Morgunblaðið - 27.07.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
167. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
KFOR eyk-
ur viðbiín-
að í Kosovo
Milosevic krefst þess að serbnesk-
ar hersveitir fari á ný tii héraðsins
Gracko, Pristína, Belprad. Reuters, AFP, AP, The Daily Telegraph.
KFOR, friðargæslusveitir undir
stjóm Atlantshafsbandalagsins
(NATO), hafa aukið viðbúnað í þeim
þorpum í Kosovo, þar sem Serbar eru
í meirihluta, í kjölfar grimmdarverka
helgarinnar en þá voru fjórtán Serb-
ar drepnir í þorpinu Graeko, um 15
km frá Pristína, héraðshöfuðborg
Kosovo. Fleiri eftirlitsstöðvum hefur
verið komið upp í Kosovo til viðbótar
þeim sem fyrir voru, en að sögn Mike
Jackons, yfirmanns KFOR, leggja
friðargæsluliðar nú áherslu á að sefa
reiði Serba, sem óttast nú mjög um
öryggi sitt, og að taka á vaxandi þjóð-
emisdeilum í héraðinu.
Ráðgert hafði verið að útfor karl-
mannanna sem myrtir vom sl. föstu-
dagskvöld færi fram í gær en henni
var frestað þar sem krufningu var
ekki lokið. Miklar öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar fyrir útförina, sem
fara mun íram eftir örfáa daga, en
ráðgert er að um fjögur hundrað
friðargæsluliðum ásamt brynvörðum
bílum og þyrlum verði beitt til að
tryggja að jarðarförin fari friðsam-
lega fram.
Aukinn viðbúnaður er við Gracko
og þrátt fyrir að talsmenn NATO og
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafi heitið
því að finna morðingjana og koma
yfir þá lögum, hafa a.m.k. 20 Serbar
óskað eftir að fá fylgd friðargæslu-
liða burt frá Kosovo.
Segjast þeir óttast um öryggi sitt
og telja friðargæslusveitir ekki sinna
starfi sínu sem skyldi við að tryggja
öryggi þeirra fyi'ir ágangi Kosovo-
Albana. Þá sögðust serbneskir harð-
línumenn í Polje í Kosovo myndu
hefja gagnárásir á Albana ef KFOR
herti ekki öryggisgæslu í héraðinu.
Leiðtogar Frelsishers Kosovo (KLA)
hafa fordæmt morðin og vísað á bug
ásökunum Serba um að liðsmenn
KLA beri ábyrgð á þeim. Frétta-
skýrendur óttast nú að ný alda átaka
breiðist út í Kosovo vegna vaxandi
spennu milli Serba og Albana.
Segir NATO og SÞ bera ábyrgð
Slobodan Milosevic, forseti Júgó-
slavíu, sagði ábyrgð á grimmdarverk-
inu „hvfla alfarið á NATO og SÞ,“ en
serbneskir íbúar Gracko höfðu fyrir
rúmri viku beðið breska fiiðargæslu-
liða um að efla öryggisgæslu í þorp-
inu af ótta við árásir Albana. Þá hefur
Milosevic krafist þess að serbneska
hernum verði leyft að halda aftur til
Kosovo til að tryggja öryggi Serba í
héraðinu. Hefur sendiherra Júgó-
slavíu hjá SÞ óskað eftir því að boðað
verði til neyðarfundar hjá Öryggis-
ráðinu vegna þessa.
Ótti við uppreisn
ástæðulaus
Teheran. Reuters.
OTTI bæði heimafyrir og erlendis
um yfirvofandi uppreisn gegn Mo-
hammad Khatami, forseta Irans, er
ástæðulaus, en víðtækar tilraunir til
að grafa undan pólitískum og félags-
legum umbótum hans eru enn alvar-
leg ógnun, að því er bróðir forsetans
sagði í gær.
Reza Khatami sagði götuóeirðirn-
WTO fellst
á innflutn-
ingsbann
Genf. Reuters.
HEIMSVIÐSKIPTASTOFNUNIN
(WTO) samþykkti í gær innílutn-
ingsbann Bandaríkjanna og Kanada
á völdum sælkeravörum frá aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins (ESB).
Er bannið rakið til deilna Bandaríkj-
anna og ESB um innflutning á
nautakjöti og er talið að það muni
leiða til tekjutaps ESB-ríkja sem
nemi um níu milljörðum ísl. króna.
Á fundi WTO í gær lýstu fulltrúar
Bandaríkjanna því yfir að innflutn-
ingsbannið kæmi til framkvæmda
29. júlí nk.
ar í íran að undanförnu hluta af
skipulögðum tilraunum íhaldsafla í
landinu til að hrekja forsetann frá
völdum. Hefði þetta verið reynt allar
götur síðan hann vann stórsigur í
kosningunum 1997 og yrði haldið
áfram uns kosningar fara fram í
landinu í febrúar næstkomandi.
Óeirðirnar fylgdu í kjölfar mót-
mæla stúdenta við banni sérstaks
dómstóls á útgáfu dagblaðsins
Saíam, sem fylgdi Khatami að mál-
um. Útgefandi blaðsins var í gær
dæmdur sekur um að hafa birt meint
leyniskjöl og borið út óhróður um
embættismenn og þingmenn. Rit-
stjórar íranskra dagblaða, sem
hlynntir era umbótastefnu Khatam-
is, fordæmdu sakfellinguna.
Þrír helstu leiðtogar lítils ílokks
þjóðernissinna, Iranska þjóðar-
flokksins, hafa verið hnepptir í varð-
hald, að því er leyniþjónustan
greindi frá í gær. Vora þeir hand-
teknir þegar götuóeirðir bratust út í
Teheran um miðjan mánuðinn.
Er þremenningunum gefið að sök
að hafa æst upp óeirðaseggi og haft í
frammi blekkjandi slagorð gegn
heilögum gildum. Þeir hefðu einnig
veitt viðtöl við erlenda fjölmiðla og
farið rangt með staðreyndir.
Reuters
HOPUR serbneskra hermanna hóf í gær hungurverkfall við aðalstöðvar hersins í Nis. Þeir krefjast þess að
fá greidd laun fyrir herþjónustu á meðan á loftárásum Atlantshafsbandalagsins stóð.
Níu liðsmenn Júgóslavíuhers
hófu hungurverkfall í gær við höf-
uðstöðvar hersins í Nis í suðurhluta
Serbíu. Þeir krefjast þess að fá
greidd laun fyrir herþjónustu sína á
tímum loftárása NATO á Júgó-
slavíu. Nebojsa Pavkovic, yfirmaður
hersins í Kosovo, skipaði mönnun-
um að hætta hungurverkfallinu hið
fyrsta. „Þið þykist vera föðurlands-
vinir og nú biðjið þið um peninga,“
sagði Pavkovic.
Víðar var mótmælt og i Sabac
söfnuðust a.m.k. 3.000 manns saman í
gær og kröfðust afsagnar Milosevics.
Um 25.000 manns söfnuðust saman í
Nis í sama tilgangi auk þess sem
fimm þúsund manns í Sombor kröfð-
ust þess að herinn hætti stuðningi
sínum við stjómina.
Pavkovic hefur varað stjórnarand-
stöðuna við því að halda áfram að
skipuleggja mótmæli gegn forsetan-
um og sagði hann að svo gæti farið
að herinn hæfi íhlutun sem kynni að
enda í blóðbaði. Samtök um breyt-
ingar, sem eru regnhlífasamtök
stjórnarandstöðuflokka, virtu um-
mæli Pavkovic hins vegar að vettugi
er þau gáfu út þá yfirlýsingu í gær
að þau hygðust boða til almenns
verkfalls í byrjun september, í því
augnamiði að þrýsta á Milosevic að
fara frá völdum.
Leitað að
flugvél á
Grænlandi
LEIT hófst í gær að flugvél
sem lagði af stað frá Reykjavík-
urflugvelli til Grænlands um kl.
10 í gærmorgun. Tveir erlendir
menn eru um borð í vélinni.
Flugvélin, sem er lítfl tveggja
hreyfla vél af gerðinni BE58, er
á bresku skráningamúmeri. Um
borð í henni era Bandaríkjamað-
ur, sem var að kaupa hana í Evr-
ópu, og sölumaðurinn. Áætluðu
þeir að lenda vélinni í Nuuk á
vesturströnd Grænlands en
vegna ísingar í lofti og slæms
veðurs sneru þeir við um kl. 14
er þeir vora yfir miðjum Græn-
landsjökli. Þá tóku þeir stefnuna
á Kulusuk en síðast heyrðist til
þefrra um kl. 15 er þeir áttu
skammt ófarið þangað.
Grænlenskar leitarsveitir og
þyrla leituðu vélarinnar í gær
en vegna veðurs urðu þær frá
að hverfa um kl. 20. Var leitinni
frestað þangað til í dag.
HASSAN
Marokkókon-
ungur borinn
til grafar
ÚTFÖR Hassans II, konungs
Marokkó, fór fram á sunnudag-
inn að viðstöddum mörgum
stjórnmálaleiðtogum hvaðanæva
úr heiminum. Á myndinni sést
fjöldi fólks, er var viðstaddur
jarðarförina, við Hassan-turninn
í Rabat, höfuðborg Marokkó.
Þúsundir manna gengu um götur
borgarinnar til að minnast kon-
ungs síns, sem verið hafði við
völd í 38 ár.
■ Hann var/24