Morgunblaðið - 05.08.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 41 ú
i
ans varð að koma til New York og
slá þar stór lán til að létta undir
með rekstri Coldwaters sölufyrir-
tækis Sölumiðstöðvarinnar í
Bandaríkjunm. Á þessum árum
voru tveir af framkvæmdastjórum
Coldwaters látnir hverfa úr starfí
og ekki löngu síðar var guðfaðir
Sölumiðstöðvarinnar, Jón Gunn-
i arsson, einhver merkilegasti ein-
staklingur í útflutningsmálum ís-
lands, einnig látinn hætta störfum.
Af hvaða hvötum Pórir lýsir
starfsemi Iceland Products á þess-
um árum, eins og þau áföll sem þar
urðu hafi fyrst og fremst verið
stjórnendum að kenna en ekki
óvið- ráðanlegum aðstæðum á
markaðinum eða eingöngu varðað
Iceland Products en ekki einnig
hin sölusamtökin, er mér óskiljan-
legt. Hann talar um að þessi starf-
semi hafí verið í álögum, en hvað
þá með hliðstæð áföll hjá Coldwa-
ter? Var sú starfsemi einnig í álög-
um?
Burtséð frá vanþekkingu Þóris
um staðarval starfsemi Iceland
Products í Steelton í gömlu vöru-
húsi þar, má margt um þetta stað-
arval segja. í fyrsta lagi fengust
þessi húsakynni fyrir mjög gott
verð. í öðru lagi var mjög vel þekkt
sú staðreynd að gott framboð var
þar á góðum starfskröftum. I
þriðja lagi lá aðalhraðbraut milli
austurs og vesturs í Bandaríkjun-
um um eða við Steelton. í fjórða
lagi lá fyrir að á næstu árum myndi
einnig aðalhraðbraut milli Norð-
austur-Bandaríkjanna og Suður-
ríkjanna verða í næsta nágrenni
við Steelton. I fimmta lagi bjó rúm-
ur helmingur allra Bandaríkja-
manna innan 200 mílna geisla frá
Steelton. Og í sjötta og síðasta lagi
hefði aldrei verið samþykkt af
1 stjórn Sambandsins að kaupa vöru-
hús og hugsanlega stofna til físk-
réttaframleiðslu nema því aðeins
að það hefði ekki í för með sér
nema sem allra minnstan kostnað.
Sú varð og reynslan á meðan ég
var þar starfandi. Enda var aldrei
um annað rætt við byggingu nýju
verksmiðjunnar en að hún yrði
jj reist á svipuðuin slóðuin en að vísu
í mun skemmtilegra umhverfi.
Vera má að ef Sverri hefði ekki
tekist að koma upp þessari glæsi-
legu nýju verksmiðju, hefði stjórn
Sambandsins ef til vill orðið að
skoða aftm- þann möguleika að af-
henda Sölumiðstöðinni sölumál
þess í Bandaríkjunum. Þá hefðu
líklega orðið færri brauðþegaár
Þóris hjá fyrirtæki Sambandsins í
Bandaríkjunum. En vandlæti
stafar oft af vanþekkingu.
Eina leiðréttingu þarf enn að
'j gera á frásögn Þóris. Hann segir
að aðeins þrír famkvæmdastjórar
hafi verið hjá Coldwater, þetta er
ekki rétt, því að mest af þeim tíma
er ég var hjá Iceland Products
voru tveir framkvæmdastjórar þar.
Til að byrja með Árni Ólafsson, en
síðar bættist Pálmi Ingvarsson við.
Það er margt fleira sem rétt er
* að minnast á og leiðrétta í greinum
Þóris en ég mun, ef til vill, koma að
; :S því síðar.
meiriháttar
sumartilboá
Mikiö majjn af jj.i-ðiihjnlum á cinstöku verði.
Notaðu ta kifæriö, korrnlu á útsöluna og skelltu
þér á hjól.
C* KLEIN
ÖRNINN
- allar götur síðan 1925
Skeifunni II - Sími 588 9890 Netfang orninn@mmedia.is
Opið 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga
Hilla kr. 3.900
Kryddhilla kr. 7.600
Höfundur er sljórnarformaður ís-
lensku umboðssölunnar.
SUÐURLANDSBRAUT 22
SlMI: 553 6011 • 553 7100
I