Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 47

Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 47 Stjórnar og fylgist með viðhaldi vélbúnaðarkerfa Kynna fjórðu kynslóð „Viðhaldsstjóra“ UM áratugaskeið hafa menn glímt við þann vanda hvemig hægt sé að halda utan um viðhald vélbúnaðar- kerfa með skipulögðum hætti. Með tilkomu einkatölvunnar opnuðust nýir möguleikar í þessum efnum og fijótlega spruttu fram viðhaldsforrit sem áttu að auðvelda mönnum störfin. Akkillesarhæll flestra þessara kerfa er hins vegar sá að þau eru bæði dýr og flókin í notkun. Fyrir 8 árum kom hins vegar fram á sjónarsviðið íslenskt viðhaldskerfi sem ekki er þessu marki brennt, enda hefur það slegið í gegn í íslenska fiskiskipaflotanum. Þetta er Viðhaldsstjóri en fjórða kynslóð hans verður kynnt á sjávarútvegs- sýningunni í Kópavogi. „Við höldum því fram að hvaða fyrirtæki sem er geti nýtt sér Við- haldsstjóra og höfum byggt hann þannig upp að hann henti fyrir jafnt stórar sem smáar einingar. Við telj- um að hann komi ekki aðeins að gagni í stórum fiskiskipum eða fyr- irtækjum heldur geti einstaklingur sem til dæmis rekur skurðgröfu eða vörubíl allt eins nýtt sér forritið með góðum árangri," segir Davíð Hafsteinsson, rafmagnsiðnfræðing- ur. Davíð er framkvæmdastjóri Gol- íats ehf. sem sér um sölu á forritinu og þjónustu við notendur þess. As- geir Guðmundsson sér um forritun, hönnun og þróun og vinna þeir fé- lagar náið saman þótt annar búi á Akureyri en hinn í Reykjavík. Skipulagning og stjórnun Eins og nafnið ber með sér hefur Viðhaldsstjóri það hlutverk að skipuleggja, stjórna og fylgj- ast með viðhaldi vélbúnaðarkerfa. Forritið skiptist í nokkra megin- hluta sem allir tengast saman í eina heild. Tækja- skráin geymir tæknilegar upp- lýsingar um öll tæki og vélbúnað. Þar er skráð heiti hlutarins, númer og tæknilegar upplýsingar. I verklýsingaskránni er hin eigin- lega skipulagning viðhaldsins fram- kvæmd. Þar kemur fram hve langur tími á að líða á milli þess sem hlutur er skoðaður eða endumýjaður og hvaða varahluti á að nota til verks- ins. Þegar geyma þarf athugasemdir sem koma upp við eftirlit, upptektir, viðgerðir eða vegna bilana eru þær skráðar í söguskrá. Þar er einnig hægt að flokka athugasemdir á margvíslegan máta. Framleiðendur, umboðsmenn, starfsmenn og þjónustuaðiiar eru skráðir í nafnaskrána. í hana er hægt að skrá inn ýmsar upplýsing- ar sem gott getur verið að hafa, t.d. hvaða vörur viðkomandi umboðs- maður er með, tengiliði, sérsvið tengiliða o.s.frv. Eins og nafnið bendú til geymir varahlutaskráin allar upplýsingar um varahluti. Hvem varahlut er hægt að tengja ákveðnum tæþjum en það er þó ekki nauðsynlegt. Geymslustaður, flokkur (t.d. legur, pakkdósh', perur, penslar og máln- •ng) og framleiðslunúmer, ásamt birgðanúmeri hvers hlutar, em einnig skráð í varahlutaskrá. Þegar pöntun er gerð á varahlut úr varahlutaskránni myndast pönt- un í pantanaskránni. í henni er hægt að breyta um birgja, setja inn athugasemdir sem koma fram á út- Prentun eða búa til pöntun fyrir hluti sem ekki er talið nauðsynlegt að eiga skráða í varahlutaskrá. Stöðugt auknar vinsaeldir Viðhaldsstjóri hefur slegið í gegn °g fjöldi seldra eintaka nálgast nú 100. Talsvert er um að fyrirtæki hafi verið að leggja öðmm viðhaldskerf- um og taka Viðhaldsstjóra í notkun í staðinn. Flestar stærstu útgerðir landsins hafa þegar tekið forritið í þjónustu sína. Má þar nefna Sam- herja, Granda, ÚA, Þormóð ramma - Sæberg, Vinnslustöðina, Harald Böðvarsson hf., Snæfell, Fiskiðjuna Skagfirðing, Þorbjöm hf., Fiskhnjöl og Lýsi og margar fleiri. Einnig má nefna fyrh'tæki og stofnanir í landi eins og Sæplast, Bæjarveitur Vest- mannaeyja, Mjólkursamlag KEA, Vélskóla íslands, o.fl. „Þeir sem tek- ið hafa Viðhaldsstjóra í þjónustu sína skilja fæstir hvemig þeir komust af Meðal notenda Viðhaldsstjóra er Gunnlaugnr Hafsteinsson, vélstjóri á Gullveri NS 12. Hann segir forritið hafa valdið byltingpi á störfum vél- stjóranna og mesti munurinn sé að þurfa nú ekki lengur að blaða í gegnum stafla af stílabókum til að halda utan um viðhaldið eða treysta á að hafa varahlutalagerinn í kollinum. án hans. Á öllum stærri skipum er til dæmis skiptikerfi í gangi og þegar vélstjóri kemur um borð eftir frítúr er engin hætta á að upplýsingar mis- farist milli manna. I Viðhaldsstjór- anum er á skammri stundu hægt að sjá allt sem gert var í síðasta túr, hver staða varahlutalagersins er, hvaða verk em komin á tíma og svo framvegis. Reyndir vélstjórar hafa sagt mér að Viðhaldsstjórinn sé mesta bylting sem þeir hafi kynnst síðan þeir byrjuðu á sjó og stað- reyndin er sú að ánægðir viðskipta- vinir ei-u besta auglýsingin," segir Davíð. Viðmótið gert enn þægilegra „Ég tel lykilinn að vinsældum Viðhaldsstjóra vera þann hversu einfalt og þægilegt foi-ritið er í notkun. Menn þurfa ekki að búa yfir sérstakri tölvukunnáttu til að nýta sér hann og eru ótrúlega fljótir að komast upp á lagið. Við hverja nýja útgáfu höfum við kappkostað að taka fullt tillit til ábendinga frá not- endum og í fjórðu kynslóð Viðhalds- stjóra, sem nú er verið að kynna, má finna ýmsar nýjungar sem gera hann enn notendavænni, eins og gjarnan er sagt. Viðmótið er allt liprara, minna þarf að ferðast með músina um skjáinn og innsláttur er auðveldai-i, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Davíð. Ein stærsta breytingin liggur í breyttri uppbyggingu tækjaskrár- innar, sem er aðalhluti forritsins. Uppbyggingin auðveldar mönnum að leita að tæki með því að rekja sig í gegnum kerfið á svipaðan hátt og gert er t.d. í Windows Explorer þegar finna þarf tiltekna ski'á. Sum- ir líkja þessari uppbyggingu raunar við ættartré. „Éldri útgáfan er reyndar upp byggð á sama hátt en þar voru þrepin aðeins þrjú. Nú hefur þeim verið fjölgað og er fjöldi þeirra raunar ótakmarkaður," segir Davíð. Ekki bundið af númerakerfi Þau viðhaldskerfi sem nú eru á markaði eru byggð upp í kringum númerakerfi, þ.e. öllum hlutum þarf að gefa tiltekið númer svo kerfið virki. Hinsvegar eru í gangi ýmis númerakerfi og sum þeirra afar flókin og illskiljanleg. „Auðvitað væri best að það væri til eitt sam- ræmt númerakerfi sem allir notuðu en þannig er það því miður ekki. Við veltum mikið fyrir okkur leiðum til að leysa þetta vandamál og komust að því að best væri að fela númera- kerfið inni í forritinu í stað þess að byggja forritið utan um númera- kerfi eins og flestir gera. Til að skrá hlut inn í nýju útgáfuna af Viðhalds- stjóra og tengja hlutinn öðrum þátt- um kerfisins þarftu því ekki að hafa einhverja talnarunu tiltæka heldur aðeins að vita hverju þessi tiltekni hlutur tilheyrir. Af öðrum endurbótum frá síðustu útgáfu má nefna auðveldari teng- ingu við önnur forrit, uppfærsla og afritunartaka er einfaldari og möguleikar til að afla sér upplýs- inga með fyrir- spurnum hafa verið stórauknir. Hægt er að láta forritið geyma tilteknar fyrir- spurnir og tengja þær síðan hnöppum. Þannig er til dæmis hægt að láta forritið finna alla varahluti sem notaðii' voru í síðasta túr, hvað var gert á síðasta sólarhring og svo framvegis. Þetta er hlutur sem við erum mjög stoltir af og eykur enn á möguleikana til að sækja ýmsar upplýsingar í kerfíð," segir Davíð. Möguleikar erlendis Fram að þessu hefur ekki verið lögð áhersla á að kynna Viðhalds- stjóra utan Islands. Hann er þó í notkun í nokkrum skipum erlendis sem reyndar tengjast flest Islandi með einum eða öðrum hætti. Má þai- nefna skip dótturfélaga Sam- herja. „Forsenda þess að eiga erindi á erlendan markað er að klára dæmið hér heima. Fram til þessa hefur þýðing Viðhaldsstjóra á önn- ur tungumál verið vissum erfiðleik- um bundin en með nýjustu útgáf- unni af Viðhaldsstjóra breytist þetta. Þar með stóraukast mögu- leikar á markaðssetningu erlendis og það er hlutur sem við erum þeg- ar farnir að skoða af alvöru. Ég get nefnt að Slysavarnafélagið - Lands- björg er að setja Viðhaldsstjóra í björgunarbáta sína hringinn í kringum landið. Guðmundur Þór Kristjánsson á Isafirði, sem sér um málið fyrir Slysavai'nafélagið, kynnti forritið á alþjóðlegri ráð- stefnu í Englandi þar sem voru samankomnii- fulltrúar björgunar- félaga sem gera út björgunarskip. Þar vakti Viðhaldsstjórinn geysi- lega athygli og nokkrir aðilar bíða spenntir eftir nýjustu útgáfunni á ensku. Af þeim viðbrögðum að dæma eru ýmsir möguleikar fyrir hendi,“ segir Davíð. Þess má að lokum geta að Við- haldsstjóri er framleiddur fyrir mörg stýrikerfi, svo sem Windows og Mac OS. Forritið er aðeins selt í einni útgáfu og án takmarkana. Sjómenn - útgerðarmenn Starfrækjum fjarskipta- og gólfmarkað í Ólafsvík Útvegum kör og ís og veitum þjónustu með lyfturum á bryggju. simor 4361611 og 4361633. Voktsími 8947522. Fox 4361622 verkf ræðistof a n wniTi ifcf ‘ ðjyiHMNHPI MARKPOINT* TEC J> L e i ð a n d 1 „,‘íill í a f 1 !|1 1) Itfj *!; i •1 (! ii ii i i * ■ >1 Ikí llilll flij 92! m ff ii III ;4' 15 ‘653599 Velkomin í bás A096 á Sjávarútvegssýningunni J. HINRIKSSON ehf. Súðarvogi 4, Pósthólf 4154,124 Reykjavík, Sími: 588 6677, Bréfsími: 568 9007, Netfang: poly-ice@itn.is Heimasíða: http://www.itn.is/poly-ice „Framleiðendur togblera i áratugi" SÖLUHÆSTIR Á ÍSLANDI 1997 0G 1998 MEIRA EN MARKAÐSHLUTDEILD í LYFTURUM SAMKVÆMT SKRÁNINQU VINNUEFTIRUTS RÍKISINS Seglr það ekkl alft eem segja þart? Kársnesbraut 102, • 200 Kópavogur* Sími 564 1600 • Fax 564 1648

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.