Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 14
14 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________________VIÐTAL_____________________________
Baader-Island hefur þjónað fslensku fískvinnslunni í fjörutíu ár
Ollu straumhvörfum
í íslenskri fískvinnslu
s
Baader-Island heldur upp á fjörutíu ára starfsafmæli þessa dagana.
Saga fyrirtækisins er samofín þróun í fískvinnslu hér á landi og það
hefur lagt þung lóð á vogarskálar nútímavæðingar vinnsluhátta. Örn
Arnarson tók hús á Einari Benjamínssyni framkvæmdastjóra Baader-
Island og Þóri Einarssyni sölustjóra og fékk þá til að segja sér eitt og
annað um þetta merka fyrirtæki.
BAADER-fsland er með ráðandi stöðu á markaðnum fyrir fiskvinnsluvélar á Islandi.
Enar Benjaminsson og Þórir Einarsson við eina af Baader vélunum.
Árið 1955 gengu tveir menn á
fund Benjamíns H.J. Eiríkssonar,
sem var þá bankastjóri Fram-
kvæmdabankans. Mennirnir voru
Huxley Ólafsson úr Keflavík og
Þjóðverjinn TJlrik Marth. Erindi
þeirra félaga var einfalt. Þeir vildu
að bankinn lánaði hraðfrystihúsum
peninga til að kaupa Baader-flatn-
ingsvélar. Benjamín bankastjóra
leist vel á hugmyndina og fyrstu
vélarnar komu til landsins ári síðar
og síðari tíma vélvæðing fískvinnsl-
unnar hófst. Baader-flökunarvél-
amar ollu straumhvörfum í fram-
leiðslu á bolfiski. Afli sem var tek-
inn til vinnslu í frystihúsum jókst
úr 180 þúsund tonnum árið 1957 í
258 þúsund tonn ári síðar. Þetta
var aukning upp á 43% og er hún
að mörgu leyti Baader-vélunum að
þakka.
Orðrómurinn spurðist út og
snemma varð mikil eftirspurn eftir
vélunum hjá fískverkendum.
Vegna hamlandi áhrifa haftakerfís-
ins sem var þá enn viðloðandi í ís-
lenskum efnahag var ekki séð fram
á að hægt yrði að standa í innflutn-
ingi á vélunum án þess að stofna
kringum það íslenskt fyrirtæki. í
september árið 1959 var Baader-
þjónustan stofnuð. Nafninu var
seinna breytt í Baader-ísland og
heldur fyrirtækið upp á 40 ára
starfsafmæli þessa dagana.
Neikvæðni í upphafi
Það vill svo skemmtilega til að á
þessum tímamótum er Einar, son-
ur Benjamíns bankastjóra; fram-
kvæmdastjóri Baader-íslands.
Hann segir að Ulrik stofnandi fyr-
irtækisins hafi kynnst vélvæðingu í
fiskvinnslu og um borð í skipum í
Þýskalandi. „Þegar hann flutti svo
hingað og sá hversu skammt á veg
menn voru komnir í þessum málum
útvegaði hann sér umboð fyrir
Baader hið snarasta."
Einar segir að til að byrja með
hafi heyrst efasemdar- og úr-
töluraddir meðal manna í útvegin-
um. „Það var eitthvað um neikvætt
viðmót til að byrja með og eitthvað
var um að menn héldu að fyrirtæk-
ið væri að svipta menn vinnu. Þeg-
ar menn fengu reynslu af vélunum
breyttist það.“
90% markaðshlutdeild
Baader-vélarnar voru einráðar á
markaðnum í upphafi. Þórir Ein-
arsson sölustjóri hjá fyrirtækinu
segir að það hafi lítið breyst. „Það
var enginn að bjóða upp á neitt
svipað. Þetta hefur í stórum drátt-
um ekki mikið breyst. Að vísu er
komin samkeppni á ákveðnum
sviðum en í bolfisknum erum við
sennilega með rúmlega 90% mark-
aðshlutdeild. Það segir ef til vill
meira en mörg orð um vinsældir
vélanna hér á landi að ákveðin
starfsgrein hefur verið nefnd eftir
þeim,“ segir Þórir og vísar í störf
Baader-manna, sem eru ómissandi
um borð í vinnsluskipum. „En við
einokun samt ekki markaðinn. Það
er opið fyrir alla að koma inn á
þennan markað.“
Einar er með kenningu um
hvers vegna Baader-vélarnar eru
nær einráðar í bolfiski hér á landi.
„Ég held að samkeppnin við okkur
hafi alltaf verið rekin á vitlausum
forsendum. Menn hafa frekar
reynt að undirbjóða okkur í stað
þess að reyna að koma fram með
betri vélar. Baader hefur ávallt
lagt alla áherslu á gæði - það þýðir
að vélamar okkar eru dýrari en
það skilar sér til lengri tíma litið.“
Baader-vélar eru ekki
fjöldaframleiddar
Þeir félagar Einar og Þórir
segja að stundum gæti misskiln-
ings varðandi vélamar. Þær em
ekki fjöldaframleiddar eins og
margir halda. Einar segir að mest
seldu vélarnar hafi ekki farið í
mörgum eintökum. „Baader 189 er
ein mest selda vélin okkar og er út
um allt land. Það hafa aðeins verið
framleidd 500 eintök af henni.
Baader 440, sem er flatningsvél,
var framleidd í um 1.000 eintökum.
Þetta er ekki mikið miðað við
fjömtíu ár.“
Einar segir að þessi litla fram-
leiðsla og langur endingartími vél-
anna sé bæði kostur og löstur fyrir
fyrirtækið. „Þetta gerir það að
verkum að til þess að fyrirtækið
þróist og dafni verðum við að koma
með nýjar og betri lausnir. Ef við
geram það ekki er engin ástæða
fýrir kaupendur að endumýja vél-
amar.“
Þrátt fyrir mikla markaðshlut-
deild og langan endingartíma vél-
anna telur Einar ekki hættu á því
að markaðurinn mettist. „Það er
auðvitað nóg af Baader-vélum í
landinu en það borgar sig ekki að
nota gamlar vélar þegar er komin
ný tækni sem skilar meiri fram-
leiðni og nýtni á fisknum en það
gerir einmitt nýja kynslóðin af vél-
unum. Það hafa einnig orðið mikil
kynslóðaskipti í sjávarútveginum á
síðustu árum. Til okkar eru að
koma ungir menn með ferskar
hugmyndir sem vilja fá Baader-
vélar. Ég held að við þurfum ekki
að bera kvíðboga fyrir framtíðinni
meðan það gerist.“ Þórir segir að
nýju vélarnar gefi góð íyrirheit.
„Til að mynda karfavélarnar okk-
ar, sem opna möguleika fyrir að
vinna minni físk en áður. Það er
hægt að skapa verðmæti úr fiski
sem áður var dæmdur til gúanóv-
istunar. Einnig hefur tölvutæknin
skilað því að flökin, sem em koma
úr vélunum, em miklu fallegri.
Þessar vélar gefa aukna nýtingu,
auka verðmæti og spara vinnuafl.
Það blasir því við að það borgi sig
að endurnýja vélarnar."
Þróum vélarnar sjálfir
í auknum mæli
Baader-ísland hefur tekið mikl-
um breytingum gegnum árin.
Auknar áherslur hafa verið lagðar
á að þróa vélarnar hér heima fyrir
íslenskar aðstæður. Einar segir
mikilvægt fyrir fyrirtækið að geta
þetta. „Við emm til dæmis núna að
breyta vél, sem vinnur síld fyrir
gulllax. Við leggjum alltaf meiri
áherslu á þetta. Við tökum vélar
sem em til, breytum þeim fyrir
aðrar tegundir. Við gerðum þetta
ekki mikið áður en sinnum þessu í
æ meira mæli. Við leggjum líka
mikinn metnað í að hafa sem best-
an lager og svo að við getum þjónu-
stað viðskiptavini okkar sem best.
Við eram farnir að framleiða meira
af okkar varahlutum og það kemur
sér vel íyrir viðskiptavinina vegna
þess að þeir era ódýrari en inn-
fluttir varahlutir."
Einblínum á íslenska
markaðinn
Þrátt íyrir að mikil þekking og
reynsla búi í fjörutíu ára gömlu
fyrirtæki eins og Baader-Island
hefur fyrirtækið ekki nema að litlu
leyti hafið útrás til fjarlægra landa.
„Við höfum selt vélar erlendis en
við eram fyrst og fremst að þjóna
íslenskum fyrirtækjum og við ætl-
um að halda því áfram,“ segir Þór-
ir. Einar bætir því við að þrátt fyr-
ir að fyrirtækið búi yfir mikilli
reynslu segi það ekki allt. „Við höf-
um auðvitað mikla þekkingu á ís-
lenskum aðstæðum. En málið er að
íslenskar aðstæður gilda ekki ann-
ars staðar í heiminum."
íslensk sjávarútvegssýning án
Baader-véla væri óhugsandi
Menn geta velt því fyrir sér
hvers vegna fyrirtæki, sem er með
rúmlega 90% markaðshlutdeild, sé
að standa í því að kynna sig á sjáv-
arútvegssýningu. Éinar segir að
vissulega sé ekki bráðnauðsynlegt
fyrir Baader-ísland að vera með.
„En íslensk sjávarútvegssýning án
Baader væri fáránleg. An okkar
væri ansi stórt gat.“
Þeir félagar segja að Baader-ís-
land verði með stærsta bás sem
þeir hafi verið með á sýningunni til
þessa. Þórir segir að fyrirtækið
hafi aldrei sýnt jafn margar vélar á
sýningunni. „Og við höfum aldrei
verið jafn íslenskir á sýningu, í
þeim skilningi að við höfum aðlag-
að þær flestar sérstaklega fyrir ís-
lenskar aðstæður."
□ RYGGI
í 90 ÁR
19D9 - 1999
Samábyrgð íslands byggir á 90 ára
langri reynslu og þekkingu í að þjóna
hagsmunum íslenskra sjómanna og
útgerða sem sérhæft skipatryggingafélag.
Rétt trygging skiptir sköpum ef í nauðirnar
rekur. Þar er Samábyrgð íslands öllum
hnútum kunnug.
Samábyrgð
Islands
Pósthólf 8320, Lágmúla 9, 128 Reykjavík,
SÍmi 568-1400, fax 581-4645,
samabyrgd@samabyrgd.is
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
...
mbl.is/fasteignir