Morgunblaðið - 10.11.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 51
BREF TIL BLAÐSINS
Er unglingadrykkja ekki
stærra vandamál en „sjálfsögð
þægindi“ hinna fullorðnu?
Frá þremur stúlkum á
unglingaheimilinu
Varpholti viðAkm-eyri:
MEÐAN vímuefnavandinn hér á
landi eykst dag frá degi og menn
eru alveg ráðþrota, eru sumir
kaupmenn að dútla við þá hug-
mynd, að fá að selja alkóhól í mat-
vöruverslunum, til að auka þægindi
þorrans. Hingað til hefur fólki ekki
fundist það tiltökumál að fara í sér-
verslanir til ýmissa innkaupa, s.s.
vegna áfengis eða fatainnkaupa og
fl. Okkur finnst þetta ekki vera
spurning um það hvort Nýkaup fái
að selja áfengi, heldur hvort við
séum tilbúin að leyfa smáverslun-
um og sjoppum í hverfum okkar að
selja áfengi, því þær munu krefjast
þess, á því leikur enginn vafi og
engar forsendur fyrir að neita
sjoppunum, ef Nýkaup fær leyfi.
Því látum við ekki okkur nægja
reynslu nágrannaþjóða okkar? Til
dæmis eru Svíar með svipað kerfi
og við í þessum málefnum. Þeir eru
með séráfengisverslanir og skoðan-
ir sýna fram á að meðaltalsdrykkja
hvers Svía er um það bil 6 lítrar af
hreinum vínanda á ári hverju, en til
samanburðar má nefna Danmörku
þar sem áfengi er selt í matvöru-
verslunum. Þar er meðaltals-
di-ykkja hvers manns um það bil
10-12 lítrar af hreinum vínanda
sem er allt að tvöfalt meira en í Sví-
þjóð.
Heilbrigðis- og félagsmálayfir-
völd þurfa að gera sér grein fyrir
því að ef sala áfengis yrði færð í
matvöruverslanir og sjoppur í
hverfunum kynni heildarneysla
áfengis að aukast, jafnvel í versta
falli allt að tvöfaldast hér á landi
eins og í Danmörku og á Grænlandi
og búa sig undir afleiðingar þess. í
dag er staðan orðin verulega slæm í
meðferðarmálum unglinga. Það
getur tekið 15 ára ungling allt að
eitt ár að komast í meðferð og Guð
má vita hvað getur gerst á 12 mán-
uðum íyrir ungling með áfengis-
vandamál. Hvernig myndu þessi
mál líta út ef neyslan tvöfaldaðist?
Þeii' tala um stranga gæslu, en
við spyrjum;
1. Eru ekki unglingar undir 18
ára aldri að vinna í matvöruversl-
unum?
2. Hvernig er eftirliti tóbakssölu
háttað í dag? Við vitum dæmi þess
Digranesvegur - Kóp. - Sérliæð
Vorum að fá í sölu glæsilega
124 fm sérhæð á jarðhæð í ný-
legu þríbýli. Frábær staðsetning
- stutt í alla þjónustu. Þrjú stór
herbergi, parket á öllum gólfum,
glæsilegt baðherbergi, flísalagt í
hólf og gólf. Timbursólpallur,
frábært suðurútsýni. Ákveðin
sala. Áhv. 4,9 m. Verð 12,7 millj.
Fasteignasalan
^ KJÖRBÝLI
NYBYLAVEGI 14,
KÓPAVOGI,
•S 564 1400.
Group
Teka AG
7CKO
KÚCHENTECHNIK
—
Heimilistæki
á heildsöluverði
Gufugleypir Tub 60
• 3ja hraða með Ijósi
• sog 375 m2 á klst.
Innbyggður ofn HT410
• undir- og yfirhiti
• 4 eldunaraðgerðír
• grill
• mótordrifinn grillteinn
38.700,-
Helluborð E60,1
• 4 steyptar hellur
með áfðstu takkaborði
• litur stál, hvítt eða dökkt
Gufugleypir Tub 60
• 3ja hraða með Ijósi
• sog 375 m2 á klst.
Innbyggður ofn HT610
• fjölvirkur blástursofn
• 3 hitaelement
• 8 eldunaraðgerðir
• sjálfhreinsibúnaður
• mótordrifinn grillteinn
• forritanleg klukka
72.400,-
Keramikhelluborð
VTC-M
• 4 High Light hraðhellur
með áföstu takkaborði
INNRETTINGAR & TÆKI
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
www.heildsoluverslunin.is
ILDSÓI
iRSLUNI
lúrííverBil
- tryggmfíiS^
Vi& Fellsmúia
Sími 588 7332
að allt að 10 ára börn eru að kaupa
tóbak fyrirhafnarlaust.
Telja menn að unglingar sem
starfa í Nýkaupsverslunum séu
hæfir til að hafa stjórn á að jafnvel
jafnaldrar þeirra fái ekki þá þjón-
ustu sem verslunin vill svo gjarnan
bjóða upp á?
Það er sannfæring okkar að sala
áfengis í matvöruverslunum myndi
leiða af sér stóraukna neyslu. Við
teljum íslenskt þjóðfélag ekki geta
mætt vandanum sem fylgir neysl-
unni nægjanlega vel í dag og skelf-
umst því tilhugsunina um að Ný-
kaupsmenn kæmu hugmyndum
sínum í framkvæmd.
Þeir vilja kannski fá að selja
skotvopn, felst ekki frelsi í því?
Ættu það ekki að vera „sjálfsögð
þægindi"?
GÍGJA SKÚLADÓTTIR,
15 ára,
SIF VILHJÁLMSDÓTTIR,
16 ára
ARNFRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR,
13 ára,
allar í langtímameðferð
á unglingaheimilinu
Varpholti við Akureyri.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Komdu Líka í Islandica
Árangursmat í fyrirtækjum
- EVA™ (Economic Value Added)
Þriðjudagur 16. nóvember kl.9:00-12:00
Hótel Loftleiðir, þingsalur 1
Aðferðir árangurstengdrar stjórnunar eru nú vel
viðurkenndar. Mörg fyrirtæki hafa þegar innleitt
slíkar aðferðir — eða eru f startholunum.
Árangurstenging launa stjórnenda er einnig að
verða mjög algeng. Ætla má að auðvelt sé að meta
árangur fyrirtækja:
• hagur eigenda kemur ávallt fyrst
• vel skilgreindar mælistikur ýta undir réttar
ákvarðanir stjórnenda
• ávinningur stjórnenda þarf að vera í jafnvægi
við þátttöku í áhættu
• mælistikur eiga að mæla raunverulegan árangur
— ekki heppni
• o.s.frv.
í raun getur verið erfitt að innfæra árangurstengda
stjórnun á þann hátt að hún leiði til varanlegra
breytinga innan fyirrtækisins. Hvernig má gera
EVA að sameiginlegu tungumáli innan þess?
Hvernig getur EVA breytt rekstri fyrirtækisins?
Hvernig má gera EVA að varanlegu stjórntæki —
ekki skammtíma tískubólu? Hvernig nýtist EVA tii
að gera stjórnendur enn öflugri í umhverfi vaxandi
samkeppni?
Stjórnunarfélag íslands hefur fengið þrjá virta
sérfræðingar til að fjalla um þessar sþurningar og
aðrar tengdar árangursmati í fyrirtækjum.
Patrick Finegan, Managing
Director, Finegan & Company
Finegan er frumkvöðull f notkun
EVA greiningar við árangursmat
í fyrirtækjum. Finegan mun fjalla
um þróun aðferðafræðinnar og
notkunarmöguleika hennar fyrir
stjórnendur og hluthafa. Einnig
mun hann fjalla um aðrar
tengdar aðferðir sem nýtast sérstaklega við mat á
verðmæti fyrirtækja.
Pat Finegan er framkvæmdastjóri Finegan og
company og fyrrverandi meðeigandi í Stern
Stewart og co. þar sem hann stjórnaði fyrirtækja
og markaðsþjónustu ásamt því að leiða rannsóknir
þeirra á sviði EVA greiningar.
Finegan hefur skrifað fjölmargar greinar í blöð og
tímarit m.a. The journal of applied corporate
finance, Institutional investor, Small Business
Controller og mörg fleiri tímarit.
Finegan hefur BA gráðu frá Northwester University
og MBA próf og JD frá University í Chicago.
Svanbjörn Thoroddsen,
tramkvæmdastjóri
markaðsviðskipta hjá FBA.
FBA er líklega fyrsta íslenska
fyrirtækið til þess að tileinka sér
aðferðir EVA greiningar.
Svanbjörn mun fjalla um EVA
greiningu sem mælikvarða á
árangur og stjórntæki (rekstri
fyrirtækja. Jafnframt fjallar hann um það hvernig
EVA greining nýtist sem grunnur að árangurs-
tengdu launakerfi og reynslu FBA af slíku kerfi."
Jóhannes Ingi Kolbeinsson,
rekstrarráðgjafi hjá
Price WaterhouseCoopers
Jóhannes Ingi mun fjalla um
notkunarmöguleika EVA
greiningar í íslensku atvinnulífi,
kosti og galla aðferðarinnar,
hlutverk ráðgjafans og fram-
tíðarþróun aðferðarfræðinnar.
Jk
Stjórpunarfélag
Islands
Skráning og nánari upplýsingar í síma 533 4567 og www.stjornun.is