Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
1 % • 'M 1
Morgunblaðið/Arnór
FINNAR hafa spilað mjög vel í eldri flokknum og voru efstir eftir 7
umferðir af 10. Talið frá vinstri: Kari Mákikangas, Jussi Tamminen,
Frederik Jáfs og Tatu Heikkinen. Lengst til hægri er Mauri Saasta-
moinen en hann er fyrirliði án spilamennsku.
BRIDS
llmsjón Arnúr G.
Ilagnarsson
Finnar í forystu í
eldri flokki á NM
FINNAR eru á sigurbraut í eldri
flokknum á 15. Norðurlandamóti
unglinga í brids sem lýkur á morg-
un. Helzti andstæðingur þeirra er
íslenzka liðið sem spilað hefír mjög
vel í mótinu en varð að sætta sig við
12-18 tap gegn Finnum í fimmtu
umferð í fyrradag. Spiluð er tvöfóld
umferð í eldri flokknum en þrefóld í
þeim yngri og þegar mótið var lið-
lega hálfnað höfðu Finnar 109 stig,
Islendingar voru með 101 og Danir
94 stig.
I yngri flokknum eru Danir í for-
ystu og Svíar í öðru sæti en íslenzka
liðið er neðst.
Ekkert var spilað í gær en 7. um-
ferð hefst í dag kl. 10. Keppnisstjóri
er Sveinn Rúnar Eiríksson.
Bridsdeild eldri borgara
í Reykjavík
MÁNUDAGINN 19. júlí 1999 var
spilaður Mitchell í Ásgarði, Glæsi-
bæ. 24 pör mættu og úrslit urðu
þessi:
Árangur N-S
Albert Þorsteinsson - Auðunn Guðmundsson 291
Lárus Amórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 242
Jón Andrésson - Guðmundur Á Gudmundsson 231
Árangur A-V
Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Haldórsson 242
Guórún Guðjónsdóttir - Ólöf Guðbrandsdóttir 240
Bergljót Rafnar - Soffia Theodórsdóttir 237
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 237
Miðlungur 216
Ágæt þátttaka
í sumarbrids
Miðvikudaginn 14. júlí var spilað-
ur Monrad Barómeter með þátt-
töku 26 para. Spilaðar voru 7 um-
ferðir með 4 spilum á milli para.
Efstu pör voru:
Frímann Stefánsson - Vilhjálmur Sigurðsson +61
Baldur Bjartmarsson - Guðm. Sigurjónsson +61
Guðlaugur Sveinsson - Sigurjón Tryggvason +59
Jóhann Magnússon - Kristinn Karlsson +41
Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson +31
Magnús Halldórsson - Eysteinn Einarsson +29
12 tóku þátt í Verðlaunapottinum
og skiptist hann í 2 hluta, 4000 kr.
og 2000 kr. Baldur og Guðmundur
fengu 1. sætið og Guðlaugur og Sig-
urjón fengu 2. sætið.
Fimmtudaginn 15. júlí var spilað-
ur Mitchell tvímenningur með þátt-
töku 22 para. Spilaðar voru 9 um-
ferðir með 3 spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og efstu pör
voru:
N/S:
Albert Þorsteinsson - Bjöm Árnason 249
Gunnar Þórðarson - Garðar Garðarsson 232
Brynjar Jónsson - Vilhjálmur Sigurðsson jr. 228
A/V:
Erlendur Jónsson - Sigurjón Tryggvason 276
Hjördís Siguijónsdóttir - Kristján Blöndal 248
Guðlaugur Sveinsson - Guðlaugur Nielsen 241
Föstudaginn 16. júlí var spilaður
Mitchell tvímenningur með þátt-
töku 30 para. Spilaðar voru 14 um-
ferðir með 2 spUum á milh para.
Meðalskor var 364 og efstu pör
voru:
N/S:
Anna ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir 457
Björgvin Víglundsson - Hrólfur Hjaltason 448
Kjartan Aðalbjömsson - Kjartan Ásmundsson 440
A/V:
Eysteinn Einarsson - Magnús Halldórsson 436
Egill Darri Brynjólfsson - Helgi Bogason 420
Ólöf H. Þorsteinsdóttir - Hanna Friðriksdóttir 417
10 sveitir tóku þátt í Miðnætur-
sveitakeppninni sem byrjaði að
loknum tvímenningnum. Til úrslita
spiluðu sveitir Jóns Stefánssonar og
Hrafnhildar Skúladóttur. Sveit Jóns
sigraði með 13 impum gegn 10. Með
Jóni spiluðu Bjöm Dúason, Guð-
laugur Sveinsson og Þórður Bjöms-
son.
Sumarbrids 1999 er spilaður 6
daga vikunnar, alla daga nema laug-
ardaga. Spilamennska byrjar alltaf
kl. 19:00. Spilaðir em MitcheU tví-
menningar með forgefnum spilum,
nema á miðvikudögum og sunnu-
dögum en þá er spilaður Monrad
Barómeter og pörum gefinn kostur
á að taka þátt í Verðlaunapotti. Eft-
ir að tvímenningnum lýkur á föstu-
dögum er spilað Miðnætur-útslátt-
arsveitakepppni og kostar 100 kr. á
mann, hver umferð. Einnig er spil-
uð sveitakeppni alla daga fyrir frí-
daga ef þátttaka næst. Allir spilarar
eru velkomnir í sumarstemmning-
una í Sumarbridge 1999. Spilarar
sem eru 20 ára og yngri spila frítt í
boði Bridgesambands íslands. Um-
sjónarmaður Sumarbrids 1999 er
Sveinn Rúnar Eiríksson.
‘Kíassísfcur eðaí-Cadittac
á verði smábíCs!
Cadillac Sedan de Ville '86 - ekinn aðeins 62 þús. km.
Glæsivagn, sem nýr ulan og innan, falleg innrétting
alklædd rauðu leðri, allt rafknúið, vél og bremsur sem nýtt
- forstjórabíll aðeins í eigu eins manns.
Gullið tækifæri til að eignast bíl í hógæðaflokki 6 verði smóbíls.
Verð aðeins 1.600 þús. staðgr.
FERÐASKKIFSTOFAN
H
pmMAi
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Sími 562 0400
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Beðist
afsökunar
HINN 5. júlí sl. hringdi
Kristinn Jónsson, formað-
ur KR, sá ágæti maður, í
mig vegna skrifa minna í
Velvakanda í Morunblað-
inu 4. júlí og bað mig að
skrifa í það sama blað eins-
konar afsökun á greininni.
Honum fannst hún of
svæsin, tilkynnti hann mér
vinalega í símanum og það
er rétt. Eg var reiður og
sár útaf þessum mjmdum
mínum og umslagi og það á
maður ekki að vera og var
hann því ekki ánægður
með greinina. Hann var
samt hinn ljúfasti viðtals
og áreiðanlega ágætismað-
ur í hvívetna því mér
fannst hann hinn almenni-
legasti í hegðun við mig,
þrátt fyrir allt. Hann bað
mig vinsamlega að skrifa
aðra grein um fruntaskap
minn í íyrmefndri grein
frá í gær. Og bið ég hér-
með afsökunar á ummæl-
um mínum um KR og KR-
bókina í tilefni af afmælinu.
Þessa óánægju mína skildi
hann vel og þrátt fyrir
þetta er ég gamli, góði KR-
ingurinn sem í dentíð, þeg-
ar Erlendur Ó. Pétursson
var formaður félagsins, því
hann gerði mér þann stór-
greiða að koma mér í fasta
atvinnu þá, þegar tímarnir
voru verstir atvinnulega
séð. Og fyrir þetta verð ég
alltaf þakklátur honum og
KR-féíagsskapnum, og það
var starfsemi íþróttanna að
þakka að ég fór ekki í soll-
inn á þeim erfiðu árum.
Eg vil jafnframt þakka
Kristni, formanni félags-
ins, fyrir upphringinguna
og ljúfmennskuna í samtali
okkar í milli. Vonast þó
fastlega til að umslagið
með KR-myndunum finnist
við áframhaldandi leit, því
lofaði mér Kristinn for-
maður. Eg leyfi mér að
kalla hann vin minn eftir
þessa viðurkenningu í sím-
anum.
Páll Hannesson,
Ægissíðu 86.
Lækkun á skattþrepi
ÉG VIL beina þeirri fyrir-
spurn til heilbrigðisráð-
herra og fjármálaráðherra
hvort ekki sé hægt að
lækka skattana hjá mér.
Ég er öryrki og bý einn og
borga í hverjum mánuði
skatt sem hljóðar upp á
12-13 þúsund krónur. Þeg-
ar örorkubæturnar hækka
örlítið sé ég hækkunina
bara á blaði því þetta er
tekið í skattinn um leið.
Mér datt í hug að nefna
þetta því heilbrigðisráð-
herra ætlar að skoða málið
og er ég margbúinn að
tala við hana en hef ekki
séð ennþá neina breyt-
ingu. Væri ekki hægt að
lækka skattinn niður í 6
þús. á mánuði, þ.e. um
helming?
Sæmundur Kristjáns-
son, öryrki í Kópavogi.
Samræmd próf án sam-
ræmdrar kennslu?
ÉG ÓSKA eftir skýringum
frá yfirvöldum mennta-
mála.
Ekki er langt síðan nið-
urstöður úr samræmdum
prófum voru birtar í fjöl-
miðlum. Þar voru birtar
meðaleinkunnir nemenda
einstakra skóla en er það
nóg? Já, það ætti að vera
nóg, séu forsendur próf-
anna eins líkar og kostur er,
en ég hef sterkan grun um
að svo sé ekki! Því vil ég
biðja yfirvöld menntamála
að svara eftirfarandi spum-
ingum.
1. Getur verið að mis-
munandi sé hve margir úr
árgangi þreyti prófin í
hverjum skóla? Hver metur
það hver tekur próf og hver
ekki? Ef svo er væri þá ekki
rétt að birta líka þátttöku %
í prófinu fyrir hvem skóla?
2. Er það rétt að kennsl-
an sé ekki samræmd milli
skóla? T.d. mismunandi
tímafjöldi við kennslu í
samræmdu greinunum.
Sögusagnir hef ég heyrt um
að í sumum skólum sé felld
niður kennsla í einstökum
námsgreinum svo að meiri
tími gefist til þjálfunar í
samræmdu greinunum?
3. Getur það verið að
ákveðinn hópur kennara
miði kennsluna í sam-
ræmdu greinunum beinh'nis
við prófformið á samræmdu
prófúnum og skapi þannig
sínum nemendum forskot?
Með ósk um svör, þess
efnis að ég fari með rangt
mál!
Sverrir Heiðar Júhusson,
kcnnari.
Tapað/fundið
Poki með sundfatnaði
í óskilum
POKI með handklæði,
sundskýlu og gleraugum
fannst um síðustu helgi við
sundlaugarnar. Upplýsing-
ar í síma 588 0296.
Þríkross týndist
ÞRÍKROSS merktur
„Stefán" týndist í miðbæn-
um fyrir miðjan júlí. Þeir
sem gætu gefið upplýsing-
ar hafi samband við Elínu í
síma 567 5824.
Dýrahald
Epli er týnd
KISAN okkar hún Epli er
týnd. Hennar er sárt sakn-
að. Epli er 8 mánaða
kolsvört læða sem er
blanda af síamsketti og
venjulegum. Hún ber
keðju úr hlekkjum um
hálsinn en ekkert merki-
spjald. Epli sást síðast
heima (á Tunguvegi 1 í Bú-
staðahverfi) miðvikudags-
kvöldið 14. júlí. Þeir sem
halda að þeir hafi séð kis-
una okkar eru vinsamleg-
ast beðnir um að hafa sam-
band við okkur í síma
588 8823/ 699 8823 eða
553 9922/896 1048.
SKÁK
Um.vjón Margeir
Pótnrsson
STAÐAN kom upp á Politiken Cup-
mótinu í Kaupmannahöfn í sumar í
viðureign tveggja Dana. Henrik EI
Kher (2.330) var með hvítt, en Lars
Schandorff (2.510) hafði svart og átti
leik.
22. - Rxg2! 23. Rxg2 - Bf3 24. Hgl -
Hxg2 25. Hxg2 - Hg8 26. Hcgl -
Hxg2 27. Hxg2 - Dg7 28. Re6 - Dxg2
mát
Röð efstu manna á mótinu varð:
1.-2. Baburin, Irlandi og Hillarp-Pers-
son, Svíþjóð 8'A v., 3.-13. Nick deFir-
mian, Bandaríkjunum, Karl Mah,
Christopher Ward og Luke McShane,
Englandi, Henrik Danielsen, Carsten
Höi, Erling Mortensen, Lars
Schandorff og Sune Berg Han-
sen, Danmörku, Jonas Bark-
hagen og Stefan Schneider, Sví-
þjóð, 8 v.
Bestum árangri íslensku kepp-
endanna náðu þeir Róbert Harð-
arson með 7 vinninga og Stefán
Kristjánsson með 6‘/2 v.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI ákvað að verja síðast-
liðnu laugardagskvöldi til að
auðga andann og fór á tónleika Skál-
holtshátíðar. Tilfinningin sem því
fylgdi að yfirgefa óteljandi afþrey-
ingarmöguleika í þéttbýlinu, bíóhús
og fleira, var ekki óblandin, en af
hverju ekki dálítið sýnishorn af
sveitasælunni og gæðamúsík með?
Geislaspilari er afbragðs tæki en
kemur seint í staðinn fyrir að heyra
fólk túlka tónlistina hér og nú og
verða þannig næstum því þátttakandi
í afrekinu. Imyndunaraflið verður
svo að duga ef reynt er að átta sig á
þrotlausum æfingunum sem þarf að
stunda til að ná tökum á hljóðfæri
eins og til dæmis sellói, geta töfrað
fram blíðuna og dýptina sem angur-
værir strengimir eiga svo mikið af.
xxx
KIRKJAN var nær fullskipuð,
séra Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup ávarpaði gestina og
kynnti flytjendur en meðal þeirra var
Bergþór Pálsson óperusöngvari _sem
söng meðal annars verk eftir Áma
Thorsteinsson og Sigvalda Kaldalóns.
Annar listamaður og ungur að áram
kom auk þess Víkverja á óvart. Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir er aðeins 21
árs en söng af slíku öryggi að mörg
þaulreynd söngkonan hefði mátt vel
við una. Dúettar hennar með Berg-
þóri í Amazing Grace og Panis Ang-
elicus vora einstaklega fallegir.
Fjöldi hljóðfæraleikara kom einnig
fram og alltaf verður Víkverji jafn
hrifinn þegar hann heyrir jafn vel
leikið á trompet eins og þama var
raunin. Sé flytjandinn ekki búinn að
ná tökum á hljóðfærinu verða áheyr-
endur nefnilega að taka á allri sinni
þolinmæði eins og þeir sem búið hafa
í grennd við tónlistarnema þekkja.
En einhverju verðum við hin stund-
um að fórna fyrir listina.
XXX
ÓPUR unglinga, aðallega stúlk-
ur úr Kammerkór Biskups-
tungna en einnig Unglingakór Sel-
foss og Kór Menntaskólans að Laug-
arvatni undir stjórn Hilmars Amar
Agnarssonar og strengjasveit undir
stjórn Lilju Hjaltadóttur luku svo
kvöldinu með Gloriu Vivaldis, áhrifa-
miklu verki sem sennilega var fram-
flutt af kór ungra stúlkna á munaðar-
leysingjahæli í Feneyjum á 18. öld.
Séra Sigurður fræddi einnig gestina
á því að Vivaldi, sem var prestur,
hefði nærri því misst hempuna þar
sem hann var harðlega gagnrýndur
fyrír að sinna tónlistinni um of á
kostnað kristindómsins!
Víkverji ætlar sér ekki að reyna að
draga úr tekjum ferðaþjónustufólks
utan suðvesturhornsins en á heim-
leiðinni rifjaði hann upp allt sem
hægt er að gera ef Reykvíkingur
verður að láta sér nægja dagsferð út
fyrir borgarmörkin. Á síðari áram
hefur nefnilega bæst við margt sem
einhvern veginn virðist svo sjálfsagt
og eðlilegt þegar einhver er búinn að
hafa írumkvæðið.
XXX
NÚ ER hægt að skoða gripina í
kjallara Skálholts með aðstoð
leiðsögumanns, steinkistu Páls bisk-
ups frá því um 1.200 og fleira hnýsi-
legt. Á Þingvöllum er hægt að fá
sams konar þjónustu ef ætlunin er að
kanna gamla þingstaðinn og nú er
hægt að fara í skoðunarferð út á
vatnið á Sómabáti. Eyjarnar missa
kannski einhverja dulúð við að stíga
á land en Víkverji vill geta svalað for-
vitninni og sannreynt að þar búi eng-
inn nema steinrannin tröll.