Morgunblaðið - 05.08.1999, Síða 1
173. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vel fagnað
á afmælis-
deginum
ELÍSABET drottningarmóðir í
Bretlandi hélt upp á níutíu og níu
ára afmæli sitt með pomp og
pragt í gær og þykja hátíðahöldin
staðfesta enn á ný að hún nýtur
langmestra vinsælda meðlima
konungsfjölskyldunnar hjá al-
menningi í Bretlandi. Heillaóska-
skeytum, blómum og blöðrum
rigndi yfir drottningarmóður á
afmælisdeginum og fyrir utan bú-
stað hennar í London lék lúðra-
sveit hermanna frá Wales afmæl-
issönginn fyrir hana. Tók drottn-
ingarmóðir sér síðan stutta
göngu til að þakka þeim, sem
komið höfðu til að hylla hana.
Lúzhkov í
bandalag
með héraðs-
ieiðtogum
Moskvu. Reuters.
LEIÐTOGAR helstu héraða Rúss-
lands mynduðu í gær bandalag
með Júrí Lúzhkov, borgarstjóra
Moskvu, og sögðust vongóðir um
að það yrði nógu öflugt til að valda
straumhvörfum í rússneskum
stjómmálum.
Lúzhkov undirritaði samkomu-
lag um bandalag milli flokks síns,
Föðurlandsflokksins, og Alls Rúss-
lands, hreyfingar áhrifamikilla
leiðtoga í rússnesku héruðunum,
m.a. forseta Tatarstans, Mintimers
Shajmíjevs.
„Það er kominn tími til að við
tryggjum pólitískan stöðugleika til
að koma á umbótum, vegna þess að
óvissuástandið má ekki vara leng-
ur,“ sagði Shajmíjev.
Tíð forsætisráðherraskipti og
togstreita milli Borís Jeltsíns
Rússlandsforseta og kommúnista í
dúmunni, neðri deild þingsins, hafa
valdið pólitískri óvissu sem hefur
tafið efnahagsumbætur í landinu.
„Við erum staðráðnir í að ná upp-
byggilegum meirihluta í dúmunni
sem verði síðar til þess að forsetinn
geti myndað stjórn með þingmeiri-
hluta á bak við sig,“ sagði
Shajmíjev. „Þetta er eina leiðin til
að uppræta helstu orsakir átaka
milli forsetans og þingsins."
Vilja Prímakov í bandalagið
Lúzhkov sagði að reynt yrði að fá
Jevgení Prímakov, fyrrverandi for-
sætisráðherra, til að ganga í nýja
bandalagið. Föðurlandsflokkurinn
væri hlynntur því að Prímakov yrði
efstur á landslista bandalagsins í
þingkosningunum í desember.
Talið er að Lúzhkov stefni að því
að verða næsti forseti Rússlands
en ekki er ljóst hvort hann, Príma-
kov, eða einhver annar verður for-
setaefni nýja bandalagsins. Nokkr-
ir rússeskir stjórnmálaskýrendur
segja líklegt að Prímakov verði í
framboði í forsetakosningunum á
næsta ári og Lúzhkov verði forsæt-
isráðherraefni bandalagsins. Þeir
telja að bandalag Lúzhkovs,
Prímakovs og héraðsleiðtoganna
kunni að reynast nær ósigrandi.
Mikið manntjón í náttúruhamförum í Austur-Asíu
Tuga manna leitað í
húsarústum í Manila
Manila, Genf. Reuters, AFP.
Reuters
UM 300 filippseyskir hermenn
reyndu í gær að bjarga tugum manna
úr rústum íbúðarhúsa sem eyðilögð-
ust í jarðvegshruni í Manila í iyrra-
kvöld af völdum margra daga úrhell-
is. Stormar ollu einnig mikilli eyði-
leggingu á Kóreuskaga og stefndu til
Kína þar sem hundruð manna hafa
farist af völdum flóða og 1,8 milljónir
manna hafa misst heimili sín.
Tugir manna hafa farist af völdum
flóðanna í Asíuríkjunum síðustu daga
og ekki er talið að veðrið batni á
næstunni. Spáð er meira úrhelli á
Filippseyjum og talið er að 60 millj-
ónir manna séu í hættu vegna vatna-
vaxta í Kína.
Að minnsta kosti 48 manns hafa
látið lífið á Filippseyjum, flestir af
völdum flóða og jarðvegshruns.
Mesta manntjónið varð þegar tugir
íbúðarhúsa, sem reist höfðu verið í
brekku í Manila, eyðilögðust í jarð-
vegshruni. Tólf lík höfðu fundist í
gær og talið var að 47 manns væru
enn í rústunum. Björgunarsveitirnar
töldu ólíklegt að fólkið væri enn á lífi,
sögðust hafa heyrt raddir úr rústun-
um í fyrrinótt en ekkert hefði heyrst
til fólksins eftir dögun.
Almannavamayfirvöld á Filipps-
eyjum sögðu að rúmlega 80.000
manns hefðu þurft að flýja heimili sín
vegna flóðanna. Stífla, sem sér
Manila fyrir rafmagni, yfirfylltist af
vatni og ár flæddu yfir bakka sína.
Rúmlega 2.000 hús eyðilögðust og
raftnagnslaust varð á nokkrum svæð-
um.
Rúmlega 400 Kínverjar
hafa farist
Reuters
IBUAR húsa, sem hrundu í einu úthverfa Manila í fyrrakvöld, leita að verðmætum í húsarústunum.
Rauði krossinn sagði í gær að 60
milljónir manna væru í hættu af
völdum flóða í Yangtze-fljóti í Kína.
Flóðin hafa kostað rúmlega 400
manns lífið síðustu vikur og 1,8 millj-
ónir hafa misst heimili sín.
Alþjóðasamband Rauða krossins
og Rauða hálfmánans kvaðst ætla að
senda út alþjóðlega áskorun um
neyðaraðstoð vegna flóðanna í Kína
og taldi hættu á að þau versnuðu.
Hitabeltisstormurinn Olga færðist
einnig í átt að Kína í gær eftir að
hafa valdið miklu tjóni á Kóreu-
skaga. Óttast er að a.m.k. 63 hafi
farist í Suður-Kóreu eftir fjögurra
daga óveður og 42 létu lífið í Norður-
Kóreu, að sögn Rauða krossins.
Opinbera fréttastofan í Norður-
Kóreu sagði að vatn hefði flætt yfir
40.000 hektara ræktarlands og eyði-
lagt mörg hús og opinberar bygging-
ar.
Að minnsta kosti 24.000 manns
urðu að flýja heimili sín í Suður-
Kóreu og 36.000 hektarar ræktar-
lands hafa orðið flóðunum að bráð.
Yfirvöld í vietnamska héraðinu
Binh Thuan hafa óskað eftir mat-
vælasendingum til 22.000 Víetnama
sem hafa misst heimili sín á síðustu
dögum. 17 manns týndu lífí í hérað-
inu og tólf er enn saknað.
George Robertson skipaður nýr framkvæmdastjóri NATO
Segir mörg verkefni
bíða bandalagsins
Brussel, London, Washington. Reuters.
GEORGE Robertson, nýr fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), sagði í gær að
bandalagsins biðu
mörg mikilvæg
verkefni í upphafi
nýs árþúsunds,
m.a. að auka sjálf-
stæði Evrópu í
varnarmálum og
bæta samskipti sín
við Rússa. Robert-
son var formlega
skipaður í starfið í
gær en hann tekur við því í október
þegar Javier Solana gerist æðsti
talsmaður Evrópusambandsins í
utanríkis- og öryggismálum. Mun
Robertson gegna áfram stöðu
varnarmálaráðherra í bresku ríkis-
stjórninni þangað tdl.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist í gær afar
ánægður með skipun Robertsons.
„George Robertson býr yfir öllum
þeim eiginleikum sem þarf til að
gegna þessu mikilvæga starfi vel.
NATO gæti ekki verið í betri hönd-
um nú þegar bandalagið horfir til
nýs árþúsunds," sagði Blair.
Nauðsynlegt að draga lærdóm
af Kosovo-stríðinu
Javier Solana, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri NATO, lýsti Robert-
son einnig sem afar hæfum manni
og Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fagnaði skipun hans og sagði Rob-
ertson hafa sýnt og sannað, m.a. í
Kosovo-stríðinu, að hann væri hæf-
ur leiðtogi.
Á fundi með fréttamönnum í
London í gær sagðist Robertson
taka við framkvæmdastjórastöð-
unni hjá NATO á miklum umbreyt-
ingatímum. „Við verðum að læra af
reynslu okkar í Kosovo-stríðinu en
einnig átta okkur á þeim skilaboð-
um sem það hefur fært okkur, sem
sé þeim að Evrópa verður að beita
sér meira í eigin öryggismálum,"
sagði Robertson.
Hann hét því þó að tryggja að
aukið sjálfstæði Evrópuríkjanna í
varnarmálum kæmi ekki niður á
farsælu samstarfi við Bandaríkin.
Sagði hann einnig að NATO myndi
rétta út vinarhönd til Rússa, Ukra-
ínumanna og annarra nágranna
sinna „í leit að betra öryggi í álf-
unni“.
■ Segir öryggi/27
Æska Clint-
ons „enginn
dans á rósum“
Washington. Reuters.
BILL Clinton Baudaríkjaforseti
sagði í gær að æska sín hefði ekki
verið neinn dans á rósum. Hann
sagði hins vegar
að hvorki hann né
eiginkona hans,
Hillary, hygðust
með tilvísunum í
erfíða æsku reyna
að afsaka fram-
hjáliald hans.
„Æska mín var
enginn dans á rós-
um,“ sagði Clinton
er hann tjáði sig í fyrsta skipti um
þau ummæli Hillary í viðtali við
tímaritið Talk að sálrænt ofbeldi,
sem forsetinn mátti þola í æsku,
gæti verið orsök kvensemi hans.
„En ég held ekki að hægt sé að
lesa þetta viðtal og halda því fram
að þar hafi Hillary verið að afsaka
gjörðir mínar," sagði Clinton. „Ég
hef ekki reynt að afsaka gjörðir
sem sannarlega voru óafsakanleg-
ar og það hefur hún ekki heldur
gert, trúið mér.“