Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 37
LISTIR
Laun
vænting-
anna
MYNDLIST
G a 11 e r í i 8, I n g ó I f s -
slræti 8
BLÖNDUÐ TÆKNI
MAGNÚS PÁLSSON
Til 5. desember. Opið fimmtudaga
til sunnudaga frá kl. 14-18. Að-
gangur ókeypis.
SJALDAN hefur Magnúsi Páls-
syni tekist betur upp ef þetta er þá
ekki hans meistaraverk til þessa.
Salurinn í i8 er svo til tómur nema
hvað meðfram endilöngum veggn-
um hægra megin er hilla með
stensluðum smástólum úr blikki
liggjandi á tvist og bast eins og
hráviði. Á ferhyrndum stöpli
vinstra megin er meira af litlu
blikkstólunum. Sumir hafa kraimst
undir fallinni rauðvínsflösku. Ur
henni hefur dumbrauður vökvinn
spillst um pappírsörkina og þomað
á stöplinum.
Á veggnum andspænis dyrunum
rennur myndband af sal með sams
konar stólum og þeim sem liggja
stenslaðir á hillunni. Listamaður-
inn gengur inn á svið lotlegur og
hikandi og sest hokinn á einn stól-
inn. Hann horfir fram fyrir sig eins
og móðir Whistlers í Louvre-safn-
inu og byrjar svo að tala. Orðræðan
er í nokkrum köflum með dágóðum
þögnum inni á milli.
Gamall maður lítur yfir farinn
veg og lýsir þröngum kosti; hinum
dæmigerðu kjöram fyrri tíðar, þeg-
ar allt var naumt skammtað og öll-
um frávikum frá reglum samfélags-
ins jafnfálega tekið. Stundum er
eins og minninu um niðursetning-
inn á fletinu í baðstofunni - sem
finnst hann fái ekki í askinn sinn
það sem honum ber - sé blandað
saman við hitt minnið - um neðan-
málsmanninn á dvalarheimilinu,
sem á í sífelldum erjum við starfs-
fólkið; einkum ráðskonuna eða
matseljuna - eða eiginmanninn,
sem uppsker ekki annað en ónot og
hneykslun frá eiginkonunni þegar
slær út í fyrir honum.
Og þó gerir hann sér grein fyrir
sögulegum sess sínum sem hluta
þeirrar eitilhörðu umbyltingar-
kynslóðar sem ýtti tæknivæddum
nútímanum úr vör og glæddi vonir
landa sinna um betra mannlíf og
notalegri heim. En orðræða hans er
einræða sem enginn nennir lengur
að ljá eyra frekar en örvasa rugli
kalkaðs manns hversu mjög sem
ákefð hans eykst og rómurinn
hækkar. Væntingarnar sem við
bindum við tæknilegar framfarir
skila sér seint í formi aukinnar
nærgætni eða virkari athygli.
Verk Magnúsar snýst einmitt um
fáfengileik tæknivæntinganna. I
staðinn fyrir að refurinn afgreiði
vínberin sem súr af því hann nær
ekki til þeirra, kemst hann að raun
um að þau eru gallsúr þegar tæknin
hefur gert honum kleift að ná þeim.
Marshall McLuhan og aðrir fram-
tíðarfræðingar sem eftir honum
komu hafa ekki getað haldið vatni
yfir þeirri útópísku sýn sem þeir
eygja í upplýsingabyltingunni.
Hugmyndin um hnattþorpið - the
Global Village - hefur vissulega
ræst, en án þeirra bóta í mannleg-
um samskiptum sem áttu að fylgja í
kaupbæti með forritapakkanum.
Við erum ekkert nær því marki að
yfírstíga fangelsismúra einkalífsins
og einmanaleikans. Tölvan, farsím-
inn og gervihnattasjónvarpið hafa
öðru nær gert okkur kleift að slíta
naflastrenginn endanlega við sam-
félagsheildina. Með þessum nýju
vopnum þurfum við ekki lengur að
hittast í bankanum. Og brátt heyra
Alltaf rífandi sala!
Ránargata 6,6a og 8.
Höfum verið beðnir
um að afla tilboða í
þessi fallegu steinhús
í hjarta Reykjavíkur.
Um er að ræða þrjú samliggjandi hús með inng. á milli húsa.
Hægt að loka á milli og selja sem þrjár einingar. Fráb.
möguleikar fyrir iðnaðarmenn eða bara dugmikið fólk. Hægt
er að ná nokkrum íbúðum út úr eignini, góðu sérbýli eða
bara hótel eða gistiheimili. Húsin þarfnast endurbóta og má
segja að þau séu nánast tilb. til innréttinga. Teikningar á
skrifstofu. Húsin er laus nú þegar. Lyklar á Hóli.
Sýning Magnúsar er einhver sú magnaðasta, sem hér hefur sést á árinu segir m.a. í umfjöllun um sýningu
Magnúsar Pálssonar í Galleríi8, Ingólfsstræti 8.
óvæntir samfundir í jólainnkaupun-
um til fortíðinni. Við munum geta
keypt allar gjafir á vefnum án þess
að yfirgefa nokkurn tíma kjallara-
holuna.
Vínflaskan sem kremur stólana
undir sér og veldur flóði með fjólu-
litum vökva sínum er aðeins ein af
birtingarmyndum Babelturnsins;
sem er ein margra birtingai-mynda
syndaflóðsins. Vínandinn sem goð-
sagan segir að liðki um málbeinið
skekkir í raun öll vitræn boðskipti.
Fyllirísrausið sem liðast upp af
krám landsmanna um helgar er
ámóta skiljanlegt og bablið, tungu-
tak Babýlóna, eftir að turninn
þeiri’a fór að rísa. Þannig er úti-
lokað að þeir skiptist á haldbærum
skoðunum þá sjaldan þeim tekst að
rífa sig frá tölvu- og/eða sjónvar-
psskerminum og slaka á hver í náv-
ist annars.
En fátækleg orð duga skammt til
að lýsa sýningu sem er einhver sú
magnaðasta sem hér hefur sést á
árinu. Ef eitthvað má gagnrýna eru
það síst myndgæði myndbandsins
eða skurður hurðarinnar sem felld
er inn í endavegg salarins. Það er
miklu fremur hljóðið úr slæmum
hátalararæflinum, sem gerir -,
Magnús Pálsson þvoglumæltan svo
erfitt er að fylgja eftir margslung-
inni orðræðunni. Betri hljómgæði
mundu bjarga textaflutningnum og
sjálfsagt skerpa á klippitækninni
sem listamaðurinn hefur tamið sér í
skrifum sínum fyrir leikhús. Mark-
sæknari tvinnun myndlistar og
leikhúss minnist ég ekki að hafa séð
á mínum langa áhorfandaferli.
Halldór Björn Runólfsson
*
LANGAR ÞIG AÐ
NALGAST
VERKEFNIN FRÁ
NÝRRI HLIÐ?
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
29.086 kr. ó mánuði
Fjármögnunarleiga
Utborgun 270.000 kr.
16.582 kr. á mánuði
Rekstrarleiga er miSuS viS 24 mánuSi og 20.000 km akstur á ári. FjármögnunaHeiga er mÍSuS viS 60 mánuBi
og 25% útborgun, greiSslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiSslur en viSkomandi f«r hann endurgreiddan
ef hann er meS skattskyldan rekstur. Allt verS er án vsk.
ATVINNUBÍLAR
FyRI RT/CKJ AÞJÓNUSTA
Grjótháls 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225/575 1226
RENAULT
'T.
f