Morgunblaðið - 05.08.1999, Page 54
' 54 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
----——:r-—
JOSI, HVAM RETT HEFUk
PÚ TIL AÐ SITJA í VA TNS-
BÓLINU ALLAN ÖASINN
Grettir
Hundalíf
Ljóska
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Enn um fjárglæfra
og forneskjulegt
réttarkerfí
Frá Böðvari Böðvarssyni:
ÞAÐ SEM fær mig til að taka fram
blýant og strokleður er lestur við-
tals við Þorgeir Þorgeirsson rithöf-
und, í DV10. julí sl. með fyrirsögn-
inni „Martraðirnar endurtaka sig“.
Hann segir á einum stað í viðtal-
inu, „síðan hefur forneskjulegt
réttarkerfi verið mér stöðug
martröð". Þessi orð og fleira í
þessu viðtali passa nefnilega svo
ótrúlega vel við það sem við höfum
þurft að reyna í réttarkerfinu, þar
sem við höfum reynst algjörlega
réttlaus. Við teljum okkur geta
sannað óyggjandi ásetningsbrot
manns, sem er stýrimaður á frysti-
togara, sem gerður er út héðan frá
Reykjavík, og við höfum skrifað
um áður í Morgunblaðinu. Sá er nú
enginn viðvaningur í fjárglæfrum,
með margra ára reynslu í því fagi.
Hann hefur verið mjög heppinn
með þann lögfræðing sem hann
hefur á sínum snærum því lögfræð-
ingurinn hefur verið lærifaðir hans
í fjársvikum og hreinum þjófnaði á
hendur okkur og fleira fólki, auk
þess sem meistarinn hefur tekið
fullan þátt í þessari ábatasömu
grein með nemendum. Greinilega
mjög fjölhæfur maður. Þessir
menn eru miklir snillingar í hinum
ýmsu tilbrigðum leiklistarinnar,
sem felst m.a. í lygum af öllum
gerðum og þykjast sakleysið upp-
málað enda er lögfræðingurinn,
sem einnig er fasteignasali og telst
vafasamur af ýmsum, búinn að
koma því í kring að hann lítur mjög
vel út útávið vegna starfa sinna
íyrir hin ýmsu góðgerðarfélög.
Synd og skömm er að kraftar
þeirra skuli ekki nýtast leikhúsum
borgarinnar. Ég ýjaði svolítið að
þessari samvinnu í einni af grein-
um mínum í Morgunblaðinu án
þess að þó nefna hann á nafn og
viðbrögðin frá þessum vesalings
lögmanni létu ekki á sér standa og
voru á þá lund að hann hringdi
tveimur dögum síðar og náði í kon-
una mína heima. Eftir hinar ýmsu
svívirðingar og hótanir endaði
hann á þessari hótun: „Engin meiri
skrif, ég vara þig við og passaðu
þig hvar þú stígur niður þú veist
ekki við hverja þú átt.“ Hvað gerir
maður eftir svona trakteringar?
Eftir baráttu við þessa kóna í
nokkur ár höfum við gert okkur
grein fyrir því að þeir virðast til
alls líklegir og ekki annað hægt en
að taka hótanir þeirra alvarlega.
Veggir þeir sem við höfum rekist á
eru hreint með ólíkindum margir.
Lögfræðingar sem við höfum
leitað til hafa oftar en ekki sagt
þetta lítið mál að uppræta en aldrei
hefur liðið langur tími þar til þögn-
in ein hefur ríkt. Aðrir lögfræðing-
ar hafa sagt við okkur að lögin séu
ekki íyrir okkur vegna þess við
heitum ekki séra Jón, almenningur
fái allt aðra og verri meðferð í rétt-
arkerfinu en þeir hærra settu. Þeir
eigi mun greiðari leið í gegnum
þetta batterí sem kallað er réttar-
kerfi. Oft og tíðum virðast lögin
virka mun betur fyrir glæpamenn-
ina en þá sem fyrir þeim verða. Við
höfum ítreikað reynt að kæra
stýrimanninn en það hefur alltaf
verið fyrir daufum eyrum, lögregl-
an hefur hreinlega vísað okkur frá
þrátt fyrir sannanir um svik og
þjófnað. Við höfum vitneskju um
tengsl þessara félaga við þekkta
stjómmálamenn og háttsetta og
virta menn innan fjármálageirans
og víðar. Maður hlýtur að spyi’ja
sig hvort það sé virkilega nóg að
hafa tengsl við alþingismenn, for-
stjóra hjá stóm fyrirtæki eða borg-
arfulltrúa til að sleppa við réttvís-
ina. Við emm tilbúin að tala við
rannsóknarblaðamann eða þann
sem vill kynna sér þetta mál og
þorir að hjálpa okkur.
BÖÐVAR BÖÐVARSSON,
Suðurvangi 14, Hf.
Bréf frá enskum
skátum
Kæru vinir.
VIÐ emm skátar úr dróttskáta-
sveitinni Pegasus frá Harrogate í
Englandi og komum til íslands til
að taka þátt í Landsmóti skáta á
Úlfljótsvatni. Okkur langar að
þakka íslendingum fyrir alla þá
hjálp og góðvild sem okkur hefur
verið sýnd og þá vinsemd sem við
höfum fengið að njóta þær þrjár
vikur sem við höfum dvalist í þessu
fallega landi.
Seinni vikumar tvær höfum við
gengið frá Hveravöllum til Þing-
valla til að ná áfanga sem í Englandi
er nefndur „Explorer Belt“. Til að
ná þessum áfanga þarf að halda til
framandi lands og leysa þar ýmis
verkefni til að kynnast landi og
þjóð. Við höfum hitt margt gott fólk
sem hefur hjálpað okkur á þessu
ferðalagi.
Við þökkum öllum þeim sem við
höfum hitt og sendum þeim vinar-
kveðjur. Þið hafið öll sýnt okkur
mikla velvild.
Með skátakveðju,
lOth Harrogate „Pegasus" Venture
Scouts.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.