Morgunblaðið - 27.07.1999, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 27.07.1999, Qupperneq 68
..tannlæknar mæla með þvi WrlQlx‘1^ -JEGŒSI U3££fózim ftull flmouwl sugurfteu au MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Mannfjöldi í góð- viðri í Skaftafelli Rúmlega 970 þúsund um Hvalfjarðargöngin á einu ári Búist við milljónasta bílnum í gegn í dag Á NÍUNDA hundrað manns, flestir þeirra Islendingar, voru á tjaldstæðinu í Skaftafelli í göðviðrinu um helgina, en í gær var mannfjöldinn orðinn svipað- ur því sem að jafnaði hefur ver- ið í sumar. Þór Hagalín, fram- kvæmdastjóri Þjónustumið- stöðvarinnar í Skaftafelli, segir að yfirleitt hafi verið á annað hundrað manns á svæðinu fram að síðustu helgi, eða um 20% færri en í meðalári, enda hefur að mestu verið sólarlaust síð- ustu fimm vikur. I gær var sól- skin og hitinn um 21 gráða. Þór segir að sá fjöldi sem hafi verið á svæðinu um helgina sé á mörkunum að vera of mikill, sérstaklega vegna þess að sumir gestanna hafí verið latir að ganga að snyrtiaðstöðu í þjón- ustumiðstöðinni, og því hafí myndast biðraðir við tvö minni snyrtiskýli á svæðinu. „Ef viðrar eins og hefur gert núna verður vafalaust talsverð aðsókn um verslunar- mannahelgina líka. Við erum þó ekki móttækilegir fyrir há- vaðasaman gleðskap. Þetta er fyrst og fremst tjaldstæði, þar sem á að hafa hæfilegt næði,“ segir Þór. BÚIST er við milljónasta viðskipta- vininum í Hvalfjarðargöngum fyrir hádegi í dag. Síðdegis í gær höfðu 995-996 þúsund bílar farið um göngin frá því þau voru opnuð 11. júlí í fyrra og töldu forráðamenn Spalar því að sá milljónasti færi í gegn fyrri hluta dags. Frá því gjaldtaka hófst 20. júlí í fyrra og til jafnlengdar í ár fóru rúmlega 970 þúsund bílar um göng- in en nokkur þúsund bflar fóru um þau fyrstu dagana eftir að opnað var og áður en gjaldtakan byrjaði. Gísli Gíslason, stjómarformaður Spalar, segir ætlunina að taka á móti milljónasta viðskiptavininum með viðeigandi hætti, líklega blóm- vendi og veglykli. Stefán Reynir Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Spalar, segir að enn sé beðið samþykkis bandaríska bankans John Hancock, aðallánveit- anda vegna framkvæmdanna, á hugmyndum stjómar Spalar um lækkun á gjaldskrá. Var jafnvel bú- ist við samþykki bankans fyrir næstu mánaðamót en Stefán taldi það orðið knappt. Vonast hann til að af henni geti orðið um miðjan ágúst. Morgunblaðið/RAX Hitinn í Reykjavík í júlí í meðallagi Um 70 færri sólskins- stundir SÓLIN hefur skinið talsvert minna í Reykjavík í júlí í ár en í meðal júlímánuði eða í um 100 stundir á móti um 170 stundum í meðaljúlí. Finna má sjö júlímánuði á síðustu 50 árum sem eru verri, þ.e. með allt að þriðja tug færri sólskins- stundir en júlí í ár. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir að júlí, sem senn er á enda, sé því líklega í 9. til 10. sæti síðustu 50 árin yfir þá mánuði sem fæstar hafa sólskinsstundir og væri því ekki alveg einstakur hvað það varðaði. Hann benti á að nokkrir dagar væru eftir og væri ekki frá- leitt að brugðið gæti til betri tíðar um miðja vikuna eftir súldina. Úrkoman í Reykjavík í júlí er líka yfir meðallagi sem eru 52 mm en í gær hafði mælst alls 65 mm úr- koma. Hann sagði að rigna mætti talsvert til viðbótar næstu daga til að met yrði slegið og fjöldi úr- komudaga væri nálægt meðallagi. Rignt hafði í gær í 14 daga af 26 en meðaltal rigningardaga í júlí er 18. Hitinn í júlí er nákvæmlega í meðallagi eða 10,6 gráður. Á Akur- eyri er hitinn það sem af er júlí 0,7 gráður yfir meðallagi eða 11,2 gráður. 26 stiga hiti * á Egilsstöðum MESTUR hiti á landinu í gær mældist á Egilsstöðum eða 26 stig. Hitinn komst yfir 23 stig á nokkrum stöðum austanlands í gær en í Reykjavík varð mestur hiti 11 stig. Hitinn á Neskaupstað varð 25 stig í gær, á Akurnesi skammt frá Höfn varð hitinn 24 stig og á Kirkjubæj- arklaustri var 23 stiga hiti. Á Akur- eyri komst hitinn í 21 stig og víða austanlands og norðan- var um og yfir 20 stiga hiti í gær. Þá varð 15 til 17 stiga hiti á stöku stað á Vestfjörð- Spáð er áframhaldandi blíðu á Norður- og Austurlandi í dag og heiðskíru veðri en suðvestlægum áttum og súld syðra. Hiti á Norður- landi eystra verður á bilinu 13 til 22 stig, víða um eða yfir 20 stig á Aust- urlandi og 15 til 24 stig á Suðaustur- landi. Á Suður- og Vesturlandi verð- . uK 9-15 stiga hiti og 10 til 16 stig á Vestfjörðum. ESB frestar ákvörðun um hámark díoxíns í dýrafóðri ÁKVÖRÐUN Evrópusambandsins um hámark díoxíns í dýrafóðri hefur verið frestað fram í september. Engin slík mörk hafa verið í gildi. Fyrirliggjandi tillaga var um 2.000 píkógrömm í kflói. Það hefði haft í för með sér að ekki hefði mátt nota mjöl og lýsi til fóðurgerðar, þar sem þær afurðir innihalda of mikið díoxín til þess. Tillaga þessi kom frá landbúnaðamefnd Evr- ópusambandsins í kjölfar díoxíneitrunarinnar í Belgíu fyrr í sumar. í fyrstunni kom fram til- laga um 10.000 píkógrömm í hverju kflói, slíkt hámark hefði ekki komið í veg fyrir notkun fiskimjöls og lýsis í dýrafóðri. Tillagan var tekin íyrir í fastanefnd Evrópu- sambandsins í gær og mætti þar mikilli and- stöðu. Samþykkt hennar hefði lagt fiskimjöls- og lýsisiðnað innan Evrópusambandsins í rúst Ekki hefði verið hægt að nota mjöl og lýsi í fdður og haft svipuð áhrif á laxeldi, sem er algjörlega háð fiskimjöli. Hvorki hættulegt mönnum né dýrum Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að nú verði allt kapp lagt á að sannfæra þá aðila sem koma að málinu um að þau gildi sem mæl- ast í íslenskum mjöl- og lýsisafurðum séu nátt- úruleg og hvorki hættuleg dýrum né mönnum. „Þessi tillaga um 10.000 píkógrömm er mun raunhæfari en sú sem vísindamennirnir lögðu fyrir nefndina.“ Jón Reynir Magnússon, forstjóri SR-mjöls, segir að ef þetta verði samþykkt muni það þýða að ekki verði hægt að flytja mjöl og lýsi til landa Evrópusambandsins. „Við mættum ekki einu sinni nota þessar afurðir hér heima. Hrun mjöl- framleiðslu úr físki myndi einnig hafa mikil áhrif á löndin í kringum okkur. Fiskeldisiðnað- urinn í Noregi, Skotlandi og á írlandi er algjör- lega háður fiskimjöli, þannig að það er mikið í húfi og ekki bara fyrir okkur íslendinga." Útflutningsverðmæti fiskimjöls og lýsis héð- an á síðasta ári nam 16 milljörðum króna og fór megnið til ESB. Píkógramm er afar lítil mælieining, minna en brotabrot úr grammi. Ákvörðun/24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.