Morgunblaðið - 05.08.1999, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
FRÁ vinstri: Hjalti Þór Heiðarsson, Fríða Hrund Kristinsdóttir og
Jónas Þrastarson settu öll ný héraðsmet.
Héraðsmót
Byggingu hjúkrunarheimilis á Fáskrúðsfirði lokið
Morgunblaðið/Albert Kemp
ARNFRIÐUR Guðjdnsdóttir, formaður stjömar nýja hjúkranarheimil-
isins á Fáskrúðsfirði, tekur við lyklum hússins úr hendi Þorsteins
Bjarnasonar verktaka, sem er til hægri á myndinni, og blómvendi frá
Lars Gunnarssyni, oddvita Búðahrepps.
Starfsemi
hefst á
næstunni
Fáskrúðsfirði - Lokið er byggingu
nýs hjúkrunarheimilis á Fáskrúðs-
firði. Verktakinn hefur afhent stjóm
heimilisins húsið til afnota. Ráðgert
er að starfsemi hefjist á næstunni.
Framkvæmdir við byggingu
hjúkrunarheimilisins hófust 18. des-
ember 1997 og er þeim nú að fullu
lokið, meðal annars með frágenginni
lóð. Húsið er 850 fermetrar að stærð
með tengibyggingu og kostaði 104
milljónir kr. Heimilið er fyrir þrett-
án vistmenn.
Arkitekt hússins er Helgi Hjálm-
arsson á Teiknistofunni Oðinstorgi
og verktaki var Þorsteinn Bjamason
á Fáskrúðsfirði.
Hjúkmnarheimilið er rekið af
Búðahreppi á Fáskrúðsfirði, Fá-
skrúðsfjarðarhreppi og Stöðvar-
hreppi. Byggingin er tengd dvalar-
heimilinu Uppsölum og era heimilin
rekin sem ein heild. Formaðui-
stjómar er Amfríður Guðjónsdóttir.
Forstöðumaður hefur verið ráðin
Ósk Bragadóttir, forstöðumaður
Uppsala. Árdís Eiríksdóttir er
hjúkranarforstjóri.
Hrafnaflóka
Tálknafirði - Um síðustu helgi var
haldið héraðsmót Hrafnaflóka á
íþróttavellinum á Bfldudal. Var
keppt í frjálsum íþróttum og stóð
keppnin yfir bæði laugardag og
sunnudag. Þrjú ný héraðsmet voru
sett á þessu móti. Jónas Þrastarson
frá Patreksfirði setti nýtt héraðs-
met í kringlukasti pilta, kastaði
31,71 m. Fríða Hrand Kristinsdóttir
frá Tálknafirði setti héraðsmet í 800
m hlaupi kvenna, hljóp á 2.48,52 og
Hjalti Þór Heiðarsson frá Tálkna-
firði setti héraðsmet í kringlukasti
sveina, kastaði 35,55 m. I kringlu-
kastinu var reyndar sú breyting að
nú var í fyrsta skipti keppt með
1.000 g kringlu, en áður hafði verið
keppt með 1.500 g kringlu. í stiga-
keppni félaganna sigraði íþróttafé-
lagið Hörður á Patreksfirði.
Veðrið lék við keppendur og gesti
fyrri mótsdaginn, en á sunnudegin-
um var dumbungur með þokusudda
og svölu veðri, sem kom þó ekki í
veg fyrir góðan árangur keppenda.
Að lokum má geta þess að ráðinn
hefur verið framkvæmdastjóri und-
irbúningsnefndar fyrir unglinga-
landsmótið árið 2000, en hann heitir
Brynjar Þór Þorsteinsson og er á
Patreksfirði.
hp'v*' ifúVíí
HVdaRO,
ÞAO ER A KVOLDIN
SEM ÞÚ SÉRÐ
HVERSU GÓÐA SÓLARVÖRN
ÞÚ VALDIR
FYRIR BARNIÐ ÞITF
*IV£A
UN lotion
Húð barna þorf að
vernda vel fyrir
brennandi geislum sólar.
Nivea Sun Children ver
vi&kvæma húð barnsins
fyrir UVA- og UVB
geislum sólarinnar.
Þar að auki er hún
mýkjandi og ón
lyktarefna. Veldu það
besta fyrir barnið þitt.
Það bæði sést og finnst
- ekki síst á kvöldin.
NIVEA SÓLARVÖRN
VERNDAR VIDKVÆMA
HÚD BARNSINS ÞÍNS
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Víti til varnaðar
Hvammstanga - Það má segja að
ökumaður lítillar fólksbifreiðar
hafi haft lánið með sér í óláninu,
þegar bifreið hans fór út af veg-
inum í Linakradal í Húnaþingi á
dögunum. Svo virðist sem hann
hafi misst vald á bifreið sinni, ek-
ið þvert á heimreið að bóndabæ
og hún orðið eins konar stökk-
pallur. Bifreiðin sveif um tíu
metra, þar með yfir breiðan
skurð og hafnaði í mjúku landi.
Ekki fengust upplýsingar um slys
á fólki og enginn sá ástæðu til að
íjarlægja bifreiðina í nokkra
daga. Hugsanlega átti hún að
verða vegfarendum um verslun-
armannahelgi tii viðvörunar.
beuRA l)ip
Suíurhúsi
Kringlunnar
NY SENDING
J Gjafavara
J Bækur
J Tarotspil
j Reykelsi
j Vítamín
o.m .f I.
Betra líf Kr’inglunni sími 581-1380
Morgunblaðið/Egill Egilsson
„í einni sæng“ á
Flateyri
Tökur að
hefjast
Flateyri - Senn munu hefjast tökur
á myndinni „f faðmi hafsins", en
handrit myndarinnar er eftir þá
Lýð Amason og Jóakim Reynisson
sem reka saman kvikmyndafyrir-
tækið „í einni sæng“. Unnið var við
fyrri hluta myndarinnar á haust-
mánuðum 1998.
Eitt af fyrstu verkefnum varð-
andi sviðsmyndina var að færa kofa-
hreysi í bænum úr stað og flytja
hann út í fjörð, en þar mun hann
gegna því hlutverki að vera sviðs-
mynd í myndinni. Eftir að hafa gert
kofann tilbúinn undir flutning var
honum lyft átakalaust úr stað, hann
settur á pall og honum síðan ekið út
í fjörð í sín nýju heimkynni um
stundarsakir.