Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 1
173. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vel fagnað á afmælis- deginum ELÍSABET drottningarmóðir í Bretlandi hélt upp á níutíu og níu ára afmæli sitt með pomp og pragt í gær og þykja hátíðahöldin staðfesta enn á ný að hún nýtur langmestra vinsælda meðlima konungsfjölskyldunnar hjá al- menningi í Bretlandi. Heillaóska- skeytum, blómum og blöðrum rigndi yfir drottningarmóður á afmælisdeginum og fyrir utan bú- stað hennar í London lék lúðra- sveit hermanna frá Wales afmæl- issönginn fyrir hana. Tók drottn- ingarmóðir sér síðan stutta göngu til að þakka þeim, sem komið höfðu til að hylla hana. Lúzhkov í bandalag með héraðs- ieiðtogum Moskvu. Reuters. LEIÐTOGAR helstu héraða Rúss- lands mynduðu í gær bandalag með Júrí Lúzhkov, borgarstjóra Moskvu, og sögðust vongóðir um að það yrði nógu öflugt til að valda straumhvörfum í rússneskum stjómmálum. Lúzhkov undirritaði samkomu- lag um bandalag milli flokks síns, Föðurlandsflokksins, og Alls Rúss- lands, hreyfingar áhrifamikilla leiðtoga í rússnesku héruðunum, m.a. forseta Tatarstans, Mintimers Shajmíjevs. „Það er kominn tími til að við tryggjum pólitískan stöðugleika til að koma á umbótum, vegna þess að óvissuástandið má ekki vara leng- ur,“ sagði Shajmíjev. Tíð forsætisráðherraskipti og togstreita milli Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og kommúnista í dúmunni, neðri deild þingsins, hafa valdið pólitískri óvissu sem hefur tafið efnahagsumbætur í landinu. „Við erum staðráðnir í að ná upp- byggilegum meirihluta í dúmunni sem verði síðar til þess að forsetinn geti myndað stjórn með þingmeiri- hluta á bak við sig,“ sagði Shajmíjev. „Þetta er eina leiðin til að uppræta helstu orsakir átaka milli forsetans og þingsins." Vilja Prímakov í bandalagið Lúzhkov sagði að reynt yrði að fá Jevgení Prímakov, fyrrverandi for- sætisráðherra, til að ganga í nýja bandalagið. Föðurlandsflokkurinn væri hlynntur því að Prímakov yrði efstur á landslista bandalagsins í þingkosningunum í desember. Talið er að Lúzhkov stefni að því að verða næsti forseti Rússlands en ekki er ljóst hvort hann, Príma- kov, eða einhver annar verður for- setaefni nýja bandalagsins. Nokkr- ir rússeskir stjórnmálaskýrendur segja líklegt að Prímakov verði í framboði í forsetakosningunum á næsta ári og Lúzhkov verði forsæt- isráðherraefni bandalagsins. Þeir telja að bandalag Lúzhkovs, Prímakovs og héraðsleiðtoganna kunni að reynast nær ósigrandi. Mikið manntjón í náttúruhamförum í Austur-Asíu Tuga manna leitað í húsarústum í Manila Manila, Genf. Reuters, AFP. Reuters UM 300 filippseyskir hermenn reyndu í gær að bjarga tugum manna úr rústum íbúðarhúsa sem eyðilögð- ust í jarðvegshruni í Manila í iyrra- kvöld af völdum margra daga úrhell- is. Stormar ollu einnig mikilli eyði- leggingu á Kóreuskaga og stefndu til Kína þar sem hundruð manna hafa farist af völdum flóða og 1,8 milljónir manna hafa misst heimili sín. Tugir manna hafa farist af völdum flóðanna í Asíuríkjunum síðustu daga og ekki er talið að veðrið batni á næstunni. Spáð er meira úrhelli á Filippseyjum og talið er að 60 millj- ónir manna séu í hættu vegna vatna- vaxta í Kína. Að minnsta kosti 48 manns hafa látið lífið á Filippseyjum, flestir af völdum flóða og jarðvegshruns. Mesta manntjónið varð þegar tugir íbúðarhúsa, sem reist höfðu verið í brekku í Manila, eyðilögðust í jarð- vegshruni. Tólf lík höfðu fundist í gær og talið var að 47 manns væru enn í rústunum. Björgunarsveitirnar töldu ólíklegt að fólkið væri enn á lífi, sögðust hafa heyrt raddir úr rústun- um í fyrrinótt en ekkert hefði heyrst til fólksins eftir dögun. Almannavamayfirvöld á Filipps- eyjum sögðu að rúmlega 80.000 manns hefðu þurft að flýja heimili sín vegna flóðanna. Stífla, sem sér Manila fyrir rafmagni, yfirfylltist af vatni og ár flæddu yfir bakka sína. Rúmlega 2.000 hús eyðilögðust og raftnagnslaust varð á nokkrum svæð- um. Rúmlega 400 Kínverjar hafa farist Reuters IBUAR húsa, sem hrundu í einu úthverfa Manila í fyrrakvöld, leita að verðmætum í húsarústunum. Rauði krossinn sagði í gær að 60 milljónir manna væru í hættu af völdum flóða í Yangtze-fljóti í Kína. Flóðin hafa kostað rúmlega 400 manns lífið síðustu vikur og 1,8 millj- ónir hafa misst heimili sín. Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans kvaðst ætla að senda út alþjóðlega áskorun um neyðaraðstoð vegna flóðanna í Kína og taldi hættu á að þau versnuðu. Hitabeltisstormurinn Olga færðist einnig í átt að Kína í gær eftir að hafa valdið miklu tjóni á Kóreu- skaga. Óttast er að a.m.k. 63 hafi farist í Suður-Kóreu eftir fjögurra daga óveður og 42 létu lífið í Norður- Kóreu, að sögn Rauða krossins. Opinbera fréttastofan í Norður- Kóreu sagði að vatn hefði flætt yfir 40.000 hektara ræktarlands og eyði- lagt mörg hús og opinberar bygging- ar. Að minnsta kosti 24.000 manns urðu að flýja heimili sín í Suður- Kóreu og 36.000 hektarar ræktar- lands hafa orðið flóðunum að bráð. Yfirvöld í vietnamska héraðinu Binh Thuan hafa óskað eftir mat- vælasendingum til 22.000 Víetnama sem hafa misst heimili sín á síðustu dögum. 17 manns týndu lífí í hérað- inu og tólf er enn saknað. George Robertson skipaður nýr framkvæmdastjóri NATO Segir mörg verkefni bíða bandalagsins Brussel, London, Washington. Reuters. GEORGE Robertson, nýr fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins (NATO), sagði í gær að bandalagsins biðu mörg mikilvæg verkefni í upphafi nýs árþúsunds, m.a. að auka sjálf- stæði Evrópu í varnarmálum og bæta samskipti sín við Rússa. Robert- son var formlega skipaður í starfið í gær en hann tekur við því í október þegar Javier Solana gerist æðsti talsmaður Evrópusambandsins í utanríkis- og öryggismálum. Mun Robertson gegna áfram stöðu varnarmálaráðherra í bresku ríkis- stjórninni þangað tdl. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær afar ánægður með skipun Robertsons. „George Robertson býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þarf til að gegna þessu mikilvæga starfi vel. NATO gæti ekki verið í betri hönd- um nú þegar bandalagið horfir til nýs árþúsunds," sagði Blair. Nauðsynlegt að draga lærdóm af Kosovo-stríðinu Javier Solana, fráfarandi fram- kvæmdastjóri NATO, lýsti Robert- son einnig sem afar hæfum manni og Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði skipun hans og sagði Rob- ertson hafa sýnt og sannað, m.a. í Kosovo-stríðinu, að hann væri hæf- ur leiðtogi. Á fundi með fréttamönnum í London í gær sagðist Robertson taka við framkvæmdastjórastöð- unni hjá NATO á miklum umbreyt- ingatímum. „Við verðum að læra af reynslu okkar í Kosovo-stríðinu en einnig átta okkur á þeim skilaboð- um sem það hefur fært okkur, sem sé þeim að Evrópa verður að beita sér meira í eigin öryggismálum," sagði Robertson. Hann hét því þó að tryggja að aukið sjálfstæði Evrópuríkjanna í varnarmálum kæmi ekki niður á farsælu samstarfi við Bandaríkin. Sagði hann einnig að NATO myndi rétta út vinarhönd til Rússa, Ukra- ínumanna og annarra nágranna sinna „í leit að betra öryggi í álf- unni“. ■ Segir öryggi/27 Æska Clint- ons „enginn dans á rósum“ Washington. Reuters. BILL Clinton Baudaríkjaforseti sagði í gær að æska sín hefði ekki verið neinn dans á rósum. Hann sagði hins vegar að hvorki hann né eiginkona hans, Hillary, hygðust með tilvísunum í erfíða æsku reyna að afsaka fram- hjáliald hans. „Æska mín var enginn dans á rós- um,“ sagði Clinton er hann tjáði sig í fyrsta skipti um þau ummæli Hillary í viðtali við tímaritið Talk að sálrænt ofbeldi, sem forsetinn mátti þola í æsku, gæti verið orsök kvensemi hans. „En ég held ekki að hægt sé að lesa þetta viðtal og halda því fram að þar hafi Hillary verið að afsaka gjörðir mínar," sagði Clinton. „Ég hef ekki reynt að afsaka gjörðir sem sannarlega voru óafsakanleg- ar og það hefur hún ekki heldur gert, trúið mér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.