Morgunblaðið - 27.07.1999, Page 14

Morgunblaðið - 27.07.1999, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MINJAGARÐURINN eins og hann mun líta út samkvæmt fyrirliggjandi tillögu. HLUTI af opna svæðinu milli Tónlistarskólans og íbúðarhúsa við Hofslund. Nýr bæjargarður við Tónlistarskólann Garðabær KYNNTAR hafa verið tillögur að nýjum bæjargarði í Garða- bæ. Garðurinn verður um- hverfis nýja tónlistarskólann og skiptist í þrjá hluta. í fyrsta lagi verður minjagarður sem varðveitir fornleifar við Hofs- staði. I öðru lagi garður til- heyrandi Tónlistarskólanum og í þriðja lagi opið svæði milli Tónlistarskólans og íbúðarhúsa við Hofslund. Hofsstaðir í Garðabæ er gömul jörð og virðast fomleifa- rannsóknir benda til þess að þar hafi verið byggð frá fyrstu tíð íslandsbyggðar. Síðasta sumar lauk fomleifarannsókn- um á Hofsstöðum og sagði Ingimundur Sigurpálsson bæj- arstjóri að þótt niðurstöður lægju ekki fyrir væri án efa um fomar rústir að ræða. Hann sagði að í kjölfar þessara rann- sókna hefðu menn sýnt því áhuga að varðveita rústimar á þann hátt að þeim yrði sýndur sómi og svæðið umhverfis þær gert aðlaðandi og snyrtilegt. Niðurstaðan hefði verið sú að útbúa nokkurs konar minja- garð þar sem gengið yrði þannig frá rústunum að þeim yrði viðhaldið og þær jafnframt gerðar sýnilegar fólki. Ingimundur sagði að þrír möguleikar kæmu til greina varðandi varðveislu rústanna. I fyrsta lagi að ganga frá svæð- inu og láta það halda sér eins og það er í dag. í öðm lagi væri hægt að hlaða rústimar upp að einhverju leyti og í þriðja lagi að endurgera húsin samkvæmt því sem rannsóknirnar sýna að þau hafi litið út. Sá möguleiki væri þó kostnaðarsamur og engin ákvörðun hafí verið tekin um slíkar framkvæmdir. Bygging Tónlistarskóla Garðabæjar er nú á lokastigi. Lóðin umhverfis skólann mun falla saman við minjagarðinn. Hægt verður að ganga út úr skólanum austanmegin beint út í garðinn og þaðan yfir í minja- garðinn. Sunnan megin er síðan ráðgert að útbúa opið svæði milli skólans og íbúðarhúsa við Hofslund. Það svæði verður þriðji og stærsti hluti bæjar- garðsins. Þar er gert ráð fyrir INGIMUNDUR Sigurpálsson bæjarstjóri Garðabæjar. Morgunblaðið/Ásdís YFIRLITSMYND sem sýnir staðsetningu bæjargarðsins umhverfis Tónlistarskólann nýja. göngustígum, litlum tjömum og hvers kyns gróðri sem gerir garðinn að sælureit fyrir fólk í fallegu veðri. Ingimundur sagði að vænt- anlegar framkvæmdir við bæj- argarðinn væru í framhaldi af uppbyggingunni á miðbæjar- svæðinu. Garðurinn verður tengdur miðbænum með göngustígum þannig að allt svæðið myndar eina heild. Nú er verið að vinna við bíla- stæðin framan við Tónlistar- skólann en ekki verður byrjað á framkvæmdum við bæjar- garðinn fyrr en næsta sumar að sögn Ingimundar. Verið er að kynna tillögur að frágangi bæjargarðsins sem Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslags- arkitekt vann fyrir Garðabæ. Tillögurnar hafa hlotið góðan hljómgrunn hjá þeim nefndum bæjarins sem hafa haft þær til umfjöllunar. Göngustíga net þétt Kópavogur UNNIÐ er að gerð stíga fyrir gangandi vegfarend- ur og hjólreiðamenn víðs vegar í Kópavogsbæ. Bæði eru gerðir nýir stígar og eldri stígar endurgerðir. Framkvæmdirnar eru óvenjumiklar. Þær eru um- fangsmestar í nýrri hverf- um bæjarins, Smárahverfi og Lindahverfum. Einnig er verið að gera nýja stíga í Fossvogsdal og bratta stíga, svokallaða tröppu- stíga, í Digraneshlíðum. Þá er víða unnið að endurgerð eldri stíga, meðal annars við Sunnubraut.Stigurinn þar hefúr látið á sjá vegna ágangs sjávar. Hann verður nú hækkaður og gijót- hleðslu verður komið upp til að verjast því að brimið nái að éta undan stígnum. Tenging við borgina í vor var byrjað á göngustíg í Fossvogsdal. Stígurinn liggur á milli Kjarrhólma og Víkings- svæðisins. Hann verður malbikaður á næstu dög- um og lýsingu komið á. Með framkvæmdunum í Fossvogsdal verður net göngustíga í Kópavogi tengt göngustígakerfi Reykjavíkur. Morgunblaðið/Golli GÖNGUSTÍGAKERFI Reykjavíkur og Kópavogs tengjast í Fossvogsdal. Snyrt fyrir stúdenta Vesturbær UMHVERFI Skeijagarðs, nýjustu stúdentagarðanna, hefur tekið stakkaskiptum í sumar. Húsið var fullgert í ár og sumrinu hefur verið varið í að tyrfa þar í kring og útbúa göngustíga sem tengja Skeijagarð eldri hluta stúdentagarðahverf- isins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.