Morgunblaðið - 05.08.1999, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.08.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 25 Barátta í stjórn Skagstrendings Burðarás með 17% hlut og mann í stjórn Breytingar á eignarað- ild að Skagstrendingi hafa leitt af sér nokkra baráttu um skipan stjórnar félagsins. Samherji keypti nýlega um 37% hlut í félaginu. Hjörtur Gíslason kynnti sér gang mála að því loknu. MIKLAR breytingar hafa orðið á eignaraðild að Skagstrendingi á Skagaströnd að undanförnu. Sam- herji hefur nýlega keypt um 37% hlutafjár í fýrirtækinu, en næstr stærsti eigandinn er nú Höfðahrepp- ur með 21%. Burðarás er svo í þriðja sæti með um 17%. Samherji keypti þá hlut Sfldarvinnslunnar í Neskaupstað í gegn um verðbréfafyrirtæki. Fyrir skömmu var hlutur Burðaráss um 11,4%, en nýlega jók eignarhaldsfé- lagið hlut sinn í 17% með kaupum af verðbréfafyrirtæki. Um var að ræða hlutabréf, sem Höfðahreppur seldi, en hann hafði þá nýlega aukið hlut sinn í 26% með kaupum á hlut Jökla af Fjárfestingabankanum. Gengi hlutabréfa í Skagstrendingi hefui’ hækkað mikið á síðustu dögum vegna þessa og er komið í rúmlega 9. Breytingar þessar endurspegla ákveðna valdabaráttu í félaginu eftir að Samherji kom þar inn. Samkvæmt samþykktum félagsins skal Höfða- hreppur eiga tvo menn í stjórn þess, en þessi samþykkt kom til við stofnun félagsins til að draga úr vægi hrepps- ins í stjórn fyrirtækisins, en hann átti þá 40% í Skagstrendingi. Fimm eiga sæti í stjórn félagsins og er hún nú skipuð tveimur fulltrúum hreppsins, einum fulltrúa Sfldarvinnslunnar í Neskaupstað, einum írá Burðarási og einum Skagstrendingi. Líklegt er talið að hluthafafundur verði haldinn 20. þessa mánaðar og ný stjóm þá kosin. Ljóst verður að Höfðahreppur verður áfram með tvo fulltrúa og Samherji sömuleiðis miðað við núverandi eignaraðild og Burðarás einn. Til að breyta sam- þykktinni um fjölda stjórnarmanna Höfðahrepps þarf tvo þriðju hluta at- kvæða hluthafa. Vildu kaupa af TM og OLÍS Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Samherji leitað eftir kaupum á 7,5% hlut Tryggingamið- stöðvarinnar og 2,8% hlut OLÍS til að ná meirihluta í stjórninni. Hvoragt þessara félaga hefur viljað selja hlut sinn, en vegna mikilla viðskiptahags- muna má telja líklegt að þau selji Samherja, verði fast eftir því leitað. Samherji_ er stærsti viðskiptavinur bæði OLÍS og Tryggingamiðstöðvar- innar. Það eru miklh’ hagsmunir í húfí. Velta Skagstrendings á ári er um tveir milljarðar króna og selur Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna megnið af afurðum félagsins, en NASCO selur einnig nokkuð. Því koma til hagsmun- ir eins og sala afurðanna og flutningar auk fleiri þátta. Það er athyglivert að þegar Sfldar- vinnslan seldi hlutabréf sín gafst eng- um öðrum en Samherja tækifæri til að kaupa, þrátt fyrir að aðilar eins og Burðarás hafí sýnt bréfunum áhuga. Telja má að salan til Samherja hafí ekki verið stjóm SH að skapi, enda gæti hún þýtt missi sölutekna af af- urðunum. Það er svo einnig athygli- vert í ljósi þess að það var Sfldar- vinnslan sem réð úrslitum í sögulegri kosningu til formanns stjómar SH á aðalfundi félagsins síðastliðið vor, þegar Róbert Guðfínnsson felldi sitj- andi formann, Jón Ingvarsson. Þess má geta að Jón naut stuðnings Skag- strendings. Að loknum þessum breytingum virðist það ljóst að Burðarás hafi tryggt sér mann í stjórn með 17% hlut auk stuðnings nokkurra smærri hluthafa. Samherji þyi’fti því um 60% til að ná meirihluta í stjórninni, en ólíklegt er talið að það náist. „Við höf- um verið með mann í stjórn Skag- strendings og tekið virkan þátt í rekstri félagsins. Við viljum tryggja okkur stjórnarmann áfram og teljum okkur hafa gert það með því að ná 17% hlut í fyrirtækinu," segir Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri Burðaráss. Hann segir ennfremur að Burðarás hafi ekki leitað beint eftir kaupum á hlutabréfum OLÍS og Tryggingamiðstöðvarinnar í Skag- strendingi. Aðeins hafi verið leitað eftir kaupum gegnum verðbréfafyrir- tæki og við síðustu kaup hafi það ver- ið ljóst að hlutabréfin væru komin frá Höfðahreppi. Hvaða skoðun hefur þú á að Höfða- hreppur skuli ávallt hafa tvo menn í stjórn? „Þegar við keyptum hlut í Skag- strendingi fyrst, var okkur fyllilega Ijóst það ákvæði í samþykktum fé- lagsins að Höfðahreppur skyldi hafa tvo fulltrúa í stjórn án tillits til eign- arhluta. Við virðum þessa afstöðu heimanna og viljum ekki standa að því að breyta þessari samþykkt í and- stöðu við þá,“ segir Friðrik. Hátt tilboð réð sölu Skagstrendingur skiptir miklu máli fyrir atvinnulíf á Skagaströnd og lík- legt má telja að heimamönnum sé það ekki að skapi að einn utanaðkomandi aðili nái meirihluta í félaginu og því hafi Burðarás komizt yfir aukinn hlut. Adolf H. Berndsen, stjórnarmaður í Skagstrendingi og oddviti Höfða- hrepps, segir að það sé mikill fengur að samstarfinu við Samherja, sem sé öflugt fyrirtæki í samskonar rekstri, útgerð frystitogara og vinnslu á rækju. Samstarf ætti því að vera báð- um félögunum til góðs. „Við höfðum áður aukið hlut okkar með kaupum á bréfum Jökla hf. Þegar okkur bauðst svo mjög gott tilboð í þessi bréf, ákváðum við að selja. Við vissum að Burðarás var kaupandinn, en með því eram við ekki að hafna samstarfi við Samherja og óskum að sjálfsögðu góðrar samvinnu við alla stærstu hluthafa félagsins um eflingu fyrir- tækisins," segir Adolf H. Berndsen. Ljóst er að Samherja er þessi staða ekki að skapi, enda kemur hann inn í Skagstrending til að hafa þar áhrif. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins telja stjórnendur Samherja að þar sem Burðarás hafi fengið hlutabréf frá Höfðahreppi, sem duga Burðarási til að tryggja sér einn mann í stjóm, sé hreppurinn búinn að ákveða að mynda meirihluta með Burðarási. Líklegt má telja að Samherji kanni vandlega hvort samþykktir félagsins um skipan tveggja manna frá Höfða- hreppi standist lög. Standist þær ekki virðist Samherji á ný hafa náð yfir- höndinni með þrýstingi á OLIS og TM um kaup á hlutabréfum þeÚTa. Morgunblaðið náði tali af Þorsteini Má Baldvinssyni, framkvæmdastjóra Samherja, en hann vildi ekki tjá sig um málið. Það hefur áður verið sótt að Skag- strendingi með hugmyndum um sam- einingu, en ekkert hefur orðið úr því. Það er eðlilegt að heimamenn óttist um framtíð fyrirtækisins á Skaga- strönd, ef einn utanaðkomandi aðili nær þar meirihluta. Líklega má telja síðustu atburði sem eins konar við- vöran til Samherja, fremur en yfirlýs- ingu um að vinna fremur með Burðarási. BORGA MEIRA ...en þú þarft. Versladu þar sem verdid er lægst! í GSM símum erum við bestir! Panasonic G520 150 grömm • Skjár: 3 línur x 12 stafir 80 klst í bið og 3 klst. í tali. Innbyggður titrari, 14 mism. hringingar, SMS smáskilaboð, símaskrá ofl. ofl. Ef þú kaupir T3L, þ.e. gerist TlmaTALs áskrifandi í tólf mánuði með kredit-korti, býðst þér þessi frábæri sími á aðeins... TALkort kostar 1.999,-og er greitt fyrir það aukalega. BOSCH eo7 Þyngd: 187 gr. • Stærð: 134 x53x17mm»Rafhlaða endist 80 klst. í bið og 200 mín. í tali • Númerabirting, SMS skilaboð ofl. Símanum fylgirTAL- frelsiskort, 1.000,- kr. hleðslukort og geisla- diskur! Eingögnu fyrir TAL-simakort NOKIA 5iio Þyngd 167 gr. • Skjár 4 línur x 16 stafir Rafhlaða: 270 klst. í bið og 5 klst. i tali. Vönduð leðurtaska Ef þú kaupir >cfL þ.e. geristTfma- TALs áskrifandi í tólf mánuði með kredit-korti, býðst þér þessi frábæri sími á aðeins... KAUPAUKI Isskápur með frystihólfi OAEVWOO 63os 20 lítra 800 W Snúningsdiskur Þróaðra CRS kerfi Fullkomið bíltæki á frábæru verði. Geisla- spilari. Stafrænt RDS útvarp með stöðva- minni. FM/AM útvarp. Sjálft/irk stöðvaleitun 4 x 35 watta magnari. Tengjanlegt við 4 hátalara. Laus frontur. Ótrúlegt verð! Islenskt textavarp SCART-tengi Audio / Video tengi Tengi fyrir heymartól Fullkomin fjarstýring ofl. er einn stærsti raftækja- framleiðandi í heiminum! Þaö kemst enginn með tærnar þar sem við erum hælana í tölvunum Meira af öllu! • 366 Mhz Intel Celeron • 64 MB innra minni • 6,4 GB Fujitsu diskur • 15' hágæða skjár • 8 MB skjákort með sjónvarpsútgangi • DVD mynddiskadrif • 16 bita hljóðkort • Hátalarar • Windows lyklaborð og mús • Windows 98 uppsett og á CD Alvöru kvikmyndaver. Bestu mögulegu mynd- og hljómgæði í DVD! Tomb Raider III erfrábærævintýra- leikur með hinni brjóstgóðu Lauru Croft (aðalhlutverki Fifa 98 • Need For Speed III • Die Hard Trilogy • Tiger Woods 99 • Future Cop • Trespasser Opið virka daga 10:00 -19:00 • laugardag 10:00-16:00 Opið sunnudag 13:00-17:00 BT Skeifunni. Sendum í póstkröfu um land allt: 550-4400 BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444 BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020 Leikjatölvan vinsæla með Dual Shock stýripinna, minnis- spjaldi og tösku á frábæru verði! 1.000,- kr afsláttur á Playstation leik með vélinni! Veður og færð á Netinu ^mbl.is JXl i TAá= íC/TTOWd/? A/V77
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.