Morgunblaðið - 28.09.1999, Síða 1
219. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ilona Staller
Njósnir, klám
og þing-
mennska
Búdapest. Reuters.
ÍTALSKA klámdrottningin og
síðar þingkonan Ilona Staller,
Cicciolina eins og hún nefndi
sig, hefur viðurkennt að hafa
njósnað fyrir leyniþjónustu
kommúnista í Ungveijalandi á
áttunda áratugnum.
Staller, sem er ungversk að
ætt og uppruna, sagði í viðtali
við sjónvarpsstöð í Búdapest,
að er hún var 19 ára hefði hún
unnið á stóru hóteli í borginni
og þá hefðu menn frá leyni-
þjónustunni fengið sig til að
njósna um erlenda gesti, eink-
um karlmenn. Voru henni
fengin tæki til að taka upp allt,
sem henni og þeim fór á milli.
Fékk hún 6.000 til 8.000 ísl. kr.
fyrir hvern mann en það var
mikið fé í Ungverjalandi á
þessum tíma. Staller komst úr
landi skömmu fyrir 1980 og
gat sér mikla frægð sem klám-
stjarna á ítaliu áður en hún
var kjörin á ítalska þingið.
Tugir manna farast í loftárásum Rússa á Tsjetsjníu
Mikill flóttamanna-
straumur frá landinu
Grosm', Moskvu. AFP, AP, Reuters.
RÚSSNESKAR herþotur héldu
áfram loftárásum á Tsjetsjníu í
gær, fímmta daginn í röð. Sam-
kvæmt upplýsingum yfirvalda féllu
fimmtíu Tsjetsjenar í árásunum í
gær. Aslan Maskhadov, forseti
Tsjetsjníu, ítrekaði í gær ósk um að
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
féllist á að eiga viðræður við hann.
Rússar gerðu árásir á höfuðborg-
ina Grosní og á olíuvinnslustöðvar
og iðnaðarsvæði í Tsjetsjníu. Eldur
logaði í nokkrum olíulindum í gær.
Innanríkisráðherra Rússlands, Igor
Sergejev, lýsti því yfír að árásunum
yrði haldið áfram þar til íslömskum
skæruliðum, sem gert hafa innrásir
í Dagestan frá Tsjetsjniu, yrði út-
rýmt. Kvaðst hann á sunnudag ekki
geta útilokað að rússneski herinn
gerði innrás í landið.
Vladímír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, reyndi þó að kveða niður
orðróm um að innrás í Tsjetsjníu
væri í bígerð í viðtali sem birtist í
dagblaðinu Vremyu MN í gær.
Sagði hann að Rússar myndu beita
loftárásum til að útrýma skærulið-
unum „af þolinmæði og á kerfis-
bundinn hátt“.
Fundur haldinn
þegar Jeltsín hentar
Pútín sagði eftir viðræður við
Jeltsín í gær að stefnt væri að því
að halda fund með Maskhadov, en
að það yrði gert þegar Jeltsín hent-
aði. Lagði hann áherslu á, að af
fundinum yrði ekki fyrr en Mask-
hadov hefði fordæmt starfsemi
hryðjuverkamanna í ríkinu og rúss-
nesk stjómvöld væm fullviss um að
skæruliðar gætu ekki nýtt tækifær-
ið sér í hag.
Reuters
Tsjetsjensk stúlka situr innan um eigur fjölskyldunnar meðan beðið er eftir leyfi til að halda inn í Ingú-
setíu. Tugir þúsunda manna hafa flúið frá Tsjetsjníu síðustu daga.
Maskhadov sagði í samtali við
In teríax-fréttastofu na í gær að
hann myndi beita öllum mögulegum
ráðum tU að forðast styrjöld. Full-
yrti hann að um 380 óbreyttir borg-
arar hefðu fallið í árásum Rússa síð-
ustu fimm daga. Maskhadov hefur
ávallt neitað tengslum við skærulið-
ana og taka stjómmálaskýrendur
orð hans trúanleg þar sem leiðtogi
þeirra, Shamil Basajev, hefur verið
svarinn andstæðingur forsetans um
nokkurt skeið.
Tsjetsjenar flýja árásir
Ibúar Tsjetsjníu héldu í gær
áfram að flýja loftárásir Rússa. Talið
er að um 40 þúsund manns hafi hald-
ið tU nágrannahéraðsins Ingúsetíu
en Ingúsar bragðust við straumnum
með því að loka landamæram sínum
á sunnudag. Yfirvöld hafa komið upp
tjöldum fyrir flóttafólk Tsjetsjníu-
megin við landamærin.
Yfirvöld í Moskvu tilkynntu í gær
að lífeyrir yrði ekki greiddur tU
íbúa Tsjetsjníu fyrr en ástandið
væri aftur orðið eðlilegt. Þá til-
kynnti Anatóli Tsjúbaís, yfirmaður
orkumála í Rússlandi, að hann
hygðist óska eftir því við stjórnvöld
að hætt yrði að veita Tsjetsjenum
raforku vegna ógreiddra reikninga.
Mannréttindanefnd SÞ hvetur til rannsóknar á hryðjuverkunum á A-Timor
Gæsluliðið
hrekur burt
vígasveitir
Dili. Reuters, AP.
SVEITIR Sameinuðu þjóðanna á
Austur-Tímor gerðu skyndiárás í
gær á einar bækistöðvar vígasveit-
anna á landsbyggðinni og neyddu
liðsmenn þeirra til að flýja til fjalla.
Kaþólskur prestur skýrði frá því í
gær, að indónesískir hermenn hefðu
myrt sjö starfsmenn kaþólsku kirkj-
unnar, þar af tvær nunnur og prest.
Mannréttindanefnd SÞ hefur hvatt
til alþjóðlegrar rannsóknar á
hryðjuverkunum á A-Tímor.
Arásin í gær var í samræmi við þá
áætlun friðargæslusveitanna að
koma vígasveitunum, sem enn er
víða að finna utan Dili, höfuðstaðar-
ins, sem mest á óvart. Komu SÞ-
hermennirnir til bæjarins Liquica á
þyrlum og á hæla þeim nokkur sveit
á brynvörðum bílum. Girtu þeir bæ-
inn af meðan leitað var í þeim hús-
um, sem enn standa uppi. Liðsmenn
dauðasveitanna flúðu til fjalla án
þess að hleypa af skoti. í apríl sl.
drápu dauðasveitirnar tugi manna,
er leitað höfðu skjóls í kirkju í bæn-
um. Var fólkið hrakið út úr henni
með táragassprengjum og síðan
höggvið með sveðjum.
Portúgalskir fjölmiðlai- sögðu í
gær, að sjö starfsmenn kaþólsku
kirkjunnar hefðu verið drepnir á
sunnudag og höfðu eftir presti, foð-
ur Martins, að indónesískir her-
menn hefðu framið ódæðið.
Yfirmaður indónesíska hersins á
A-Tímor sagði í gær, að hann hefði
afhent Peter Cosgrove hershöfð-
Reuters
Ástralskir hermenn handtaka
mann fyrir vopnaburð í bænum
Liquica en hann er þriðji bær-
inn, sem friðargæsluliðar hafa
lagt undir sig.
ingja og yfirmanni SÞ-liðsins alla
stjórn öryggismála í landinu en Cos-
grove vísaði því á bug og sagði, að
hann hefði ekki umboð til að taka við
henni fyrr en Indónesíustjórn hefði
viðurkennt sjálfstæði A-Tímor form-
lega.
Indónesíuher hafnaði því í gær, að
hann bæri enn ábyrgð á öryggismál-
um á A-Tímor og sagði, að vildi SÞ-
liðið ekki axla ábyrgðina, yrði að
endurskoða allt starfssvið þess.
Portúgalska dagblaðið Publico
sagði í gær, að Manuel Gusmao, fað-
ir a-tímorska andspyrnuleiðtogans
Xanana Gusmao, væri á lífi en talið
var, að hann hefði verið drepinn. Er
hann ásamt konu sinni og fleira fólki
í felum í fjöllunum. Hefur hann beð-
ið son sinn um hjálp við að komast
til Ástralíu en þar hafa margir A-
Tímorbúar leitað hælis.
Asíuríki gegn rannsókn
Mannréttindanefnd SÞ, sem 53
ríki eiga aðild að, samþykkti í gær
tillögu Evrópusambandsríkjanna
um alþjóðlega rannsókn á hryðju-
verkunum á A-Tímor með 32 at-
kvæðum gegn 12. Er samþykktin
ekki bindandi og Hassan Wirajuda,
fulltrúi Indónesíu, gaf í skyn, að
stjórn sín myndi ekki taka þótt í
neinni rannsókn. Sama sinnis eru
ýmis Asíuríki, sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni.
Rússum hót-
að vegna
spillingar
Washington. Daily Telegraph.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR helstu
iðnríkjanna settu alvarlega ofan í við
rússnesk stjórnvöld á fundi sínum í
Washington um helgina og hótuðu að
koma í veg fyrir frekari lánveitingar
ef þau tækju ekki á spillingunni í
Rússlandi.
Ofanígjöf fjármálaráðherranna,
frá Bandaríkjunum, Japan, Þýska-
landi, Frakklandi, BretJandi, Italíu
og Kanada, er einsdæmi en þeir
sögðu, að engin ný lán stæðu Rúss-
um til boða fyrr en þeir hefðu sýnt
fram á, að lánsfé frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, IMF, hefði verið varið
eins og til stóð.
Yfirlýsingin endurspeglai- þá reiði,
sem ríkir vegna peningaþvættis
Rússa í New York, en IMF vill ekki
við það kannast, að misfarið hafi verið
með fé frá honum. Stanley Fischer,
aðstoðarframkvæmdastjóri hans, við-
urkennir þó, að Rússar hafi lagt fram
rangar töíur fyrir ári til að fá IMF til
að láta af hendi 350 milljarða ísl. kr.
lán. „Þeir lugu upp í opið geðið á okk-
ur,“ segir Fischer.