Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Fi/s/Ári b
Oflr Sport
Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555 2887 og 555 4487
Ferðatilboð
Plúsferða
til kortlnafa
VISA
Portúgal
oMaMj
amanr
kr.
m. v. að 2 ferðist saman, í íbúð á Sol Doiro.
Innifalið: Flug, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, gisting í 7 nætur, íslensk
fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Itr. afsláttúr á ma;
■ 'r„ 4 ' ' ■ »
V
3
Danmörk
BILLUNDi
U U Ufe
m. v. að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, bílaleigubíll í A-flokki
í 1 viku og allir flugvallarskattar.
Tilboð þessi miðast við að ferðir séu að fullu
greiddar með VISA ( eingreiðslu eða raðgreiðslum)
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 568 2277 • Fax 568 2274
Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
(800 7722)
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Heimsókn til
Grundarfjarðar
EYJAFÉLAGAR er 20
manna hópur sem hefur
það eina markmið um
Jónsmessuleytið að
heimsækja Eyjar við
strendur íslands sem
hafa verið í byggð. í síð-
ustu ferð okkar gistum
við á hótel Framnesi í
Grundarfirði. Allur við-
urgjörningur, skipulögn
og leiðsögn á vegum hót-
elsins var með miklum
ágætum og þykir okkur
ástæða til að benda
ferðamönnum á þennan
stað. Hápunktur ferðar-
innar var þó siglingin
um Breiðafjörð með eik-
arbátnum Ásgeiri SH
150 frá Grundarfirði.
Sigurjón skipstjóri og
áhöfn hans áttu ráð und-
ir rifi hverju.
Félagar í
Eyjafélaginu.
Tapað/fundid
Myndavél týndist
í Skaftafelli
CANNON Ixus L-1
myndavél í svartri tösku
með beltisfestingu týnd-
ist í Skaftafelli laugar-
daginn 17. júlí sl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 564 2228.
Myndavél týndist í
Fjölskyldugarðinum
CANNON-myndavél í
hulstri týndist í Fjöl-
skyldugarðinum sl.
mánudag. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
565 3266. Sigrún.
Silfiirhringur
týndist
SILFURHRINGUR
með stórum gulum raf-
steini týndist við
þvottaplanið hjá Olís-
stöðinni við Sæbrautina
27. júlí sl. Skilvís fínn-
andi vinsamlega hafíð
samband í síma
864 2566. Fundarlaun.
Dýrahald
Páfgaukur
óskast
PÁFAGAUKUR, Blue
Fronten, óskast. Upp-
lýsingar í síma 467 3121.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur.
STAÐAN kom upp á
norska meistaramótinu í
Gausdal í júh'. Rune Myhr-
vold (2245) hafði hvítt og
átti leik gegn Andreas
Moen (2235)
42. Hxc6! og svartur gafst
upp, því eftir 42. - Rxc6 43.
Hxc6 - Dxc6 44. Dxf7 + er
hann mát.
Berge Ostenstad varð
Noregsmeistari í fimmta
sinn.
Hlutaveltaur
Morgunblaðið/Ásdís.
ÞESSIR duglegu strákar héldu tombólu og söfnuðu
kr. 1.390 til styrkar Rauða krossi íslands. Þeir heita
Ólafur Bjarki Bogason, Stefán Þór Bogason og Snorri
Már Arnólfsson. Á myndina vantar Eddu.
Morgunblaðið/Golli
ÞESSIR duglegu strákar héldu tombólu og söfnuðu
2.875 kr. til styrktar Rauða krossi Islands. Þeir heita
Andri Einarsson, Indriði Freyr Indriðason og Amar
Freyr Indriðason.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
••
OLLUM ætti að vera kunnugt
um hinn mikla skort á heimilis-
læknum úti á landsbyggðinni.
Ástæðan er sú að mikill skortur er
á sérmenntuðum heimilislæknum
og það að kjör lækna úti á landi
freista ekki. Þetta sagði Jón G. B.
Jónsson, yfírlæknir á heilsugæslu-
stöðinni á Patreksfirði, í samtali við
Morgunblaðið fyrir skömmu. Hann
sagði einnig að úrskurður kjara-
nefndar hefði valdið heimilislækn-
um miklum vonbrigðum m.a. vegna
þess að í honum hefði heimilislækn-
um, sem heyra undir nefndina, ver-
ið skipað undir aðra lækna í laun-
um. Læknirinn taldi jafnframt að
mikil óánægja væri meðal heimilis-
lækna með afstöðu heilbrigðisráðu-
neytisins til stéttarinnar og kjara-
mála hennar.
Tíu dögum eftir að þetta viðtal
var tekið birtist í Morgunblaðinu
listi yfír tíu hæstu skattgreiðendur
á Vestfjörðum. Það vekur athygli að
yfirlæknirinn á Patreksfirði er þar í
öðru sæti með 5.422.253 krónur í
skatta á síðasta ári. Yfirlæknirinn á
Isafirði er í þriðja sæti með
5.007.219 krónur í skatta og læknir-
inn í Bolungarvík í tíunda sæti með
3.786.822 krónur.
ISLENDINGUM hefur tekist að
byggja upp þjóðfélag sem er þess
umkomið að bjóða stærstum hluta
þegna sinna ágæt kjör. Það vekur
þess vegna nokkra furðu að maður
sem er í hópi hæstu skattgreiðenda
þessa lands skuli sjá ástæðu til að
bera sig aumlega yfir kjörum sínum
eins og hann gerði í Morgunblaðinu
21. júlí sl. Er það virkilega svo að
þessi kjör „freista ekki“? Víkveiji á
bágt með að trúa því að kjör lækna
hafi verið að versna síðustu misseri.
Jafnvel þótt laun sjúkrahúslækna
hafi hækkað eilítið meira en laun
heilsugæslulækna geta þeir varla
haft ástæðu til að kvarta stórlega
yfir bágum kjörum.
Fyrir stuttu var vakin athygli á
því í blaði stéttarfélagsins Eflingar,
að laun lækna og hjúkrunarfræðinga
hefðu hækkað miklu meira en laun
ófaglærðra starfsmanna sjúkrahús-
anna, sem eru þó með lægstu launin.
Ekki heyrist þetta fólk kvarta mikið
yfir kjörum sínum í Morgunblaðinu.
Ekki heyrist heldur mikið frá ófag-
lærðum starfsmönnum leikskólanna
sem eru með einna lægstu launin
sem greidd eru hér á landi. Víkverji
þekkir konu sem vinnur á Ieikskóla í
Reykjavík og hefur fengið útborgað-
ar rétt í-úmlega 400 þúsund krónur
frá áramótum fyrir fúllt starf. Það
hvarflar að Víkveija að sumir hefðu
gott af því að kynnast því hvemig
það er að draga fram lífið á slíkum
kjörum. Það gæti þá verið að laun
lækna á Vestfjörðum færu að
„freista" einhverra.
XXX
Heilbrigðisráðuneytið
hefur á síðustu misserum og
árum unnið að því að bæta stöðu
heilsugæslunnar á landsbyggðinni
og á höfuðborgarsvæðinu. Búið er
að byggja upp heilsugæslustöðvar
úti á landi og uppbygging er í full-
um gangi á höfuðborgarsvæðinu.
Stöðum heilsugæslulækna hefur
verið fjölgað og reynt hefur verið að
tengja stöðvarnar betur saman
þannig að vaktabyrði minnki.
Einnig voru í vetur keyptir jeppar
fyrir allar heilsugæslustöðvar á
landsbyggðinni. Sjálfsagt má gera
betur, en ráðuneytið verður tæp-
lega sakað um að hafa ekki reynt að
stuðla að betra starfsumhverfi í
heilsugæslunni. Um sjálf launin hef-
ur heilbrigðisráðuneytið ekkert að
segja. Þau heyra undir kjaranefnd
og fjármálaráðuneytið.