Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SIGURÐUR THORLACIUS RÖGNVALDSSON + Sigurður Thor- lacius Rögnvalds- son jarðeðlisfræðingur fæddist í Reykjavík 11. janúar 1964. Hann lést af slysförum 25. oktö- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalínskirkju í Garða- bæ 1. nóvember. Þriðjudagurinn 26. október byrjaði hjá mér eins og hver annar dag- ur, ég var að skríða á fætur og undirbúa böm- in mín í skólann þegar Finnbogi hringdi og færði mér þær hræði- legu fréttir að Sigurður bróðir hans hefði dáið í bílslysi kvöldið áður. Allt í einu var þetta ekki neinn venjulegur dagur og þung vom sporin í fjósinu þennan morgun. Minningamar um æskuvin og skólabróður hlóðust upp og gerðu mér erfitt fyrir að einbeita mér að því sem ég var að gera. Sigurður, eða Siggi á Staðastað, eins og hann var alltaf kallaður hér í Staðarsveit fluttist að Staðastað með fjölskyldu sinni árið 1973 og þá þegar tengdust fjölskyldumar á Ólkeldu og Staðastað sterkum vina- böndum, ekki síst við Signý systir og krakkamir á Staðastað. Ég og Siggi urðum strax miklir vinir og sú vinátta var traust, ekki þannig að við héngjum saman alla daga heldur vissum við hvor af öðr- um og gátum alltaf treyst hvor á annan. Við höfðum mörg sameiginleg áhuga- mál, vomm báðir fót- boltasjúkir og þau vora ófá skiptin sem við reistum mark á túninu á Staðastað og lékum listir okkar með boltann ásamt hinum krökkunum á bæjunum. Þegar við komumst á unglings- árin fómm við að keppa með liði Stað- arsveitar í fótbolta og þá var Siggi betri en enginn. Hann lagði sig allan í lpikinn enda keppn- ismaður mikill. Ég minnist þess að í þau fáu skipti sem ég sá Sigga skipta skapi var í fótboltaleik þegar leikurinn þróaðist ekki eins og við hefðum kosið. I fótboltanum vomm við eins og alltaf, góðir saman, viss- um alltaf hvar hinn var og unnum saman af einhug. Ég sé Sigga líka fyrir mér í heyskapnum, standandi við blásar- ann og skófla heyinu í hlöðu, enda var Siggi hraustur mjög og hafði yndi af því að reyna á skrokkinn miklu frekar en að keyra traktor- ana eða vinna önnur þau verk sem ekki kröfðust líkamlegs atgervis. Eitt sem ég mun alltaf minnast þegar ég hugsa um Sigga er að á þessum áram töluðum við oft um og það í fúlustu alvöru að ganga í fóst- bræðralag að hætti fommanna sem t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HANS KARL TÓMASSON vélstjóri, Hraunbæ 86, Reykjavík, áður til heimilis að Grenivöllum 30, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Jastrid Ó. Pétursdóttir, Pétur V. Hansson, Sigurlína Valgeirsdóttir, Tómas R. Hansson, Steinunn Sigurbjörnsdóttir og barnabörn. t Elskulegur unnusti minn, faðir, sonur, bróðir, tengdasonur, mágur og frændi, ANTON BJÖRN FERNANDO, er látinn. Jarðað verður frá Fella- og Hólakirkju föstu- daginn 12. nóvember kl. 15.00. Tanja Aðalheiður Larsen, Alexía Rós Fernando, Pálína Kristjánsdóttir, Edvin Már Fernando, Þóra Haraldsdóttir, Kaj Anton Larsen, Lilja C. Larsen, Finnur H. Larsen, Anna K. Larsen, Finnur Harðarson, Kristján Harðarson, ívar Örn Harðarson. Sigurður I. Einarsson, Anna M. Björnsdóttir, Valgeir Sveinsson, Eva Sigurðardóttir, Lilja V. Bryngeirsdóttir, t Hjartans þakkir til allra, er sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eigin- konu minnar, móður og ömmu, ELÍSABETAR KRISTINSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Andrés Gestsson, Birgir Andrésson, Arnaldur Freyr Birgisson. fólst í því að leggjast naktir undir torfu og láta sér blæða saman. Það eina sem kom í veg fyrir að við lét- um af þessu verða var hræðsla okk- ar beggja við hnífa. Ur þessu varð þó aldrei og verður ekki héðan af. Eftir að við hættum í gmnnskóla og völdum okkur gjörólík ævistörf, Siggi við jarðvísindi en ég við bú- skap, hittumst við eðlilega miklu sjaldnar, kannski einu sinni til tvisvar á ári. En þegar við hittumst var alltaf eins og tíminn hefði staðið kyrr, sami húmorinn, gerðum grín hvor að öðram og lífinu almennt. Við rifj- uðum gjarnan upp gamla fótboltaT leiki, enda voram við alltaf sann- færðir um að við hefðum engu gleymt í boltanum og væram jafn- veþennþá vaxandi leikmenn! Ég gæti lengi skrifað og rifjað upp minningar um Sigga á Staða- stað sem svo snögglega var kippt út úr okkar veraldlega lífi. Við spyij- um til hvers en fáum engin svör. Með þessum fátæklegu orðum vil ég og fjölskylda mín, systkini mín og þeirra fjölskyldur senda Nönnu og börnunum, móður, systkinum og aðstandendum öllum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi góður guð hugga ykkur og styrkja. Minning Sigga lifir. Kristján Þdrðarson, Ölkeldu. Margs er að gæta í landi hér og höfuðskepnumar til alls vísar með ýmsum hætti á sjó og landi. Leynt og ljóst leggja þær snörar fyrir mennina og stundum þegai- minnst varir dynur óhamingjan yfir. Harmafregn um slys berst ástvin- um og vinum. Margir hafa minnst Sigurðar Thorlacius Rögnvaldssonar á óvæntri sorgarstundu, verðleika hans og verka. Hann hafði ávaxtað sitt pund, góðar gáfur sínar, og ung- ur að áram var hann kominn í röð sérfræðinga í vísindum sínum, jarð- skjálftafræðunum. Nánasta sam- starfsfólk hans á Veðurstofu Is- lands og víðar mun njóta þess sem Sigurður hafði komið í verk. I minn- ingu hans mun það halda ótrautt áfram þegar birtir upp. Sigurður var hvers manns hug- ljúfi á vinnustað sínum, Veðurstofu Islands, enda maður hógvær og dagfarsprúður. Utan ánægjulegra samtala í matsal í kaffi- og matar- hléum áttum við samskipti öðra hverju um ýmis málefni. Minnist ég þess er við unnum samtímis ekki alls fyrir löngu að sitt hvorri um- sókn til rannsóknasjóðs Evrópu- bandalagsins og skiptumst á upp- lýsingum. Frágangur slíkra umsókna er talsvert bauk og svara þarf skilmerkilega ýmsum almenn- um spumingum um ytri skilyrði. Nýlega áttum við Sigurður ánægju- legt samstarf í tengslum við ráð- stefnu á vegum Eðlisfræðifélagsins um eðlisfræði á Islandi sem haldin var í haust. Fyrri dag ráðstefnunn- ar flutti hann athyglisvert erindi um jarðskjálfta úti íyrir Norðurlandi. Sigurður vann skjótt og vel að hagnýtum verkefnum sem fyrir lágu og hafði ekki fleiri orð um en þurfti. Fjögurra kynslóða kynni með fjölskyldum okkar Sigurðar varð einhvern veginn til þess að ég þótt- ist eiga meiri hlutdeild í honum en ella, svo sem þeim bræðram hans Omólfi og Olafi, sem einnig hafa komið við sögu á Veðurstofunni, og syrgja nú bróður sinn. Skulu þau góðu kynni ekki rakin hér frekar, en innileg samúð vottuð eiginkonu Sig- urðar, Nönnu Lind Svavarsdóttur, og ungum börnum þeirra, móður Sigurðar, Kristínu Thorlaeius, og ömmu, frú Aslaugu Thorlacius, fjöl- skyldum þeirra og ættmennum öll- um. Blessuð sé minning Sigurðar Thorlacius Rögnvaldssonar. Þór Jakobsson. KRISTIN SIGRIÐUR VILHELMSDÓTTIR + Kristín Sigríður Vilhelmsdóttir fæddist í Reykjavík 8. maí 1949. Hún lést á Landspítalan- um 23. október síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskapellu 2. nóvember. Látin er vinkona okkar Kristín Vil- helmsdóttir. Kristín var við leikstörf í dag- vist Iðjubergs í tæp fjögur ár. Hún var hlýleg og elskuleg kona sem öllum þótti vænt um. Lengst af tók hún þátt í starfi hér full af áhuga og gleði, en varð frá að hverfa vegna veikinda sinna. Samferðafólk Kristínar man eftir henni síhlæjandi og syngjandi og þannig viljum við í Iðjubergi muna eftir henni. Með þessum örfáu orðum kveðjum við vinkonu okkar og þökkum fyrir samveruna. Margseraðminnast, margter héraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margserað sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hvíl í friði. Samstarfsfólk og vinir Iðjubergi. KRISTIN STURL UDOTTIR + Kristín Sturlu- dóttir fæddist 6. október 1928 á Fljótshólum í Gaul- veijabæjarhreppi. Hún lést 2. oktpber síðastliðinn. títför Kristínar fór fram föstudaginn 8. októ- ber Með örfáum orðum langar okkur, vinkon- ur þínar, að minnast áranna sem við höfum átt samleið. Við kynntumst í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur 1951 og höfum haldið hópinn síðan. Fljót- lega gerðum við okkur grein fyrir mannkostum þínum og allir sáu nema þú sjálf. Þú varst hógvær og fannst einlægt þín verk minna virði en annarra. Það er ekki ætlunin að telja upp alla þína kosti en tónl- istin var svo afgerandi þáttur af þínum hæfi- leikum áð þeim gleym- um við ekki, þú áttir kyn til þess og ólst upp við söng og söngmennt enda varstu í kórum meðan heilsan entist. Heimilið og afkom- endur þínir vora þó það sem þú lagðir sál þína í, hin djúpu gildi sem skila menninga- rarfi feðra okkar áfram til næstu kyns- lóða. Umhyggjan og öryggið lyrir ungan gróður, verkin sem þróunin er að þurrka út og deyr með okkar kynslóð. Það tekur tíma að aðlagast þeirri hugsun að þú sért ekki lengur í hópnum en óneitanlega minna at- vikin stöðugt á staðreyndirnar, eins og bókastaflinn með gleraugunum þínum sem bíða eftir að verða notuð en ... ekki meir. Kæri Gunnar, við vottum þér og fjölskyldu þinni djúpa samúð og biðjum Guð að gefa ykkur styrk á þessum erfiðasta tíma ársins þegar morgunn og kvöld mætast í myrkri. Vinkonurnar í klúbbnum. + Ástkær eiginmaður minn, OLAFUR (OLI) EYJOLFSON rafmagnsverkfræðingur frá University of British Columbia, f. 18. febrúar 1927 í Prince Rubert, British Columbia, lést þann 5. október 1999 á The Royal Colum- bian Hospital í New Westminster, British Columbia, þriðjudaginn 5. október 1999. Jarðarförin hefur farið fram. Anne Eyjolfson. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsa- mlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritv- innslukerfin Word og Wor- dPerfect einnig nokkuð auð- veld úrvinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.