Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 64
Drögum næst 10. nóv. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings SRttgtuiIiIfifeifr Heimavörn Sími: 580 7000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Flugleiða- þotur í nýj- - um litum Sýknað í einu máli af 48 HAFDÍS, ein af B 757-200-þotum Flugleiða, er sú fyrsta sem máluð er í nýjum litum. Baldur Oddsson flugstjóri tók hring yfír Reykja- vík og renndi Hafdisi í lágflugi yfir Reykjavikurflugvöll áður en lent var í Keflavík. Þotan var að koma frá Eindhoven í Hollandi þar sem hún var máluð. Ný ímynd Flugleiða var kynnt í gær og tekur fyrirtækið nú upp nýja liti, nýja einkennisbúninga, nýtt útlit innréttinga, farmiða og nýja matseðla, svo nokkuð sé nefnt. ■ Lokaskref/16 EFNAHAGSBROTADEILD ríkis- lögreglustjórans gaf út 76 ákærur vegna efnahagsbrota á síðasta ári og gengu dómar í héraðsdómi í 48 af þeim málum sem ákært var í á árinu. Var aðeins sýknað í einu máli og námu dæmdar sektir í málunum rúm- um 52 milljónum króna, að því er fram kemur í fyrstu ársskýrslu ríkislög- reglustjórans, Haraldar Johannessen. Akærur sem efnahagsbrotadeildin gaf út voru aðallega vegna skattalaga- og bókhaldsbrota og fýrir skjalafals. Tilkynningum sem efnahagsbrota- deildinni bárust um peningaþvætti fjölgaði milli áranna 1997 og 1998 úr 11 í 25 en engin þeirra leiddi til ákæru þótt nokkrar hefðu engu að síður varðað mál sem þegar voru til rann- sóknar hjá deildinni. Ríkislögreglustjóri telur í árs- skýrslunni að hugleiða megi hvort ekki sé skynsamlegt að sameina lög- reglulið landsins og fækka lögreglu- umdæmum. Megi leiða að því rök að slíkar skipulagsbreytingar og aðskiln- aður sýslumannsstarfa og lögreglu- stjórastarfa hafi í fór með sér öflugri, skilvirkari og kostnaðarminni starf- semi en nú þekkist. ■ Talið skynsamlegt/33 Morgunblaðið/Baldur Sveinsson Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Thor, áður varðskipið Þór, fært til hafnar á ísafírði í gær. Gömlu varðskipi vísað til hafnar VARÐSKIPIÐ Ægir vísaði í gær Thor frá Húsavík til hafnar á Isafirði. Thor er gamalt varðskip og hét þá Þór. Haffærnisskír- teini þess rann út fyrir tveimur árum. Eigandinn fékk í gær- kvöldi undanþágu til að halda siglingunni áfram í fylgd annars skips. Sjóferðir Arnars á Húsavík eiga Thor, sem áður var slysa- varnaskipið Sæbjörg og þar áður varðskipið Þór. Skipið var notað sem veitingastaður í sumar og þar er vísir að safni um sögu skipsins og landhelgisgæslu við Island. Sigla átti skipinu til Hafnarfjarðar í gær vegna þess að ekki fékkst leyfí til að hafa það lengur í Húsavíkurhöfn, að sögn Arnars Sigurðssonar, eig- anda skipsins. Varðskipið Ægir vísaði því til hafnar á Isafirði vegna þess að haffærnisskírteini þess hafði runnið út fyrir tveim- ur árum og ekki hafði verið fengin undanþága Siglingastofn- unar til ferðarinnar. Arnar vildi ekkert um það segja af hverju lagt hefði verið af stað án nauð- synlegra heiinilda. Utgerðin fékk í gærkvöldi svo- kallað leiðabréf Siglingastofnun- ar, það er að segja undanþágu til að sigla ákveðna leið í fylgd ann- ars skips. Arnar sagði að beðið væri eftir skipi til að fylgja Thor til Hafnarfjarðar. Þar verður aft- ur hafínn rekstur veitingastaðar og safns um borð í skipinu. % Sjómaðurinn sem fell útbyrðis segir sársaukann hafa verið ólýsanlegan „Skil ekki hvernig ég hélt lífí“ Morgunblaðið/RAX Mareos Antonio fer í þriggja mánaða endurhæfingu að lokinni dvölinni á Landspítalanum, þar sem hann segir að vel haf! verið hugsað um sig. „ÞEGAR mér skaut upp á yfirborðið sá ég strax skipið. Eg öskraði af öll- um kröftum: Ég er héma, ég er héma. Jafnframt hugsaði ég í sífellu: Þeir sjá mig ekki,“ segir spænski sjó- maðurinn Marcos Antonio Crespo Olveira, sem þyrla Landhelgisgæsl- unnar sótti um borð í togara um 290 mílur suður af íslandi á sunnudag. Marcos Antonio liggur nú á bæklun- ardeild Landspítalans en báðir fætur hans brotnuðu er hann féll fyrir borð snemma á sunnudag þegar skip hans, lítill togari skráður í Belize, var um 340 mflur suður af landinu. Spænski sjómaðurinn kveðst ákaflega þakklátur björgunarmönn- um sínum og starfsfólki Landspítal- ans en þar bíður hans nú viku dvöl og síðan þriggja mánaða endurhæf- ing á Spáni. Marcos Antonio er 24 ára gamall, verður raunar 25 í desember. Hann er frá A Coruna í Galisíu á norðvest> urströnd Spánar. Marcos Antonio, sem gengur undir gælunafninu „Crespín", býr með foreldrum sínum en bróðir hans er einnig sjómaður og er þessa dagana í Namibíu. „Ég tal- aði við fjölskyldu mína í morgun. Hún var vitanlega mjög áhyggjufull en það var gott að geta sagt henni að ég væri hér í öruggum höndum.“ Marcos Antonio hefur verið á sjónum í tæpt ár. Túmum, sem var ráðgerður um 80 dagar, átti að ljúka í desember. „Við vorum þrír að vinna aftur á dekkinu þegar ég flæktist í vímum. Skipti engum togum að hann vafðist um fótinn á mér og ég þeyttist fyrir borð. Við þetta brotnaði ég á báðum fótum. Ég fór á kaf og gat aðeins beitt höndunum. Strákamir öskruðu strax að maður væri fyrir borð og að bakka bæri skipinu. Það var kveikt á Ijósi sem lýsti upp hafflötinn en ölduhæðin var veraleg og þeir sáu mig ekki. Ég hugsaði í sífellu: Þeir sjá mig ekki, þeir sjá mig ekki. Ég öskraði af öllum kröftum: Ég er héma, ég er héma. Ég hélt að ég myndi deyja og að hinsta stundin væri runnin upp. Ég man ég hugsaði að nú gæti ég ekki meira og að lífi mínu væri lokið. Kuldinn var mikill og ég skil ekki hvernig það gat gerst að ég hélt lífi.“ Marcos Antonio vai- í sjóstakk og stígvélum þegar óhappið varð. Hann gat því aðeins beitt handleggjunum til að halda sér á floti í 2-3 stiga heit- um sjónum, brotinn á báðum fótum. Þannig hélt hann sér á floti í tíu til fimmtán mínútur þar til félagar hans komu loks auga á hann og gátu kom- ið honum um borð. „Félagar mínar æptu Crespín, Crespín og hann andar, hann andar, þegar ég komst loks um borð. Þeir urðu að skera utan af mér fötin og stígvélin. Sársaukinn var ólýsanleg- ur en ég fékk töílur og deyfíngu um borð.“ Beiðni um aðstoð barst Landhelg- isgæslunni kl. rúmlega sjö á sunnu- dagsmorgun. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar, TF-LÍF, hélt í loftið kl. 11.21 og við tók eitt lengsta sjúkraflug í sögu Gæslunnar, en komið var með Marcos Antonio til Reykjavíkur kl. 17.08 síðdegis á sunnudag. „Mér leið miklu betur eftir að þyrlan var komin og búið var að hífa mig um borð. Einn í áhöfninni talaði spænsku. Áður en þyrlan kom var ég alveg að gefast upp og hugsaði: Nú get ég ekki meir. Sársaukinn var svo mikill. Ég ætlaði ekki að trúa þvi þegar mér var sagt að ég hefði verið um fimmtán mínútur í sjónum." Marcos Antonio gekkst undir viðamikla aðgerð á Landspítalanum, en hann brotnaði illa. Hann mun þurfa að dveljast hér á landi í viku til viðbótar en hans bíður síðan þriggja mánaða endurhæfing í Galisíu. „Ég er óskaplega heppinn að vera á lífi og þótt ég finni enn til líður mér bara sæmilega. Hér hafa allir verið mér svo góðir,“ segir Marcos Anton- io og biður fyrir kveðjur og þakkir til áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar og starfsfólksins á Landspítalanum. Fékk gæs í hjóla- búnaðinn MEÐALSTÓR fai'þegaflugvél varð fyrir því óhappi í gærkvöldi að gæs lenti í hjólabúnaði hennar við lend- ingu á Reykjavíkurflugvelli. Engar skemmdir urðu á vélinni og vora far- þegar ekki í hættu. Fengust þær upplýsingar hjá Flug- stjórn Reykjavflcurflugvallar að svona atvik ættu sér stundum stað. Fjöldi gæsa við Reykjavíkurflugvöll hefur verið viðvarandi vandamál því gæsirnar sækja í afgirt flugvallar- svæðið sem griðland. Flugstjórn segir þó að yfirleitt tak- ist að forða árekstrum við gæsirnar. Erfiðai-a er hins vegar um vik þegar dimmt er orðið og fyrir kemur að enginn verður var við slíka árekstra fyrr en vélin er lent. ---------------- > Ibúðarhús á Egilsstöðum skemmt eftir eldsvoða TÖLUVERÐAR skemmdir urðu á parhúsi við Einbúablá á Egilsstöðum þegar kviknaði í því um hálfníuleytið í gærkvöld. Ibúar hússins voru heima þegar eldurinn kom upp og höfðu þeir sam- band við slökkviliðið sem réð niður- lögum eldsins. Enginn slasaðist en húsið er mikið skemmt að innan. Eldsupptök era ókunn og rannsakar lögreglan á Egilsstöðum málið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.