Morgunblaðið - 15.08.1999, Qupperneq 1
182. TBL. 87. ARG.
SUNNUDAGUR 15. AGUST 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
„Deyið ekki því
kirkjugarður-
inn er fullur“
YFIRVÖLD í bænum Savona á Norður-
Ítalíu hafa skorað á íbúana að deyja ekki,
að minnsta kosti ekki strax, vegna þess
að kirkjugarður bæjarins sé orðinn full-
ur.
„Við stöndum frammi fyrir neyðar-
ástandi," sagði Bartolo Berta, aðstoðar-
bæjarstjóri Savona, sem er vestan við
Genúa á Rívíerunni. „Kirkjugarðurinn er
fúllnýttur og við höfum þurft að grafa
400 bráðabirgðagrafir.“
Berta sagði að bæjaryfírvöld hygðust
stækka kirkjugarðinn en framkvæmdim-
ar hefðu dregist. „Þetta gengur ekki
lengur og við vonum því að íbúar Savona
hjálpi okkur með því að deyja ekki, eða
a.m.k. með því að tóra eins lengi og
mögulegt er.“
Olíklegt er þó að honum verði að ósk
sinni. Fæðingartíðnin í Savona er hin
lægsta á Itaiíu og bærinn er í fjórða sæti
á lista yfir þau byggðarlög þar sem dán-
artíðnin er hæst, með 14 dauðsföll á
hveija 1.000 íbúa.
Um 20% íbúa bæjarins em á eftirlauna-
aldri og er það eitt hæsta hlutfall aldr-
aðra í Iandinu. Þar af em 2.000 eldri en
áttrætt og tíu hafa þegar haldið upp á
105 ára afmæli sitt.
Konubitið olli
næstum dauða
KONUR geta verið hættulegri en karl-
menn - einkum ef þær bíta.
Fjallað er um hættuna sem getur staf-
að af mannsbiti í grein í breska lækna-
tfmaritinu The Lnncct um 28 ára karl-
mann sem varð fyrir biti konu á bjórhá-
tíðinni í Miinchen og fékk bakteríu sem át
sig inn í holdið.
I greininni segir að maðurinn hafi ver-
ið sætkenndur og tekið upp á því að
dansa á borðinu. Óþekkt kona, sem sat
við borðið, hafi þá sýnt vanþóknun sína
með því að bíta hann í hægri kálfann.
Þjóðveijinn góðglaði fékk svo mikla
verki vegna bitsársins daginn eftir að
hann leitaði til læknis. Hann var þá kom-
inn með 40 stiga hita.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og
ómskoðun leiddi í Ijós að hann hafði smit-
ast af hættulegri bakteríu, keðjuhnettlu
af a-stofni, sem veldur fellsbólgudrepi.
Meinsemdin étur sig inn í holdið, getur
valdið losti, orðið til þess að líffæri gefi
sig og dregur menn til dauða í allt að 60%
tilvika, að sögn Lundúnablaðsins The
Times. í þetta sinn tókst læknunum að
bjarga lífi sjúklingsins.
Þýskir læknar, sem skrifuðu greinina í
The Lancet, segja að mannsbit sé yfirleitt
hættulegra en dýrbit vegna þess að í
munni manna séu margar tegundir gerla
sem geti valdið sjúkdómum.
M Reuters
OEIRÐALOGREGLUMENN Qarlægja kaþólskan íbúa Belfast af Lower Ormeau-götu eftir að hópur þjóðemissinna
hafði sest á götuna til að hindra skrúðgöngu mótmælenda um hverfí kaþólskra í borginni.
Belfast vegna
mótmælenda
Átök í
göngu
Belfast. Reuters.
TIL átaka kom í Belfast í gærmorgun þegar
óeirðalögreglan fjarlægði kaþólska íbúa
borgarinnar sem höfðu reynt að stöðva
skrúðgöngu um tuttugu mótmælenda um
Lower Ormeau-götu í hverfi kaþólskra.
Lögreglumennirnir beittu kylfum til að
dreifa nokkrum hundruðum kaþólskra
þjóðemissinna sem höfðu sest á götuna til að
hindra skrúðgönguna. Nokkrir kaþólikkanna
og 19 lögreglumenn særðust í átökunum.
Skrúðgangan gekk friðsamlega fyrir sig
eftir að fólkið var fjarlægt. Nokkrum flöskum
var kastað í göngumennina, en enginn þeirra
meiddist.
Martin McGuinness, einn af
forystumönnum Sinn Fein, stjómmálaflokks
írska lýðveldishersins (IRA), fordæmdi
framgöngu lögreglunnar og varaði við því að
hörð átök gætu blossað upp í Londonderry
vegna skrúðgöngu sem var fyrirhuguð þar
síðar um daginn.
Fjölmenn ganga í Londonderry
McGuinness spáði því að um 10.000
mótmælendur myndu taka þátt í göngunni í
Londonderry og sagði að mjög erfítt yrði að
tryggja frið í borginni. Leið göngumannanna
lá um hverfi kaþólskra.
Nokkmm kaþólikkanna blæddi eftir
barsmíðar lögreglunnar, m.a. ungri konu sem
var barin í höfuðið. „Mér finnst ótrúlegt að
lögreglumennimir skyldu ráðast á konu,“
sagði hún.
„Mér býður við þessari hrottalegu meðferð
á fólkinu sem reyndi að mótmæla á Lower
Ormeau-götu,“ sagði McGuiness.
Hann bætti við að mótmælendur hefðu
hafnað þeirri málamiðlun að ekki yrði reynt
að stöðva aðalgöngu þeirra í Londonderry
gegn því að þeir hættu við fámennari göngur í
öðrum borgum og bæjum, svo sem Belfast.
Til óspekta kom einnig í bænum Lurgan í
gærmorgun þegar kaþólskir þjóðemissinnar
réðust á lögreglumenn með gijóti, flöskum og
bensínbrúsum.
Atökin varpa skugga á minningarathöfn
sem ráðgerð er í dag í bænum Omagh í tilefni
þess að ár er liðið frá því að 29 manns biðu
þar bana í sprengjutilræði, hinu
mannskæðasta í sögu átakanna á Norður-
írlandi.
A
Agreiningur á
árbakkanum
Bræðraþjóðir deili
byrðum Evrópu
SÆLKERAMATUR
ÚR SJÁ VARFANGI