Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 31 Sinfóníuhljómsvcit Islands Sibelius á vinsældalistann! TONLIST Geislaplötur JEAN SIBELIUS Jean Sibelius - hljómsveitarverk: Finlandia op. 26. Karelia, svita op. 11. Lemminkainen, svíta op. 22_. Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Is- lands. Einleikur: Daði Kolbeinsson (englahorn), Richard Talkowsky (selló). Hljómsveitarsljóri: Petri Sakari. Útgáfa: Naxos 8.554265. Lengd: 72’50. Verð 690 kr. (Japis). HLJÓÐRITANIR á þessum vin- sælustu verkum Sibelusar skipta hundruðum á alþjóðlegum markaði og Finlandia er talið eitt þeirra verka tónlistarsögunnar sem oftast hefur verið hljóðritað. Þess vegna þykir ýmsum ábyggilega lítil ástæða til þess að bæta nýrri útgáfu við þær sem fyrir eru. Hljómsveit- arstjórarnir Karajan, Ashkenazy, Jarvi, Vánská, Mravinsky, Toscan- ini, Previn, Bernstein og Ormandy, svo fáir einir séu taldir, hafa allir hljóðritað þessi verk einhvern tíma á ferli sínum og allir hafa þeir sett mark sitt á túlkunarmáta á þessum stríðsfákum tónlistarinnar. En á þá Sinfóníuhljómsveit Is- lands og Petri Sakari nokkurt er- indi í þennan fríða hóp glæstustu hljómsveita heims og stórstima meðal hljómsveitarstjóra sem geta leikið sér að því að framkalla ofvax- inn, sírópshjúpaðan ofurhljóm? Það finnst þeim sem þetta skrifar. Hik- laust! Og verður nú tíundað hvers vegna. Styrkur okkar manna er sem fýrr mikil spilagleði og ákafi - það eitt er ákaflega mikils virði. Og sannfær- andi túlkun Sakaris. Flutningurinn er ávallt markviss, endirinn er í augsýn frá íyrstu nótu og öll fram- vinda rökrétt. Hér ráða engar til- viljanir eða hugdettur. Sakari kýs jafnan nokkuð líflegt tempó í hröð- um köflum sem oft á tíðum skapar skemmtilegar andstæður. Finlandia er sannanlega ofspilað verk og ekki datt mér í hug að þar gæti eitthvað komið á óvart. En hjá Sakari er verkið ferskt og óneitan- lega mjög glæsilegt. Sérstaka at- hygli manns vekur stórbrotinn blás- arahljómur upphafsins, þéttur strengjahljómurinn og dramatísk túlkun Sakaris. Hlustið t.d. á 3’30 til 5’14 og finnið fyrir adrenalíninu. Sakari forðast allar uppblásnar (og allt of algengar) „Karajan-tilhneig- ingar“ í meginstefinu sem tréblás- arar kynna fyrst og strengirnir taka síðan við ( 5’15-6’57). Stórglæsileg- ur hljóðfærasláttur hjá SI. Karelíasvítan er eitt af glaðleg- ustu verkum Sibeliusar og undir- strikar Sakari þennan fremur óvenjulega léttleika tónskáldsins með líflegu hraðavali og þá einkum í upphafskaflanum Intermezzo. I millikaflanum, Ballade, rís leikur hljómsveitarinnar vafalaust hvað hæst. Þessi gullfallegi kafli er hér sérlega vel fluttur og hefur greini- lega verið undirbúin af mikilli natni jafnt af hljómsveitarstjóra sem hljómsveit. Að öðrum ólöstuðum hljóma strengimir hér hreint frá- bærlega. Lokakaflinn, Alla marcia, þekktasti hluti svítunnar, er sann- kallaður gleðibolti og örlar ekki einu sinni á „finnska þunglyndinu". Lemminkáinen - svítan er miklu stærra í sniðum en hin verkin tvö. Þekktasti hluti svítunnar, Svanur- inn í Tuonela, veldm- sannarlega ekki vonbrigðum. Sakari mótar tónlistina afar fallega og einleikur Daða Kolbeinssonai- á englahorn vandaður eins og við mátti búast. I þessum kafla og í Lemminkáinen í Tuonela leikur Richard Talkowsky einnig einleiksstrófur á selló og skilar hann sínu með miklum sóma. Aftan á umslagi er Talkowsky reyndar gerður nokkuð ættstór og nefndur í höfuðið á Tchaikovsky, hvorki meira né minna. Einnig er rangt farið með nafn Daða Kol- beinssonar. Það verður að segja að svona mistök eru heldur hallærisleg og hljóta vægast sagt að verka afar illa á hlutaðeigandi listamenn. Von- andi sér útgáfan sóma sinn í því að leiðrétta mistökin og prenta nýja bakhlið á diskinn. Upptakan er í góðu jafnvægi og hefur góða fyllingu og er hljóð- myndin öll hin eðlilegasta - enda þungavigtarmenn frá RÚV þar á ferð. Heils hugar má mæla með þess- ari nýju plötu SI bæði fyrir þá sem þekkja þessi verk og þá sem enn eiga eftir að kynnast Sibeliusi og vilja eignast þekktustu hljómsveit- arverk hans á einum diski. Ekki spillir verðið fyrir. Tæpar 73 mínút- ur af fallegri tónlist í flutningi Sin- fóníuhljómsveitar Islands - hljóm- sveitarinnar okkar allra - fyrir litlar 690 krónur. Valdemar Pálsson Vetrar- ferðin á Súfístanum DAGSKRÁ helguð Ólafi Gunnarssyni rithöfundi og út- komu bókar hans Vetrarferð- in verður á Súfistanum, bóka- kaffi í verslun Máls og menningar, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20., Þar mun Ólafur lesa upp úr bókinni og Vésteinn Ólafsson prófessor spjalla við hann um verkið. Djasstón- leikar í Smáraskóla SKÓLAHLJÓMVEIT Kópa- vogs heldur árlega hausttón- leika sína í samkomusal Smáraskóla í Kópavogi í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Tón- leikamir eru nokkurskonar þematónleikar þar sem djass- tónlist af ýmsum toga verður í hávegum . höfð. Dixieland-, gospel-, blús- og swing-tónlist mun þá hljóma um salinn, gömul tónlist og ný, fjörug lög og róleg. AIls munu um 120 böm og unglingar koma fram á tón- leikunum í þremur hljómsveit- um auk þess sem brasskvintett sveitarinnar fær að spreyta sig. Aðgangur er ókeypis. Stjómandi skólahljómsveit- arinnar er Össur Geirsson. SPAR SPORT NÓATÚN 17 Þjóðkvæði Letta og Lit- háa í Norræna húsinu í NORRÆNA húsinu stendur yfir dagskrá um finnska þjóðkvæða- bálkinn Kalevala. Yfirskrift dag- skrárinnar er Kalevala um veröld víða, en í ár em liðin 150 ár síðan Dr.Ójars Lams frá Lettlandi held- ur fyrirlestur um þjóðkvæðabálk Lettlands, Lacplesis, um hetjur þess og goðsagnir, í kvöld, miðviku- dagskvöld kl. 20. Virginija Stommiene heldur fyr- irlestur um goðsagnir og tákn ásamt kynningu á samtímasögu Lit- háens á morgun, fimmtudag, kl. 20. Ennfremur verður smiðja í pappírklippi á morgun, fimmtudag, frá kl. 9-12 og kl. 14-18. Þar mun Virginija Stommiene kynna fyrir þátttakendur tákn og goðsögur frá Litháen og notar hún pappírsklipp til þess. Hún mun skýra fyrir þátt- takendum hvernig gamlar hefðir hafa viðhaldist og heiðin og kristin tákn samtvinnast í alþýðulistinni. I þessari smiðju verður þessi hefð kynnt með virkri þátttöku gesta og fer kennslan fram á ensku. Kanarí- sprengja Heimsferða frá kr. 39. 80 viðbótarsæti Heimsferðir kynna nú sjöunda árið í röð hausterðir sínar til Kanaríeyja, en eyjamar eru langvinsæl- asti vetraráfangastaður okkar og þúsundir íslendinga ferð- ast þangað á hveijum vetri til að njóta eins besta veðurfars heimsins og stytta veturinn hér heima. Heimsferðir hafa nú tryggt sér viðbótargistingu á hreint frábærum kjömm og geta nú boðið 200 sæti í sólina á lægra verði en áður hefur sést til þessa vinsæla áfangastaðar. Paraiso Maspalomas JOLAFERÐ 12. desember. 1,2 eða 3 vikur ALDAMÓTAÆVINTÝRI 26. desember. 1 eða 2 vikur. 39.855 Verð frá kr. Gisting á Tanife/Paraiso, 12. des., vikuferð, m.v. hjón meö 2 böm. Aukavika frá kr. 7.700. 39.855 Verð frá kr. Gisting á Tanife/Paraiso, 26. des. vikuferð, m.v. hjón með 2 böm. Aukavika frá kr. 7.700. Verð kr. 49.990 Verð kr. 49.990 Miðað við 2 í íbúð, 1 vika. 2. janúar Verð frá kr. 39.990 Gisting á Tanife/Dunaflor. M.v. 2 í íbúð/smáhýsi. Aukavika kr. 10.500 Miðað við 2 í íbúð, 1 vika. Flug alla fimmtudaga og mánudaga í oktober og nóvember. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.