Morgunblaðið - 27.07.1999, Page 1

Morgunblaðið - 27.07.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913 167. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS KFOR eyk- ur viðbiín- að í Kosovo Milosevic krefst þess að serbnesk- ar hersveitir fari á ný tii héraðsins Gracko, Pristína, Belprad. Reuters, AFP, AP, The Daily Telegraph. KFOR, friðargæslusveitir undir stjóm Atlantshafsbandalagsins (NATO), hafa aukið viðbúnað í þeim þorpum í Kosovo, þar sem Serbar eru í meirihluta, í kjölfar grimmdarverka helgarinnar en þá voru fjórtán Serb- ar drepnir í þorpinu Graeko, um 15 km frá Pristína, héraðshöfuðborg Kosovo. Fleiri eftirlitsstöðvum hefur verið komið upp í Kosovo til viðbótar þeim sem fyrir voru, en að sögn Mike Jackons, yfirmanns KFOR, leggja friðargæsluliðar nú áherslu á að sefa reiði Serba, sem óttast nú mjög um öryggi sitt, og að taka á vaxandi þjóð- emisdeilum í héraðinu. Ráðgert hafði verið að útfor karl- mannanna sem myrtir vom sl. föstu- dagskvöld færi fram í gær en henni var frestað þar sem krufningu var ekki lokið. Miklar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar fyrir útförina, sem fara mun íram eftir örfáa daga, en ráðgert er að um fjögur hundrað friðargæsluliðum ásamt brynvörðum bílum og þyrlum verði beitt til að tryggja að jarðarförin fari friðsam- lega fram. Aukinn viðbúnaður er við Gracko og þrátt fyrir að talsmenn NATO og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafi heitið því að finna morðingjana og koma yfir þá lögum, hafa a.m.k. 20 Serbar óskað eftir að fá fylgd friðargæslu- liða burt frá Kosovo. Segjast þeir óttast um öryggi sitt og telja friðargæslusveitir ekki sinna starfi sínu sem skyldi við að tryggja öryggi þeirra fyi'ir ágangi Kosovo- Albana. Þá sögðust serbneskir harð- línumenn í Polje í Kosovo myndu hefja gagnárásir á Albana ef KFOR herti ekki öryggisgæslu í héraðinu. Leiðtogar Frelsishers Kosovo (KLA) hafa fordæmt morðin og vísað á bug ásökunum Serba um að liðsmenn KLA beri ábyrgð á þeim. Frétta- skýrendur óttast nú að ný alda átaka breiðist út í Kosovo vegna vaxandi spennu milli Serba og Albana. Segir NATO og SÞ bera ábyrgð Slobodan Milosevic, forseti Júgó- slavíu, sagði ábyrgð á grimmdarverk- inu „hvfla alfarið á NATO og SÞ,“ en serbneskir íbúar Gracko höfðu fyrir rúmri viku beðið breska fiiðargæslu- liða um að efla öryggisgæslu í þorp- inu af ótta við árásir Albana. Þá hefur Milosevic krafist þess að serbneska hernum verði leyft að halda aftur til Kosovo til að tryggja öryggi Serba í héraðinu. Hefur sendiherra Júgó- slavíu hjá SÞ óskað eftir því að boðað verði til neyðarfundar hjá Öryggis- ráðinu vegna þessa. Ótti við uppreisn ástæðulaus Teheran. Reuters. OTTI bæði heimafyrir og erlendis um yfirvofandi uppreisn gegn Mo- hammad Khatami, forseta Irans, er ástæðulaus, en víðtækar tilraunir til að grafa undan pólitískum og félags- legum umbótum hans eru enn alvar- leg ógnun, að því er bróðir forsetans sagði í gær. Reza Khatami sagði götuóeirðirn- WTO fellst á innflutn- ingsbann Genf. Reuters. HEIMSVIÐSKIPTASTOFNUNIN (WTO) samþykkti í gær innílutn- ingsbann Bandaríkjanna og Kanada á völdum sælkeravörum frá aðildar- ríkjum Evrópusambandsins (ESB). Er bannið rakið til deilna Bandaríkj- anna og ESB um innflutning á nautakjöti og er talið að það muni leiða til tekjutaps ESB-ríkja sem nemi um níu milljörðum ísl. króna. Á fundi WTO í gær lýstu fulltrúar Bandaríkjanna því yfir að innflutn- ingsbannið kæmi til framkvæmda 29. júlí nk. ar í íran að undanförnu hluta af skipulögðum tilraunum íhaldsafla í landinu til að hrekja forsetann frá völdum. Hefði þetta verið reynt allar götur síðan hann vann stórsigur í kosningunum 1997 og yrði haldið áfram uns kosningar fara fram í landinu í febrúar næstkomandi. Óeirðirnar fylgdu í kjölfar mót- mæla stúdenta við banni sérstaks dómstóls á útgáfu dagblaðsins Saíam, sem fylgdi Khatami að mál- um. Útgefandi blaðsins var í gær dæmdur sekur um að hafa birt meint leyniskjöl og borið út óhróður um embættismenn og þingmenn. Rit- stjórar íranskra dagblaða, sem hlynntir era umbótastefnu Khatam- is, fordæmdu sakfellinguna. Þrír helstu leiðtogar lítils ílokks þjóðernissinna, Iranska þjóðar- flokksins, hafa verið hnepptir í varð- hald, að því er leyniþjónustan greindi frá í gær. Vora þeir hand- teknir þegar götuóeirðir bratust út í Teheran um miðjan mánuðinn. Er þremenningunum gefið að sök að hafa æst upp óeirðaseggi og haft í frammi blekkjandi slagorð gegn heilögum gildum. Þeir hefðu einnig veitt viðtöl við erlenda fjölmiðla og farið rangt með staðreyndir. Reuters HOPUR serbneskra hermanna hóf í gær hungurverkfall við aðalstöðvar hersins í Nis. Þeir krefjast þess að fá greidd laun fyrir herþjónustu á meðan á loftárásum Atlantshafsbandalagsins stóð. Níu liðsmenn Júgóslavíuhers hófu hungurverkfall í gær við höf- uðstöðvar hersins í Nis í suðurhluta Serbíu. Þeir krefjast þess að fá greidd laun fyrir herþjónustu sína á tímum loftárása NATO á Júgó- slavíu. Nebojsa Pavkovic, yfirmaður hersins í Kosovo, skipaði mönnun- um að hætta hungurverkfallinu hið fyrsta. „Þið þykist vera föðurlands- vinir og nú biðjið þið um peninga,“ sagði Pavkovic. Víðar var mótmælt og i Sabac söfnuðust a.m.k. 3.000 manns saman í gær og kröfðust afsagnar Milosevics. Um 25.000 manns söfnuðust saman í Nis í sama tilgangi auk þess sem fimm þúsund manns í Sombor kröfð- ust þess að herinn hætti stuðningi sínum við stjómina. Pavkovic hefur varað stjórnarand- stöðuna við því að halda áfram að skipuleggja mótmæli gegn forsetan- um og sagði hann að svo gæti farið að herinn hæfi íhlutun sem kynni að enda í blóðbaði. Samtök um breyt- ingar, sem eru regnhlífasamtök stjórnarandstöðuflokka, virtu um- mæli Pavkovic hins vegar að vettugi er þau gáfu út þá yfirlýsingu í gær að þau hygðust boða til almenns verkfalls í byrjun september, í því augnamiði að þrýsta á Milosevic að fara frá völdum. Leitað að flugvél á Grænlandi LEIT hófst í gær að flugvél sem lagði af stað frá Reykjavík- urflugvelli til Grænlands um kl. 10 í gærmorgun. Tveir erlendir menn eru um borð í vélinni. Flugvélin, sem er lítfl tveggja hreyfla vél af gerðinni BE58, er á bresku skráningamúmeri. Um borð í henni era Bandaríkjamað- ur, sem var að kaupa hana í Evr- ópu, og sölumaðurinn. Áætluðu þeir að lenda vélinni í Nuuk á vesturströnd Grænlands en vegna ísingar í lofti og slæms veðurs sneru þeir við um kl. 14 er þeir vora yfir miðjum Græn- landsjökli. Þá tóku þeir stefnuna á Kulusuk en síðast heyrðist til þefrra um kl. 15 er þeir áttu skammt ófarið þangað. Grænlenskar leitarsveitir og þyrla leituðu vélarinnar í gær en vegna veðurs urðu þær frá að hverfa um kl. 20. Var leitinni frestað þangað til í dag. HASSAN Marokkókon- ungur borinn til grafar ÚTFÖR Hassans II, konungs Marokkó, fór fram á sunnudag- inn að viðstöddum mörgum stjórnmálaleiðtogum hvaðanæva úr heiminum. Á myndinni sést fjöldi fólks, er var viðstaddur jarðarförina, við Hassan-turninn í Rabat, höfuðborg Marokkó. Þúsundir manna gengu um götur borgarinnar til að minnast kon- ungs síns, sem verið hafði við völd í 38 ár. ■ Hann var/24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.