Morgunblaðið - 15.08.1999, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
5 30 30 30
Mtasab qta Irá 12-18 og fran að sýrtagu
sýitqanlaBa. 1W) Irá 11 lyrfH
)rlQ|PfiL
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Fim. 19/8 örfá sæti laus.
Fös. 20/8 örfá sæti laus.
Fim. 26/8, fös. 27/8.
SNYR AFTUR
Fos 20/8 kl. 23.00, Síðasta sýning
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðró.
Borðapantanir í síma 562 9700.
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
lau. 21/8 miðnætursýning
á menningarnótt Reykjavíkur
HIRÐFÍFL HF.NNAR HÁTIGNAR
sun. 15/8.
Miöasala i s. 552 3000. Opiö virka daga
kl. 10 — 18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
t
v-.-
ÍSLENSKA OPF.RAN
___illll
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
Gamanleikrit (leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Fim. 19/8 kl. 20.00.
Fös. 20/8 kl. 20.00.
Fös. 27/8 kl. 20.00.
Lau. 28/8 kl. 20.00.
Fim. 2/9 kl. 20.00.
Lau. 4/9 kl. 20.00.
Ósóttar pantanir
seldar daglega
FÓLK í FRÉTTUM
Listahátíð krakka í Tjarnarbíói f september
Morgunblaðið/Ásdís
GUÐRUN Sóley Gestsdóttir, Helga Jónína Markúsdóttir og Gunnur Þórhallsdóttir eru frumkvöðlar og
skipuleggjendur Listahátfðar krakka.
Krakkar halda hátíð
LISTAHÁTÍÐIR af ýmsu tagi
hafa löngum verið haldnar fólki til
ánægju og yndisauka og um þess-
ar mundir eru þrjár ungar at-
hafnastúlkur að undirbúa Listahá-
tíð krakka. Listahátíðin er tilkom-
in algjörlega að þeirra eigin frum-
kvæði, þær sjá um allt skipulag
upp á sitt einsdæmi og leggja
áherslu á það að öll vinna við hátíð-
ina sé í höndum krakka. Þær aug-
lýsa eftir krökkum sem vilja koma
með atriði á hátíðina og segja að
það sé auðvitað skemmtOegast að
atriðin séu sem fjölbreyttust.
Krakkar geta því komið fram með
dans, söng, hljóðfæraleik, töfra-
brögð eða hvaðeina sem þeim
kynni að detta í hug og eru allar
hugmyndir vel þegnar.
Allir krakkar velkomnir
Hátíðin verður haldin í Tjamar-
bíói helgina 25. til 26. september
og eru stúlkumar nú í óða önn að
leita eftir krökkum sem vilja taka
þátt og er öllum krökkum velkom-
ið að vera með.
En hvemig skyldi þeim hafa
dottið þetta í hug? „Fyrst datt
Gunni í hug að það gæti orðið gam-
an að halda danssýningu," segir
Guðrún Sóley. „Svo talaði hún við
okkur Helgu og við ræddum málið
allar saman og ákváðum svo að
það yrði ennþá skemmtilegra að
halda sýningu með fullt af krökk-
um og allskonar atriðum. Svo
sögðum við fólki frá þessari hug-
mynd og flestum fannst þetta
mjög sniðugt svo við ákváðum
bara að drífa í því að gera þetta.“
Tækifæri fyrir krakka
Stelpumar em á tólfta ári og
eru Gunnur og Guðrún Sóley
bekkjarsystur í Vesturbæjarskóla.
Helga er í Fossvogsskóla og
kynntist þeim þegar þær æfðu all-
ar saman ballett. Gunnur og Helga
eru núna saman í Listdansskóla
íslands en Guðrún Sóley er nýbúin
að færa sig úr ballett yfír í djass-
Nú er í bígerð heldur
nýstárleg listahátíð og
er sérstaða hennar
fólgín í því að hún er
alfarið í umsjón
krakka. Birna Anna
Björnsdóttir hitti þær
Gunni Þórhallsdóttur,
Guðrúnu Sóleyju
Gestsdóttur og Helgu
Jónínu Markúsdóttur
sem fengu hugmynd-
ina að Listahátíð
krakka.
nema að einhverjir sem eru að
leita að krökkum til að leika í kvik-
myndum eða auglýsingum muni
koma og fylgjast með Listahátíð-
ínm.
Krakkar sjá um allt
ballett og æfír hjá Djassballett-
skóla Báru.
Það að hafa æft dans í svona
mörg ár hefur gefið þeim tækifæri
til að taka þátt í sýningum og
koma fram á sviði og segja þær að
þeim finnist það mjög skemmti-
legt. Helga segir að þær hafi
stundum hugsað með sér að allir
krakkar ættu að hafa tækifæri til
að koma fram ef þeir hefðu á því
áhuga. „Það eru ekki mörg tæki-
færi fyrir krakka til að koma fram
og okkur langaði tii að reyna að
gera eitthvað til að bæta úr því,“
segir Helga.
„Það er líka svolítið þannig,“
segir Guðrún Sóley, „að það eru
alltaf sömu krakkarnir sem leika í
leikritum og auglýsingum og svo-
leiðis, en á Listahátíðinni gætu
kannski komið fram einhverjir ný-
ir, hæfileikaríkir krakkar." Gunn-
ur bætir því svo við að þetta geti
þannig líka verið tækifæri fyrir
krakka til að koma sér á framfæri
ef þau hafa áhuga á því að koma
fram og að það sé aldrei að vita
„Við leggjum áherslu á að það
séum við krakkamir sem sjáum al-
veg um þetta," segir Gunnur, „því
stundum er það þannig þegar
krakkar eru að gera eitthvað svona
sjálfir og ætla síðan að fá smá hjálp
frá fullorðnum að fullorðna fólkið
fer að stjórna of mikið.“
„Það er líka oft ekki tekið neitt
. mark á krökkum nema að það sé
einhver fullorðinn með þeim,“ seg-
ir Guðrún Sóley og segjast þær
samt vera staðráðnar í því að
halda því til streitu að gera allt
sjálfar. Þær eru með tvo fullorðna
ábyrgðarmenn en sjá þó sjálfar
um alla vinnuna, þar á meðal að
auglýsa, leita eftir styrkjum,
hengja upp veggspjöld, leigja hús-
næði og svo mætti lengi telja.
„Nú vonum við bara að sem
flestir krakkar hafi samband,"
segir Guðrún Sóley, „og við viljum
leggja mjög mikla áherslu á það að
þetta þarf alls ekki að vera ein-
göngu þetta hefbundna eins og
dans eða hljóðfæraleikur til dæm-
is. Það væri gaman að fá eitthvað
eins og fimleikaatriði, trúða eða
töfrabrögð og í rauninni best að
hafa þetta sem allra fjölbreyttast."
„Svo ætlum við líka að halda
myndlistarsýningu," segir Gunnur,
„þannig að krakkar mega endilega
koma með myndir sem verða þá
hengdar upp í anddyrinu og fólk
getur skoðað fyrir og eftir sýningu
og í hléinu."
Þær hvetja alla áhugasama
krakka, sem vilja taka þátt í lista-
hátíðinni, annað hvort með því að
koma fram með atriði eða að vinna
á einhvern annan hátt við fram-
kvæmdina, til að láta vita af sér
með því að senda tölvupóst á
josefiriaEsimnet.is eða torhEitn.is
Láttu hann í friði!
HÉR hefur lítill api skorist í leikinn í nautaati
sem haldið var á Santo Domingo-hátíðinni í
Nicaragua. Apinn er í eigu eiganda leikvangs-
ins þar sem nautaatið fór fram og ætti hann
því að vera nokkuð hagvanur og er ekki annað
að sjá en að hann kunni réttu tökin. Kannski er
hann að reyna að hjálpa nautabananum sem er
ekki í eins góðri stöðu og hann, og ef til vill er
hann að reyna að segja nautinu að láta hann í
friði.
MYNDBÖND
Hartley upp
á sitt besta
Henry klaufi
(Henry Fool)
liaman/drama
★★★★
Framleiðandi, leikstjóri og handrits-
höfundur: Hal Hartley. Aðalhlutverk:
Thomas James Ray, James Urbaniak
og Parker Posey. (144 mín.) Banda-
ríkin. Háskólabíó, ágúst 1999. Bönn-
uð innan 16 ára.
HAL Hartley er einn áhugaverð-
asti leikstjóri sem starfandi er í
Bandaríkjunum í dag. Kvikmyndir
hans bera sterk og
sérviskuleg höf-
undareinkenni en
Hartley skrifar
þær, leikstýrir og
framleiðir venju-
lega sjálfur. í
Henry klaufa sem-
ur hann auk þess
tónlistina, sem er
órjúfanlegur hluti
af sérkennilegri hrynjandi myndar-
innar.
I Henry klaufa vinnur Hartley
áfram með ýmis grunnstef sín sem
snúast um seigfljótandi samskipti og
tilvistarkreppur brauðstritandi al-
múgans. Hér skipa þó vangaveltur
um snilligáfu og gildi listarinnar
þungamiðjuna. Segir þar frá
lífskúnstnernum og vandræðageml-
ingnum Henry sem kemur inn í líf
sorphirðustarfsmannsins Simon
Grim og dregur fram listamanninn
sem býr innra með honum. Myndin
býr þannig yfir mikilsverðri menn-
ingar- og samtímaumræðu sem jafn-
framt er sett fram í mátulega húmor-
ískri fjarlægð. Kímnigáfa myndar-
innar er reyndar einstök líkt og flest-
ir aðrir þættir hennar. Handritið er
hrein snilld og fær byr undir báða
vængi í meðförum leikara sem kunna
með sköpunarverk Hartleys að fara.
Heiða Jóhannsdóttir
Skapstór
Oskubuska
Úti er ævintýri
(Ever After)
Kó m <i n (í k
★★
Framleiðendur: Mirelle Soria og
Tracey Trench. Leikstjóri: Andy
Tennant. Aðalhlutverk: Drew
Barrymore, Anjelica Huston og Dou-
gray Scott. (100 mín) Bandaríkin.
Skífan, ágúst 1999. Öllum leyfð.
í UPPHAFI þessarar kvikmyndar
sjáum við þegar öldruð hefðarfrú
býður Grimms-bræðrum í heimsókn
og segist óánægð
með framsetningu
þeirra á Ösku-
busku-sögunni.
Þvínæst segir hún
þeim söguna um
Óskubusku sem
hét Danielle og var
formóðir hefðar-
frúarinnar.
Á þessum for-
sendum er hið sígilda ævintýri um
stjúpdótturina ólánssömu endurtúlk-
uð allrækilega og aðalpersónan gædd
bæði gáfum og heillandi persónuleika
sem prinsinn síðan kolfellur fyrir.
Öskubuskan sem hér birtist er því
allsendis ólík hinni góðhjörtuðu og
fótnettu nöfnu sinni úr ævintýrinu.
Efnistökin í þessari Öskubuskuút-
færslu eru áhugaverð og er hér á
ferðinni nokkuð skemmtileg og róm-
antísk ástarsaga. Góður húmor léttir
myndina, sem þó hefur nokkra galla.
Atburðarásin flæðir illa og verður
óþægilega stirðbusaleg á köflum.
Drew Barrymore fótar sig illa í hlut-
verki sínu sem Öskubuska og nær
engan veginn valdi á enska hreimn-
um. Utlit og umgjörð myndarinnar
er hins vegar öll hin glæsilegasta og
má vel mæla með henni sem hinni
sæmilegustu skemmtun.
Heiða Jóhannsdóttir
i