Morgunblaðið - 04.11.1999, Blaðsíða 51
T
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999 5}-,
UMRÆÐAN/SAMKYNHNEIGÐ
Formaður Félags ungra
jafnaðarmanna segir satt
HINN 29. október síðastliðinn
birtist grein eftir Hróbjart Guð-
steinsson, „Formaður Félags ungra
jafnaðarmanna segir ósatt“, þar
sem hann sakar mig um ósannindi
og sögufölsun. Tilefnið er grein sem
ég sendi í Morgunblaðið og var birt
14. október. í þeirri grein, sem fjall-
ar um mannréttindi samkyn-
hneigðra, gagnrýni ég meðal ann-
ars þá sem kalla samkynhneigð
synd eða sjúkdóm og vitna í hina
ýmsu kafla Biblíunnar máli sínu til
stuðnings. Sérstaklega tók ég dæmi
af Ragnari Fjalari presti sem vitnar
í Matteusarguðspjall sem hann
kallar orð Jesú Krists.
I grein minni benti ég í fyrsta lagi
á þá staðreynd að Matteusarguð-
spjall var likíegast ekki skrifað fyrr
en um 50 árum eftir meinta kross-
festingu Jesú eða um 80 árum eftir
fæðingu hans. I öðru lagi benti ég á
að enginn veit með vissu hver skrif-
aði MatteusarguðspjaU og því mjög
vafasamt að kalla það orð Jesú
Krists. Hér vill Hróbjartur meina
að ég sé að ljúga! Samt notast ég
aðeins við sagnfræðilegar heimildir
máli mínu til stuðnings. Ef það er
eitthvað sem mér leiðist þá eru það
lygarar og sárnar mér því þegar ég
er sakaður um lygar. Eg bendi því
hér með á nokkrar staðreyndir og
heimildir máli mínu til stuðnings:
Nokkrar gildar ástæður fyrir
því að efast um að guðspjöllin
séu orð Jesú Krists
Það var ekki fyrr en á kirkju-
þinginu sem haldið var í Karþagó
árið 397 sem Nýja testamentið eins
og við þekkjum það í dag varð tíl. A
þessu kirkjuþingi var
meðal annars ákveðið
hvaða fjögur guðspjöll
ættu að vera í Bi-
blíunni. Fyrir þennan
tíma voru fjölmörg
„guðspjölT' í umferð
sem við þekkjurrg því
miður ekld í dag. Agú-
stínus, Jerome og aðrir
kirkjufeður sem voru á
þessu þingi völdu þau
fjögur guðspjöll sem
nú eru í Biblíunni og
ákváðu að þau ein
væru orð Guðs. Öll hin
guðspjöllin voru hins
vegar bönnuð og hafa
síðan týnst eða verið
eyðilögð.
Þau guðspjöll sem við þekkjum í
dag eru kölluð Matteusar-, Markús-
ar-, Lúkasar- og Jóhannesarguð-
spjall. Markúsarguðspjall er elsta
ritið, en talið er að það hafi verið
Það að saka fólk um lyg-
ar, segir Sigurður Hólm
Gunnarsson, er mjög al-
varlegt mál.
skrifað milli áranna 60 og 70. Jó-
hannesarguðspjall sem er líklegast
yngst var hins vegar ekki skrifað
fyrr en í fyrsta lagi um 90 árum eft-
ir meinta fæðingu Jesú.
Matteusar-, Markúsar- og Lúka-
sarguðspjall eru kölluð samstofna
guðspjöll í öllum helstu sagnfræði-
ritum þar sem að sagnfræðingar
telja að öll séu þau
runnin upp af sameig-
inlegri rót. Þessi sam-
eiginlega rót hefur
ýmist verið talin Mar-
kúsarguðspjall eða rit
sem hefur verið kallað
Q (sem er stytting á
þýska orðinu Quelle
og þýðir uppspretta
eða heimild). Þeir sem
aðhyllast seinni kenn-
inguna telja að íyrr-
nefnd þrjú guðspjöll
séu byggð á Q. Þetta
rit hefur hins vegar
aldrei fundist.
Hvemig sem við lít-
um á málið þá eru
flestir fræðimenn sammála um það
að Matteusar-, Markúsar- og Lúka-
sarguðspjall séu upprunin úr sama
riti og því er augljóslega ekki hægt
að segja að Matteus, Markús og
Lúkas séu raunverulegir höfundar
þeirra. Með öðrum orðum: við höf-
um ekki hugmynd um hver skrifaði
guðspjöllin.
Jafnvel þó að við gerum ráð fyrir
því að Matteus, Markús, Lúkas og
Jóhannes hafi skrifað guðspjöllin
þá myndi það þýða að Markús hafi
verið að minnsta kostí 70 ára en
Jóhannes um 110 ára gamall þegar
þeir skrifuðu guðspjöllin. Þessi al-
dur verður fáránlegur sérstaklega í
ljósi þess að meðalaldur manna á
þessum tíma var um 30 ár. Hér geri
ég reyndar ráð fyrir því að postul-
amir hafi verið jafnaldrar Jesú. En
þessi staðreynd skiptir ekki máli
þar sem að ekkert bendir til þess að
postulamir hafi skrifað guðspjöllin.
Sigurður
Hólm Gunnarsson
Hver fremur sögufölsun?
Upplýsingar um hin samstofna
guðspjöll er að finna í öllum helstu
sögubókum sem fjalla um þessi
mál. Ég bendi lesendum t.d. á Hug-
myndasögu (sem er m.a. kennd í
framhaldsskólum) eftír Ólaf Jens
Pétursson í því samhengi. í þeirri
bók kemur einnig skýrt fram hve-
nær guðspjöllin vora skrifuð.
Það er engan veginn frá mér
komið að höfundar guðspjallana
séu óþekktir. Þetta stendur einfald-
lega í sagnfræðiritum. Hróbjartur
sakar mig um lygar og sögufalsanir
eins og ég hafi samið þessar upp-
lýsingar. Hróbjarti væri nær að
saka höfunda allra helstu sagn-
fræðirita um lygar og sögufalsanir
ef hann telur sig vita betur en þeir.
Hróbjarti væri enn fremur nær að
líta í eiginn barm því hann er til-
búinn að fullyrða að Matt-
eusarguðspjall hafi verið skrifað af
Matteusi postula án þess að geta
rökstutt það á nokkurn hátt.
Vafasamar heimildir
Þær heimildir sem Hróbjartur
minnist á og eiga að sýna fram á
sögufolsunaráráttu mína eru ansi
undarlegar. I lyrsta lagi nefnir
hann alfræðiorðabók frá Erni og
Örlygi þar sem segir að Matt-
esusarguðspjall hafi verið ritað af
Matteusi postula skv. fomum heim-
ildum. Ég spyr: hvaða heimildum
og hvemig geta þær útskýrt hin
samstofna guðspjöll? Ég get á móti
bent á að í alfræðiritinu Encarta
stendur t.a.m.: „[Fræðimenn] efast
um að Matteus postuli hafi skrifað
[Matteusarguðspjall]“.
Hróbjartur minnist einnig á
sagnfræðinginn Jósefus Flavíus
(f.37-d.l01?) og bendir á að það sem
stendur í ritum hans sé í samræmi
við það sem stendur í guðspjöllun-
um. Hér á Hróbjartur líklega við
texta um Jesú sem er að finna í rit-
inu Jewish Antiquities (eða Fom-
leifar gyðinga) og er eftir fyrr-
nefndan Flavíus. Ef svo er þá er
þetta vægast sagt undarleg heimilA
til þess að vitna í ef maður er að'
saka aðra um sögufölsun. Sérstak-
lega í ljósi þess að stór hluti fræði-
manna hefur álitið þann texta vera
seinni tíma innskot eða fölsun!
Að lokum
Nú kann að vera að Hróbjartur
hafi ekki lesið mikið af sagnfræði-
ritum og hafi því ekki vitað um þær
staðreyndir sem ég hef nú bent á.
Vanþekking hans á sagnfræði rétt-
lætir þó engan veginn ásakanir
hans í minn garð. Það að saka fólk
um lygar er mjög alvarlegt mál. ÞyL_
vonast ég til að Hróbjartur leggi
meiri metnað í leit sinni að sann-
leikanum í framtíðinni þannig að
hann geti komist hjá fölskum ásök-
unum.
Höfundur er formaður Félags ungra
jafnaðarmanna íReykjavík og rit-
stjóri Skoðunar.
-/elinek
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473
R LAUGARDAGUR A LAUGAVEGINUM
í \
Ath Sendum í póstkröfu.
Laugavegi 18b Sími 562-9730 Fax 562-9731 Grænt númer 800-5730
Kringlunni Sími 568-0800 Fax 568-0880 Grænt númer 8006880
STAKIR JAKKAR
ÁDURALLTAB12900 KR.STK
7950 KR. STK
STAKAR BUXUR
ÁOUR ALLT AD 4980 KR. STK
NÚ TVÖ VERD 2980 KR. STK
3980
. STK
TILBODIIU GILDA EINIMIG í VERSLUIM OKKAR í KRIIMGLUIMIMI
Affl. OPID Á SUNIMUDÖGUM13 -17 í KRINGLUNNI