Morgunblaðið - 05.08.1999, Síða 43

Morgunblaðið - 05.08.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 43 # „Prjónaði þá með trú og tryggð“ „Vettlingarnir voru gull, / vann þá snót úr kær- leiks-ull, / prjónaði þá með trú og tryggð, / en tvinninn var úr skírri dyggð.“ (Ur bréfí til stúlku.) Það er greinilegt á þessari vísu sem heitir „Vettlingarnir" að höfundur hennar, Matthías Jochumsson, þjóðskáldið okkar, kunni vel að meta það gæðaefni sem ullin er. Það er líka áhugaverð sú virðing sem hann sýnir gagnvart þeirri vinnu sem stúlkan hefur innt af hendi. Síðast en ekki síst er greinilegt að höfundur skynjar það að oft býr að baki vinnunnar annað og meira en handverkið sjálft. Það er ekki það sama vettlingar og vettlingar! Það skynja þeir sem upplifað hafa að fá gefins handunna hluti unna af þeim sem mað- ur elskar. Það er mjög sérstök og kröftug tilfinning enda er það hún sem hefur vakið upp andagift skáldsins. Það er ekki ólíklegt að þessir vettlingar hafi verið tryggðapantur og samkvæmt vísunni ekki af verri endanum. Gaman hefði verið að fá að líta á þessa vettlinga úr „gulli“. Konur hafa löngum verið liðtækar í að seiða til sín karlmenn á fleiri vegu en að prjóna á þá vettlinga „með trú og tryggð“ og eru til ýmsar sögur varðandi það. Ein er sú að konur tóku aðra rótina af brönu- grasi (en ræturnar eru tvær) og settu hana undir koddann hjá þeim manni sem þær vildu ná ástum af, án þess að hann vissi. Hina rótina lögðu þær undir sinn eiginn kodda. Það er sagt að hér sé um óbrigðult ráð að ræða! Fleiri ráð höfðu konur til að fá karlmenn til að girnast sig og elska; „það var að koma einhvern veginn ofan í þá tíða- blóði sínu, annaðhvort í mat eða öðru. Sagt er, að ein stúlka hafi hnoðað því upp í brauðdeig og bakað úr því köku og gefið manni þeim, er hún vildi ná á sitt vald. En maðurinn gaf hundi brauðið, svo að hún sá ekki; en eftir það tolldi hundurinn hvergi nema hjá stúlkunni.“ (íslenskir þjóðhættir.) Þetta er kannski spurning um að láta það bara duga að pijóna vett- lingana handa einhverri elskunni sinni og þá úr „kærleiks-ull“ auðvit- að. Ekki er verra að Iáta húfuna fylgja því ég er viss um að í henni er mikill kraftur og ekki veitir af, því enginn er öruggur þegar ástin er annars vegar! Vettlingar og húfa á bæði kynin FYRIRSÆTA: Ásta Hannesdóttir. Konur hafa löngum verið liðtækar við að seiða til sín karlmenn á fleiri vegu en að pijóna á þá vettlinga „með trú og tryggð". Pijónað úr Smart Stærð: S/M Brúnt tweed 833/3071: 4 d. Kremað tweed 821/2523:2 d. 5 prjóna nr. 3 og 3,5 40 cm hringprjón nr. 3,5 Heklunál nr. 3,5-4 HIJFA: Byijið á vinstra eyranu og fitjið upp 8 lykkjur með brúnu tweed á pijóna nr. 3,5. Prjónið 1 prjón brugðinn frá röngu. Pijónið slétt pijón (slétt á réttu brugðið á röngu) og aukið út í hverri umferð um 1 lyklqu sitt hvoru megin 3 sinnum og þar á eftir í öðrum hverjum pijón 6 sinnum = 26 lykkjur. Pijónið 10 pijóna og fitjið upp 4 lykkjur í enda á 7. og 9. pijóns = 34 lykkjur. Ekki klippa á þráðinn. Leggið stykkið til hliðar og prjónið annað eins en gagn- stætt (lykkjumar 4 eru fítjaðar upp í enda 8. og 10. pijóns). Pijónið nú aft- ur yfir vinstra eyrað og fitjið upp 6 lykkjur í enda prjónsins, pijónið hægra eyra = 74 lykkjur. Prjónið 11 umferðir yfir lykkjumar, fitjið þá upp 32 lykkjur á milli (miðja framan) og pijónið hringinn. Eftir 5 cm er aukið út um 4 lykkjur jafiit yfir miðjulykkjumar 24 að framan = 110 lykkjur á hringnum. Prjónið 5 cm í viðbót og byijið svo að fella af í topp- inn: * 8 sléttar, 2 sléttar saman * endurtakið * - * hringinn. Fellið þannig af í 4. hverri umferð 3 sinnum og þar á eftir í 2. hverri umferð 5 sinnum = 11 lykkjur eftir. Það fækk- ar um 1 lykkju á milli við hverja úr- tökuumferð. Klippið á þráðinn dragið hann í gegnum allar lykkjurnai' og herðið vel að. Heklið fastapinna með- fram húfunni með kermuðu tweed = byrjið að miðju aftan, dragið gamið í gegn og heklið 2 fastapinna í sömu lykkjuna u.þ.b. 1 cm inn á húfuna, hoppið yfir u.þ.b. 1 cm og heklið 2 fastapinna í sömu lykkju u.þ.b. 1 cm inn á húfuna. Heklið þannig hringinn á húfunni, ekki of fast. Búið til 2 kremaðar snúrar (frekar lausar) úr 4 þráðum 15-20 cm langar. Festið þær á hvort eyra búið til 2 dúska og festið þá á snúramar. VETTLINGAR: (hægri) Fitjið upp 44 lykkjur með brúnu tweed á sokkaprjóna nr. 3,5 (= 11 lykkjur á hvern prjón) númerið prjónana 1-4. Prjónið slétt prjón hringinn þegar mælast 10 cm er merkt fyrir þumli: Prjónið með öðrum lit 7 lykkjur fyrir innan 1. lykkjuna á prjón nr. 3 setjið lykkjurnar aftur á vinstri prjóninn og prjónið áfram. Þegar vettlingurinn mælist 20 cm er fellt af í toppinn: Á prjón nr. 1 og 3 eru fyrstu lykkjurnar prjónað- ar: takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjóninn, prjónið 1 slétta og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Á prjónum nr. 2 og 4 eru síðustu 3 lykkjurnar prjónaðar: 2 sléttar saman, 1 slétt. Fellið þannig af í annarri hverri umferð 4 sinnum enn og svo í hverri umferð þar til að 8 lykkjur eru eftir. Klippið á þráðinn, dragið í gegnum lykkjurn- ar herðið að og gangið vel frá end- anum. ÞUMALL: Takið hjálparþráðinn úr og setjið lykkjurnar á sokkaprjóna nr. 3,5 takið upp 1 lykkju sitt hvora megin. Prjónið slétt prjón hringinn 6,5 cm. Prjónið 2 lykkjur saman hringinn, klippið á þráðinn, dragið í gegnum lykkjurnar herðið vel að og gangið frá endanum. Vinstri vett- lingur: Prjónast eins og hægri vett- lingur en þumallinn prjónast á prjón nr. 2 fyrir innan endalykkj- una. FRÁGANGUR: Heklið með krem- uðu tweed meðfram kantinum á vettlingnum eins og á húfunni. Búið til snúru úr kremaða litnum u.þ.b. 150 cm langa. Dragið hvorn enda snúrunnar undir heklaða kantinn þannig að snúran liggi u.þ.b. 10 cm niður eftir handarbakinu á vett- lingnum. Saumið hvorn enda fastan á vettlinginn. Búið til 2 dúska og festið í snúruendana á hvorum vett- ling. OTTO- vörulist- inn 50 ára Nýi OTTO-haust- og vetrarlistinn er kominn út, fjölbreyttur að vanda og 1300 blaðsíður að stærð. OTTO er nú orðinn stærsti vöru- listi í heimi en eins og kunn- ugt er keypti OTTO breska Freemans- listann á dög- unum. OTTO er með svolít- ið sérstöku sniði að þessu sinni en hann er 50 ára um þessar mundir og þar af leiðandi fullur af tilboðum í tilefni afmælisins. Vöruúrvalið í listanum er að mestum hluta tískuföt í öllum stærðum, bæði stórum og litlum, stuttum og síðum, en einnig er mikið úrval af húsbúnaði og raf- magnsvörum. OTTO-vörulistinn er til húsa í Ármúla 17A þar sem hægt er að nálgast þær vörur sem til eru á lager og auðvitað listann v sjálfan. Á vegum OTTO koma einnig út fleiri listar s.s. APART sem er full- ur af sígildum fyrsta flokks fötum úr vönduðustu efnum, einnig POSTSHOP sem er með fot á fólk á aldrinum 16-25 ára. SO BIN ICH hefur slegið í gegn hjá konum sem þurfa stórar stærðir en hann býður upp á kvenföt, skó og nærföt í stærðum 40-58. FAIR LADY býður uppá kvenlegan og vandaðan fatnað í mörgum stærðum fyrir bæði konur og karla. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía Brandtex fatnaður --------------------- Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 HTP7: bHar » Slbrir bilar im ödfrtr bilar * Ofrir bilar «0« \ r Verð frá 40.000.- til 4.000.000.- lánamöguieígar til aiEt að 5ára [ Tekum notaða bíla upp í notaða — z QÍZ . 'o x's SL ÞU KEMUR u! Opið virka daga kl. 9 - 18 og la^gardaga k\j./\2 - 1t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.