Morgunblaðið - 15.08.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 15.08.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999 35 sem völ er á hverju sinni, enda er kveðið á um slíkt í heilbrigðislögum þjóðarinnar samanber 3. grein laga um réttindi sjúklinga frá 1997 undir fyrirsögninni gæði heilbrigðisþjón- ustu. Petta nær að sjálfsögðu til hvers kyns rannsókna og ákvarðana sem teknar eru fyrir þeirra hönd, þar með töldu mati á fötlun og ör- orku. I þessu hlýtur að felast að ís- lenskir sjúklingar og slysaþolar njóti sérþekkingar lækna og annarra starfsmanna heilbrigðiskerfisins eft- ir því sem tök eru á. Það ætti að hafa komið skýrt fram í þessari grein að ég tel að tauga- læknar, geðlæknar og taugasálfræð- ingar einir eigi að standa að mati á hugsanlegum heilaskaða og/eða öðr- um ágöllum í miðtaugakerfi. Þegar endurskoða þarf matsgerðir þeirra ætti slíkt eingöngu að vera í höndum starfsbræðra þeirra eða starfs- systra. Eg vil sem taugasálfræðingur benda á að þrátt fyrir þau tæki sem nútímavísindin hafa yfir að ráða til að skoða heilann er taugasálfræðileg greining best þekktra aðferða sem við höfum yfir að ráða til að meta hvernig viðkomandi einstaklingur bregst við heilaskaða sínum eða hvernig áhrif hans birtast í hugar- starfi hans og vitrænni getu. Það er vissulega hægt að skyggnast inn fyr- ir höfuðkúpuna og sjá hvemig heil- inn lítirn út með ákveðnum mynd- greiningartækjum eins og tölvu- sneiðmynd og segulómun. Það er líka hægt að fylgjast með starfi eða virkni heilans með tækjum eins og heila- og hrifriti, PET og SPECT ísótóparannsóknum og starfrænni segulómun, en þessi tæki mæla raf- boð, blóðflæði og efnaskipti á mis- munandi stöðum í heila. En útlit heilans og vefrænt ástand hans og jafnvel vitneskja um efnaskipti hans og virkni geta aldrei gefið fullnægj- andi svör hvað skynjun, vitræna getu, og hugarstarf viðkomandi ein- staklings varðar. Hér á landi eru margir íslenskir læknar, sálfræðingar, félagsráðgjaf- ar, sjúkraþjálfarar og talmeinafræð- ingar sem hafa lagt alúð og vand- virkni í greiningar- og meðferðar- vinnu sína með einstaklingum sem hlotið hafa vægan heilaskaða eða eft- irslysaheilkenni. Til þess að vinna þessa fagfólks megi nýtast og það geti haldið áfram að bera hag hins vansæla minnihluta fyrir brjósti með því að missa ekki sjónir á fagvitund sinni og sjálfsvirðingu er nauðsyn- legt að það fái vinnufrið til að iðka starfsgrein sína án niðurrifsafla nú- gildandi örorkumatsfyrirkomulags. Ég tel að grundvallaratriði í ör- orkumatsmálum á íslandi sé að vel skilgreindar og ítarlegar starfsregl- ur verði settar varðandi skoðun, rannsóknir og mat á einstaklingum sem verða fyrir slysum svo að heil- brigðislögum og skaðabótalögum verði framfylgt. Þetta felur að sjálf- sögðu í sér að mismunandi sérfræð- ingar séu tilnefndir í mismunandi til- vikum, hvort sem þeir eru í lækna- stétt aða annaiTÍ heilbrigðisstétt. HeimUdir Alexander, M.P. (1998). In the pursuit of proof of brain damage after whiplash injury. Neurology, 511: 336-3440. Barth, J.T. og Macciocehi, S.N. (1993). Mild Traumatic Brain Injury. Journal of Head Trauma Rehabilitation, 8 (3): 1-19. Busch, C.R. og Alpem, H.P. (1998). Depression After Mild Traumatic Brain Inj- ury: A Review of Current Research, Ne- urology Review, 8 (2): 95-108. Guilmette, T.J. (1991). Cognitive and behavioral symptoms of mild head injury: Considerations for brain damage litigation. Rhode Island Bar Journal, 39, 91-96. Mild Traumatic Brain Ipjury Committee of the Head Injury Interdisciplinary Special Interest Group of the American Congress of Rehabilitation Medicine (1993). Defmition of Mild Traumatic Brain Ipjury. Joumal of Head Trauma Rehabilitation, 8 (3); 86-87. Reitan, R.M. og Wolfson, D. (1999). The Two Faces of Mild Head Injury. Archives of Clinical Neuropsychology, 14,191-202. Ruff, R.M., Wylie, T. og Tennant, W. (1993). Malingering and malingering-like aspects of mild closed head ipjury. Journal of Head Trauma Rehabilitation, 8: 60-73. Stein, S.C. (1996). Classification of Head Injury, í R.K. Narayan, J.B. Wilberger, J.T. Povlishock og J.E. Wilberger (ritstj.) Ne- urotrauma, McGraw Hill: New York. Vamey, N.R. og Menefee, L. (1993). Psychosocial and executive deficits foll- owing closed head ipjury: Implications for orbital frontal cortex. Joumal of Head Trauma Rehabilitation, 8: 32-44. •% 'sl£'AISKFt/i ^Bítstofa Verödæmi: 2 vikur m u / a Hnnta Arenn Beint leiguflug Verödæmi: 2 nætur i Kuala Lumpur (gist á The Federal) og 8 nætur á Penang (gist á Golden Sands) 105.120 kr. Verö frá 38.400 Borgarbragtir á mann í tvíbýli í 3 nætur Framandi feröir Æ á framandi slóöir Frábært verð! a mann m.v. tvo Helgarferöir í allt haust Halifax - Vín - Edinborg ■V Hringdu í síma 585 4040 og viö sendum þér nýja bæklinginn um hæl 0HRVAL-ÚTSÝN Lágmúla 4: clmi 585 4000, gr»nt númer: 800 6300, Hafnarflrðl: slmi 565 2366, K.flavlk: clmf 421 1353 Salloci: tlml 482 1666, Akurayri: ilml 462 5000 - og hjá umboðsmönnum um land allt. www.urvalutsyn.is SkíðaferðTr Til Veróna á frábæra skíðastaði í beinu leiguflugi á laugardagsmorgnum VISA '' ' » ' Höfundur er yfirtaugasálfræðingur á geðdeild Landspítalans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.