Morgunblaðið - 27.07.1999, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 27.07.1999, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 SVONANÚ, ' ) ^ ÞÚLOFAÖIR! { I PÚSAGúIRAbEGGÆTI VERID SKIPSTJÓRINN í ÖAG! V (T — ] ) f-8 ( y Hundalíf ERTU BÚINN AÐ FINNA HVAÐ ER 4D? JÁ, ÉG HELD ÞAt) HÍ/jt g§! imÉ^ 1; ÞJ/X Sá J§ ~A.C*wnfcm EG HELD /U) PESSIHLUTUR PARNA SE GALLAQUR, SVO At> PEGAR HANN SNYSTÞÁ GERIR ÞETTA HVAÐPAÐNÚHEITIR EKKINEITT, SVO At> ÞETTA ÞARNA VIRKAR EKKI V Eða á mannamáli riðstraumsrafallinn er ónýtur Ljóska Ferdinand Smáfólk Þjónustulund Veiðimannsins hf. Frá Matthíasi Einarssyni: ÞAÐ VAR föstudaginn 2. júlí sem undirritaður hófst handa við að yfir- fara veiðibúnað fjölskyldunnar, enda var að koma að því sem búið var að bíða með eftirvæntingu. Veiðivötnin hafa heillað lengi og í vetur létum við loksins verða af því að panta veiði- leyfi, því ekki er ráð nema í tíma sé tekið. En nóg með það, Veiðivötnin voru frábær og sviku okkur ekki og því ekki í frásögur færandi. En þegar undirbúningur stóð sem hæst og það átti að fara að skipta um línu á síðasta veiðihjólinu kom í ljós að það vantaði bremsustillingarhnúðinn aftan á ABU-veiðihjólið. Nú voru góð ráð dýr og brunaði ég beinustu leið í Veiði- hornið (áður Veiðimaðurinn). Þar var mér tjáð að þeir væru ekki með um- boðið fyrir ABU en sá sem ég hitti fyrir þar leitaði samt sem áður dyrum og dyngjum að nýjum bremsustilling- arhnúð, en fann ekkert sem passaði á hjólið. Hann benti mér á að fara í Veiðimanninn sem væri þjónustu- og umboðsaðili ABU. Skrifaði meira að segja niður fyrir mig heimilisfang og símanúmer. Þar sem áliðið var á fóstudag þá hringdi ég á undan mér og komst að því að það var búið að loka. Þá ákvað ég að koma við í Veiði- manninum snemma á mánudags- morgni á leið út úr bænum. Spennan lá í loftinu á mánudegin- um og var farið eldsnemma á fætur til loka undirbúnings og svo var brunað í Veiðimanninn. Þar hitti ég fyrir manneskju sem tjáði mér strax að ég gæti ekki fengið að kaupa varahluti hjá þeim beint!!! Eg varð hvumsa við og spurði: „Hvers vegna“? Þá spyr viðkomandi mig hver hafi sagt mér að koma til þeirra eftir varahlut, sem ég og gerði og fékk ég þá fyrirlestur á þann veg að viðkomandi búð væri ekki mjög vönduð og að hún væri ABU og Veiðimanninum algerlega óviðkomandi og að ég ætti að snúa mér til tveggja ákveðinna verslana með alla þjónustu. Þá varð mér að orði að ég gæti sem sagt fengið vara- hlut í viðkomandi búðum. Já, nei takk! þar átti ég að skilja veiðihjólið eftir og búðin átti að senda það til Veiðimannsins sem gerir við hjólið og sendir svo til baka í búðina. Þá spurði ég hvort þetta teldist eðlilegt að það tæki 2-5 daga að fá einn lítinn vara- hlut sem auðvelt væri að skipta um. Já, starfsmanninum fannst það mjög eðlilegt og að: „Þannig viljum við þjónusta okkar viðskiptavini!!“ (orð- rétt). Þá tjáði ég viðkomandi að ég væri að fara upp í Veiðivötn eftir hálf- tíma og vantaði þennan varahlut strax. En ekki var hægt að verða við því og afgreiða þennan smáhlut og ít- rekaði starfsmaðurinn „Þjónustuleið- ina“ ætlaða fyrir ABU-eigendur. Ég sagðist þá ætla að athuga málið og bjóst til brottfarar, þá sagði af- greiðslukonan: „Ertu að fara eftir hálftíma?" og hýmaði þá yfir mér í von um góða eða réttara sagt eðlilega þjónustu. En þá segir hún við mig: „Viltu ekki bara fara með hjólið í búð- ina og skilja það þar eftir og fyrst þú ert að fara strax getur þú bara keypt ódýrt veiðihjól til að taka með í þessa ferð og hjólið verður svo tilbúið þegar þú kemur aftur.“ Ég fór vitanlega út í fússi og hét því þá þegar að kaupa aldrei neitt framar sem heitir ABU því ekki er hægt að una við svona varahlutaþjón- ustu á annars vandaðri vöru sem þekkt er fyrir að endast mönnum svo áratugum skiptir. En ég vil samt þakka Veiðihorninu þjónustuna þrátt fyrir að þeir ættu ekki réttan vara- hlut. MATTHÍAS EINARSSON, Gnoðarvogi 74, Reykjavík. Varðveitum það sem best er Frá Áma Helgasyni: NÚ HAFA borgaryfirvöld bætt alla aðstöðu við Nauthólsvíkina. í sumar- blíðunni gefst borgarbúum tækifæri á að busla og synda í volgum sjónum og iðka heilbrigt líf. En hagsmunaaðilar eru fljótir til og sjá nauðsyn þess að reka á svæðinu sjoppu og veitinga- stað með tilheyrandi leyfi til sölu á tó- baki og jafnvel áfengi. Ég vil vai'a yf- irvöld við að spilla góðum áformum með því að hleypa að þeim sem ein- ungis vilja selja og græða, „brennivín til allra flæða“. Við lesum um það á sama tíma að þörfin fyrir meðferðarheimili handa ungum vímuefnaneytendum hefur aldrei verið meiri, tugir barna bíða á götunni eftir plássi. Hremmingar þeirra eru af völdum vímunnar. Stjómvöld og yfirstjórn Reykjavíkur- borgar mega ekki missa sjónar af há- leitu markmiði, að útrýma vímunni fyrir árið 2002. Hvað dvelur íþrótta- hreyfinguna sem í orði boðar heil- brigða sál í hraustum líkama en á borði lifir á aumingjaskap meðbræðra sinna með fjárhættuspili. „Fyrir- myndar knattspymufélagið" aflar nú tekna með bjórkráarrekstri. í minni æsku var það við hún, að áfengi og íþróttir ættu ekki saman. Þegar sjón- varpsstöðvarnar sýna okkur skær- ustu stjörnumar í keppni, oftast í beinni útsendingu, em bjórauglýsing- ar hvað mest áberandi í bakgrunni. Samtök iðnaðarins æpa og emja yfir misréttinu en leggja sig þá í líma við klókindin. Arftakar manna eins og Sveinbjarnar í Ofnasmiðjunni og Sveins í Völundi sýna þá lágkúra að varpa á skjáinn siðlausum auglýsing- um þar sem horft er fram hjá löggjaf- anum. Fyrrnefndir gengnir hug- sjónamenn stóðu vörð um hollustu og heilbrigði og því er það forystu iðnað- arins til vansa að leiða menn á þenn- an hátt til ofnautnar á vímuefnum öll- uin til ógæfu. Ég hef alltaf sagt það og fullyrt að áfengisbölið sé það herfilegasta böl sem lagt er á einstaklinga og heimili. Hart er að horfa á vini sína verða böl- inu að bráð, menn og konur sem ann- ars áttu alla möguleika á að verða landi sínu og þjóð til gagns og bless- unar. Vímuefnin leika lausum hala og fjöldi glæpamanna hefur að atvinnu að ginna börn og unglinga til neyslu þeirra. Hver borgar svo fyrh' allar af- leiðingamar? það er ekki lengur tími til að vaða í villu og svíma. Geta heim- ilin leyft sér að bregðast í uppeldi bamanna? Byrjum á börnunum, höf- um fyrir þeim góða siði og varðveit- um það sem best er í mannssálinni. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.