Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 1
182. TBL. 87. ARG. SUNNUDAGUR 15. AGUST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS „Deyið ekki því kirkjugarður- inn er fullur“ YFIRVÖLD í bænum Savona á Norður- Ítalíu hafa skorað á íbúana að deyja ekki, að minnsta kosti ekki strax, vegna þess að kirkjugarður bæjarins sé orðinn full- ur. „Við stöndum frammi fyrir neyðar- ástandi," sagði Bartolo Berta, aðstoðar- bæjarstjóri Savona, sem er vestan við Genúa á Rívíerunni. „Kirkjugarðurinn er fúllnýttur og við höfum þurft að grafa 400 bráðabirgðagrafir.“ Berta sagði að bæjaryfírvöld hygðust stækka kirkjugarðinn en framkvæmdim- ar hefðu dregist. „Þetta gengur ekki lengur og við vonum því að íbúar Savona hjálpi okkur með því að deyja ekki, eða a.m.k. með því að tóra eins lengi og mögulegt er.“ Olíklegt er þó að honum verði að ósk sinni. Fæðingartíðnin í Savona er hin lægsta á Itaiíu og bærinn er í fjórða sæti á lista yfir þau byggðarlög þar sem dán- artíðnin er hæst, með 14 dauðsföll á hveija 1.000 íbúa. Um 20% íbúa bæjarins em á eftirlauna- aldri og er það eitt hæsta hlutfall aldr- aðra í Iandinu. Þar af em 2.000 eldri en áttrætt og tíu hafa þegar haldið upp á 105 ára afmæli sitt. Konubitið olli næstum dauða KONUR geta verið hættulegri en karl- menn - einkum ef þær bíta. Fjallað er um hættuna sem getur staf- að af mannsbiti í grein í breska lækna- tfmaritinu The Lnncct um 28 ára karl- mann sem varð fyrir biti konu á bjórhá- tíðinni í Miinchen og fékk bakteríu sem át sig inn í holdið. I greininni segir að maðurinn hafi ver- ið sætkenndur og tekið upp á því að dansa á borðinu. Óþekkt kona, sem sat við borðið, hafi þá sýnt vanþóknun sína með því að bíta hann í hægri kálfann. Þjóðveijinn góðglaði fékk svo mikla verki vegna bitsársins daginn eftir að hann leitaði til læknis. Hann var þá kom- inn með 40 stiga hita. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og ómskoðun leiddi í Ijós að hann hafði smit- ast af hættulegri bakteríu, keðjuhnettlu af a-stofni, sem veldur fellsbólgudrepi. Meinsemdin étur sig inn í holdið, getur valdið losti, orðið til þess að líffæri gefi sig og dregur menn til dauða í allt að 60% tilvika, að sögn Lundúnablaðsins The Times. í þetta sinn tókst læknunum að bjarga lífi sjúklingsins. Þýskir læknar, sem skrifuðu greinina í The Lancet, segja að mannsbit sé yfirleitt hættulegra en dýrbit vegna þess að í munni manna séu margar tegundir gerla sem geti valdið sjúkdómum. M Reuters OEIRÐALOGREGLUMENN Qarlægja kaþólskan íbúa Belfast af Lower Ormeau-götu eftir að hópur þjóðemissinna hafði sest á götuna til að hindra skrúðgöngu mótmælenda um hverfí kaþólskra í borginni. Belfast vegna mótmælenda Átök í göngu Belfast. Reuters. TIL átaka kom í Belfast í gærmorgun þegar óeirðalögreglan fjarlægði kaþólska íbúa borgarinnar sem höfðu reynt að stöðva skrúðgöngu um tuttugu mótmælenda um Lower Ormeau-götu í hverfi kaþólskra. Lögreglumennirnir beittu kylfum til að dreifa nokkrum hundruðum kaþólskra þjóðemissinna sem höfðu sest á götuna til að hindra skrúðgönguna. Nokkrir kaþólikkanna og 19 lögreglumenn særðust í átökunum. Skrúðgangan gekk friðsamlega fyrir sig eftir að fólkið var fjarlægt. Nokkrum flöskum var kastað í göngumennina, en enginn þeirra meiddist. Martin McGuinness, einn af forystumönnum Sinn Fein, stjómmálaflokks írska lýðveldishersins (IRA), fordæmdi framgöngu lögreglunnar og varaði við því að hörð átök gætu blossað upp í Londonderry vegna skrúðgöngu sem var fyrirhuguð þar síðar um daginn. Fjölmenn ganga í Londonderry McGuinness spáði því að um 10.000 mótmælendur myndu taka þátt í göngunni í Londonderry og sagði að mjög erfítt yrði að tryggja frið í borginni. Leið göngumannanna lá um hverfi kaþólskra. Nokkmm kaþólikkanna blæddi eftir barsmíðar lögreglunnar, m.a. ungri konu sem var barin í höfuðið. „Mér finnst ótrúlegt að lögreglumennimir skyldu ráðast á konu,“ sagði hún. „Mér býður við þessari hrottalegu meðferð á fólkinu sem reyndi að mótmæla á Lower Ormeau-götu,“ sagði McGuiness. Hann bætti við að mótmælendur hefðu hafnað þeirri málamiðlun að ekki yrði reynt að stöðva aðalgöngu þeirra í Londonderry gegn því að þeir hættu við fámennari göngur í öðrum borgum og bæjum, svo sem Belfast. Til óspekta kom einnig í bænum Lurgan í gærmorgun þegar kaþólskir þjóðemissinnar réðust á lögreglumenn með gijóti, flöskum og bensínbrúsum. Atökin varpa skugga á minningarathöfn sem ráðgerð er í dag í bænum Omagh í tilefni þess að ár er liðið frá því að 29 manns biðu þar bana í sprengjutilræði, hinu mannskæðasta í sögu átakanna á Norður- írlandi. A Agreiningur á árbakkanum Bræðraþjóðir deili byrðum Evrópu SÆLKERAMATUR ÚR SJÁ VARFANGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.