Morgunblaðið - 05.08.1999, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Eftirgjöf
Sharifs
mótmælt
518 manns falla í loftárásum í lýðveldinu Kongó
Kabila sakaður
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í
134 óbreyttir borgarar
sagðir hafa fallið
„Kabila efndi til sprengjuárásar
klukkan tíu í morgun með súdönsk-
um Antonov-flugvélum. Þessar
sprengjur urðu 384 óbreyttum
borgurum að bana og 134 her-
mönnum,“ sagði Bemba. „Margir
höfðu safnast saman í miðbæjun-
um,“ bætti hann við. „Enginn átti
von á þessu. Við héldum að það
væri í gildi vopnahlé."
Ekki eru nema þrír dagar siðan
Bemba undirritaði samkomulag
um vopnahlé sem náðist á fundum
sex Afríkuríkja, sem aðild hafa átt
að stríðinu, í Lusaka í Zambíu í síð-
asta mánuði. Hann kvaðst hafa
greint Frederick Chiluba, forseta
Zambíu, sem hafði milligöngu um
samkomulagið, frá árásunum.
Bemba hafði hótað að rjúfa
vopnahléið ef stærsta uppreisnar-
hreyfingin í lýðveldinu Kóngó,
RCD, undirritaði ekki vopna-
hléssamkomulagið innan viku.
Pakistan efndu til mótmæla víða
um landið í gær til að fordæma
þá ákvörðun Nawaz Sharifs for-
sætisráðherra að verða við þeirri
kröfu Indverja að skipa skærulið-
um og pakistönskum hermönnum
að fara af indverska yfirráða-
svæðinu í Kasmír. Stjórnarand-
stæðingarnir kröfðust einnig að-
gerða til að bæta efnahagsá-
standið í landinu. Stuðningsmenn
stjórnarandstöðuleiðtogans Ben-
azir Bhutto sitja hér á bflum á
mótmælafundi í Karachi.
um gróf griðrof
Kigali. Reuters, AP.
UPPREISNARMENN í lýðveldinu Kongó sögðu í gær að a.m.k. 518
manns hefðu fallið í loftárásum súdanskra herflugvéla á tvö fiskiþorp í
norðurhluta lýðveldisins Kongó. Kvaðst Jean-Pierre Bemba, leiðtogi Frels-
ishreyfingar Kongó (MLC), sem nýtur stuðnings stjómvalda í Úganda, líta
svo á að Laurent Kabila, forseti lýðveldisins Kongó, hefði með þessum
mannskæðu árásum rofið vopnahlé sem samið var um í síðasta mánuði.
Bemba sagði að rússneskar Ant-
onov-flugvélar hefðu varpað átján
sprengjum á þorpin Makanza og
Bogbonga, sem standa við ána
Kongó, um átta hundruð kílómetra
norðaustur af Kinshasa, höfuðborg
lýðveldisins Kongó.
Súdanar eru grunaðir um að
hafa veitt Kabila liðsinni sitt í
borgarastríðinu í lýðveldinu
Kongó, en því hefur súdanska
stjórnin neitað.
Ný framkvæmdastjórn ESB býr sig undir yflrheyrslur EÞ
Prodi sagður þurfa að
svara fyrir fyrri störf
ESB var-
ar Þjóð-
verja við
Brusscl, London. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) varaði
þýzk stjórnvöld við því í gær, að
þau væru skuldbundin til að heim-
ila innflutning til Þýzkalands á
brezku nautakjöti, með þeim skil-
yrðum sem kveðið er á um í fyrri
ákvörðun ESB um afnám banns við
kjötútflutningi frá Bretlandi, sem
staðið hafði í tæp þrjú ár.
Andra Fischer, heilbrigðisráð-
herra Þýzkalands, hafði áður sagt
að þýzk stjómvöld myndu áfram
banna sölu brezks nautakjöts til
þýzkra neytenda, vegna ótta við að
það væri enn ekki ömggt að það
bæri ekki kúariðusmit, sem getur
valdið Creutzfeldt-Jakob-heila-
rýmunarsjúkdómnum í mönnum.
Talsmaður framkvæmdastjóm-
arinnar sagði í gær að hún myndi
áfram leita málamiðlunar milli
Breta og Þjóðverja í málinu. Brezk
stjómvöld vom snögg að hóta „lög-
fræðilegum aðgerðum", haldi Þjóð-
verjar fast við að heimila ekki sölu
á brezku nautakjöti.
Rússar tilkynntu í gær, að þeir
hefðu alls ekki i hyggju að afnema
eigið bann við innflutningi brezks
nautakjöts.
Brussel. Reuters, Daily Telegraph.
HINIR 19 væntanlegu meðlimir
nýrrar framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins (ESB), sem
Romano Prodi, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ítalíu, mun fara fyr-
ir, þurfa nú að hafa sig alla við til
að búa sig undir yfirheyrslur Evr-
ópuþingmanna yfir þeim. Evrópu-
þingið (EÞ) þarf að leggja blessun
sína yfir hina nýju framkvæmda-
stjóm áður en hún getur tekið
formlega við embætti.
Eftir að hafa verið beittur mikl-
um þrýstingi, einkum af hálfu
þingmanna Evrópska þjóðar-
flokksins (EPP) - stærsta þing-
flokksins á Evrópuþinginu sem
fulltrúar hófsamra hægriflokka úr
öllum ESB-löndunum 15 eiga sæti
í - hefur Prodi sjálfur fallizt á að
mæta til að svara spurningum for-
ystumanna Evrópuþingsins, strax
og yfirheyrslum yfir hinum vænt-
anlegu meðlimunum 19 á að vera
lokið, 7. september nk.
Prodi telur sig ekki vera skuld-
bundinn til að mæta til sambæri-
legrar „samþykktaryfirheyrslu“ og
hinir meðlimir framkvæmdastjórn-
arinnar, þar sem þingið var í maí
sl. búið að samþykkja útnefningu
hans. En þar sem nýtt Evrópuþing
var kosið í júní og vægi pólitískra
fylkinga breyttist þótti forystu-
mönnum hins nýkjörna þings þeir
eiga kröfu til þess að Prodi svaraði
spumingum þeirra áður en þeir
legðu blessun sína yfir hina nýju
framkvæmdastjórn, sem á ekki sízt
það hlutverk fyrir höndum, að
„taka til“ í stjórnsýslu ESB eftir að
fyrirrennaramir í framkvæmda-
stjórn Jacques Santers neyddust
til að segja allir af sér í marz sl.
vegna spillingarásakana.
Kostar embættismenn
sumarfruð
Samkvæmt frásögn The Daily
Telegraph er sennilegt að spurn-
ingarnar sem beint verður til Prod-
is muni meðal annars snúast um
þann tíma sem Prodi var yfirmaður
Instituto die Riconstuzione
Industriale (IRI), stærsta eignar-
haldsfélagi ítalska ríkisins. Á árinu
1996 hélt saksóknari nokkur í Róm
því fram, að matvælaframleiðslu-
fyrirtækið Cirio-Bertolli-deRica
hefði verið selt fyrir minna en hálf-
virði, þegar Prodi stýrði IRI á ár-
inu 1993.
Þá verður Prodi einnig vafalaust
spurður nánar út í valið á nokkrum
væntanlegum liðsmönnum hans í
framkvæmdastjóminni. Munu á
Evrópuþinginu vera á lofti nokkrar
efasemdir til dæmis um Frakkann
Pascal Lamy, sem var einn af ráð-
gjöfum Jaques Delors þegar hann
fór fyrir framkvæmdastjórninni á
árunum 1985-1994. Einnig munu
þingmenn hafa eitt og annað við
feril Loyole de Palacio að athuga.
Hún var landbúnaðarráðherra
Spánar en er ætlað að fara með
samgöngu- og orkumál, auk þess
að vera varaforseti framkvæmda-
stjómarinnar og hafa umsjón með
samskiptum við Evrópuþingið.
Forystumenn Evrópuþingsins
hafa heitið því að hinir tilvonandi
framkvæmdastjórnarmeðlimir
muni ekki verða teknir neinum
vettlingatökum. Sumir þingmenn
eru óánægðir með að ekki skuli
vera fleiri en fimm konur í liðinu,
en sennilegast er það þungvægast,
að eftir kosningarnar í júní hafa
hægrimenn undirtökin á þinginu
en meirihluti hinna tilnefndu koma
af vinstri væng stjómmálanna.
Evrópuþingið hóf „yfirheyrslu-
ferlið“ í vikunni með þvf að birta
yfir 100 síðna spurningalista á Net-
inu, sem ætlazt er til að hinir vænt-
anlegu framkvæmdastjórnarmeð-
limir svari skriflega fyrir 16. ágúst.
Ljóst er að þetta veldur því að ófá-
ir embættismenn framkvæmda-
stjómarinnar verða að sjá af hefð-
bundnu ágúst-sumarfríi sínu.
„Heldurðu að við sendum bara
framkvæmdastjórnarfulltrúunum
spumingarnar og biðjum þá að
skrifa þau svör sem þeim kemur
fyrst í hug?,“ hefur Reuters eftir
einum embættismanninum.
Þetta er allt svolítið fáránlegt,"
sagði annar. „Gramir embættis-
menn Evrópuþingsins, sem vildu
frekar starfa fyrir framkvæmda-
stjórnina, em látnir semja spurn-
ingar sem embættismenn fram-
kvæmdastjórnarinnar - sem vildu
heldur vera í sumarfríi - þurfa að
finna svör við.“
Raísa
haldin
hvítblæði
RAISA Gorbatsjova, eiginkona
Míkhaíls Gorbatsjovs, fyrrver-
andi leiðtoga Sovétríkjanna, er
haldin bráða-
hvítblæði, að
því er læknar
á sjúkrahúsi í
Munster í
Þýskalandi
greindu frá í
gær. Raísa
hefur dvalið
þar síðan 26.
júlí og gengst
nú undir lyfjameðferð. Vegna
sjúkdómsins og meðferðarinn-
ar er hún þungt haldin. Lækn-
ar gátu ekki veitt upplýsingar
um hversu lengi meðferðin
myndi vara. Gorbatsjov dvelur
hjá Raísu í Miinster.
Kennsl borin
á öll líkin
LÖGREGLA í Sviss greindi
frá því í gær að kennsl hefðu
verið borin á lík tuttugu þeirra
sem fórust í ævintýraferð um
Saxet-Bach árgljúfrið í Sviss
27. júlí sl. Eins er enn saknað.
Þrettán þeirra sem fórust voru
Ástralir, tveir voru Bretar,
einn frá Nýja Sjálandi, tveir
frá Suður-Áfríku og tveir frá
Sviss.
Loftárásir
á Irak
ÍRÖSK stjómvöld sögðu í gær
einn hafa fallið í árás sem
bandarískar orrustuflugvélar
gerðu á hemaðarleg skotmörk
í norðurhluta íraks, skammt
frá borginni Mosul, eftir að
Irakar skutu á vélarnar úr loft-
vamarbyssum. Bandarísku
flugvélamar, sem em af gerð-
unum F-15 og F-16, vom í eft-
irlitsflugi um flugbannsvæðið,
sem Vesturlönd settu upp í
kjölfar Persaflóastríðsins.
Stjómvöld í írak lýstu því yfir í
desember að þau myndu ekki
virða bannsvæðin, sem eru yfir
norður- og suðurhluta lands-
ins. Bandarísku vélarnai’ snem
allar heilar á húfi til bæki-
stöðva sinna í gær.
Tuttugasta
barnið
UNGVERSK kona eignaðist
nýverið sitt tuttugasta bam, að
því er þarlend blöð greindu frá
í gær. Magdolna Fuzi er 43 ára
og gekk fæðingin vel. Elsta
barn hennar og eiginmanns
hennar er 26 ára, og það
næstyngsta þriggja ára. Hjón-
in kváðust hafa ákveðið af trú-
arlegum ástæðum að eignast
svona mörg böm.
Uppboð á eig-
um Ceausescus
RÚMLEGA 600 hlutir sem
voru í eigu Nikolaís
Ceausescus, fyrrverandi ein-
ræðisherra í Rúmeníu, og
Elenu eiginkonu hans, verða
boðnir upp á mánudag, en nú
eru tíu ár liðin síðan hjónin
vom tekin af lífi. Meðal þess
sem boðið verður upp em tveir
svartir Buick-bflar, sem voru
gjöf frá Richard Nixon, fyrr-
verandi forseta Bandaríkjanna.