Morgunblaðið - 13.10.1999, Page 27

Morgunblaðið - 13.10.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 27 LISTIR Notkun ljóss og lita Morgunblaðið/Jón Svavarsson Benedikt Gunnarsson með gestum sínum í Gerðarsafni BENEDIKT Gunnarsson mynd- listarmaður bauð gestum í Gerðarsafni sl. sunnudag upp á leiðsögn um sýningu sína Sköp- un, líf og ljós sem lauk þann dag. Töluverður hdpur gesta þáði boðið og fylgdi Benedikt um sýninguna. En listamaðurinn fræddi gesti um tilurð verk- anna, inntak þeirra og tækni- þætti eins og efnisnotkun, auk þess að drepa niður í listasög- unni með umræðu um bæði Rembrandt og Michelangelo. I umfjöllun sinni fræddi Benedikt þannig gesti um hvernig ákveðin hugsun lægi oft til grundvallar verkum sín- um, þótt hvert og eitt þeirra tengdist síðan ákveðnu við- fangsefni enn nánari böndum. Hann sagði sköpunina vera eitt slikra viðfangsefna. En sum verka Benedikts byggja á trúarlegum grunni og hefur hann unnið töluvert fyrir kirkjuna. Ein þeirra hugsana sem gjarnan liggur til grund- vallar verkum hans er fyrsta Mósebók. Augnablikið þegar fyrsta ljósið kviknar og dreifíst síðan um himingeiminn og verður forsenda lífs. En þetta sagði Benedikt vera grunnstef margra þeirra verka sem dreifðust um salinn. Hann sagði sköpunina þó að fínna víðar og t.d. byði íslensk nátt- úra með sinni sífelldu endur- sköpun í formi eldgosa og jökla upp á mikla fjölbreytni. Enda gætu listamenn fundið sér fjöl- breytt viðfangsefni í hinu stóra sköpunarverki væru þeir á ann- að borð vakandi. Benedikt tók sem dæmi mynd sína Eftir jökulhlaup. En þar má sjá jöklana veltast úfna fram á sanda og gefa gagnsæir olíulitirnir myndinni sérkenni- lega birtu. Túlkunin er siðan af köldum klaka sem valt fram á sandinn og bíður þess nú að bráðna og hverfa. Öreindabrautir og atómöldin voru annað viðfangsefni sem Benedikt kynnti fyrir gestum og sagði hann það hafa reynst sér hvati til myndsköpunar. En í leit sinni að nýjum sjónarhorn- um drekki hann í sig upp- lýsingar um hönnun himins og hafdjúpa og nái þannig vonandi að spegla samtíðina. Það var myndin Nótt í Hvalfjarðargöng- um sem Benedikt sýndi gestum sem dæmi um þessa vinnu sína sem hann sagði einkennast af geómetrískri abstraksjón. Við- fangsefnið þar væri í raun andi mannsins sem bryti sér leið í gegnum bergið á meðan ekkert fengfi brotið anda mannsins. Þótt verk Benedikts ein- kennist oft af ákveðinni ab- straksjón, þá mara þau ekki síð- ur á mörkum fígúratívrar listar. Enda sagði Benedikt að myndin Við sundin blá væri gott dæmi um þau einkenni myndlistar að ekki liggi alltaf allt ljóst fyrir, heldur verði menn stundum að geta í eyð- urnar. Notkun Ijóss og lita voru listamanninum þó ekki síður hugleikið umræðuefni í leið- sögn sinni en hans eigin verk. En að mati Benedikts vinna listamenn stöðugt með ljós í lit- anotkun sinni. Og Ijós og liti segir hann það samtengda hluti að án þeirra væri í raun ekkert líf. LEIKHÖFUNDUR ÞÓR TULINIUS TÓNLIST) GUÐNI FRANZSON TÓNLIST) HALLUR INGÓLFSSON TÓNLISt) SKÁRREN EKKERT Afslðttur fyrir Námu- og Vörðufélaga Landsbankans og TALsmenn ( T3L Tónlistin úr sýningunni verður fáanleg á geisladiski Landsbanki íslands AÖalsamstarfsaðili íslenski dansflokkurinn Borgarleikhúsinu www.id.is Miðasala 568 8000 Frumsýning á morgun næstu sýningar: fðstudagur 32. október sunnudagur 24. oktöber takmarkaður sýningafjöltll íd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.