Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 39
LISTIR
Þrjú orgel-
verk á
hádegis-
tónleikum
í HALLGRÍMSKIRKJU er leikið á
orgelið í hádeginu á fimmtudögum
og laugardögum í sumar. Þessir há-
degistónleikar, sem hefjast kl. 12,
eru haldnir í tengslum við Kirlqu-
listahátíð og Sumai-kvöld við orgelið
og er aðgangur ókeypis.
Fimmtudagstónleikarnir eru í
samstarfi við Félag íslenskra organ-
leikara og að þessu sinni er það
Kári Þormar sem leikur. Á efnis-
skrá hans eru þrjú orgelverk. Fyrst
leikur hann svítu um sálminn „Veni
Creator Spiritus" (Kom, skapari,
andi) eftii- Nicolas de Grigny, þá
sálmforleikinn Dies sind die heilgen
zehen Gebot BWV 678r eftir Jo-
hann Sebastian Bach og að lokum
Pi'ece h'eroique (Hetjuljóð) eftir
César Franck.
Kári Þormar lauk brottfararprófi
í píanóleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1993 og sama ár
burtfararprófi á orgel undii- leið-
sögn Harðar Áskelssonar. Á síðasta
ári lauk hann framhaldsnámi í
kirkjutónlist og orgelleik við Robert
Schumann-tónlistarháskólann í
Diisseldorf, undir handleiðslu pró-
fessors Hans-Dieters Möllers.
Síðastliðinn vetur var hann org-
anisti Kópavogskirkju en hann hef-
ur nýlega ráðið sig sem organista
Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Kári hefur áður haldið tónleika
hér á landi svo og erlendis en þá
hefur hann lagt sig fram um að
kynna íslenska orgeltónlist. Árið
1997 hlaut hann styrk úr Minning-
arsjóði Karls Sighvatssonar.
Jafntefli í fyrri skák Hannesar og
Shipovs á heimsmeistaramótinu
SKAK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
í SKÁK
30. júlí-29. ágúst
HANNES Hlífar Stefánsson
og Sergei Shipov gerðu jafn-
tefli í fyrri skákinni í annarri
umferð heims-
meistaramótsins í
Las Vegas. Hann-
es hafði hvítt og
upp kom Sikileyj-
arvöm. Báðir
hrókuðu stutt og
Hannes hóf peða-
framsókn á kóngs-
væng. Shipov
brást við með að-
gerðum á mið-
borðinu sem
leiddu til mikilla
uppskipta. Kepp-
endur sömdu síð-
an um jafntefli eft-
ir 29 leiki, en þá
var staðan í jafn-
vægi.
Hannes getur verið fyllilega
sáttur við jafntefli gegn Sergei
Shipov sem er rússneskur stór-
meistari. Shipov er töluvert
stigahærri en Hannes og er
með 2.658 stig. Síðari kappskák
þeirra Hannesar var tefld í
gærkvöldi.
Mikla athygli vakti að Gata
Kamsky (2.720) settist aftur við
skákborðið í annarri umferð
heimsmeistaramótsins eftir
langa fjarveru. Þrátt fyrir litla
æfingu sigraði hann Alexender
Khalifman (2.628) mjög örugg-
lega og virðist því til alls líkleg-
ur í þessari heimsmeistara-
keppni.
Margir telja Alexei Shirov
(2.734) í hópi þeirra sem líkleg-
ir eru til að verða heimsmeist-
arar. Hann byrj-
aði hins vegar illa
og tapaði fyi-ri
kappskákinni
gegn Ivan Sokolov
(2.656). Shirov
verður því að
vinna síðari skák-
ina til þess að
detta ekki út úr
keppninni.
Að öðmm at-
hyglisverðum úr-
slitum má nefna
að hinn 15 ára
gamli Ruslan
Ponomariov sigr-
aði Veselin Topa-
lov.
Af öðmm keppendum frá
Norðurlöndum er það að frétta
að Ralf Akesson féll út í fyrstu
umferð, en auk Hannesar tefla
Peter Heine Nielsen og Ulf
Andersson í annarri umferð.
Peter Heine Nielsen tapaði
fyrri skákinni fyrir Judit Polg-
ar en Ulf Andersson gerði jafn-
tefli við Vadim Zvjaginsev.
Daði Orn Jónsson
Hannes Hlífar
Stefánsson
Önnur umferð. Fyrri kap pskák
Hannes Hlífar 2584 S. Shipov 2658 1/2-1/2
S. Tiviakov 2611 V. Kramnik 2760 Vz~Vz
V. Korchnoi 2676 S. Dolmatov 2600 1-0
R. Ponomariov 2616 V. Topalov 2690 1-0
I. Smirin 2671 L. Psakhis 2581 1/2-1/2
M. Kobalija 2573 M. Adams 2708 0-1
Z. Almasi 2663 X. Peng 2574 0-1
A. Yermolinsky 2588 S. Rublevsky 2660 1/2-1/2
A. Dreev 2679 V. Kotronias 2536 1-0
B. Gulko 2618 A. Fedorov 2659 1/2-1^
J. Timman 2650 L. Aronian 2518 1-0
C. Bauer 2480 P. Leko 2701 1/2-1/2
S. Movsesian 2659 G. Dizdar 2549 1-0
A. Aleksandrov 2619 P. Svidler 2684 1/2-1/2
K. Georgiev 2650 T. Shaked 2471 1-0
J. Ehlvest 2592 E. Bareev 2698 1/2-1/2
V. Akopian 2646 R. Antonio 2558 y2-1/2
B. Magem 2528 V. Tkachiev 2648 1/2-1/2
J. Polgar 2671 P. Nielsen 2560 1-0
U. Andersson 2623 V. Zvjaginsev 2652 1/2-1/,
M. Krasenkow 2647 A. Miles 2588 0-1
J. Lautier 2638 K. Sakaev 2648 1/.1/2
B. Gelfand 2713 J. Speelman 2597 1-0
K. Asrian 2575 M. Sadler 2626 1-0
G. Kamsky 2720 A. Khalifman 2628 1-0
R. Leitao 2574 B. Macieja 2542 1-0
Z. Azmaiparashvili 2681 L. Nisipeanu 2584 1/2-1/2
V. Ivanchuk 2702 M. Wahls 2582 1-0
H. Hamdouchi 2529 A. Beliavsky 2618 0-1
N. Short 2675 D. Fridman 2526 1-0
G. Milos 2586 V. Salov 2656 1-0
A. Shirov 2734 I. Sokolov 2656 0-1
Stólasessa
Smáratorgi 1 Holtagörðum v/Hottavog SketfunnM3 Noröurtanga3 Reyiqavtkurvegi 72
200 Kópavogi 104 Reykjav-'k 108ReykJavtk 600 Akureyri 220 Hafnarfjöröur
510 7000 688 7499 568 7499 462 6062 565 5560
ÍA ■ -> > ^, ... .
1 Harðviðarborð
m \w