Morgunblaðið - 04.11.1999, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN/SAMKYNHNEIGÐ
MORGUNBLAÐIÐ
„Sá yðar er syndlaus er“
Óskar Anna
Benediktsson Leósdóttir
AÐ skilja hvernig
það er að vera sam-
kynhneigður teljum
við útilokað fyrir aðra
en þá sem eru sam-
kynhneigðir. í okkar
augum hafa mann-
kostir einstaklingsins
ekkert með kyn-
hneigð hans að gera.
Við hjónin eigum
eina dóttur og tvo
_syni. Eldri sonur okk-
~á'r hefur þjáðst af
flogaveiki mestan
hluta lífs síns. Hann
hefur lært að takast á
við sjúkdóm sinn með
hollu mataræði, nægi-
legum svefni og öðru sem kemur í
veg fyrir flogaköstin sem honum
fylgja.
Undanfarna daga erum við að
lesa það á síðum Morgunblaðsins
að yngri sonur okkar, sem er sam-
kynhneigður, sé líka haldinn sjúk-
dómi sem margir hafa fengið lækn-
ingu við. Helstu sjúkdómseinkenni
hans eru þau að sjúklingurinn virð-
ist haldinn einhvers konar sið-
blindu og iðki syndsamlegar at-
Aufnir í óráði sínu.
Fólkið sem heldur þessum full-
yrðingum fram grætir hjarta okk-
ar og við viljum gjarnan benda því
á að beina „góðum“ vilja sínum
annað, þangað sem raunveruleg
þörf er fyrir hendi. T.d. er vímu-
efnanotkun unglinga vaxandi
vandamál hér á landi. Hvernig
væri ef þetta góða fólk sem situr
með sveittan skallann og eyðir ork-
unni í blaðaskrif beindi frekar
kröftum sínum í að vinna að for-
u^rnarstarfí unglinga?
Boðorðin tíu
Eftir að við hjónin höfðum sest
niður og rætt um boðorðin tíu
komumst við að þeirri niðurstöðu
að fátt er um dýrlinga og aðra
helga menn á jörðinni. Því segjum
við: „Sá yðar sem syndlaus er,
kasti fyrsta steininum." Væri ekki
ráð að menn reyndu frekar að lag-
færa sjálfa sig í stað þess að reyna
að breyta öðrum?
Við hjónin höfum þá skoðun að
Við erum öll börn guðs,
segja þau Oskar Bene-
diktsson og Anna Leós-
dóttir, og erum öll jöfn í
hans augum.
við séum hérna á jörðinni til að
læra og þroskast. Okkur er úthlut-
að ákveðnu námsefni sem hver og
einn þarf að læra. Enginn annar
getur gert það fyrir okkur og eng-
inn hefur rétt til að taka það frá
okkur. Við megum hins vegar rétta
náunganum hjálpai’hönd, ef hann
óskar þess, en ekki bregða fyrir
hann fætinum.
Það eiga allir rétt á því að lifa í
friði og við ættum að geta unnt
öðrum þeirrar lífshamingju. Hins
vegar eigum við til að gleyma því
að Guð hefur ekki skapað okkur öll
eins. Þessi staðreynd vefst fyrir
sumum. Hana má rekja til eins af
þremur helstu löstum í mannlegu
eðli: Reiði, græðgi og fáfræði. Það
er algjör fáfræði að halda að við
getum breytt öðrum eftir okkar
höfði. Við getum aðeins breytt
okkar eigin viðhorfum til þeirra.
Göngum inn í nýja öld með því
hugarfari að við erum öll börn
Guðs, að við erum öll jöfn í hans
augum og að hann elskar okkur öll
eins mikið. Leyfum þegnum ís-
lenska lýðveldisins að sitja við
sama borð og munum að eitt sinn
voru kristnir menn, rétt eins og
samkynhneigðir eru nú, ofsóttur
minnihlutahópur. Leyfum hjóna-
vígslu samkynhneigðra og veitum
þeim sömu mannréttindi og öðr-
um.
Er samkynhneigð kristileg?
Einn greinarhöfunda setti fram
spurningu um það hvort samkyn-
hneigð væri kristileg. Við skulum
athuga að kristilegt framferði er
ekki eins í hugum neinna okkar,
þ.á m. kirkjunnar manna, sem
sannast af skrifum þeirra um sam-
kynhneigð. I staðinn skulum við
muna að Kristur færði okkur kær-
leikann en kirkjan kristnina.
Að lokum viljum við spyrja
kristið samferðafólk okkar: Hvers
vegna var Kristur krossfestur?
Var það ekki af því að hann var
öðruvísi en aðrir menn? Ofbeldi
var ekki til í huga Krists, aðeins
kærleikur, kærleikur og aftur kær-
leikur. En ofbeldi var til í huga
þeirra sem krossfestu hann. A að
krossfesta samkynhneigða af því
að þeir eru eins og Jesús Kristur
var, öðruvísi en aðrir menn?
Óskar er verslunarmaður.
Anna er listakona.
Ritningin ein!
ÞEGAR efni er
brotið til mergjar í al-
mennri umræðu á síð-
um dagblaða kynnist
maður ýmsum sjónar-
hornum. Málefnið um
kirkju og kynhneigð
-y&fur vart farið fram-
hjá nokkrum lesanda.
Og þar sem undirritað-
ur fékk ádrepu frá
heimspekingi finnst
mér ekki úr vegi að
koma með innlegg sem
er frá öðru sjónarhomi
og kann ef til vill að
fara illa í suma en vel í
aðra lesendur. Bið ég
menn um að skfija mín orð öðmvísi
en illa meintan hatursáróður.
Ólafur Stephensen blaðafulltrúi
Landssímans sendi greinilega eitr-
að peð fram á skákborð trúmálanna
og hirti trúlega hrókinn og kom
biskupi í vanda. Menn vita ekki al-
fcg hvort um er að ræða hvita eða
svarta biskupinn. En svartstakk-
amir hafa reynt að draga fram af-
stöðu kirkjunnar og þá sést að lút-
ersk kirkja er greinilega í
tilvistarkreppu. Hún byggir tilvem
sína á vitnisburði Biblíunnar um
verk Guðs hér á jörð. Hún rekur
söguna frá Abraham til Móse, Jesú
Krists og postulanna. I hverri
messu era lesin valin orð frá pistla-
höfundum eins og Páli postula. En á
síðustu tímum hafa menn sleppt
nokkmm atriðum sem postulinn
.Ugði fram sem kenningargrandvöll
HRrkjunnar. Augljóst er að menn
vilja hreinsa til í brefum Páls til
Rómverja og Korintumanna, sér-
staklega það sem hann hefur að
segja um kynvillu og spillingu
mannanna. Er það ekki kaldhæðnis-
legt að postulinn hefur ekki algert
frelsi til að „tala í kirkjum" við 1000
.-ágj afmæli kristni á Islandi?
rCJerkarnir tala líka í nafni Lút-
ers, þess merkilega manns sem yfir-
Snorri Óskarsson
gaf hégiljur síns sam-
tíma og leiddi
áheyrendur sína að
Biblíulegum sannind-
um undir yfirskriftinni
„Sola scriptura" eða
Ritningin ein. Ef ritn-
ingin segir það eldd þá
þarftu ekki að hlýða
því en ef hún segir það
þá skaltu ekki draga
það eina sekúndu að
fara eftir því.
Það er því graf-
alvarlegt mál þegar
vígðir menn, sem hafa
heitið því að prédika
Orð Guðs skírt og
ómengað, ganga fram fyrir skjöldu
og lýsa Biblíuna óáreiðanlega varð-
andi boðskapinn um helgun manns-
ins og era tilbúnir að blessa lífsmáta
sem Guð segir að sé viðurstyggð.
Hvað gengur að þessum kenni-
mönnum?
Það er alveg rétt sem Ragnar
Fjalar Lárusson greinir frá í sinni
Það er grafalvarlegt
mál, segir Snorri Osk-
arsson, þegar vígðir
menn ganga fram fyrir
skjöldu og lýsa Biblíuna
óáreiðanlega varðandi
boðskapinn um helgun
mannsins.
grein að Jesús Kristur, boðberi
kærleikans, lýsti hjónabandið sem
Guðs gjöf og það á aðeins að vera
milli karls og konu. Það á kirkjan að
blessa. Það er líka sorgleg stað-
reynd að hjónabandið hefur átt í vök
að veijast á síðustu árum. Sú stað-
reynd hrópar til okkar að þjóðin er
að ganga af tránni. Kristnin og Bi-
blían segja við okkur að það eigi að
vera einn maður og ein kona út lífið.
Aðeins dauðinn má sldlja fólk að. En
Móse varð að gefa skilnaðarskrá
(apostasí) vegna hjai-taharðúðar
mannanna. Þar eram við komin að
meininu í þessari hommaumræðu
allri og það er ábyrgð mannsins á
sjálfum sér. Postulinn Páll talar um
að: „Þeir hafa skipt á sannleika
Guðs og lyginni og göfgað og dýrkað
hið skapaða í stað skaparans hans
sem er blessaður að eilífu. Amen.
Þess vegna hefur Guð ofurselt þá
svívirðilegum gimdum. Bæði hafa
konur breytt eðlilegum mökum í
óeðlileg og eins hafa og karlar hætt
eðliegum mökum við konur og
brannið í losta hver til annars, karl-
ai- frömdu skömm með karlmönnum
og tóku út á sjálfum sér maldeg
málagjöld villu sinnar.“ (Róm. 1:25-
27). Postulinn talar meira í þessum
dúr og ekld í reiði né hatri. En nú er
svo komið að menn verða að taka af-
stöðu til þess máls. Postulinn dreg-
ur ekki dul á ábyrgð mannsins í
þessum athöfnum. En hann bendir
á að dymar inní þann lífsmáta er
„að sldpta á sannleikanum og taka
lygina“ inn. Þess vegna era orð
þeirra presta sem vilja blessa stað-
festa samvist stóralvarleg villa. Þeir
era vígðir og ríkisreknir einstakl-
ingar til að segja mönnum sannleik-
ann, þennan sannleika sem Biblían
hefur fram að færa.
Þess vegna sé ég ekki annað í
stöðunni en að þjóðkirkjan íslenska
er hvorki lútersk né kiistin. Hún er
tráarkoktetll sem hefur sumt gott
annað stórhættulegt sálarheill
manna og hún er sú stofnun sem
gengur harðast fram í því að ræna
þjóðina tiltrú á Biblíuna.
Lesandi minn, Biblían boðar oJdí-
ur bæði gæsku og strangleika Guðs.
Ekki aðeins algóðan Guð, heldur
einn og sannan Guð sem frelsar
menn í Jesú Kristi og endurgerir þá
frá innstu rótum. Því máttu treysta!
Höfundur er safnaðarhirðir i Hvíta-
sunnukirkjunni i Vestmannaeyjum.
Nýr landlæknir
sussar á landsmenn
EFTIR að hafa lesið grein Sig.
Guðmundssonar landlæknis hér í
Morgunblaðinu á bls. 37, 27.10. sl.,
velti ég því fyrir mér hvort inntak-
ið hefði orðið annað, ef læknirinn í
hinu háa embætti, hefði einnig
stuðst við „leiðarljós" ofangreindra
orðá Ritningarinnar. Hinn lærði
maður raðar flott orðum og ritar
m.a.: „Samkynhneigð er ekki sjúk-
dómur er einfaldlega einn margra
atferlisþátta manna Aukin þekking
er fyrsta skrefið í átt til umburðar-
lyndis." Ég efast ekki um góðan
hug og vilja landlæknis en. I sama
tölublaði Morgun-
blaðsins á bls. 36 er
greinin „Sussað á
fréttamenn". Fyrir-
sögn mín hér er það-
an ættuð. Ég hvet til
lestrar þessarar um-
hugsunarverðu
greinar Kristjáns
Jónssonar, en þar
segir m.a.: „Og í
haust var Murdoch
spurður um afstöðu
sína til harðstjómar
Kínverja í Tíbet og
Dalai Lama, leiðtoga
Tíbeta. Hann svaraði
afar smekklega að
hann vissi ekki betur
en þessi Dalai Lama
væri einhver „munkur á Guccis-
Er ekki þögn sama og
samþykki, spyr Her-
mann Þorsteinsson,
eða uppgjöf fyrir ásta-
ndinu meðal okkar?
kóm“. Skilaboðin til Peldng voru:
Þetta er allt í lagi hjá ykkur, strák-
ar, Tíbet verður aldrei neinn ást-
eytingarsteinn." Skyldleiki sýnist
mér í þessu og orðum landlæknis
um „umburðarlyndi“. Ekki er úr
vegi í þessu sambandi að vekja at-
hygli á grein í sama tölublaði
Morgunblaðsins,bls. 26, „I viðjum
hvatalífsins“ - því allt er þá þrennt
er. En víkjum aftur að orðum
læknisins: „Aukin þekking er
fyrsta skrefið “ Lítum á nýtt dæmi
úr okkar samfélagi: Piltungi nokk-
ur, sem fyrir 2-3 árum var staddur
á þjóðhátíð í Eyjum, vildi fá næði,
uppi á sviði fyrir augum fjöldans,
til að „gera það" með ástmanni sín-
um, sem hann nefndi svo. Myndug-
ur stjórnandi, Eyjamaður, kom í
veg fyrir það. Pilturinn tók inn-
gripi stjórnandans mjög illa og
leitaðist næstu misserin við að
koma höggi á hann, en án árang-
urs. En þessi ungi maður fékk
heldur betur nýtt tækifæri til að
sýna sig. RÚV dagskrárdeild eða
stjórnandi hennar sendi hann sem
fulltráa íslands í söngvakeppni
sjónvarpsstöðva og með honum
einar fjórar hispurs-píur, án
hljóða, en þær höfðu það hlutverk
að sniglast um neðri hluta líkama
söngvarans meðan h_ann sitjandi
flutti þarna framlag Islands fyrir
augum milljónanna í Evrópu. Éin-
kunn dómnefndar fyrir þetta
„framlag" Islands út úr keppninni
næsta árið, eftir að hafa áður verið
þar nálægt toppnum. Heimkominn
íúllyrti „ambassador“ okkar að
hann væri sigurvegari þessarar
keppni, hvað sem þessi vanhæfa
dómnefnd segði. Þau orð tók RUV
gild, því næsta ár var harin aftur
sendur og nú sem kynnir íslands á
söngvakeppninni, í stað fágaðs og
veltalandi tónlistarmanns, sem áð-
ur hafði gegnt því hlutverki með
prýði, og útkoman í annarri lotu
hjá hinum unga sendimanni? Not-
um hans eigin orð: „Almáttugur
minn, Guð minn góður. Jesús minn
Je sús mii nn.“ I lokin mátti hann
vart vera að því að kveðja, því
hann kvaðst vera boðinn í „partý-
ið“ hjá sigurvegaranum frá Israel,
konunni kynskiptu. Og nú er þessi
listamaður okkar að gefa út skífu,
sem vel þarf að auglýsa og kynna.
Og í þvi tilefni hefur hann fengið
sér og íklæðst efnislitlum, kols-
vörtum glansgalla, sem eitt af dag-
blöðum okkar hefur fallið fyrir og
birtir heilsíðumynd á forsíðu.
Minna mátti ekki gagn gera. Og
svo kemur framhald: Mynd af „sig-
urvegaranum“ í sama blaði, en þar
er hann staddur í plötuverslun, ár-
itandi skífuna nýju, umkringdur
aðdáendum börnum, aðfengnum
„statistum“? Og áfram í næsta
helgarblaði sama dagblaðs: Ný
mynd og: „internetið -
Djúpt inní á Fókus-
vefnum“ - og þar
hnykkt á að umræddur
sé „líka algjör inter-
kóngur og án efa vin-
sælasti kynlífsráðgjafi
landsins “ og síðan
mögnuð hvatning á
máli, sem ekki allir
skilja ennþá. Og svo á
næstu síðu bang:
„Skítamórall og nefnd-
ur interkóngur, laugar-
dagskvöld 23.10.“ - Er
þetta ekki að auglýsa
upp nýjar stjörnur að
hætti Hollywood? Og
enn er litríkt framhald
í sömu pressu 26. októ-
ber sl. Nýja stjarnan í stæl-stell-
ingum á forsíðu við blaðhausinn og
sama mynd, einnig í litum, í 4-dálk
inni í blaðinu og þar er fyrirsögn
„fréttarinnar": „Stelpurnar fá
samkeppni við stöngina" og eftir
honum er haft: „Ég er guðs lifandi
feginn að þessi og önnur nettækni
er til staðar í dag og ég ætla mér
að nýta mér hana til fullnustu.
Enda, let’s face it, ef það er ein-
hver maður á Islandi sem á að per-
formera í beinni útsendingu á Net-
inu þá er það ég.“ Og nú er enn
nýr glans-galli, mjög svo knappur,
og glitrandi stígvél og lausar fram-
ermar í sama lit. Og skrautlegt
viðtal fylgir og heimasíðan tilfærð í
bláum lit í svörtum textanum. Og
móðurmálið með undirfyrirsögn-
um vissulega skrautlegt einnig:
„Velkomin á „deep inside“ o.s.frv.
Og forsíðan á sama blaði er með 5-
dálka litmynd af nektardans-
meynni Caron sem upplýsir: „Mil-
ljón á mánuði“ og „Hún segir
dansmeyjar almennt enda sem les-
bíur enda fái þær ógeð á kari-
mönnum“. Og inni í blaðinu er heil
opna með „fréttum" af meyjunum
og „stöðu mála“. Og hvað segir
þetta okkur: „enda almennt sem
lesbíur"? Stúlkur með eðlilega,
náttúrlega kynhvöt, þær enda sem
lesbíur. Hvað með heilbrigða pilta
með eðlilega, normal kynhvöt, geta
þeir ekki einnig umbreyst og end-
að í villu? Nú er einstaklingurinn,
sem hér hefur verið tekinn sem
dæmi úr nútímanum, sagður „án
efa vinsælasti kynlífsráðgjafi
landsins". Hvað verður um unga
Island, ef hann og hans líkar verða
fyrirmyndir framtíðarinnar? Þetta
er ekki sjúkdómur, segir land-
læknir, „heldur einn margra at-
ferlisþátta manna". Nú hefi ég vak-
ið athygli læknisins á nýrri
„þekkingu". Vill hann tjá sig um
þessa þekkingu? Erum við á réttri
leið með hina ungu? Mér er ljóst
að ég tek áhættu, líklega mikla,
með því að blanda mér í þessa um-
ræðu, en ég finn mig knúinn. Fyrr-
um samverkamaður minn, sr.
Ragnar Fjalar fv. prófastur, hætti
á að skrifa litla gi-ein um efnið og
fékk holskeflu yfir sig. Og er hann
svaraði, þá gat hann þess að
„kirkjan þegði“. Er ekki þögn
sama og samþykki eða uppgjöf
fyrir óstandinu meðal okkar?
Unga manninum, er ég tilfærði
sem dæmi, vil ég ekkert illt. Þvert
á móti. Og systur hans virði ég og
dái, eins og allir Islendingar, fyrir
hennar ljúfu sönglist.
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri.
Hermann
Þorsteinsson