Morgunblaðið - 05.08.1999, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum
Dagur von-
brigða í Kreuth
Kreuth. Morgunhlaðið
Vonbrigði meðal Islendinga á
heimsmeistaramótinu í Kreuth í
Þýskalandi voru mikii í gær þegar
tveir íslensku keppendanna voru
dæmdir úr leik. Sér í lagi þótti bit-
urt að Auðunn og Baldur frá Bakka
skyldu dæmdir úr leik í slaktauma-
tölti eftir að hafa hlotið langhæstu
einkunnina, 7,60, og virst eiga þar
vísan sigur í úrslitum á sunnudag.
Efstur í slaktaumatöltinu varð því
Jens Fúchtenschnieder, Þýska-
landi, á Reyk frá Kringlu með 6,97.
Will Covert, Bandaríkjunum, varð
annar með 6,93 á Blæ frá Sigluvík,
Tanja Gundlach, Þýskalandi, þriðja
á Geysi frá Hvolsvelli með 6,77 og
fjórði Guðni Jónsson, sem keppir
fyrir Svíþjóð á Álmi frá Lækjamóti,
með 6,67. Samantha Leidesdorf,
Danmörku, varð fimmta á Depli frá
Votmúla með 6,63.
Olil Amble, sem átti að keppa í
fimi í gær á Kjarki frá Horni, var
dæmd úr leik áður en keppni hófst
þar sem æfingamar sem hún hugð-
ist framkvæma í keppninni voru of
margar. í reglum segir að æfing-
amar eigi að vera fæstar tíu en ekki
fleiri en fjórtán. í verkefni hennar
voru æfingamar hins vegar sextán
og hún því dæmd úr leik. Þar með
em möguleikar þeirra beggja, Olil
og Auðuns, í keppni um samanlagð-
an sigurvegara úti þar sem þau hafa
aðeins tvær greinar til að safna
stigum úr héðan af.
Þá urðu Islendingar að gefa eftir
heimsmeistaratitilinn í gæðinga-
skeiði þegar Höskuldur Aðalsteins-
son, sem keppii- fyrir Austurríki,
sigraði glæsilega á Katli frá Glæsi-
bæ með 7,92. Er þar með rofin 12
ára óslitin sigurganga Islendinga í
greininni. Sigurður Sigurðarson og
Prins frá Hörgshóli og Aðalsteinn
Aðalsteinsson á Ringo frá Rin-
gerike, sem keppir fyrir Noreg,
urðu jafnir í öðra til þriðja sæti með
7,71. Karly Zingshim, Þýskalandi,
varð fjórði á Fána frá Hafsteins-
stöðum með 7,42 en hann átti dapr-
an dag í slaktaumatöltinu þar sem
hann sneri við eftir fyrsta atriði
keppninnar í stað annars atriðis.
Leiðrétti hann sig snarlega, en var
eigi að síður dæmdur úr leik. Sagði
Karly eftir keppnina að klárinn
hefði staðið sig eins og hetja en
hann eins og álfur og það væri ekki
gott.
Auðunn og Baldur urðu í fimmta
sæti með 7,30 og heimsmeistari í
greininni á síðustu þremur heims-
meistaramótum, Sigurbjörn Bárð-
arson, varð að gera sér sjötta sætið
að góðu að þessu sinni. Það vora
niðurhægingarkaflamir sem bragð-
ust í báðum umferðum hjá Sigur-
birni og Gordon frá Stóra-Ásgeirsá
og fékk hann núll fyrir þá báða. Að
öðra leyti var hann með frábærlega
útfærða spretti og besta tímann í
báðum umferðum. Voru spekingar í
röðum brekkudómara að gera því
skóna að honum hefði nægt að fá
góða einkunn fyrir aðra niðurhæg-
inguna eða frekar lága einkunn íyr-
ir báða kaflana til að tryggja sér
sigur.
Það voru því frekar hnípnir Is-
lendingar sem gengu út af móts-
svæðinu í gærkvöldi eftir rýran dag
þar sem Þjóðverjar hirtu fyrstu
gullverðlaunin sem unnust á mót-
inu. Þar var að verki Joly Schrenk á
Ófeigi, sem allir keppendur virðast
óttast þegar kemur að fjórgangi eða
tölti. Sigraðu þau í fimi með miklum
yfirburðum, hlutu 7,37 meðan næsti
keppandi, sem var Ylva Hagander
frá Svíþjóð á Mekki frá Varmalæk,
var með 6,13 og Julit ten Bokum,
Hollandi, var með 6,10 en hún
keppti á Gróttu frá Litlu-Tungu.
Einn íslendingur, Sveinn Hauks-
son, var meðal keppenda í greininni
en hann keppir fyrir Svíþjóð á
Hrímni frá Ödmarden og urðu þeir í
níunda sæti.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGURÐUR Sigurðarson og Prins frá Hörgshóli voru í öðru til þriðja
sæti með 7,71.
Morgunblaðið/Jim Smart
STRÖNDIN í Nauthólsvík var þéttskipuð sóldýrkendum í góða veðrinu í gær.
Þéttskipað í Nauthólsvík
STRANDLENGJAN í Nauthóls-
vík virðist þegar orðin vinsæll
sjó- og sólbaðsstaður Reykvík-
inga þrátt fyrir að framkvæmd-
um á svæðinu sé enn ekki lokið.
Að sögn þeirra sem til þekkja
streymir fólk að um leið og veður
Ieyfir og var dagurinn í gær eng-
in undantekning.
Ströndin í víkinni var þéttskip-
uð en samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu íslands var há-
markshitinn í Reykjavík í gær
17,5 stig. Varla sá í auðan blett á
skeljasandinum; karlar og konur
lágu (og sumir sváfu) í sólbaði, á
meðan börnin brugðu á leik,
kældu sig í sjónum eða byggðu
ævintýraleg hús og kastala úr
hvítum sandi. Tugir bfla voru á
bflastæðinu við víkina og víða
lágu reiðhjól í grasinu. Aðrir
komu gangandi, hlaupandi eða á
linuskautum. Þá sátu margir og
nutu veðurblíðunnar við Kaffi
Nauthól. Fólk kom og fór fram
eftir öllum degi og jafnvel fram á
kvöld. Veðurstofa Islands gerir
ráð fyrir að í dag verði áfram
hægviðri og léttskýjað á höfuð-
borgarsvæðinu og að hitinn verði
á bilinu 13 til 18 stig.
Eins og kunnugt er hefur á
þessu ári verið unnið að gerð yl-
strandar í Nauthólsvíkinni sem
ráðgert er að verði tekin form-
lega í notkun 17. júní á næsta ári.
Þá hyggst Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri ríða á
vaðið og leggjast til sunds í vík-
inni stundvíslega klukkan 14.
.. Morgunblaðið/Jim Smart
BORNIN nutu dyggrar aðstoðar við byggingu sandkastala úr hvítum
skeljasandi.
Morgunblaðið/Kristinn
VINDSÆNGIN kemur að góðum notum í veðri sem þessu.
Yfírlýsing frá
Pétri Björnssyni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Pétri
Bjömssyni:
„I frétt á baksíðu Morgun-
blaðsins í dag, miðvikudag, er
nafn mitt bendlað við kaup nokk-
urra fjárfesta á hlutabréfum
sparisjóðanna í FBA. Af því til-
Aths. ritstj.:
Frétt Morgunblaðsins í gær var
byggð á traustum heimildum. Aðilar
þessara viðskipta töldu sig hafa
ástæðu til að ætla, að Pétur Björns-
son, fyrrverandi aðaleigandi Vífil-
fells hf., yrði í hópi þeirra, sem
standa að fyrirtækinu Orca S.A. í
Lúxemborg. Niðurstaða hans varð
efni vil ég taka fram, að ég er alls
ekki á meðal kaupenda og þekki
ekki til þessara viðskipta á
nokkurn hátt. Vænti ég þess að
Morgunblaðið komi þessari leið-
réttingu á framfæri við fyrstu
hentugleika.
Virðingarfyllst.“
hins vegar sú, að verða ekki aðili að
þessum viðskiptum, eins og fram
kemur í yfirlýsingu hans.
í frétt Morgunblaðsins í gær var
sérstaklega tekið fram og ekki að
ástæðulausu, að í sumum tilvikum
hefði ekki verið gengið endanlega frá
eignaraðild þeirra, sem nefndir vora
í fréttinni.
Samtök um vernd
Laugardals stofnuð
Fundur á
fyrirhuguð-
um bygg-
ingarstað
HÓPUR fólks sem er í andstöðu við
fyrirhugaða byggingu höfuðstöðva
Landssímans í Laugardal, sem ný-
lega var samþykkt af meirihluta í
borgarstjórn, hefur boðað til fundar á
ætluðum byggingarstað í Laugardal í
dag klukkan þrjú síðdegis. Hópurinn
kennir sig við „Samtök um vemd
Laugardals" en meðal forvígismanna
er Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Á fímdinum
mun talsmaður samtakanna, Þorgeir
Ástvaldsson, tala máli þeirra og m.a.
kynna nýja heimasíðu þar- sem gerð
er grein fyrir málstað þeirra.