Morgunblaðið - 26.09.1999, Síða 24

Morgunblaðið - 26.09.1999, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ * I ágústmánuði var haldinn á Akureyri alþjóðlegur eðlisfræðiskóli þar sem þekktir fyrir- lesarar brydduðu m.a. upp á svartholum og slembiflötum. Geir Svansson tyllti sér á skólabekk og ræddi við aðstandendur skólans og bandaríska strengjafræðinga. ISÍÐASTA mánuði vai- heldur óvenjulegt skólahald á Akureyri sem stóð yfir í hálfan mánuð. Um var að ræða eðlisfræðiskóla sem kenndur var við „skammta- rúmfræði“. Hann var ætlaður eðlis- fræðinemum á lokaspretti doktors- náms og einnig stai-fandi eðlisfræð- ingum til að gefa þeim kost á að ræða rannsóknir sínar og fá nýj- ustu fréttir af þessum meiði fræði- greinar sinnar sem kölluð er kenni- leg eðlisfræði. Eftir miklu var að slægjast því að meðal fyrirlesara voru margir þekktir vísindamenn sem standa í eldlínunni við nýjar kenningasmíðar í fræðum sem kenndar eru við strengi. Þetta mun í fyrsta sinn sem skóli, eða ráðstefna, í nákvæmlega þess- um fræðum er haldinn hérlendis. Hugmyndina að skólhaldinu áttu þeir Þórður Jónsson og Lárus Thorlacius, prófessorar í eðlisfræði við Háskóla Islands. „Við höfðum gælt við hugmyndina um nokkurt skeið þegar við sáum möguleikann á því að gera hana að veruleika með styrk frá NATO,“ segir Þórður. Vel heppnað skólahald í MA Auk aðalbakhjarlsins, „Fram- haldsrannsóknarstofnunar NATO“, stóðu að skólanum á Akureyri NORDITA (Norræna stofnunin í kennilegri eðlisfræði) og NorFA (Norræna rannsókn- arakademían). Aðrir skipuleggj- endur skólans voru þeir Paolo di Vecchia frá NORDITA og Andrew Morgunblaðiö/Kristján Kristjánsson Varla tími til að líta upp en ánægjan leyndi sér ekki. Strominger frá Harvard-háskóla. Skólahaldið fór fram i Mennta- skólanum á Akureyri en nemendur voru 60 talsins, þar af fjórir ís- lendingar. Tólf fyrirlesarar, allir í fremstu röð, sáu þeim fyrir and- legum æfingum með fyrirlestrum á sal. Auk fyrirlestra á daginn fengu stúdentar tækifæri til að kynna rannsóknarverkefni sín ut- an dagskrár, t.d. á kvöldin. „NATO ætlast til þess að ákveðinn fjöldi þátttakenda á svona ráð- stefnum eða skóla sem þeir standa fyrir, komi frá samstarfsríkjunum í Austur-Evrópu. Það komust ekki allir sem ætluðu en þó mættu tíu frá þeim slóðum í skólann," segir Þórður. Þórður kvaðst ánægður með skólahaldið, fyrirlestrana og að- stöðu alla á Akureyri. „Þetta hefur tekist mjög vel. Við höfum komist að raun um að Akureyri hentar mjög vel fyrir svona skóla eða ráð- stefnu. Heimamenn eru gestrisnir og hjálplegir og hér er mjög góð þjónusta á öllum sviðum, góð gisti- aðstaða, kaffihús, krár og veitinga- staðir, bflaleigur - allt sem til þarf,“ segir Þórður. Sjálfur hélt Þórður fyrir- lestra og fjallaði um sitt fy sérsvið, sem kennt er við „slembifleti". / .... „Þetta er ein grein í J . . þessum iræðum ( . . . sem ég hef fengist við í 15 ár með samstarfsmönn- um, aðallega í Kaup- mannahöfn en líka í Englandi, Frakklandi og Pól- landi. Það eru reyndar margir af þeim samstarfsmönnum hingað komnir. Hinir fyrirlesaramir eru meira á línu Lárusar, að fást við lík verkefni en frá öðru sjónarhomi. Þeir menn em margir frá Banda- ríkjunum," segir Þórður. Strengir mynda slembifleti En er hægt að gera grein fyrir slembiflötum í stuttu máli? „Það sem er nú á bak við mikið af þessu er að menn vilja smíða kenningar sem gera þeim kleift að skilja eins mikið af eðlisfræðinni og hægt er, út frá eins litlu og hægt er. Og þetta tengist rannsóknum í öreindafræði en jafníramt rannsóknum í stjarneðlisfræði þar sem koma við sögu fyrirbæri sem era mjög langt utan við það sem við skynjum hér á jörðu niðri og þarf mjög „framand- lega“ eðlisfræði til að skýra. Um þessar mundii- virðist sú til- gáta einföldust að mismunandi ör- eindir séu ólíkar sveiflur á örsmá- um streng. Þegar strengurinn hreyfist myndast flötur, slembiflöt- ur, því að gerð hans getur verið margvísleg. En slembifletimir hafa hagnýtt gfldi á ýmsum öðram sviðum, s.s. í stærðfræði og í jarðbundnari eðlis- fræði. Við þurfum ekki að líta lengra en á frumuhimnm’ sem era eins konar fletir sem geta sveiflast fram og til baka. Einfóld stærðfræðileg líkön af himnum, t.d. \ / , framuhimnum, era rannsök- fy-.N uð og þar 4 4 koma upp ýmsar \ ( spumingar \ / \ tengdar þeim sem í /— við eram að fást við. I Þótt þær spumingar komi fyrst og fremst úr öreindafræð- inni,“ segir Þórður. En verður framhald á alþjóðlegu skólahaldi í framandlegum eðlis- fræðum á fslandi? „Það er erfitt að segja til um það. Við voram nú að tala um það um daginn að það væri gaman að gera svona aftur en helst ekki alveg strax. Eg tók þátt í að skipuleggja svipaðan skóla á Laug- arvatni fyrir níu áram en þá var einmitt Láras, meðskipuleggjandi minn nú, nemandi. En það er ekki grundvöllur fyrir árlegu skólahaldi hér á íslandi," segir Þórður að lok- um. Fegurðin skipt ir líka máli Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Lárus Thorlacius, prófessor í kennilegri eðlisfræði við HÍ. LÁRUS Thorlacius er prófessor í kennflegri eðlisfræði við Háskóla íslands. Hann varði doktors- verkefni sitt við Princeton-há- skóla í Bandaríkjunum 1989 og vann við rannsóknir og kennslu við sumar framsækn- ustu stofnanir í eðlisfræði þar í landi, m.a. við háskólana í St- anford, Santa Barbara og Pr- inceton, þar tfl hann flutti heim 1998. Sérsvið Lárasar innan kennilegu eðlisfræðinnar er strengjafræði og þar koma ókenni- leg svarthol mikið við sögu. „Já, það er töluvert notast við stærðfræði- legar lýsingar á svartholum til að spyrja fræðilegra spuminga. Þær spumingar era sjaldnast af „praktískum" toga, eins og stjarneðlisfræðingar hafa áhuga á. En það má nota svarthol til að setja upp vandamál og spyrjast fyr- ir um grandvallargerð tiltekinnar kenningar, sérflagi um það sem þetta snýst nú allt saman um: sam- þættingu afstæðiskenningar Ein- steins og skammtafræðinnar. Osamrýmanleiki þessara megin sviða hefur lengi valdið eðlisfræð- ingum heilabrotum en margt bendir tfl þess að strengjafræðin geti leyst þennan vanda og að auki gert það í samræmi við hinar hefðbundnu reiknireglur s kam m tafræ ðin n ar, “ segir Lárus. Af tvennu óskiljanlegu hefur blaðamaður óneitanlega heldur meiri áhuga á svartholum en reikni- reglum og spyr hvort þau geti verið dyr að tímaflakki? Svarið lætur ekki á sér standa. „Það era til lausnir á jöfnum afstæðiskenningarinnar sem lýsa svartholum sem bera raf- hleðslu. Færi maður inn í slíkt svarthol og kæmist hugsanlega út aftur þá væri ekki sama veröld fyrir og þegar lagt var af stað. Heimur- inn væri annar og maður ætti ekki afturkvæmt í þann gamla. Og það er spuming hvort það væri eftir- sóknarvert. Gerð tímarúmsins í þessum lausnum er þannig að maður getur aldrei komist aftur á þann stað sem maður lagði upp frá. Nema þá með því að ferðast hraðar en ljósið. Hins vegar vil ég nú bæta því við að þótt tfl séu slíkar lausnir á jöfnum af- stæðiskenningarinnar þá er margt sem bendir til þess að þær séu bara áhugaverðar stærðfræðilega; það er harla ólíklegt að farartæki sem kæmust klakklaust í gegn um raf- hlaðin svarthol verði nokkra sinni smíðuð. Ef við síðan teygjum okkur í átt- ina að vísindaskáldskap má einnig finna lausnir er lýsa svonefndum „ormagöngum" sem mætti ef til vill nota til að gera sér tímavél, en þess- ar lausnir uppfylla ekki öll þau skil- yrði sem gera verður kröfu um í skynsamlegri kenningu," segir Lár- us. Nú verður ekki hjá því komist að spyija hvort vísindamaðurínn hafi gaman af vísindaskáldskap? „Já já. Það er gaman að því þegar þessi skáldskapur slær um sig með orðum sem maður kannast við úr fræðunum. Ég hef alltaf haft gaman af vísindaskáldskap þó að fræðin sem byggt er á séu á stundum held- ur sérkennfleg. Ég held mikið upp á Wflliam Gibson (sem sló í gegn með ný-vísindaskáldsögunni Neurom- ancer) og hef náttúrlega lesið þessa klassísku, eins og Isaac Asimov, Arthur C. Clarke, Fred Hoyle og John Wyndham. Þessir gömlu kunnu þá list að gefa sér aðeins rýmri forsendur heldur en við höfum í vísindunum og halda sig síðan við þær. Þannig er vísindaskáldskapurinn oft skemmtilegastur, þegar hann er ekki alveg niðri á jörðinni en lýtur þó ákveðnum reglum sem era ekki alltof mikið út í hött.“ Hver er skýringin á því að nú má sjá í nýrri tegund vísindaskáld- sagna, svokölluðum „cyberpönk" sögum, eins og hjá Gibson, að menn eru komnir aftur til jarðarinnar og farnii* að ferðast inn á við, inn í „tölvugeim “ (e. cyberspace). „Þetta kannski helst í hendur við það að vísindaskáldsögumar hér áð- ur fyrr vora skrifaðar á tíma þegar ríkti mikfl bjartsýni í sambandi við könnun geimsins. Svo hafa menn aðeins komist niður á jörðina, ef svo má segja. Tölvubyltinginn hefllar menn líka núna tfl að fjalla um innri-geim, eða tölvugeim." Er hægt að sjá einhverja sam- bærilega þróun í eðlisfræði? „Eðlisfræðin hefur haldið sínu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.