Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
, Sýndar-
mennskan
áhugaverð
A Leikarann Reine Brynolfsson hefur
maður séð í mörgum og misjöfnum mynd-
------------7----------
um og nú seinast í Ungfrúnni góðu og
húsinu. Reine sagði Hildi Loftsdóttur frá
-------------7---------
ævintýrum sínum á Islandi og víðar.
Hans búðarmaður fer einförum og er áhorfandi.
> ..
ISÖGUNNI um Ungfrúna góðu
og húsið finnst mér mjög
áhugavert það andlit sem fólk
verður að halda, þessi siðferðilega
rétta hegðun, þessi sýnda-
rmennska sem er við lýði í þorpinu
og hvernig fólk getur svo þjáðst á
bakvið það upplit sem það gefur út
við. Sagan tekur mjög vel á þessu
og mér finnst hún einstaklega góð,“
segir Reine þegar hann er inntur
eftir því hvað hafi heillað hann við
lestur handritsins að myndinni.
Skrýtinn
á mannlegan hátt
Reine leikur búðarlokuna Hans,
einfarann í þorpinu. „Hans er sér-
lundaður, heldur sig útaf fyrir sig,
en veit allt um fólkið í þorpinu og
hvað er að gerast. Hann ber sterk-
ar tilfinningar til Rannveigar, sem
Ragnhildur Gísladóttir leikur, en
hann myndi aldrei gera neitt í því
og lifir áfram sínu einmanalega
lífi,“ segir Reine um persónuna
sína.
- Var þetta erfítt hlutverk?
„Þetta er mjög vel skrifuð pers-
óna, bæði í smásögunni og í hand-
ritinu, og mér fannst þetta mjög
skemmtilegt hlutverk, en ekki
vandkvæðalaust. Við Guðný spjöll-
uðum mikið um það ná honum rétt,
því hann er skrítinn en samt á mjög
mannlegan hátt; skrýtinn en með
hjarta og það var mjög áríðandi að
ná honum þannig. Svo er hann líka
mjög þögul persóna. Hann er
áhorfandi; sér allt og geymir það
>með sér.“
- Þú segir ekki margt í mynd-
inni, en það litla sem þú segir er á
íslensku.
„Já, ég reyni að tala íslensku.
Mér finnst íslenska yndislegt tung-
umál sem mig langar mikið til að
kunna, en ég hef ekki haft tækifæri
til að læra það. Ég lék í annarri
Reine fannst yndisleg lífsreynsla að dvelja þrjár vikur í Flatey.
Rannveig vekur sterkar tilfinningar
hjá Hans.
mynd á íslandi, í
skugga hrafnsins, og
þá reyndi ég líka að
tala íslensku, - en ég
læri bara línurnar
rnínar."
Gott andrúmsloft
í hvívetna
- Hvað heillaði þig
mest við að vinna að
þessari mynd?
„Fyrir utan það
hversu góð sagan er
fannst mér frábært að
hún skyldi vera tekin í
Flatey. Að fá að dvelja
þar með góðu fólki og
takast á við það verk-
efni að skapa þetta sérstaka and-
rúmsloft, sem ríkir þar sem allt er
svona einangrað. Mér fannst mjög
gott að vinna með Guðnýju sem
leikari. Hún er mjög örugg, veit ná-
kvæmlega hvað hún vill og skapaði
sérlega gott og þægilegt andrúms-
loft á vinnustaðnum."
- Hvernig var að dvelja á eyjunni
íþrjárvikur?
„Það var mjög ánægjulegur tími.
Mér finnst ísland yndislegt og ég
hafði ekki komið til íslands síðan
ég vann við í skugga hrafnsins.
Mig hefur alltaf langað að koma
aftur og varð mjög glaður þegar ég
fékk tækifæri til þess. Það var líka
mjög gaman að þekkja Tinnu og
Egil, sem ég vann einnig með í
hinni myndinni og vinna með þeim
STEIIMIIXIGARLIM Margir irtir
FLOTMÚR 5 tegundir
UTIPUSSNING Margir litir - 3 tegundir
INNIPÚSSNING - RAPPLÖGUN Úti og ,nn, Síðan 1972
m
LÉTTiÐ uinnuna og
ARGFALDIÐ afköstin með notkun
ELGO múrdælunnar!
Leitið tilboða!
■■
■I steinprýði
Stangarhyl 7 - P.O. Box 12072 - 132 Reykjavík
Sími 567 2777 - Fax 567 2718
jbf
Hans veit allt um fólkið í þorpinu, og geymir það með sér.
aftur. Svo er bara landslagið og
andrúmsloftið á Islandi alveg ynd-
islegt.“
- Var það ólík reynsla frá tökun-
um á „I skugga hrafnsins"?
„Já, „Skugginn" var mjög sér-
stök lífsreynsla, eiginlega hálfgert
ævintýri og eins nálægt kúreka-
mynd og við getum komist," segir
Reine og hlær. „Það er svo gaman
að ríða hesti, vera í bardögum og
allt hvað eina, frekar eins og að
leika sér. Já, þetta er allt búið að
vera mjög gaman og ég myndi hve-
nær sem er leika aftur í íslenskri
bíómynd ef ég fengi tækifæri til
þess.“
Reynslumikill leikari
Ríkharður III hans Shakespear-
es er hlutverkið sem Reine er að
æfa þessa dagana fyrir leikhúsið.
Honum finnst það spennandi að því
leyti að hann segist aðallega hafa
leikið í samtímaverkum hingað til.
Reine var mikið í sænskum dags-
blöðum á seinasta ári, þegar hann
tók þátt í mjög sérstæðri uppsetn-
ingu á verki helsta leikritahöfundar
og leikstjóra Svía um þessar mund-
ir, Lars Lorén. Tveir sænskir fang-
ar sögðust hafa sérlega mikinn
áhuga á leiklist og Lars var fenginn
til að skrifa leikrit og fjallaði það
um blaðamann sem fór í fangelsi að
heimsækja tvo fanga. Reine fékk
hlutverk blaðamannsins og verkið
var sett upp í fangelsinu. Þegar
góðar sögur fóru af verkinu átti að
leika það utan fangelsisins. En þeg-
ar að sýningunni kom, fundust
fangarnir hvergi, heldur höfðu þeir
stolið vopnum, rænt banka og
drepið tvo lögregluþjóna. Og eftir-
málinn varð að sjálfsögðu mikill.
„Þetta var mjög sérstök og öfga-
full lífsreynsla á margan hátt, með
öllu því sem gerðist,“ segir Reine.
„Uppsetningin sjálf var mjög
skemmtileg og áhugaverð leikhús-
reynsla og þá sérstaklega að vinna
með Lars sem er besta leikrita-
skáld sem við höfum átt í mjög
langan tíma. En endirinn á þessu
var náttúrulega hræðilegur."
Reine er stöðugt að leika í kvik-
myndum og á eftir „Ungfrúnni" lék
hann í myndinni „Knock Out“ undir
leikstjórn Agnetu Fageström, sem
ætti að koma í bíóhúsin næsta vor.
- Hvernig var að leika í „Les
Misérables“ eftir Bille August?
„Það var eitt ævintýrið í viðbót.
Alveg ný og mjög sérstök lífs-
reynsla að vinna við svona stóra
Hollywood-framleiðslu, með alla
þessa peninga og öllu þessu fólki,“
segir geðþekki leikarinn Reine
Brynolfsson. „Annað ævintýri sem
ég væri til í að endurtaka."
Síðustu
hraðlestrarnámskeiðin....
á öldinni hefjast 11. og 26. október. Ef þú vilt bæta
árangur í námi og starfi skaltu skrá þig strax.
Margfaldaðu afköstin!
HRAÐLESTRARSKÓLINN
Sími: 565-9500 Fax: 565-9501
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn