Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 59
FÓLK I FRETTUM
MYNPBÖNP
Hættuleg
hugmynda-
fræði
Saga Bandaríkjanna X
(American HistoryX)_
Drama
irkV.'i
Framleiðsla: John Morrissey. Leik-
stjórn: Tony Kaye. Handrit: David
McKenna. Kvikmyndataka: Tony Ka-
ye. Tónlist: Anne Dudley. Aðalhlut-
verk: Edward Norton, Edward Fur-
long og Beverly D’Angelo. 120 mín.
Bandarísk. Útgófa, dagsetning. Ald-
urstakmark.
Bílstjóri
í vanda
Sonur minn öfgamaðurinn
(My Son the Fanatic)_
Gamanmynd
★ 2
Leikstjórn: Udayan Prasad. Aðalhlut-
verk: Rachel Griffiths og Stellan
Sarsgord. 84 mín. Bresk. Háskólabíó,
júlí 1999. Aldurstakmark: 12 ár
HVORT sem það er vegna þess
að leikstjórinn fékk ekki að ráða
neinu eða vegna einhvers annars
olli þessi mynd
~T"m &—;zri mér nokkrum von-
“~í brigðum. Gallinn
liggur í persónu-
sköpuninni, bæði
aðalpersónu og
, sumum aukaper-
Á / jSjjT sónum myndar-
jrt ' :>^TV innar. Margt er
-----mjog vel gert, ser-
staklega mynda-
takan. Leikstjórinn er þaulvanur
auglýsingaleikstjóri sem er ber-
sýnilegt í öllu myndmáli frásagnar-
innar. Það er mikið um glæsileg
myndskeið, hlaðin mælsku og
merkingu, en erfiðar gengur að
halda utan um heildina. Edward
Norton er gríðariega sterkur skap-
gerðarleikari og ekki nokkur vafi á
að hann á eftir að verða eitt af
stóru nöfnunum í Hollywood næstu
aldar. Hann hefði sennilega átt að
sleppa því að fara með litlu feitu
puttana sína inn á svið annarra
fagmanna sem unnu við myndina,
en það þýðir víst ekkert að væla yf-
ir því núna. Þetta er sterk og alvar-
leg kvikmynd sem manni finnst að
hefði getað verið mun betri.
Guðmundur Asgeirsson.
---------------------
SAMFÉLAG Pakistana í
Englandi er framandi, ókunnur
heimur og viðfangsefni þessarar
mmmmmmmm ágætu gaman-
myndar. Þetta er
að mestu leyti ljúf
og átaklaus frá-
sögn af velviljuð-
um en seinheppn-
um manni á miðj-
um aldri sem lend-
ir milli steins og
sleggju þegar
hann þarf að gera
upp á milli vina sinna, viðskipta og
fjölskyldu. Persónusköpun er
vönduð og skemmtileg og leikar-
arnir vinna mjög vel úr hlutverk-
unum. Ástarsaga er á sínum stað
og er hún óvenjuleg og mjög sjar-
merandi. Myndin minnir talsvert á
„Monu Lisu“ Neils Jordans þar
sem Bob Hoskins fór á kostum.
Það geislar ekki eins út frá þessari
kvikmynd, en hún er engu að síður
heillandi og eftirminnileg skemmt-
un.
Guðmundur Ásgeirsson
Dreymir um
skóla í Rúmeníu
NADLA Comaneci, sem var
fyrsta fimleikakona veraldar
til að fá tíu í einkunn á
heimsmeistaramóti í fimleik-
um sést hér í félagsskap
ungra fimleikastúlkna frá
Bandaríkjunum og Rúmem'u í
Búkarest á mánudaginn.
Comaneci rekur fímleika-
skóla í Oklahoma í Banda-
ríkjunum ásamt eiginmanni
sínum, Bart Conner,
fyrrverandi gullmethafa í
fimleikum. Hún segist þó
ekki hafa gleymt heimahög-
unum því sig dreymi um að
stofna sambærilegan fim-
leikaskóla í heimalandi sínu,
Rúmeníu.
r
Útsala
20-70% afsláttur
Opið í dag
til kl. 22:00
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifunni 19 - S. 5681717-
Russell Athletie bómull/íleece - Better Bodies - Columbia fatnaður - Tyr sundfatnaður - Fæðubótaiefni o.m.fl.