Morgunblaðið - 28.09.1999, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ
^ 58 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
KIRKJUSTARF
í DAG
Kletturinn Hafnarfírði.
Safnaðarstarf
Kletturinn -
vetrarstarf
KLETTURINN, kristið samfélag
hefur hafið vetrarstarf sitt í Bæjar-
hrauni 2, Hafnarfirði. I vetur verða
haldin tvö Alfanámskeið þar sem
kennd verða grundvallaratriði krist-
innar trúar og fólki boðið að taka
^ þátt í umræðum. Á sunnudögum kl.
11 er svo KKK sem stendur fyrir
Krakkakiúbb Kiettsins, síðan eru
almennar samkomur á sunnudags-
kvöldum kl. 20. Á miðvikudags-
kvöldum kl. 20 eru svo bænastundir
og á fóstudagskvöldum kl. 20 er
unglingastarf og er þar mikið líf og
fjör. Dagana 28.-30. september
verða samkomur öll kvöld kl. 20
með prédikaranum og tónlistar-
manninum Wynn Goss.
Barnakór
KFUM og
KFUK
BARNAKÓR KFUM og KFUK
hefur hafið æfingar og er nú að
ganga inn í sinn fjórða starfsvetur.
Pláss er fyrir fleiri böm í kór-
starfinu og eru öll böm 7-12 ára
velkomin að koma á æfingu og
kynna sér starfsemi kórsins. Æfing-
ar era á miðvikudögum kl. 17 fyrir
7-9 ára böm og kl. 18 fyrir 10-12
ára börn.
Stjómandi bamakórs KFUM og
KFUK er Helga Vilborg Sigurjóns-
* dóttir tónlistarkennari. Hefur hún
m.a. langa reynslu úr æskulýðs-
starfi KFUM og KFUK og hefur
starfað sem forstöðukona í sumar-
búðum KFUK í Vindáshlíð undan-
farin sumur.
Ekkert þátttökugjald er í barna-
kór KFUM og KFUK.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Mömmu- og pabbastund í safn-
aðarheimilinu kl. 14-16.
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöð-
um.
Dómkirkja. Bamastarf í safnaðar-
- ,í.heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn,
kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17
fyrir 10-12 ára böm. Æskulýðsfélag
Dómkirkju og Neskirkju. Sameigin-
legur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 19.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Ath.: í stað safnaðarfræðslu-
kvölds er bent á fræðsluþing Biblíu-
skólans við Holtaveg kl. 17 og fjall-
ar um unglinga, borg, tísku, fíkn og
trú. Skráning í síma 588-8899. Aug-
lýst dagskrá frestast. „Þriðjudagur
með Þorvaldi“ kl. 21. Lofgjörðar-
stund.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginleg-
ur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 19.30. Litli kórinn, kór
eldri borgara kl. 16.30 í umsjón
Ingu J. Backmann og Reynis Jónas-
sonar. Nýir félagar velkomnir.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi, léttur málsverður,
helgistund og samvera. Kl. 17 TTT
10-12 ára starf á vegum KFUM og
K og Digraneskirkju. Kl. 20 æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM og K og
Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 15-17. Starf fyrir 11-12
ára stúlkur kl. 16.30-17.30.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12. Opið hús.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10-12 ára böm í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfírði. Opið hús
kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorgunn
kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 kirkjuprakkarar (7-9 ára
böm) era komin á fullt skrið. Söng-
ur, leikir, bænir, spunasmiðja. Allir
kirkjuprakkarar eyjanna velkomn-
ir.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og
12. Helgistund í kirkjunni sömu
daga kl. 18.30.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
^via/^VxV Brúðhjón
Allur borðbiinaður Glæsileg gjaíavdra - Briiðhjdnalislar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 5f>2 4244.
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
í FRÉTTUM undanfarið
hefur komið fram að ríkið
gerir upptækar eignir
sem tengjast fíkniefna-
málinu. Finnst mér að
það ætti að nota þessar
eignir og peninga til að
hjálpa eiturlyfjaneytend-
um.
Það vantar alltaf pen-
inga í það málefni og væri
það gott ráð að nota eitur-
lyfjagróðann til að hjálpa
þeim sem eiturlyfjasalarn-
ir hafa komið í svaðið.
A.H.
Gæsaskítur á
Klambratúni
Á RÁS 1 sl. föstudag var
kona að hneykslast á því
að Klambratún væri fullt
af hundskít. Hún sagði að
vart hafi verið hægt að
ganga um fyrir hundaskít
og var mjög hneyksluð. En
ég vil benda henni og öðr-
um á að þetta er gæsaskít-
ur en ekki hundskítur sem
er á túninu.
Martha Björnsson.
Þakka gott orð
BÍLSTJÓRARNIR á Hóp-
bflum þakka fyrir gott orð í
Velvakanda sl. föstudag.
Þeir era sammála bréfrit-
ara um að öryggi í rútubfl-
um sé það sem skiptir öllu
máli. Þetta er eini bflaflot-
inn sem er með alla sína
bfla með öryggisbeltum.
Tapað/fundið
Heilsufarsbók týndist
HEILSUFARSBÓK barns
týndist 13. september lík-
lega frá Bræðraborgarstíg
að Heilsugæslunni við
Vesturgötu. Þeir sem hafa
fundið bókina hafi samband
í síma 562 0672.
Koksgrátt fjalla-
hjól týndist
AÐFARANÓTT fóstu-
dagsins 17. september sl.
týndist frá Laugarásvegi 9,
Reykjavík, Mongoos Tres-
hold 26“ fjallahjól (bretta-
laust), koksgi’átt að lit.
Skilvís finnandi vinsamleg-
ast hafi samband í síma
553 6793. Fundarlaun.
Gyllt hálsmen með
perlu týndist
GYLLT hálsmen með
perlu týndist 20. september
sl. á leiðinni frá Hjarta-
vernd í Ármúla, vestur í
bæ. Finnandi hafi vinsam-
legast samband í síma
562 0993 eða 552 5989.
Prins Leó er týndur
PRINS Leó týndist frá
Birkihvammi 12, Kópavogi,
mánudaginn 20. september.
Prins Leó er einlitur, dökk-
grár fressköttur. Hann er
með bláa ól með endur-
skinsmerki og er eyma-
merktur R8H183. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband við Sólrúnu Lilju í
síma 5542868 eða í Katt-
holtsími 567 2909.
Amor er týndur
AMOR, ástargaukurinn
minn, flaug út um glugg-
ann í Grundarhúsum í
Grafarvogi. Hans er sárt
saknað. Þeir sem hafa orð-
ið hans varir hafi samband
í síma 587 1767.
Högni týndist
í Garðabæ
GULBRÖNDÓTTUR loð-
inn högni týndist frá Hlíð-
arbyggð í Garðabæ. Ef
einhver veit um ferðir
hans vinsamlega látið vita í
síma 565 6333 eða
861 9968.
Svartur fress-
köttur í óskilum
HÁLFSTÁLPAÐUR 5-6
mánaða svartur fresskött-
ur hefur verið hjá okkur
síðan þriðjudaginn 14.
sept. í Eskiholti í Garða-
bæ. Þetta er mjög gæfur
og gælinn köttur sem er
áreiðanlega sárt saknað.
Uppl. í síma 565 9331 eða
895 8854.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á opnu móti í
Castellaneta á Italíu í haust. Heima-
maðurinn G. Lagumina (2.280) var með
hvítt en Rúmeninn O. Foisor (2.470)
hafði svart og átti leik. 25. - Rb3+! 26.
axb3 - Hc2 og hvítur gafst upp, því
hann getur ekki forðast mát.
Svartur leikur og vinnur.
Yíkverji skrifar...
ENSK áhrif í íslensku máli era
mörgum áhyggjuefni. Sumir
býsnast yfir enskum orðum sem
ungmenni taka að nota, en flest
hverfa þau reyndar með tímanum,
verða eins konar tískufyrirbæri.
Verra er þó þegar ensk áhrif skila
sér í breytingum á áherslum í ís-
lensku máli, sem heyrist gjaman í
máli þeirra sem hlusta mikið á
ensku, til að mynda fréttamanna
ljósvakamiðla, en einnig er fram-
burður á sémöfnum oft enskuskot-
inn.
Dæmi um það era fréttir af
vargöldinni á Austur-Tímor, en í
fréttatíma nýverið nefndi frétta-
maður eyna Java sem hefur verið
fram borin svo. I munni frétta-
mannsins hét eyjan aftur á móti
Djava, upp á ensku, og ekki batnaði
þegar hann ræddi um að múslímsk-
ir menn á eynni hefðu lýst yfir
heilögu stríði, eða djíhad, en ekki jí-
had, eins og mönnum hefur verið
tamt að segja hingað til.
Vankunnátta verður oft til að
menn taka ambögur sér í munn, og
má nefna framburð á heiti íþrótta-
vöraframleiðandans Nike, sem er,
eins og ýmsir vita, heiti á grískri
gyðju.
Margir vilja bera það fram „næk“
og halda væntanlega að svo sé það
upp á ensku, en því er öðra nær,
þar segja menn „nækí“, en best er
vitanlega að nefna hana með ís-
lenskum framburði og áherslum,
eða hverjum dytti í hug að tala um
„aritsottl" en ekki Aritóteles?
xxx
ÍKVERJA hefur borist eftir-
farandi bréf frá forstöðumanni
upplýsinga- og kynningarmála
Landssíma Islands, Ólafi Þ. Steph-
ensen.
„Víkverji fjallar 14. september sl.
um kunningja sinn, sem varð fyrir
því að við lagningu breiðbands
Landssímans inn í fjölbýlishúsið,
sem hann býr í, skemmdist málning
á húsinu. Víkverji rekur hversu
langan tíma hafi tekið að fá húsið
málað á nýjan leik og að enn sé bíl-
skúrshurð kunningjans í röngum lit.
Dregur skrifari síðan þá ályktun af
þessari dapurlegu sögu að enn eigi
ímynd hins þunglamalega ríkis-
bákns Pósts og síma, fyrirrennara
Landssímans, við nokkur rök að
stypjast.
Án þess að umrætt mál verði rakið
hér of nákvæmlega, er nauðsynlegt
að fram komi að verktaki annaðist
framkvæmdimar við breiðbands-
lögnina og jafnframt að bæta úr því,
sem aflaga fór, þótt Landssíminn
hafi að sjálfsögðu tekið við kvörtun-
um viðkomandi íbúa og komið þeim á
framfæri við verktakann ásamt ósk-
um um skjót viðbrögð.
Fjöldamargir verktakar vinna á
vegum Landssímans og eiga þeir
samkvæmt samningum að sjá sjálf-
ir til þess að umhverfi og íbúum sé
sýnd full tillitssemi við fram-
kvæmdir. Illa tókst til í þessu máli
og getur Landssíminn ekki annað
en beðizt afsökunar á því að svona
fór. Samkvæmt upplýsingum frá
verktakanum lagði hann sig þó
fram um að bæta skaðann og aflaði
sér m.a. upplýsinga hjá málara-
meistaranum, sem hafði málað hús-
ið, um rétta litinn á margumræddri
bílskúrshurð.
Landssíminn fylgir þeirri stefnu
að bjóða út allar stærri fram-
kvæmdir, t.d. við breiðbandslagnir,
og nýta þannig kosti einkafram-
taksins. Því miður fylgja slíku fyrir-
komulagi stundum hnökrar af þessu
tagi.
Undirritaður getur þó upplýst að
í samræmi við stefnu Landssímans í
umhverfismálum eru nú í smíðum
umhverfisreglur, sem bæði starfs-
mönnum Símans og verktökum,
sem starfa á hans vegum, mun bera
að fara eftir við allar framkvæmdir.
Slíkum reglum er m.a. ætlað að
tryggja að mistök á borð við þau,
sem Víkverji lýsti, endurtaki sig
ekki.“
Ólafur Þ. Stephensen forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssíma Islands.