Morgunblaðið - 27.07.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 27.07.1999, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 27. JIJLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf Sumarbúðir Hafnarfjarð- arkirkju FRÁ árinu 1997 hafa verið haldnar sumarbúðir í bæ á vegum Hafnar- fjarðarkirkju í ágústmánuði. Sumar- búðirnar fara þannig fram að börn á aldrinum 6-12 ára mæta við kirkjuna kl. 13 mánudaga til föstudaga, en sumarbúðunum lýkur hvern dag kl. 16. Margt skemmtilegt er gert: farið í ferðir í nágrenni Hafnarfjarðar, leikjadagar eru haldnir, grillað í Heiðmörkinni, Fjölskyldu- og hús- dýragarðurinn í Reykjavík sóttur heim, Hafnarfjarðarbær kannaður, buslað í sundlauginni og föndrað í safnaðarheimilinu ef veðrið er slæmt. Rétt fyrir kl. 16 er síðan stutt sunnudagaskólastund í kirkjunni. Allir krakkar eiga að koma með nesti með sér og að sjálfsögðu klædd eftir veðri. Sumarbúðir kirkjunnar hafa verið fjölsóttar þau tvö sumur sem þær hafa verið haldnar. í ár er Eyjólfur Eyjólfsson sumarbúðastjóri en með honum eru hressir krakkar sem þekkja vel til barnastarfsins. Sumarbúðum Hafnarfjarðarkirkju er skipt í fjóra flokka, einn flokk hverja viku mánaðarins. Fyrsti flokkur byrjar þriðjudaginn 3. ágúst. Hægt er að skrá börnin í einn flokk eða alla flokkana og boðið er upp á systkinaafslátt. Skráning er í síma 5551295 í Hafnarfjarðarkirkju. Öll börn á aldrinum 6-12 ára eru hjart- anlega velkomin. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Seltjarnameskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyr- irbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn Strandbergs. Rristin íhugun í Stafni, Kapellu Strandbergs, kl. 21.30-22. Heimsborgin - Rómverjabréfið, lest> ur í Vonarhöfn kl. 18.30-20. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgameskirkja. Mömmumorgunn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. VELVAKAJVPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Skotthúfan fyrst ÞAÐ var einu sinni kerl- ing sem ætlaði nú heldur betur að gera sig fína við hátíðlegt tækifæri en ákafinn var svo mikill að hún setti fyrst á sig skotthúfuna áður en hún fór í peysufötin. Núna var verið að klæða fröken Reykjavík í sparifötin. Ég er glöð yfir því að fal- lega borgin okkar verði menningarborg, en þegar kom til mín grátandi ein- stæð móðir einn daginn sem er á bótum frá Tryggingastofnun ríkis- ins og varð að leita til hjálparstofnana til að hafa í'yrir mat handa börnum sínum skyggði það á gleði mína. Því mið- ur er það nú svo að fjöl- margir eiga hræðilega erfitt í dag. Eitur- lyfjafíklar og geðsjúk- lingar ráfa um götur og torg. Það er lítil sem eng- in lausn fyrir þetta fólk. Einmanna fólk, sérstak- lega þó öryrkjar, mælir göturnar því það er svo þrengt að þeim í öllu góð- ærinu að þeir geta ekkert veitt sér. Margt fleira fólk er líka illa sett. Fólk vinnur myrkranna á mili en hefur varla ofan í sig né á. Félagsleg tengsl hafa því miður mikið rofnað. En það er alltaf verið að reyna að breiða yfir fátækt og eymd hér. Góðærið kemur til fárra. Nú þegar verið er að klæða frökenina í spari- fötin er það svipað og með kerlinguna forðum að ráðamenn hér sjá ekk- ert nema toppinn á tilver- unni. Sigrún. Þakkir fyrir góðan þátt MIG langar til þess að þakka Jónasi Jónassyni, útvarpsmanni, fyrir hans góða þátt sem hann flutti í Ríkisútvarpinu þriðju- daginn 20. júlí sl. ki. 13.05. Þáttinn nefndi hann „Kæri þú“. Ég var þá stödd í sjúkrahúsi og beið eftir að komast í smá aðgerð. Mér leiddist biðin og það sótti að mér kvíði. Eftir að hafa hlustað á þáttinn þar sem hann minntist á verslun Silla og Valda sem var mjög fróð- legt og svo á okkar ást- kæra tónskáld, Sigfús Halldórsson, sem hann lýsti svo frábærlega, breyttist allt og um mig fór ólýsanleg gleði við að hlusta á lögin hans. Það var ógleymanleg stund. Kærar þakkir. Helga Þórðardóttir. Dýrahald Kettlingur fæst gefins KETTLINGUR fæst gef- ins, 11 vikna, kassavanur. Upplýsingar í síma 862 8174. Læður fást gefins TVÆR þriggja mánaða læður fást gefins. Þær eru kassavanar og sérlega þrifnar. Fallegar, þrílitar og mjög nettar. Þær þurfa ekki að fara á sama heim- ili. Hafið samband við Guðrúnu í síma 555 3135. Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni og felur ekki í sér tilboð um sölu verðbréfa. SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA Skráning skuldabréfa Verðbréfaþing (slands hf. hefur ákveðið að taka skuldabréf Sparisjóðs Vestmannaeyja, 1. flokk 1999, á skrá þingsins. Bréfin verða skráð þriðjudaginn 3. ágúst nk. Skuldabréfin greiðast í einu lagi 10. apríl 2005, bera 5,5% fasta vexti og eru bundin vísitölu neysluverðs. Skráningar- lýsingu er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar, Kaupþingi hf. Hjá Kaupþingi hf. er einnig hægt að nálgast þau gögn sem vitnað er til í skráningarlýsingunni. Ármúli 13A 108 Reykjavík Sími 515 1500 Fax 515 1509 www.kaupthing.is KAUPÞING Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni og felur ekki í sér tilboð um sölu verðbréfa. 9«I3 KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA Skráning skuldabréfa Verðbréfaþing (slands hf. hefur ákveðið að taka skuldabréf Kaupfélags Héraðsbúa, 1. flokk 1997, á skrá þingsins. Skuldabréfin eru verð- tryggð, bundin vísitölu neysiuverðs, og bera 7,5% fasta áriega vexti. Skuldin greiðist á 10 gjalddögum ásamt vöxtum og verðbótum, þann 5. febrúar og 5. ágúst ár hvert, í fyrsta sinn 5. égúst 1998 og ( siðasta sinn 5. febrúar 2003. Bréfin verða skráð þriðjudaginn 3. ágúst nk. Skráningarlýsingu er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar, Kaupþingi hf. Hjá Kaupþingi hf. er einnig hægt að nálgast þau gögn sem vitnað er til í skráningar- lýsingunni. Ármúli 13A 108 Reykjavík Sim: 515 1500 rax 515 1509 www.kaupthing.is'. 1 KAUPÞING SKAK Umsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á White Rose mótinu í Englandi sem er að ljúka, í viðureign tveggja Englendinga. Keith Arkeli (2.462) hafði hvítt og átti leik gegn Angus Dunn- ington (2.366). Svartur lék síðast 40. - F7-f5 sem lítur vel út, en hvit- ur fann glæsilega lausn: 41. Rf6+!! - Bxf6 42. He7+! - Bxe7 43. Df7+ - Kh8 44. dxe7 og svartur gafst upp. Fyrir síðustu um- ferð á mótinu var staðan þessi: 1. Ar- kell 7% v. af 8 mögu- legum, 2. Krutti, Ungverjalandi, 5'A v., 3. Dunnington 5 v., 4. Beaumont, Englandi, 4Vz v., 5. Sigurbjöm Björns- son 4 v. o.s.frv. HVÍTUR leikur og vinnur Víkverji skrifar... að er rétt komið fram yfir kvöldmat. Ró er að færast yfir Víkverja og konu hans eftir að þau eru búin að borða yfir sig af hinu þjóðlega heilsufæði, soðnum kjöt; farsbollum, káli og kartöflum. í öðru hvoru sjónvarpinu er verið að segja sömu fréttirnar og hafa skafið innan á okkur eyrun allt frá því í býtið um morguninn. Ekkert nýtt eða hvað. Skyndilega hringir sím- inn. Sá sem hringir vill ekki láta vita hver hann er, því ekkert númer kemur á símnúmerabirtinn. Vík- verji héma, svarar karlkynið á heimilinu - hvorki hann né kven- kynið þolir fólk sem ekki þorir að láta sjá hvaðan það hringir. - Það er dæmi um vonda samvizku. I símanum er kona, sem kynnir sig með nafni, Víkverja fullkomlega ókunnug. - Gott kvöld, ég er að vinna að skoðanakönnun fyrir (nafnið getur verið hvert sem er, Gallup, Hagvangur, Félagsvísinda- stofnun, eða hvað þetta heitir allt saman) sem sagt eitthvað trúverð- ugt. - Nafn þitt hefur verið dregið út úr þjóðskrá, eða símaskrá, eða hvaða skrá sem er, algjörlega fyrir tilviljun. Við emm að kanna heimil- istækjaeign landsmanna. Vildir þú vera svo vænn að segja mér hvaða tegund sjónvarpið er á heimilinu, hve mörg sjónvörp em, hvað með myndbandstæki, þvottavél, eldavél, örbylgjuofn að ekki sé talað um tölvuna. Næstu spumingar: Hve mörg emð þið í heimili? Á hvaða tíma dagsins stundið þið vinnu? Farið þið mikið í ferðalög, um helg- ar eða í lengri ferðir um landið eða til útlanda? Hverjar em árstekjur fjölskyldunnar? XXX essar spumingar, sem í fyrstu kunna að virðast sakleysislegar og sjálfsagðar vekja hins vegar tvær stórar spurningar. Á ég að svara eða á ég ekki að svara? Sé seinni kosturinn tekinn er allt í lagi. Sé sá fyrri tekinn er aldrei að vita, að næst þegar Víkverji kemur heim úr vinnu eða útilegu - reyndar frek- ar ólíklegt - að búið sé að stela öllu steini léttara úr húsnæði hans, svo fremi sem heimilistækjalistinn hafi verið nógu girnilegur og árstekj- umar nægar. Þetta kann að virðast ýkt mynd af þessari plágu sem skoðanakann- anir em anzi oft að mati Víkverja. Fólk á að fá að vera í friði heima hjá sér á kvöldin í stað þess að taka þátt í einhverri upplýsingaöflun fyrir auglýsingaherferð fyrir hvers konar vömr. Á hinn bóginn er það sjálf- sagt að Víkverja mati að taka þátt í skoðanakönnunum, sem geta leitt til upplýsinga, sem geta nýtzt þjóð- félaginu á einhvem hátt. En að slík- um skoðanakönnunum þarf að standa með réttum hætti. xxx Félagsvísindastofnun Háskólans gengst um þessar mundir fyrir skoðanakönnun um lífsskoðun og framtíðarsýn við aldamót. Vafalítið ágætis mál. Víkverji fékk fyrir nokkm bréf frá stofnuninni, þar sem honum var sagt frá því að hann hefði fyrir tilviljun verið dreginn út úr þjóðskrá til að taka þátt í þeirri skoðanakönnun og því lýst hve mik- ilvægt væri að hún tækist vel. Sagt var að haft yrði samband við hann innan tíðar og fýrir hann lagðar ýmsar spumingar og fullum trúnaði heitið. Nokkm seinna gerist einmitt nokkuð svipað því sem að ofan var lýst. Síminn hringir, ekkert númer kemur á númerabirtinn og einhver kona kynnir sig og segist vera að fylga eftir bréfinu sem Víkveiji hafi fengið. Hún spyr hvenær hvölds hún megi koma í heimsókn og yfir- heyra Víkverja um lífsskoðun og framtíðarsýn um aldamót - og vænt- anlega fleira. Þetta taki langan tíma eða um klukkutíma og fjórðungi betur. Víkverji fór eins og venjulega í baklás þegar „nafnlaus" hringing kemur. Hann hafði heldur ekki gert ráð fyrir því að úttekt á híbýlum hans væri hluti af könnum á fram- tíðarsýn hans. Hann bað um ferst til að svara því hvenær hann gæti sætt sig við innrás af þessu tagi í helgi- dóm sinn og þegar hringt var að nýju sagðist hann enga framtíðar- sýn hafa og baðst undan heimsókn konunnar, sem ekki vildi láta vita hvaðan hún hringdi; konunnar sem var jafnvel tilbúin til að fá hann í heimsókn til sín í Háskóla Islands, að kvöldi til, því hún ynni aðeins að þessu málefni á kvöldin. Enn á ný vakna spumingar. Eins og fyrst var lýst geta slóttugir þrjótar auðveldlega notfært sér trú- girni fólks og velvilja til að kanna hvort það er þess virði að svipta það innbúi sínu eða ekki. Jafnframt skiptir það máli að friðhelgi heimil- isins fái notið sín. Að mati Víkverja er það út í hött að standa í fjórðung stundar eða lengur til að svara skoðanakönnun um val á heimilis- tækjum, þvottaefni eða brauðáti, svo einhver framleiðandi úti í bæ geti grætt meira. Mestu máli skiptir þó það, sem kallaður er trúnaður. Það er víða sagt. Trúnaði heitið! Hver er trygg- ingin? Hún er engin ef spumingum er svarað í gegn um síma, hún er engin ef spurningum er svarað augliti til auglitis. Það er kannski engin trygging því alltaf er hægt, ef vilji er fyrir hendi, að gera eyðublöð þannig að vitað sé hver svari þeim, því vitað er hver fékk þau send. Póstleiðin hlýtur þó að vera sú skásta. Á maður kannski aldrei að svara? Þessar hugleiðingar flugu í gegn- um huga Víkverja, þegar „nafn- lausa“ konan hringdi um kvöldið, þegar hann var að springa eftir að hafa etið yfir sig af kjötfarsi og káli. Vafalítið er skoðanakönnum Fé- lagsvísindastofnunar Háskóla Is- lands þörf. En eins og hana bar að garði varð Víkverji einfaldlega þversum. Víkveiji vonar að útkom- an verði marktæk án þátttöku hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.