Morgunblaðið - 27.07.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUÐAGUR 27. JÚLÍ 1999 25
ERLENT
Israelar
ráðast á
S-Líbanon
ÍSRAELSKAR orrustuþotur
gerðu í gær ítrekaðar árásir að
meintar búðir skæruliða Hisz-
bollah-samtakanna rétt fyrir
norðan svæðið sem ísraelar
hersitja í suðurhluta Líbanons,
annan daginn í röð. Hizbollah,
sem nýtur stuðnings írans-
stjórnar, hafði lýst því yfir í
Beirút, skömmu áður en Israel-
ar gerðu fyrstu árásina í gær,
að samtökin bæru ábyrgð á
árásum sem gerðar voru á búð-
ir sem mannaðar eru ísraelsk-
um hermönnum og liðsmönnum
suður-líbanska hersins, sem er
hliðhollur Israelum.
Sjö lifðu af
flugslys
RÚSSNESK flutningaflugvél
hrapaði skömmu eftir flugtak
við borgina Irkútsk í Síberíu í
gær, en sjö manna áhöfn vélar-
innar komst af, að sögn emb-
ættismanna. Vélin var af gerð-
inni Iljúsín-76 og hafði komið
við í Irkútsk til að taka elds-
neyti á leið frá Kína til borgar-
innar Perm.
Neyðarástand
í Súdan
FRIÐARVIÐRÆÐUM í Súd-
an er lokið án þess að samið
væri um framlengingu vopna-
hlés í landinu. Hjálparstofnun á
vegum Sameinuðu þjóðanna
hefur lýst miklum áhyggjum
sínum vegna þessa en vonast
hafði verið til að senn yrði hægt
að flytja nauðsynleg hjálpar-
gögn til staða þar sem nú geis-
ar hungursneyð.
Skæruliðar
hraktir burt
INDVERJAR hafa hrakið síð-
ustu íslömsku skæruliðana frá
yfirráðasvæði sínu í Kasmír-
héraði, að því er inverski her-
inn greindi frá í gær, en um
helgina felldi hann 32 skæru-
liða. Enn kemur til stöku skot-
bardaga yfir markalínuna sem
skiptir Kasmír milli Indlands
og Pakistans, að sögn frétta-
manna.
Óttast berkla
í Japan
YFIRVÖLD heilbrigðismála í
Japan lýstu í gær yfir neyðará-
standi vegna vísbendinga um
aukna hættu á berklasýkingu.
Berklar eru enn útbreiddasti
smitsjúkdómm-inn í Japan, og
eru tilfellin þar fleiri en í flest-
um öðrum iðnríkjum.
Kirkjusókn
lengir lífíð
NY rannsókn í Bandaríkjun-
um þykir sýna að það geti ekki
síður lengt ævi mannanna að
fara reglulega í kirkju en að
hætta reykingum. Sýndi rann-
sóknin að 46% minni líkur
voru á því að gamalt fólk sem
fór vikulega í kirkju létist á
næstu sex árunum heldur en
fólk sem fór sjaldnar í kirkju,
eða alls ekki.
Maður ákærður vegna óhugnanlegs morðs á konu í þjóðgarði í Kaliforniu
Var grunaður um þrjú morð
Sacramento, EJ Portal. AP.
FULLTRÚI Bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, staðfesti í gær að maður sem handtekinn
var á laugardag fyrir morð á ungri konu í Yos-
emite-þjóðgarðinum í Kaliforníu, hefði fyrr á ár-
inu verið meðal grunaðra í þreföldu morðmáli en
verið sleppt þar sem lögregla taldi hann sak-
lausan. Telur FBI sig hins vegar nú hafa gögn í
höndunum sem tengi manninn við málið.
Viðgerðarmaðurinn Cary Stayner var í gær
færður fyrir dómara og ákærður fyrir að hafa
myrt tuttugu og sex ára gamla konu, Joie Ruth
Armstrong, en lík hennar fannst í Yosemite-
þjóðgarðinum á fimmtudag í síðustu viku. Hafði
höfuð hennar verið skilið frá búknum.
Stayner, sem er þrjátíu og sjö ára, var hand-
tekinn á laugardag á nektar-
nýlendu í Wilton, nærri
Sacramento, eftir að maður
nokkur hafði þekkt hann af
myndum sem birtar höfðu
verið í sjónvarpi í kjölfar þess
að lík Armstrong fannst.
Stayner var yfirheyrður í
mars eftir að lík Carole Sund
og dóttur hennar Juli, auk líks
Silvinu Pelosso, vinar Sund
frá Argentínu, fundust í þjóð-
garðinum. FBI taldi hann þá
ekki sekan um morðin en James M. Maddock,
fulltrúi FBI, sagði í gær að alríkislögreglan teldi
AP
Cary Stayner
sig nú búa yfir gögnum sem tengdu Stayner við
morðin.
Stayner hefur starfað sem viðgerðarmaður á
gistiheimili í E1 Portal og er sagður mikill útivist-
armaður. Hann er jafnframt sagður rólyndur að
eðlisfari og vingjamlegur og hefur ekki fram að
þessu verið talinn ofbeldishneigður.
Stayner-nafnið er reyndar þegar tengt glæpa-
sögu Kaliforníuríkis órjúfanlegum böndum en
Steven Stayner, bróðir Carys, var rænt árið 1972
er hann var bam að aldri. Hann hitti ekki fjöl-
skyldu sína á ný fyrr en sjö áram síðar, eftir að
kvalarar hans höfðu kynferðislega misnotað hann
um árabil. Saga hans var seinna kvikmynduð.
Hann lést í bílslysi árið 1989.
smpimNAR
TDi EKÚFJA!
2o ára landslið kvenna í handknattleik fer á miðvikudag til Kína þar sem
þær taka þátt í úrslitakeppni Heimsmeistaramóts kvenna í þessum
aldursflokki. Fyrir okkur er þetta stór stund því aldrei áður hefur
íslenskur kvennalandsliðshópur náð því að vinna sér sæti í úrslitum á HM.
HHHii M
Konur, sýnum stuðning í verki og fjölmennum
með karlana okkar á fjáröflunar- og kveðjukvöld
í Framheimilinu við Safamýri í Reykjavík
þriðjudagskvöld 27.júlí.
Dagskrá:
19:00 Húsið opnar kl. 19.
SS-pylsur og Egils gos á 100 kr.
20:00 Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
flytur stutt ávarp og gefur tóninn fyrir
Kínaferðina.
20:05 Stuttur konsert með Kvennakór Reykjavíkur.
20:30 Leikur: U-20 kvenna gegn Úrvalsliði kvenna.
21:00 Leikur: Lið Alþingismanna gegn fréttamönnum.
21:20 Sveinn G.Waage - örugglega ennþá fyndnasti
maður Islands.
21:30 Leikur U-20 kvenna gegn Úrvalsliði kvenna
(síðari hálfleikur).
22:00 Liðið kvatt
Tekið er á móti frjálsum framlögum
í Landsbanka íslands, á reikningi
nr. 0101-26-40