni, f. 30.12.
1917, d. 22.11. 1988, sem þjón-
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann
mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðirmigumréttavegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
Hinn 12. júlí sl. stóð ég ásamt
elsta syni mínum Gunnari Jóhann-
esi við sjúkrabeð Jónu, mágkonu
minnar. Gunnar fór með þennan
sálm og blessunarorðin og Jóna
hvíslaði lágri röddu: „Þakka ykkur
innilega fyrir.“ Hún var þá farin að
kröftum og lést daginn eftir. For-
eldrar Jónu höfðu haft þennan sálm
sem yfirskrift yfir heimili sínu og
var hann því skrautritaður í ramma
sem blasti við þeim uppi á vegg.
Æskuheimilið einkenndist af því
að allir lögðu krafta sína til starfa í
KFUM og K og kristniboðshreyf-
ingunni, sérstaklega með söng og
hljóðfæraleik. Ung gekk Jóna í
KFUK og söng með í unglingakór
KFUK. Seinna sungu þær saman á
fundum og samkomum sex stúlkur,
oft við undirleik Gunnars bróður
hennar. Þær voru allar vinkonur og
nágrannar, Þorbjörg, Jóna og Svan-
laug Sigurjónsdætur á Þórsgötu 4
og Þórey og Ingibjörg Magnúsdæt-
ur á Þórsgötu 9 og Guðfinna Jóns-
dóttir á Týsgötu 4. En svo fluttist
Jóna með manni sínum, séra Jóni
Árna Sigurðssyni, að Stað á
Reykjanesi í Barðastrandarsýslu.
Þegar þau hjónin áttu von á
fyrsta barni sínu var ég beðin að
vera hjá Jónu. Þeirri ferð gleymi ég
aldrei. Það var enginn vegur fær
bílum frá Reykhólum að Stað svo
presturinn þurfti að fara ríðandi til
að messa á Reykhólum. Þennan
mánuð sem ég var á Stað urðu
fyrstu raunverulegu kynni mín af
Jónu. Hún tók fagnandi á móti mér.
Ekki var húsnæðið stórt sem
prestshjónin höfðu, - lítil stofa og
enn minna svefnherbergi þar inn af
og aðgangur að eldhúsi. Ég hef oft
hugsað um það síðan, þegar Jóna,
sem var Reykjavíkurbarn, fluttist á
þennan afskekkta stað, hve það
hljóta að hafa orðið mikil viðbrigði
fyrii- hana að hverfa frá foreldrum
og systkinum og öllum vinunum úr
KFÚM og K. Ferðamátinn var svo
gjörólíkur því sem nú er. Þau
bjuggu þó aðeins þrjú ár fyrir vest-
an, því séra Jón Ámi var kosinn
aði frá Stað í Reyk-
hólasveit fyrstu ár
sín í embætti. Jón
Árni var kosinn til
prestþjónustu í Gr-
indavíkur- og
Kirkjuvogssókn í
lok árs 1947 og
fluttust þau hjón
þangað 1948 _og
þjónaði Jón Árni
þar allt til hann
hætti prestþjónustu
1985, en þá fluttu
þau til Reykjavíkur.
Þau eignuðust
þrjú börn; Valborgu
Ólínu, f. 1946, gift Berki Þór
Arnljótssyni, Guðlaugu Ragn-
hildi, f. 1948, gift Margeiri Ar-
manni Jónssyni, og Árna Þor-
vald, f. 1953, kvæntur Guðrúnu
Höllu Gunnarsdóttur. Jóna átti
níu barnabörn og fjögur bama-
bamaböm.
títför Jónu fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
prestur í Grindavík og fluttust þau
því aftur suður, en dvöldu sumar-
langt á Þórsgötu 4 hjá föður Jónu
og bræðrum meðan verið var að
lagfæra prestssetrið í Grindavík.
Enn urðu kynni mín af Jónu nánari
þetta sumar, því ég var vinnukona á
heimilinu. Síðar giftist ég Gunnari,
bróður hennar, og áttum við áfram
heimili að Þórsgötu 4, svo að þegar
þau komu í bæinn áttu þau þar
samastað.
Þegar drengimir okkar Gunnars
vom litlir bauð Jóna mér að dveljast
hjá sér í vikutíma hvert sumar með-
an Gunnar var að störfum í sumar-
búðunum í Vatnaskógi. Það var
yndislegt að vera hjá þeim og
drengjunum fannst það ævintýri
líkast þegar farið var með nesti í
fjöruferðir. Þá voru kindur og
hænsni víða í þorpinu og bátamir
við bryggjumar. Gegnum árin var
ávallt svo gott að koma til þeirra
hjóna í Grindavík. Jóna hafði sífellt
tilbúið veisluborð.
Þegar sr. Jón hætti prestskap
fluttu þau til Reykjavíkur. Jóna fór
þá aftur að sækja fundi og samkom-
ur í KFUK og kristniboðssalnum.
Hún gerðist meðlimur í kristniboðs-
flokki KFUK. Þar lét hún sig ekki
vanta og naut þess að vera þar í
samfélagi trúaðra. Hún var mjög
músíkölsk og naut þess að hlusta á
fallegan söng. Sérstaklega þótti
henni yndislegt að hlusta á fjórar
KFUK stúlkur sem kalla sig
Kanga-kvartettinn syngja. Þá rifj-
aði hún upp þegar hún sjálf söng
með ungu stúlkunum í KFUK
Drottni til dýrðar.
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
SOLSTEINAK 564 3555
3lómabwðÍK
öa^ðskom
v/ Fossvogskirkjugarð
Símii 554 0500
Það er einkennilegt að kveðja
systkinin Árna og Jónu með svo
stuttu millibili, (Ami lést 11 dögum
á undan Jónu), en Drottinn hefur
kallað þau til sín. Jesús sagði: „Ég
er góði hirðirinn. Góði hirðirinn
leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauð-
ina,“ (Jóh. 10,11.) og: „Ég er uppris-
an og lífið. Sá sem trúir á mig mun
lifa þótt hann deyi.“ (Jóh. 11,25). Á
þessari trú lifðu þau og dóu. Ég vil
þakka fyrir langa og góða vináttu
og bið Guð að blessa bömin hennar
og alla ástvini. Verið öll Guði falin.
Vilborg Jóhannesdóttir.
Elskuleg móðursystir mín, Jóna
Sigurjónsdóttir, lést 13.júlí sl.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að njóta elsku hennar og hlýju. Góð-
ar minningar á ég frá árum áður er
við heimsóttum hana og fjölskyldu
hennar til Grindavíkur og eftir að
þau hjónin fluttu til Reykjavíkur
var hún tíður gestur á heimili for-
eldra minna, enda voru þær systur
mjög nánar. Alltaf var hún tilbúin
að rétta fram hjálparhönd ef á
þurfti að halda. Hún var mjög barn-
góð og vora bömin mín hænd að
henni. Mér fannst hún alltaf vera
ein af okkur og er við fjölskyldan
gerðum eitthvað eða fóram var
sjálfsagt að hún væri með.
Söknuður okkar er mikill. Guð
gefi börnum hennar, Valborgu,
Guðlaugu, Áma og fjölskyldum
þeirra styrk.
Ólöf Inga Heiðarsdóttir.
Þú, Guð, sem stýrir stjarna her
og stjórnar veröldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
(V. Briem.)
í blúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Eg leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Eg reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Eg geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn
að verðir þú æ drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku langamma, það var alltaf
gaman að heimsækja þig. Ég elska
þig. Sjáumst uppi hjá Guði.
Þinn, u-
Margeir Alex og Jón Ámi
Elsku amma mín, nú ert þú farin
frá okkur eftir erfið veikindi síðast-
liðna mánuði. Erfitt er að koma
hugsunum á blað þegar söknuður-
inn er svona mikill en minningarnar
era margar. Það var svo gaman að
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ S£mi 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Þegar andlát ber að höndum
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara
á höfuðborgarsvæíinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AlúSleg þjónusta sem byggir á tangrí reynslu
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266
koma tii ykkar afa í prestbústaðinn
í Grindavík, alltaf vora til saltstang-
ir í skápnum eða kex í búrinu. Mikið
dunduðum við systkinin okkur með
allar skyr- og jórgúrtdósimar við að
byggja heilu kastalana og tumana,
gaman fannst mér að sitja við
snyrtiborðið þitt og gramsa í öllu
skartinu þínu eða sitja við skrif-
borðið hans afa á skrifstofunni. Þar
áttum við afi líka góðar stundir þeg-
ar hann hlýddi mér yfír kristinfræði
fyrir próf í skólanum. Að fá að fara
með þér í bankann og þrífa með
þér, nú eða bara fara með ykkur afa
í kirkjuna á sunnudagsmorgnum.
Þegar afi hætti sem prestur í Gr-
indavík eftir tæp 40 ár og þið fluttuð
til Reykjavíkur var erfitt, þið komin
allt í einu svo langt í burtu, ekki
hægt að labba til ykkar og koma í
heimsókn, en að koma í heimsókn á
Keilugrandann var ekki síðra. Svo
kom að því að afi veiktist og þú lent-
ir einnig á spítala, þetta vora erfiðir
tímar en aldrei kvartaðir þú. Þegar
afi kvaddi okkur tókst þú öllu með
jafnaðargeði, bjóst ein og fórst það
sem þú ætlaðir þér. Um haustið
1989 flytjum við Halli svo til þín um
tíma og var það mér dýrmætur tími
þótt það hafi ekki verið langur tími.
Þegar ég er svo ófrísk að öðra barni
okkar flytur þú í Sunnuhlíð lb og
var þá ekki langt á milli okkar þar
sem ég var í Hamraborginni. Þegar
Jón Ami var skírður eftir afa var
hann þér eins og lítill sólargeisli
eins og öll þín bamaböm og barna-
bamabörn. Margeiri Alex og Jón46,
Arna þótti svo gaman að koma til
þín og fá að leika sér með dótið hjá
þér og voru einnig heimsóknirnar á
spítalann yndislegar, þótti mér
gaman að sjá ijómann í andlitinu
þegar þeir tóku um hálsinn á þér og
sögðu „ég elska þig, amma, eða mér
þykir vænt um þig, amma mín“.
Síðastliðinn mánuður hefur verið
okkur öllum erfiður og ekki síst fyr-
ir þig, þú orðin mikið lasin og veik-
burða, nú og svo kvaddi amma Lilla
okkur fyrir tæpum sjö vikum og svo
Addi bróðir þinn hinn 2. júlí. Megi
góður Guð veita okkur öllum styrk á
erfiðum timum og ekki síst systram
þínum og mágkonu. En elsku
amma, ég dáist að því hvað þú ert
búin að vera dugleg í öllum þínum
veikindum, aidrei kvartaðir þú eða
kveinkaðir þér, en nú er þrautum
þinum lokið og þú komin yfir móð-
una miklu og hittir þar afa og bræð-
ur þína. Elsku amma mín, ég, Halli,
Margeir Alex og Jón Ami þökkum
allar samverastundimai- okkar og
bið ég góðan Guð um að blessa
minningu þína.
Þín dótturdóttir,
Ólína Kristín Margeirsdóttir.
HJÁLMAR HÚNFJÖRÐ"
EYÞÓRSSON
+ Hjálmar HúnQörð Eyþórs-
son fæddist á Blönduósi 4.
desember 1917. Hann lést á
Engimýri í Öxnadal 21. júní síð-
astliðinn og fór útför hans fram
frá Fossvogskirkju l.júlí.
Elsku afi minn, mig langar að
þakka þér fyrir öll árin sem við átt-
um saman. Alla mína ævi varst þú
nálægur. Þegar mamma og pabbi
vora upptekin vora stutt skrefin
„upp á Brekku" til þín. Þú varst
alltaf tilbúinn að styðja mig á þann
hátt sem þú einn kunnir.
Eftir að foreldrar mínir fluttu
suður var ég iðulega hjá ykkur
ömmu og heimili ykkar sem mitt
eigið. Þegar ég fór sjálf að búa og
eignast börn vora þau líka mikið hjá
ykkur. Þar fengu þau þá hlýju og
ástúð sem þið áttuð svo auðvelt með
að gefa í ríkum mæli.
Ég vil sérstaklega koma á fram-
færi saknaðarkveðju frá Óla syni
mínum. Hann var mest minna barna
hjá ykkur ömmu og á erfitt með að
skilja að afi hans, sem honum þótti
svo vænt um, sé dáinn. Þegar hann
kom með okkur í heimsókn til for-
eldra minna í Keflavík var hann
venjulega fljótur að hlaupa til ykkar
því þar vildi hann helst vera. Elsku
afi minn, við áttum saman hér í
Engimýri yndislega daga sem ber<*
að þakka fyrir. I langan tíma hef ég
ekki séð þig eins frískan, þú röltir
með okkur hér um, spjallaðir og
hlóst. Þó að ég sakni þín sárt er ég
samt glöð þín vegna, að fá að yfir-
gefa þennan heim eins snögglega og
þú gerðir.
Við fjölskylda mín kveðjum þig nú
og munum minnast þess að þú varst
heiðursmaður, bæði í orði og verki.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fýrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guðþérnýfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hþjóta skalt.
(V. Briem.) "41
Þín dótturdóttir,
Kristín I. Sigurðardóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ÁSDÍSAR GUÐRÚNAR KJARTANSDÓTTUR,
Hrísmóum 1,
Garðabæ,
áður til heimilis á Heiðarbrún 12,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Skjóls og
hjartadeildar Landspítalans.
Vaigarð Runólfsson,
Vera Ósk Valgarðsdóttir, Guðjón Sigurðsson,
Kjartan V. Valgarðsson, Nína Helgadóttir,
Boili R. Valgarðsson, Hrafnhildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug
við andlát og útför
ÞÓRDÍSAR ÍVARSDÓTTUR,
Króki,
Biskupstungum.
Börn, tengdabörn
og aðrir aðstandendur.