Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 4

Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 VIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ Nýtt fyrirtæki, TeleMedlce, stofnað um þróun og sögu fiarlækningabúnaðar TELEMEDICE hf. er nýtt fyrir- tæki sem stofnað var í þeim tilgangi að þróa og selja færanlegan fjar- lækningabúnað. Eigendur fyrirtæk- isins eru Gagnalind hf., Margmiðlun hf., Skyn ehf. og Sigurður A. Krist- insson, læknir. Þessir aðilar hafa sérþekkingu, hver á sínu sviði, sem nýtist við þróun hugbúnaðar fyrir fjarlækningar. Slysatíðni sjómanna er gríðarlega há miðað við aðrar atvinnustéttir í landinu. Árið 1990 var fjöldi til- kynntra slysa á sjó við Island um 600 tilfelli á ári. Þetta eru þó aðeins til- kynnt slys og búast má við að talan sé mun hærri. A tímabilinu 1980- 1996 voru dauðaslys meðal sjómanna að meðaltali 9,4 á ári. Þjálfun sjómanna varðandi við- brögð við slysum á hafi úti er stöðug og vaxandi. Hinsvegar er sjómönn- um oft nauðsynlegt að komast í sam- band við lækni þegar slys eða veik- indi bera að höndum. Sjómenn hafa mun lakari aðgang að heilbrigðis- þjónustu en aðrir landsmenn. Talið er að í allt að tveimur af hverjum þremur tilvikum sem sjómenn leita sér hjálpar læknis sé um veikindi en ekki slys að ræða. Fjarlækningum er því ekki aðeins ætlað það hlutverk að aðstoða ef slys ber að höndum, held- ur eru þær liður í því að bæta þá heilbrigðisþjónustu sem sjómenn njóta. Með nákvæmari greiningu á aðstæðum verður auðveldara að meta hvort senda þurfi þyrlu eftir sjúklingi og eða hvort skip þurfi að sigla í land. I báðum tilfellum er kostnaðurinn mikill, hvort heldur sem er fyrir útgerðir, tryggingafélög eða þjóðfélagðið í heild. Kostnaður við sjúkraflug Landhelgisgæslunnar og heildarkostnaður við sjúkrahús- vist er umtalsverður á hverju ári. Slysatryggingar sem Trygginga- stofnun ríkisins greiðir fyrir sjó- menn eru rúm 35% af öllum slysa- tryggingum sem stofnunin greiðir. Það er hátt hlutfall ef tekið er tillit til þess að sjómenn eru aðeins tæp 5% af starfandi fólki í landinu. Heild- arkostnaður vegna slysa á hafi úti, þ.e.a.s. bæði persónulegur og samfé- lagslegur er um 2 milljarðar á ári og er þá ekki reiknað með veikinda- kostnaði nema að litlu leyti. Augu, eyru og hendur læknis í landi Fjarlækningabúnaður Tel- eMedlce mun gera kleyft að koma á myndrænu og talrænu sambandi milli skips og lands í slíkum tilvikum og auðvelda aðilum að meta betur en áður hefur verið hægt hvort nauð- synlegt sé að sigla til hafnar, senda björgunarþyrlu eða gera aðrar ráð- stafanir. Þannig mun fjarlækninga- búnaður auka öryggi sjómanna, auk þess sem hann mun spara fé og auð- velda að réttar ákvarðanir séu tekn- ar. Veikist maður eða slasist úti á sjó er hægt að senda upplýsingar um líðan hans, rekja t.d. einkenni sjúk- dómsins, senda myndir af sári sem hann hefur hlotið eða hjartalínurit. Upplýsingar berast um gervihnött til læknis á bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur sem leggur mat á að- stæður og leiðbeinir um meðferð eða aðgerð. Segja má að búnaðurinn gefi sjómönnum á hafi úti tækifæri til að vera þannig augu, eyru og hendur læknis í landi. Sérhver skipverji er skráður í áhafnarskrá viðkomandi skips þegar hann hefur störf. Þar koma fram upplýsingar um heimilis- lækni, ofnæmi, lyfjanotkun o.sfrv. Við slys eða veikindi er þessi skrá opnuð á nafni sjúklings og síðan tek- ið til við að fylla í einkennalista. Not- andi er þannig leiddur áfram með spurningum sem hann svarar áður en haft er samband við lækni í landi. Með fjarlækningabúnaðinum er þannig hægt að senda mun nákvæm- ari upplýsingar í land en áður sem leiðir til árangursríkari greiningar og meðferðar. Heilbrigðisþjónusta sjómanna færist því nær sem al- menningur í landi nýtur að jafnaði. Samsetning búnaðarins byggð á þörf Unnið hefur verið að samsetningu búnaðarins í rúmt ár og vann Skyn ehf. meðal annars að því verki, ásamt Sigurði A Kristinssyni lækni Heilbrigðisþj ónustan færð um borð í skipin Slysatíðni meðai sjómanna er hærri miðað við aðrar atvinnustéttir í landinu. Þjálfun sjómanna varðandi viðbrögð við slysum á hafí úti er stöðug og vaxandi en sjómönnum er hinsvegar oft nauðsynlegt að komast í samband við lækni þegar slys eða veikindi ber að höndum. Helgi Mar Árnason ræddi við talsmenn TeleMedlce um þróun og sölu á fjarlækningabúnaði sem gerir sjómönnum kleift að koma á mynd- og talrænu sambandi milli skips og lands og fá aðstoð lækna við mat á aðstæðum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Talsmenn TeleMedlce. F.v. Jón Bragi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skyns ehf., Sigurður Ágúst Kristinsson, iæknir, Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdasljóri Margmiðlunar hf., og Árni Geir Sigurðsson, Gagnamiðlunar hf. með styrk frá Rannís. Jón Bragi Björgvins- son, fram- kvæmdastjóri Skyns ehf. segur að gerð hafi ver- ið úttekt á þeim þörfum sem eru úti á sjó og út frá því fundnar þær upplýsingar sem læknir þurfi frá skipinu til að geta tekið ákvörðun um það hvort snúa þurfí skipinu í land, hvort hægt sé að sinna sjúk- lingnum um borð eða jafnvel senda eftir þyrlu. „Þeg- ar slys ber að höndum er gott að geta sent lækni í landi mynd og fengið þannig aðstoð til að meta hversu alvarlegt slysið er. Hingað til hafa sjómenn eingöngu þurft að styðjast við talsamband við slíkt mat og eins og gefur að skilja getur lækni í landi reynst erfitt að gera sér grein fyrir hvers eðlis slysið er út frá munnlegri lýs- ingu, hvað þá þegar ofan á bæt- ast tungumálaerfiðleikar ef um er- lend skip er að ræða. I sumum tilfell- um er nauðsynlegt að framkvæma línuritsbúnaður með tölvunni og þannig er til dæm- is hægt að meta hvort um er að ræða millirifjagigt eða hjartaáfall. Þannig höfum reynt að finna út hvaða búnaður það er sem skiptir virkilega sköpum úti á sjó. Eftir að niðurstöður lágu fyrir var kominn grundvöllur fyrir að því að hanna búnaðinn." Myndskeið á margmiðlunar- formi Sigurður A. Kristinsson, lækn- ir, hefur víðtæka reynslu af slysa- vörnum sjómanna. Hann hefur þjónað sjómönnum í Smugunni um borð í varðskipinu Óðni, er í þyrlu- sveit Landhelgis- gæslunnar og setið í lyfjakistunefnd, auk þess sem hann sinnir kennslu skipsstjórnar- manna í Stýri- mannaskólanum í Reykjavík. Hann hefur ennfremur tekið saman myndefni þar sem sýndar eru ýmsar aðgerðir sem gæti þurft að fram- kvæma ef slys ber að höndum. Þetta myndefni hefur nú verið fært á margmiðlunarform og Fjarlækningabúnaðinum er komið fyrir í handhægri tösku, sem inni- heldur fartölvu, stafræna myndavél, hjartalínuritsbúnað, heyrnartól og hljóðnema, farsímatengingu og nauðsynlegan hugbúnað. einhverskonar mælingar, til dæmis ef brjóstverkur vekur grun um hjartaáfall. Þessvegna fylgir hjarta- er aðgengilegt í fjarlækningabúnaði TeleMedice. Hann hefur ennfremur staðið að framleiðslu kennslumynd- bands fyirir sjómenn, en sambæri- legt efni verður nú fært yfír á marg- miðlunarform sem hluti af búnaði TeleMedlce. Þannig verður hægt að sjá myndskeið til leiðbeiningar úti á sjó, hvernig t.d. á að setja upp æðar- legg eða koma fýrir hálskraga. Árni Geir Sigurðsson, verkfræðingur hjá Gagnalind hf., segir það mikinn styrk fyrir sjómennina að hafa að- gang að þessum myndskeiðum. „Þegar slys ber að höndum verður gjarnan mikil ringulreið um borð. Með fjarlækningabúnaðinum geta sjómennirnir hinsvegar nálgast nauðsynlegar upplýsingar sem þeir þurfa á að halda þegar þeir þurfa á þeim þarf að halda. Kerfið leiðir sjó- mennina skref fyrir skref í gegnum ákveðið ferli en ef þeir eru farnir að ryðga eða eru óöruggir varðandi ein- stök atriði, geta þeir sótt viðkomandi myndskeið eða upplýsingar. Þannig felst einnig í þessu kerfi nokkurs- konar endurmenntun,“ segir Árni Geir. Tryggir áframhaldandi aðhlynningu Sigurður segir oft erfitt að meta í gegnum síma eða annað talsamband hversu alvai’legt ástandið er en venju- lega fái hinn slasaði sjómaður að njóta vafans og reynt sé að koma hon- um í land á einhvern hátt. I sumum tilfellum sé hinsvegai’ um að ræða meiðsli eða veikindi sem hægt sé að ráða við um borð. „Fjarlækningabún- aðurinn hjálpar til við að ákveða hvernig best er að bregðast við. Hann tryggir þar að auki áframhaldandi að- hlynningu. Ef sjómaður slasast og farið er með hann í land er auðveld- lega hægt að senda upplýsingar um viðkomandi sjúkling til sjúkrahúsa eða heilsugæslustöðva þar sem tekið er á móti honum. Kerfið hefur ákveð- ið foi-varnargildi þar sem skráning upplýsinga verður betri.“ Möguleikar á markaðssetningu erlendis Stefán Hrafnkellsson, fram- kvæmdastjóri Margmiðlunar, segir að fyi-st í stað verði lögð áhersla á að selja og þjónusta íslenska skipaflot- ann en einnig séu möguleikar á er- lendri markaðssetningu. Eitt af stærri verkefnum TeleMedlce sé ennfremur að koma á fót fjarlækn- ingamiðstöðvum, bæði hér heima og erlendis. „Fjarlækningamiðstöðvar sem eru búnar til þess að taka á móti slíkum skeytum og læknar þjálfaðir í að svara slíkum fyrirspurnum eru lykilatriði. Við höfum hvatt stjórn- völd til að útvíkka þá þjónustu sem nú þegar er veitt íslenskum skipum. Vonandi fæst þá vilyrði fyrir því að erlend skip noti þessa þjónustu líka. Á fjarlækningamið stöðinni byggjum við sjúkraskrárkerfi Gagnalindar sem nú er þegar í notkun á öllum heilsugæslum hér á landi og búum þar til viðbótareiningu sem tekur við skeytum frá skipunum. Þannig byggist upp saga sem gerir alla úr- vinnslu þægilegri fyrir lækninn. Stefán segir samskiptatæknina byggða á Internetinu en búnaðurinn sé sérhæfður að því leytinu til að hann vinni á mjög lágri bandvídd. „Það tekur því talsverðan tíma að senda gögn, sérstaklega hljóð, í land. En bandvíddin við skipin mun aukast í framtíðinni og þá munum við njóta þess,“ segir Stefán. Ótal aðrir mörguleikar Þegar eru í gangi tilraunir með búnað frá TeleMedlce um borð í nokkrum íslenskum skipum. Með til- komu þessa nýja búnaðar verður ör- yggi sjómanna betur tryggt ef slys eða veikindi ber að höndum. Auk þess mun búnaðurinn geta nýst til hvers konar myndrænna sendinga milli skips og lands, t.d. í tengslum við afla, skemmdir, varahluti o.s.frv. TeleMedlce tekur þátt í íslensku sjávarútvegssýningunni til að kynna fjarlækningabúnaðinn fyrir sjó- mönnum, útgerðarmönnum og öðr- um sem kunna að hafa not af honum. Fyrirtækið stefnir að hafa vöruna tilbúna til sölu á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.