Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 29
Stjórnvöld í Ekvador vilja semja um skuldbreytingar
Standa ekki í skilum
með vaxtagreiðslur
Quito. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Ekvador tU-
kynntu á sunnudag að þau hefðu
ákveðið að standa ekki í skilum með
greiðslur vaxta af ákveðnum Brady-
skuldabréfum sem gjaldfalla í dag.
Þessi ákvörðun gerir Ekvador kleift
að greiða aðeins tæpan helming
þeirra vaxta, 94 milljónir dala, and-
virði 6,8 milljarða króna, sem landið
skuldar fjárfestum.
Brady-skuldabréf eru kennd við
Nicholas Brady, fyrrverandi fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna, og
voru tekin upp árið 1989 til að létta
skuldabyrði þróunarlanda sem voru
að komast á legg efnahagslega en
áttu við fjármálavanda að stríða á
þessum tíma.
Jamil Mahuad, forseti Ekvadors,
sagði í útvarps- og sjónvarpsávarpi
að landið myndi aðeins gi'eiða vexti
af óveðtryggðum Brady-skulda-
bréfum sem kölluð eru PDI-bréf
(PDI: áður gjaldfallnir vextir).
Landið hygðist hins vegar ekki
gi-eiða um 50 milljóna dala (3,6
milljarða króna) vexti af veð-
tryggðum afsláttarskuldabréfum.
Skuldabréfm voru gefm út árið
1995 og afsláttarbréfin eru ti'yggð
með bandarískum ríkisskuldabréf-
um.
Forsetinn sagði að þessi ákvörð-
un væri fyrsta skrefið í þá átt að
semja um breytingar á skuldum
landsins vegna Brady-bréfanna sem
nema sex milljörðum dala, 432 millj-
örðum ki-óna. Erlendar skuldir
landsins nema alls 13,3 milljörðum
dala, 958 milljörðum króna.
Efnahagsráðherrann
segir af sér
Mahuad tilkynnti ennfremur að
hann hefði fallist á afsagnarbeiðni
Guillermos Lassos efnahagsráð-
herra, sem gekk úr stjóminni vegna
ágreinings um hvernig leysa ætti
skuldavanda landsins. „Lasso taldi
að ef til vill væri til betri lausn á
vandamálinu," sagði forsetinn.
„Flestir í efnahagsliðinu töldu þetta
vera bestu lausnina."
Aðm- en ákvörðunin vai' tilkynnt
höfðu hagfræðingar varað við því að
ef Ekvador stæði ekki í skilum eða
semdi um skuldbreytingar gæti það
orðið til þess að lánardrottnar ki'efð-
ust hæmi vaxta af nýjum lánum til
ííkjanna í Rómönsku Ameríku sem
hafa ekki enn rétt úr kútnum eftir
fjármálakreppuna í mörgum ríkjum
heims á síðasta ári. Embættismenn í
öðrum löndum Rómönsku Ameríku
sögðu þó í gær að þeir teldu að
ákvörðun stjómarinnar í Ekvador
myndi hafa lítil áhrif á lántökur
þeirra þar sem fjármálamarkaðh'
hefðu þegar búist við henni.
Pablo Better, seðlabankastjóri
Ekvadors, sagði að landið myndi
þegar í stað hefja viðræður við
skuldabréfahafana með það að
markmiði að breyta Brady-skuldun-
um til samræmis við greiðslugetu
landsins.
Seðlabankastjórinn kvaðst enn-
fremur vona að ákvörðunin myndi
ekki torvelda Ekvador að fá nýtt
lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
(IMF) að andvirði 400 milljóna dala,
28,8 milljarða króna. „Eg tel þó að
þetta auðveldi það ekki heldur,"
bætti hann við.
Ekvador á við mikinn efnahags-
vanda að stríða vegna lágs verðs á
helstu útflutningsvöram landsins,
olíu og banönum, auk þess sem það
varð fyrir miklum skakkaföllum
vegna náttúruhamfara á síðasta ári.
AP
Stuðningsmenn Pinochets veifuðu fánuni utan við dómhúsið í London í gær þegar réttarhöld
í máli hans hófust.
Réttarhöldin yíh'
Pinochet hefjast
London. AP, ATP, Reuters.
RÉTTARHÖLD í máli Augustos
Pinochets, fyrrverandi einræðis-
herra Chile, hófust í London í gær
og munu standa í alls fimm daga.
Þau snúast um hvort Pinochet
skuli framseldur til Spánar þar
sem hann hefur verið ákærður fyr-
ir gróf mannréttindabrot gegn
spænskum þegnum á þeim 17 árum
sem hann var einræðisherra í
Chile. Breskir saksóknarar fluttu
málið fyrir hönd spænska ákæru-
valdsins og reifuðu 34 mál þar sem
pyndingar höfðu átt sér stað á
tímabilinu frá því í desember 1988
til sama mánaðar 1989, skömmu
áður en Pinochet lét formlega af
völdum. Astæða þess að ákæruat-
riðin eru bundin við þetta tímabil
er sú að Bretland fékk ekki aðild
að sáttmála Sameinuðu þjóðanna
gegn pyndingum fyrr en í septem-
ber 1988.
Stuðningsmenn í meirihluta
Fjöldi mótmælenda hafði stillt
sér upp utan við dómshúsið í
London og er talið að stuðnings-
menn Pinochets hafi verið þai' í
meirihluta, 200 á móti 30 andstæð-
ingum hans. Fólkið hélt á skiltum
með slagorðum og myndum af ein-
ræðisherranum og stuðningsmenn
veifuðu chileska fánanum.
„Pinochet bjargaði landi okkar,
efnahagslífi, menningu og lifnaðar-
háttum," sagði kona í hópi stuðn-
ingsmanna og bætti við. „Við vorum
tilneydd að verja okkur fyrir sósíal-
ismanum."
Christina Navarette, sem var
námsmaður þegar Pinochet komst
til valda, segist hafa sætt pynding-
um í heilt ár. „Ég er eitt fórnar-
lambanna, nú er kominn tími fyrir
réttlæti. Það yrðu mér sár von-
brigði ef hann verður ekki fram-
seldur," sagði hún.
Juan Garces, spænskur lögfræð-
ingur sem hefur barist fyrir fram-
sali Pinochets, sagðist þess fullviss
að dómararnir kæmust að þeirri
niðurstöðu að hann bæri að fram-
selja til Spánai'.
Pinochet var handtekinn í októ-
ber á síðasta ári en hann hafði kom-
ið til Lundúna til að gangast undir
uppskurð. A valdatíma hans er talið
að yfir 3000 manns hafi verið drepin
eða horfið sporlaust í Chile.
Naína Jeltsín
ver bónda sinn
The Daily Telegraph.
NAINA, eiginkona Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta, varði
heiður fjölskyldu sinnar um
helgina og kvaðst vera
„hneyksluð“ á ásökunum um
spillingu á hendur bónda sínum
og dóttur.
Naína hefur hingað til haldið
sig utan við kastljós fjölmiðla,
en um helgina breytti hún frá
þeirri venju og kom fram í sjón-
varpsviðtali, þar sem hún lýsti
þeim þjáningum sem ásakanirn-
ar hefðu valdið börnum sínum
og barnabörnum. Rússneskir
fjölmiðlar hafa undanfarið birt
ítrekaðar fréttir þess efnis að
Jeltsín-fjölskyldan ætti glæsi-
hús í Frakklandi, Þýskalandi og
Sviss. Þá hefur Tatjana, yngri
dóttir Jeltsín-hjónanna, verið
sökuð um að taka við mútum frá
svissnesku fyrirtæki, ásamt
fleiri áhrifamönnum í Kreml.
Forsetinn hefur meðal annars
verið sakaður um að eiga tvo
reikninga í útibúi Bank of New
York á Cayman-eyjum, en
bankinn er nú undir rannsókn
vegna ásakana um peninga-
þvætti á vegum Rússa. Stjórn-
völd í Moskvu hafa vísað spill-
ingarásökununum á hendur
Jeltsín og nánustu samstarfs-
mönnum hans á bug sem
„ósvífnum uppspuna" sem ætlað
væri að „sverta ímynd Rúss-
lands“.
„Ykkur er fullkunnugt um að
við eigum hvorki glæsihús í út-
löndum, kastala né lystisnekkj-
ur,“ sagði Naína Jeltsín í viðtal-
inu, og bætti við að fjölskylda
Naína Jeltsín
hennar hefði verið dregin niður
í svaðið af fjölmiðlum.
Jeltsín nýtur lítils trausts
Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar, sem birtar
voru um helgina, telja 65%
Rússa að landinu væri fyrir
bestu að Jeltsín segði af sér taf-
arlaust og að kosningar yrðu
haldnar í kjölfarið. Þá töldu 53%
úrtaksins að sækja ætti forset-
ann til saka fyrir embættisglöp
eftir að hann hefði látið af völd-
um. Einungis 5% töldu að
Jeltsín ætti að sitja í embætti
með óskert völd þar til kjör-
tímabil hans rennur út næsta
sumar.
Viðbótargisting á
30. janúar og 6. febrúar
frá kr. 54>955
Kanaríeyjaferðir Heimsferða hafa
fengið frábærar undirtektir í vetur
og nú þegar er uppselt á marga vin-
sælustu gististaðina. Við höfum nú
tryggt okkur viðbótargistingu á hreir
um kjörum í 2 ferðir í vetur, hinn 30. janúar og 6. febrúar og bjóð-
um nú 15 viðbótareiningar á hinum vinsælu gististöðum, Paraiso
Maspalomas og Tanife á einstöku verði. Þú getur valið um 2, 3
eða fleiri vikur og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu farar-
stjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr. 54.955 Verð kr. 69.990
M.v. hjón mcð 2 börn, 2-14 ára, M.v. 2 í íbúð, Tanife og Paraiso
6. febrúar, 2 vikur, Tanife og Paraiso Maspalomas, 6. febrúar, 2 vikur.
Maspalomas.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Aðeins 15
fbúðir á þessu
irábæra verði
: frábær-