Morgunblaðið - 10.11.1999, Síða 25

Morgunblaðið - 10.11.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 25 VIÐSKIPTI Frá undirritun samnings fulltrúa Félagsstofnunar stúdenta, Samvinnu- ferða-Landsýnar og Stúdentaráðs Háskóla Islands. Samvinnuferdir-Landsýn taka við rekstri Ferðaskrifstofu stúdenta Markmiðið að auka enn við þjónustuna Hagnaður Wal-Mart eykst mikið BANDARÍSKA verslanakeðjan Wal-Mart skilaði 1,3 milljarða doll- ara hagnaði á þriðja ársfjórðungi þessa árs eða um 93 milljörðum ís- lenskra króna. Af sama tímabili í fyi-ra var 1,01 milljarða dollara hagnaður. Þessi afkoma er nokkuð betri en sérfræðingar á fjármálamarkaði gerðu ráð fyrir og að sögn David Glass, forstjóri Wal-Mart, má fyrst og fremst rekja hana til bættrar framlegðar, hagstæðra efnahags- skilyrða og kaupa Wal-Mart á bresku verslanakeðjunni Asda. Sala fyrirtækisins á þriðja árs- fjórðungi jókst um 21%, úr 33,5 mil- ljörðum dollara í 40,4 milljarða doll- ara eða tæpa 2.900 milljarða íslenskra ki'óna. Hagnaður Wal-Mart fyrstu níu mánuði fjárhagsársins, þ.e. frá byrjun febrúar til loka október, jókst um 27% og fór í 3,66 milljarða dollara, eða um 262 milljarða ís- lenskra króna, en var 2,87 milljarð- ar dollara fyiir sama tímabil í fyrra. AXEL-hugbún- aður í Færeyjum LOKIÐ er uppsetningu á AX- EL-upplýsingakerfi fyrir nem- endur, kennara og skólastjórn- endur í Studentaskuli í Þórshöfn í Færeyjum, en AXEL er í notk- un í nær öllum framhaldsskólum og nokkrum grannskólum á Isl- andi og í skólum í Svíþjóð. Studentaskuli er stærsti menntaskóli í Færeyjum með um 500 nemendur. í AXEL eru skráðar í sama gagnagrann allar upplýsingar um nemendur, kennara, stofur og kennslutæki og era þær upplýsingar sem skráðar eru aðgengOegar öllum notendum. I tilkynningu frá AX- EL hugbúnaði kemur fram að stundatöflugerð sé sérgrein AX- EL, og jafnvel í skóla með miklu vali, þar sem nemendur geta val- ið sér námsgreinar, geri AXEL stundatöflu án þess að námskeið rekist á. Auk þess verði skóla- dagur nemendanna samfelldari, stofur standi ekki ónotaðar og tími kennara nýtist betur. Reynslan sýni að þetta dragi úr rekstrarkostnaði og minnki einnig stofnkostnað. Þá hefur menntamálaráðu- neytið í Færeyjum samið við AX- EL hugbúnað um tölvukerfi til að undirbúa og skipuleggja sam- ræmd próf sem haldin eru fyrir nemendur í öllum framhalds- skólum á eyjunum. Upplýsing- um frá skólunum og upplýsing- um um prófdómara er safnað saman í miðlægan gagnagrann í ráðuneytinu. Út frá þessum upp- lýsingum gerir AXEL próftöfi- una fyrir samræmdu prófin. Samræmdu prófin eru haldin á sama tíma og önnur próf í skól- unum. Eftir að hafa gert próf- töflu fyrir samræmdu prófin ger- ir AXEL líka próftöflu fyrir viðkomandi skóla þannig að eng- ir árekstrar verða milli sam- ræmdu prófanna og annarra prófa í skólunum. SAMVINNUFERÐIR-Landsýn munu taka við rekstri Ferðaskrif- stofu stúdenta af Félagsstofnun stúdenta frá og með 15. nóvember nk. Samhliða samningi um yfir- töku á rekstri munu Félagsstofn- un stúdenta, Samvinnuferðir Landsýn og Stúdentaráð Háskóla Islands gera samstarfssamning um ferðir fyrir stúdenta. Félagsstofnun stúdenta hóf rekstur á Ferðaskrifstofu stúd- enta árið 1980 og verður hún því 20 ára á næsta ári. Meginmarkmið með rekstri Ferðaskrifstofunnar hefur frá upphafi verið að gera námsmönnum og öðru ungu fólki kleift að ferðast með eins hag- kvæmum hætti og unnt er. I fréttatilkynningu kemur fram að Samvinnuferðir-Landsýn muni leggja áherslu á að halda þessu markmiði á lofti og auka enn við þjónustuna. Kappkostað verður að bjóða stúdentum sem besta og hagkvæmasta þjónustu og auka framboð á ódýrum ferðum fyrir markhóp Ferðaskrifstofu stúd- enta. Lögð verður áhersla á að bjóða ungu fólki ódýrari fargjöld og hagstæðari tilboð en tíðkast hefur og verða allt að 5.300 sæti á sérkjörum í boði árið 2000 fyrir stúdenta við Háskóla Islands. Með um 31% af markaðshlutdeild Samvinnuferðir-Landsýn eru nú með um 31% markaðshlutdeild af ferðalögum og var aukning veltu á fyrstu 6 mánuðum ársins 10% frá sama tíma í fyrra. Starfs- menn Samvinnuferða-Landsýnar eru um 100 talsins en á Ferða- skrifstofu stúdenta starfa 10 manns. Morgunblaöið/Ásdís Mælaborð stiórnandans Fjölmennt var á ráðstefnunni Mælaborð stjórnandans - Vöruhús gagna, sem Skýrslutæknifélag ís- lands stóð fyrir í gær en hana sóttu alls um 190 inanns. Fjallað var um grunnhugmynd- ir um vöruhús gagna (Data War- ehouse), sagðar reynslusögur ís- lenskra og erlendra fyrirtækja og búnaður og lausnir kynntar í 16 fyrirlestrum alls. Jafnhliða héldu nokkur fyrirtæki sýningu á tækj- um og búnaði sem tengjast vöru- húsi gagna. Uppkaup ríkisverðbréfa með tilb o ð sfyrirkomulagi n. nóvember 1999 Verðtiyggð spariskírteini Lánasýsla ríkisins óskar eftir að kaupa óverðtryggð ríkisbréf í framangreindum flokki með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt að gera sölutilboð að því tilskildu að lágmarks- fjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 10 milljónir króna að söluverði. Heildarfjárhæð útboðsins er áætluð á bilinu 3oo - 1.000 milljónirkrónaað söluvirði. Sölutilboð þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14:00 í dag, fimmtudaginn n. nóvember. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu rikisins, Hverfisgötu 6, ísíma 563 4070. LÁNASÝSLA RÍKISINS Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068 Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.