Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 6 FOLK I FRÉTTUM Úrslit í Rokkstokkkeppninni voru kynnt á föstudag Morgunblaðið/Jón Svavarsson Strákarnir í Brain Police eru sælir með sigurinn; Hörður Stefánsson, Vagn Leví, Jón Björn Ríkharðsson og Gunnlaugur Lárusson. Sigurinn kom á óvart Jón Þór Birgisson söngvari Sig- ur Rósar með skreyttan gítar og fíðluboga í hendi. HLJÓMSVEITAKEPPNIN Rokk- stokk, sem haldin er í Keflavík, er orðin árlegur viðburður í tónlistarlífi landsmanna. Keppnin fór fram í þriðja sinn nú í september og lauk henni með glæsilegu úrslitakvöldi föstudaginn var í Bæjarbíói í Kefla- vík. Á keppniskvöldunum tveimur kepptu 24 hljómsveitir og á loka- kvöldinu leiddu sex þær bestu saman hesta sína. Auk þeirra kom fjöldi gestahljómsveita fram, þar á meðal Klamedía X sem vann keppnina í fyrra og gaf í kjölfarið út diskinn Pilsner fyrir kónginn nú í sumar. Einnig mættu strákarnir í Sigur Rós, Hringir & Magga Stína og Norðlend- ingarnir í 200.000 naglbítum. Breiðskífa með vorinu? Gítarleikari hljóm- sveitarinnar Vei var einbeittur á sviðinu. VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN A ISLANDI Nr. vor vikur Mynd Útgefandi Tegund 1. 1. 2 Payback Worner myndir Spenna 2. 2. 3 Patch Adams CIC myndbönd Gaman 3. NÝ 1 She's all that Skífnn Gaman 4. 13. 2 Festen Hóskólabíó Drama 5. 4. 3 Facuhy Skífan Spenna 6. NÝ 1 Lolita Sam myndbönd Drama 7. 3. 4 Corruptor Myndform Spenna 8. 7. 8 Blast From the Past Myndform Gaman 9. 6. 6 Baseketball CIC myndbönd Gaman 10. 5. 6 You’ve Got Mail Warner myndir Gaman 11. NY 1 One Tough Cop Myndform Spenna 12. 8. 7 Night at the Roxbury CIC myndbönd Gaman 13. 10. 6 Thin Red Line Skífan Drama 14. 9. 3 Rushmore Sam myndbönd Gaman 15. 15. 2 Little Voice Skífan Gaman 16. 14. 5 1 Still Know What You Did Lost Summer Skífan Spenna 17. 11. 3 Free Money Myndform Gaman 18. Al 4 Permonent Midnight Sam myndbönd Drama 19. NY 1 Earthly Posession Bergvík Drama 20. 17. 3 How Stella Got Her Groove Back Skífan Gaman BIMI II11I II TTI I I I1111■»■I»111fl»IIM I Gibson situr sem fastast ” MEL Gibson er vinsæll, hvort sem hann leikur vonda karlinn eða góð- mennið. Mynd hans Payback, eða Hefnd heldur toppsætinu á Mynd- bandalistanum aðra vikuna í röð og sömuleiðis heldur Robin Williams öðru sætinu með myndinni Patch Adams. Fimm nýjar myndir eru á lista vikunnar og sú sem stekkur hæst er She’s All That og hafnar í þriðja sæti. Hún er nokkurs konar Óskubuskusaga um feimna snót sem fær uppreisn æru þegar aðalgæinn í skólanum fer í veðmál við vini sina. Danska dogma-myndin Festen, eða Veislan var ný á lista í 13. sæti í síð- ustu viku en gerir sér lítið fyrir þessa vikuna og hoppar upp í það fjórða enda albragðs góð og vel leik- in mynd á ferð sem lætur engan ósnortinn. Hin umdeilda Lolita er ný á lista vikunnar og hafnaði í sjötta sæti listans. Hún fjallar um ást mið- aldra karlmanns til barnungrar stúlku en myndin hefur vakið hörðy viðbrögð áhorfenda um heim allan. Hljómsveitin Brain Police bar sig- ur úr býtum þetta árið og fá þeir Hörður Stefánsson bassaleikari, Vagn Leví söngvari og gítarleikari, Jón Bjöm Ríkharðsson trommuleik- ari og Gunnlaugur Lárusson gítar- leikari 150 hljóðverstíma í Hljóðveri 60b og útgáfu á breiðskífu frá Gjorby Records. Auk þess verður gefinn út safndiskur með þeim hljómsveitum sem lengst náðu í keppninni eins og gert hefur verið undanfarin tvö ár. „Við erum mjög ánægðir, við bjuggumst ekki við því að vinna,“ sagði Vagn Leví og var greinilega hrærður. „Það voru nokkrar mjög góðar hljómsveitir þarna svo að það kom okkur á óvart að vinna.“ -Hvenær var hljómsveitin stofn- uð? „Hún byrjaði að starfa í fyrra og ég var með þeim í rúman mánuð en varð þá að hætta. Þeir reyndu síðan að finna sér annan söngvara en í lok júní hafði það ekki enn gengið upp þannig að þeir töluðu aftur við mig og ég ákvað að slá til og vera með.“ Brain Police á tvö lög á safnplöt- unni MSK sem kom út nú í ágúst og fékk sveitin ágæta dóma fyrir fram- lag sitt þai’ auk þess sem gagn- rýnendur fóru lofsamlegum orðum um sveitina er hún kom fram á einu af Stefnumótum Undirtóna. - Hvernig tónlist eruð þið að spila? „Hún flokkast sennilega undir svokallað „Stone Air“-rokk. Það eru samt aðallega hinir meðlimir sveitar- innar sem hlusta á þannig tónlist að staðaldri," segir Vagn og hlær. „En þetta gengur vel hjá okkur, gekk upp.“ - Hvaðan eruð þið? „Við búum allir í Reykjavík en eig- um rætur okkar að rekja út á land. Ég er frá ísafirði, Jón Björn frá Dal- Elvar Jónsson, Marinó Gunnars- son, Bryndís Erlingsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Emma Hanna Einarsdóttir og Eyjólfur Gíslason mættu á Rokkstokk-keppnina. vík, Hörður er frá Húsavík og Gunn- laugur er frá Akureyri." - Hvað með verðlaunin ? „Við fengum 150 stúdíótíma og við ætlum að fara í hljóðver sem fyrst að taka upp. Þessir timar eiga að nægja til að taka upp breiðskífu og við eig- um nokkur lög en fórum örugglega núna að semja meira. Þannig að það má jafnvel búast við breiðskífu frá okkur næsta vor.“ Fjölbreytt tónlist Dómnefnd skipuðu Júlíus Guð- mundsson, Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari Klamediu X og Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari Jagúar. „Það voru ólíkar hljómsveitir og mikil fjölbreytni í tónlistinni á Rokk- stokk í ár,“ segir Þráinn. „Það kepptu t.d. krakkar sem voru á aldr- inum 11-13 ára sem var alveg frá- bært og það hefði verið gaman að geta gefið þeim einhver hvatningar- verðlaun. Þau stóðu sig svo vel.“ Auk þess að velja sigurveitina verðlaunaði dómnefndin einstaka hljóðfæraleikara. Tvær sveitir stóðu uppi sem sigurvegarar í því vali er þrír hljóðfæraleikarar úr hljómsveit- inni Bris og tveir úr Ópi tóku til sín öll verðlaunin. Guðmundur Þorvalds- son var valinn besti gítarleikarinn, Jón Geir Jóhannsson besti trommu- leikarinn og Snorri Pedersen besti söngvai’inn en þeir eru allir í Bris. Besti bassaleikarinn var Arnar Hreiðarsson og besti hljómborðs- leikarinn, sem lék reyndar á Hamm- ond, var Þráinn Óskarsson en þeir félagar eru báðir í Ópi. í nýju starfi - HausUitir i garðinum - Nýr still Sjávarréttagratín og nautasteik - „Spariskornir léku mig grátt“ Pósturinn Umburðariynói - Litii prinsinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.