Morgunblaðið - 13.10.1999, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 13.10.1999, Qupperneq 44
-Aj MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HARALDUR * HERMANNSSON + Haraldur Her- mannsson fædd- ist að Klungur- brekku í Stóra- Langadal á Skógar- strönd 16. júlí 1928. Hann lést í Land- spítalanum þriðju- daginn 5. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Hermann ^piafsson frá Ólafsey á Hvammsfirði, f. 18. september 1897, d. 1. nóvember 1960, og Halldóra Daníeisdóttir frá Klettakoti, Stóra-Langadal á Skógarströnd, f. 1. júní 1899, d. 10. ágúst 1991. Systkini Haraldar eru: Unnur Lilja, f. 29. apríl 1924; tvíburar fæddir 8. september 1925, d. 8. september 1925 og Anna Elín, f. 28. júlí 1938. Haraldur kvæntist 16. desem- ber 1951 eftirlifandi konu sinni, Pálínu Kjartansdóttur, f. 12. mars 1931. Foreldrar Pálínu Halli, tengdafaðir minn, var fæddur að Klungurbrekku í Stóra- Langadal á Skógarströnd. Þar af- marka Narfeyrarfjall dalinn að vestan, en Grásteinsfjall að austan. I botni dalsins rísa Ljósufjöll með tindana Hest, Stóru- og Litlu- Skyrtunnu. Dalurinn opnast út í Breiðafjörð með útsýn út á Hvammsfjörð. Á Klungurbrekku elst Halli upp hjá foreldrum sínum, þeim Halldóru og Hermanni, þar sem hann lagði stund á almenn ‘^seitastörf og þótti laginn við dýr. Snemma komu í Ijós þeir hæfi- leikar Halla sem má kalla hugvit og handlagni. Hann lagði t.d. rafmagn frá vindmyllu bæði í fjósið og bæ- inn. Þessa hæfileika sótti hann bæði í föðurætt sína og ekki síður í móðurætt, en móðurbróðir hans Óskar og sonur hans Skarphéðinn voru sannkallaðir hagleiksmenn. Þegar Halli er 18 ára bregða for- eldrar hans búi og flytja til Reykja- víkur og skömmu síðar hóf Halli nám í rafvirkjun og lýkur sveins- prófi vorið 1951. Fljótlega fer Halli að sérhæfa sig í uppsetningu og viðhaldi röntgentækja, fyrst á veg- um Rafvers hf. sem hann var einn stofnendum að og síðar sem starfsmaður tæknideildar Land- spítalans. I þessu starfi nutu eðlis- kostir Halla sín vel, enda hef ég heyrt að fáir hafi staðið honum á sporði. Árið 1978 verður Halli fyrir miklum heilsubresti er hann fær slæmt hjartaáfall. Hann fer til Bandaríkjanna í hjartaaðgerð og kemst til nokkuð góðrar heilsu en þrek hans skertist þó mikið. Sama ár og Halli lýkur sveins- prófi kvænist hann Pálínu Kjartans- dóttur sem varð llfsförunautur hans Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að , ^berast fyrir hádegi tveimur 1 ^zirkum dögum fyrir birtingar- dag. Berist grein eftir að skila- frestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna ' *%kilafrests. voru hjónin Kjartan Guðjónsson frá Svarfhóli, Geiradals- hreppi, A-Barða- strandarsýslu og Bergþóra Skarphéð- insdóttir frá Gunn- arseyri, Skötufirði v. Isafjarðardjúp. Börn Haraldar og Pálínu eru: 1) Halldóra, skrifstofumaður, f. 30.9. 1951, gift Ingólfi Arnarsyni, tannlækni. Dóttir Halldóru er fna Hrund. Sonur ínu Hrundar: Brynjar Ingi Antons- son. 2) Sigrún, skrifstofumaður, f. 14.5. 1954, gift Jóni Ástvalds- syni, húsasmíðameistara. Börn: Haraldur Páll og Ólafur. 3) Berg- þóra, leikskólakennari, f. 1.10. 1958, gift Guðmundi Ómari Þrá- inssyni, aðstoðaryfirlögreglu- þjóni. Börn: Þuríður, Halldóra og Daníel Ómar. 4) Herdís, kennari, f. 25.3. 1963, gift Birni Hjálmars- syni, lækni. Börn: Hjálmar, Gísli upp frá því. Samband þeirra hjóna var einstaklega gott og samheldni mikil. Halli var mikill fjölskyldufað- ir og var afar annt um böm sín og fjölskyldur þeirra. Hann var ætíð boðinn og búinn ef á þurfti að halda. Dóra, kona mín, spurði hann einu sinni: „Pabbi, hvenær ætlarðu að hætta að hafa áhyggjur af okkur krökkunum?" Halli svaraði að bragði: „Aldrei.“ Þegar um hægðist á heimili þeirra Halla og Inu hóf ína kona hans nám í Námsflokkunum, fór síðan í öld- ungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og lauk stúdentsprófi þaðan 1991. Halli hvatti og studdi konu sína óspart í námi en meðan hún var í öldungadeildinni veikist hún alvarlega en lét þó engan bilbug á sér finna. Hún innritaðist síðan í Háskóla íslands og hóf þar nám í ís- lenskum bókmenntum. I legu sinni á Landspítalanum nú undir það síð- asta hafði Halli miklar áhyggjur af lokaáfanga konu sinnar í námi en til stóð að hún brautskráðist um það leyti er hann lést. Halli hafði ætíð yndi af góðum bókum. Hann las alla tíð mikið og voru bækur Halldórs Laxness honum sérstaklega hug- leiknar. Sparsemi og nýtni voru hans aðalsmerki. Bruðl og óhóf var honum á móti skapi, en hann var góður gestgjafi og sparaði í engu þegar tilefni var til. Það lýsir Halla vel að með því síðasta sem hann bað Inu um var að greiða ógreidda reikninga sem borist höfðu rétt áður en hann lagðist á spítalann. Hann vildi aldrei skulda neinum neitt. Nú er Halli allur og margir eru harmi slegnir. Mestur er þó harmur eiginkonu hans og bama. En þegar harmurinn dvín þá lifnar minningin um góðan mann og skín björt og hlý eins og sólin sem vermir bæjarhól- inn á Klungurbrekku sumarlangt. Ingólfur. Tengdafaðir minn, Haraldur Her- mannsson, hefði trúlega frábeðið sér þessi fátæklegu minningarorð og sagt þau óþarft umstang. Hann var sjálfgerður maður, feiminn og fámáll. Sjálfsagi var sterkur og lundin ósérhlífin. Hann var spar- samur og nýtinn. Sérlund átti hann nokkra og var á stundum stríðinn. Haraldur lét rétt annarra manna í friði. Hann var hleypidómalaus þótt hann héldi fast í gömul gildi. Sterk náttúrugreind mætti kröfum tækni- aldar. Hann var strangur og góður faðir. Við fráfall föður míns gekk hann mér í föðurstað. Nám Haraldar og störf ljómuðu af vandvirkni og metnaði. Fjölhæf- ur var hann og allt lék í höndum hans. Hann hafði næmt auga fyrir fallegri smíð og listilegri hönnun. Augu hans tindruðu meðan hann handlék góða gripi, hvort sem það og Freyr. 5) Kjartan, skrifstofu- maður, f. 14.10. 1965, kvæntur Sigríði E. Magnúsdóttur, hár- snyrti. Börn: Magnús Arnar og Bergþór. Haraldur flutti ásamt foreldr- um sínum til Reykjavíkur 1946 og hóf stuttu síðar nám í raf- virkjun og lauk sveinsprófi hjá Bræðrunum Ormsson vorið 1951. Starfaði hann hjá því fyr- irtæki til vors 1954 er hann stofnaði fyrirtækið Rafver hf. ásamt bræðrunum Jóni og Ein- ari Ágústssonum, Þórði Þor- varðarsyni, Sigurði Sveinssyni, nú látinn, og Guðmundi Han- sen, nú látinn. Frá stofnun Raf- vers hf. og fram til 1980 sá Har- aldur um uppsetningu og við- hald röntgentækja á sjúkrahús- um landsins ásamt þeim Þórði Þorvarðarsyni og Gunnlaugi Jóhannssyni. Á árunum 1955 til 1960 starfaði Haraldur í afleys- ingpim sem rafvirki á skipum Eimskipafélagsins. Árið 1972 seldi Haraldur sinn hlut í Raf- veri hf. og hóf störf á tækni- deild Landspitaians og starfaði þar uns hann lét af störfum síð- ari hluta árs 1996. Útför Haraldar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. voru margbrotin röntgentæki, hald- gott verkfæri eða fagurt húsgagn. Amátlegustu tæki kveiktu honum innblástur og vilja til að koma þeim í gagnið aftur. Hann hélt gömlum, nánast úreltum tækjakosti gang- andi. Fyrir næmt innsæi, samvisku- semi og verklagni varð tengdafaðir minn farsæll í starfi. Stuðningur Pálínu var Haraldi dýrmætur, því hann gekk nærri sér með mikilli vinnu. Þau hjónin kynntust skini og skúrum en aldrei brá skugga á samheldni og úrræða- semi þeirra. Hann hvatti hana með ráðum og dáð, þegar hún hóf bók- nám á fullorðinsárum. í illvígum veikindalotum þeirra stóðu þau þétt saman. Þótt ráð hefðu leyft hætti Haraldur ekki að vinna fyrr en heilsu hans var svo hrakað, að ekkert varð úr hagleikssmíðum síð- ustu æviárin. Þennan harm bar hann í hljóði. Það átti ekki við hann að íþyngja öðrum með sorgum sín- um. Haraldur hafði sívökula gát á hjörð sinni. Verk fremur en orð tjáðu bömum hans umhyggju og fórnfysi. Honum leið ávallt illa ef eitthvað bjátaði að hjá þeim og hljóp undir bagga, þegar með þurfti. Það virtist honum heilagt markmið, að forða fólki sínu frá þeirri fátækt, sem æskuárin skenktu honum sjálfum. Sér til handa gerði hann alla tíð hógvært tilkall til lífsgæða. Hann tók nærri sér að fleygja hlutum og fann gat- slitnum munum nýtt hlutverk, til að forða þeim frá glötun. Þá kímdi hann yfir kænsku sinni. Haraldur hafði tóneyra og lék á harmóníku. Hann var bókelskur og hafði dálæti á verkum skáldsins frá Gljúfrasteini. Sérstaklega þótti hon- um vænt um „Sjálfstætt fólk“ enda andlegur skyldleiki tengdaföður míns og Bjarts í Sumarhúsum ótví- ræður. Sjálfstæði sitt fengu báðir fyrir ósérhlífni, útsjónarsemi og vinnu; óþrjótandi vinnu. Frelsið var þeim dýrmætara en lofthæðin í bænum. Báðum þótti nefnilega illt að skulda og vera öðrum háðir. Góður maður er genginn, svolítið sérvitur og hæglátur úr hófi fram; með hjarta úr skíra gulli. Hann var svo örlátur, raungóður, óeigingjam, hreinskiptinn og yndislega hjarta- hlýr að það voru forréttindi að eiga hann að. Hann var íslenskur sveita- maður í bestu merkingu þess orðs og betri vinir eru vandfundnir. Mannkostir Haraldar verða mér ævarandi fyrirmynd og veganesti inn í nýja öld. Þakklæti mildar trega minn. Bjöm Hjálmarsson. Far þú í friði, ftíður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkstþú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Mig langar í nokkrum orðum til að minnast frænda míns, Haraldar Hermannssonar. Hann var bróðir móður minnar sem heitir Unnur og er elst þeirra systkina, en yngst er Anna. Þau héldu mikla tryggð hvert við annað. I áratugi bjuggu Haraldur og móðir mín í sama húsi, meira að segja á sömu hæð, með sínar fjölskyldur og ekki var Anna langt undan. Það var því mikill samgangur milli þessara fjöl- skyldna og oft líf og fjör. Haraldur og Pálína kona hans eignuðust fimm börn og átti ég mikla samleið með tveimur yngstu börnum hans. Mér fannst ég stundum tilheyra þessum stóra systkinahópi og ekki var ég skilin útundan þegar þau hjónin Haraldur og Pálína komu er- lendis frá. Eitt sinn gaf Haraldur mér húllahopp-hring sem hann hafði sett saman úr mjóu rafmagns- röri og var ég mjög ánægð með þennan hring. Þegar börnin hans voru hætt að nota reiðhjól sem þau áttu gaf hann mér það og hjólaði ég mikið á því og er það enn til í mín- um fórum. Mér fannst Haraldur löngum vinna mikið, enda hafði hann fyrir stórri fjölskyldu að sjá. Haraldur tók nokkuð í nefið hin síð- ari ár, en aldrei sá ég hann með stóra bláa eða rauða vasaklúta, heldur notaði hann smá miða sem hann reif niður úr eldhúsbréfum og var hann óvenju snyrtilegur við þessa iðju sína. Undir það síðasta var Haraldur orðinn illa haldinn af parkinson-veiki og hefur hann nú fengið hvíld úr þjáðum líkama. Honum hefur verið tekið opnum örmum þar sem hann dvelur nú. Eg kveð hann með þakklæti. Hvíl í friði. Una Guðlaug Haraldsdóttir. SIGURJÓN SIG URÐSSON + Sigurjón Sig- urðsson var fæddur á Hraun- bóli, Vestur-Skafta- fellssýslu, 12. ágúst 1910. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógabæ 7. október síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sigurðar Jónssonar, f. 11. nóvember 1872, d. 30. 1964, og Guðleifar Jónsdóttur, f. 5. desember 1878, d. 27. október 1967. Systkini Sigurjóns voru: Jóel, f. 21. júní 1904, látinn; Ólöf, f. 12. nóvember 1906; Steinunn, f. 6. janúar 1909, látin; Magnús Þorbergur, f. 27. nóvember 1913; Gróa, f. 28. maí 1916, lát- in; Jón, f. 26. desember 1917, og Gróa, f. 3. september 1923. Eiginkona Sigurjóns var Lilja Þorgeirsdóttir, f. 13. febrúar 1908, d. 30. mars 1992. Börn þeirra eru tvö: 1) Guðleif Fríður Sigurjónsdóttir, f. 20. ágúst 1945, gift Ólafi Ólafssyni, f. 12. febrúar 1949. Þeirra synir eru Hjörtur Ólafsson, f. 10. mars 1975, og Jónas Örn Ólafsson, f. 13. nóvember 1977. 2) Sigurgeir Sigurjónsson, f. 4. nóvember 1948, kvæntur Helgu Jennýju Gísladótt- ur, f. 11. nóvember 1948, þeirra börn eru Helga Jenný Sigurgeirsdóttir, f. 15. ágúst 1971, Sig- urjón Sigurgeirs- son, f. 13. febrúar 1977, og Benjamín Sigurgeirsson, f. 19. desember 1978. Langafabarn Siguijóns er Benjamín Liam Adrianson, f. 5. júlí 1997, sonur Helgu Jennýjar Sigurgeirsdótt- ur og Adrians Rayboulds, f. 15. apríl 1970. Sigurjón var garðyrkjumaður og vann við ræktun matjurta í Fossvogsdal. Útför Sigurjóns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Sigurjón ólst upp á Hvoli í Vest- ur-Skaftafellssýslu en fluttist til Reykjavíkur sem ungur maður og hóf þar grænmetisrækt sem hann stundaði í um það bil 50 ár eða á meðan aldur og heilsa leyfðu. Fyrstu árin var garðurinn hans í Kringlumýrinni en þegar byggðin teygði sig þangað fluttist hann í Fossvoginn sunnan við Sjúkrahús Reykjavíkur. Grænmtisræktin átti hug hans allan og naut hann virð- ingar sem garðyrkjumaður. Marg- ir sóttu til hans fróðleik sem áhuga höfðu á grænmetisrækt. Oft var líflegt á uppskerutíma í garðinum hjá Sigurjóni og mikill fjöldi barna og unglinga þar við vinnu. Flestir þessir krakkar höfðu aldrei unnið áður en Sigurjón hafði lag á þeim og kenndi þeim að vinna. Hann lét þau vita þegar illa var gert en einnig þegar þau stóðu sig vel og fengu menn þá oft bónus á kaupið í lok vinnudags. Eg var ein þeirra sem var svo lánsöm að alast upp í garðinum hjá Sigurjóni. Tólf ára byrjaði ég að vinna í garðinum og var þar öll sumur til 20 ára aldurs. Á þessum árum var bónusinn á kaupið land- skiki af garðinum til eigin afnota. Við tvítugsaldurinn hafði ég ásamt Helgu systur minni lagt undir mig stóran hluta garðsins og vorum við eftir það orðnar aðalsam- keppnisaðilar Sigurjóns á græn- metismarkaðinum. Oft var metist um hvor helmingur garðsis væri betur hirtur og skilaði meiri upp- skeru og hafði Sigurjón oftast vinninginn. Sigurjón kenndi okkur og sýndi svart á hvítu að maður uppsker eins og maður sáir. Natni hans og umönnun fyrir plöntunum skilaði sér í 1. flokks afurðum sem komu fyrstar íslensks grænmetis á markað á hverju sumri. Vinátta hans og væntumþykja leiddi af sér samstarf tveggja kynslóða í ára- tugi og vináttubönd er entust ævi- langt. Með virðingu kveð ég þennan sómamann. Blessuð sé minning hans og Lilju konu hans. Guðrún Þórarinsdóttir. Hinsta hvíldin er ekki öllum jafn kærkomin. Hinsta hvíld Sig- urjóns var honum hins vegar kær- komin. Hann var orðinn vel full- orðinn ekkjumaður, sem saknaði konu sinnar dag hvern. Þótt sjö ár væru liðin frá því hún yfirgaf þennan heim gat hann vart nefnt nafn hennar eða heyrt á hana minnst án þess að vikna. Svo kært var með þeim og þau hinir mestu mátar. Heimili þeirra var fábrotið og látlaust. Bar þess vott að þar byggi vinnusamt alþýðufólk. Hlýj- an var mikil sem lagði frá þeim. Þau voru svo mikil hjón, voru eins og sinn hvor helmingurinn á sama hlutnum. Þess vegna var afar erfitt fyrir Sigurjón að vera Lilju- laus. Hann beið þess dags að hann fengi að hitta hana á ný og þau yrðu eitt að nýju. Nú hefur hann fengið ósk sína uppfyllta. Að verða vitni að svona vináttu, virðingu og ást er hverjum manni hollt og gott. Betra ef allir væru sem þau voru. Hvíl þú í friði, Sigurjón minn. Sigrún Jónsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.