Morgunblaðið - 10.11.1999, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 10.11.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 55 MARTIN SCORSESE II érznyz feNEFNÐ . TIL FEKNRA i ÓSKARS- VERÐEA^A MYNDIN ura lcigubílstjórann sem fer útaf sporinu var fyrsta myndin sem Scorsese „átti“ frá upphafi til enda og vakti heimsathygli. Alice Doesn’t Live Here Anymore var gerð fyrir orð Ellen Burstyn, en tilurð Taxi Driver var á allan hátt framkvæmd Scorsese. Fylgdi handritsgerð Pauls Schraders grannt eftir, hóaði í tvo gamla vini og samstarfsmenn, Robert De Niro og Harvey Keitel, sem fara með veigamestu hlutverkin. Myndin fékk misjafna dóma í upphafí, þó hún sé í dag talin með athyglis- verðustu myndum áttunda áratug- arins. Á þessum tima voru fjölmargir ungir og efnilegir kvikmyndagerð- armenn að kveðja sér hljóðs í Hollywood með metnaðarfullum myndum sem drógu upp dekkri hlið af samfélaginu en tíðkast hafði um árabil. Þetta voru Franc- is Ford Coppola, John Milius, Bri- an De Palma og Scorsese. Jafnvel Spielberg og Lucas hófu Hollywood-feril sinn á gagnrýnum nótum, (a.m.k. miðað við það sem á eftir kom) með Sugarland Express, (‘74) og THX1138, (‘70). Til að byrja með fór Coppola fremstur í flokki með Guð/oður-myndirnar, ‘71 og ‘74; The Con- versation, (‘74) og Apocalypse Now, (79). Allar deildu á þjóðfélagið, einkum spillingu í skjóli valda og auðs. Milius íjall- aði um hnignandi ímynd amerískrar hetjulundar á tregafullan hátt, De Palma vítiskvalir sálarinnar í Oh- session, (‘76) og Carrie (‘76). Allir féllu þeir þó smám sam- an í skuggann af marg- slungnum, stöðugum afrek- um Scorsese. Hann hélt áfram að kryfja til mergjar ofbeldið í þjóðfélaginu, þrá- hyggjuna og ofsóknaræðið, sem hófst í Mean Streets, (‘73) í fimasterkum og sjónrænum verkum einsog New York, New York, (‘77) Raging Bull, (‘80) The King Of Comedy, (‘83) og er enn að með GoodFellas, (‘90) Casino, (‘95) og nú siðast Bring On the Dead, (‘99) um raunir sjúkraliða og ökumanns (Nicolas Cage) á næturvöktum á neðri hluta Manhattan aðframkominna af eymd og grimmd mannskepn- unnar. Mynd sem gerir grín að öll- um „Bráðavöktum" kvikmynda- sögunnar og er best lýst með einu orði: Svartnættishelvíti. Trúarlegt, kaþólskt uppeldið á mörkum rétt- vísinnar í Little Italy, setur enn sterkan svip á efnisvalið og með- höndlunina. Hann einn hefur hald- ið sínu striki, frábeðið sér happ-í- endi, forðast útjaskaðar frásagnar- aðferðir kvikmyndaborgarinnar, haldið tryggð við líflega notkun rokks og dægurtónlistar. Enn ekki „fallinn fyrir Ilollywood", líkt og fyrrnefndir kollegar hans. New York, New York er tilfinn- ingaheit, tileinkuð hinum gömlu músikölum Hollywood, með De Niro og Lizu Minelli. Full af trega og eftirsjá en De Niro er ekki traustvekjandi í hlutverki djass- Scorsese ásamt Nicolas Cage við tökur á »Bringing On tlie Dead, sem verður frumsýnd hérlendis á fyrstu mánuðum næsta árs. . loldð, Kundun, Leitinm er iokiö, {undinn t W*** bú'SSSr*»<«*,“d"",T ; hljómlistarmanns og myndin lítið eftirminnileg fyrir ani. vl en að vera á gjörólíkum nów.ii fyrri mynda hans. f Raging Bull kafar Scorsese aftur undir yfirborð of- beldisins sem gegnsýrir banda- rískt þjóðlíf, nærskoðun hans á „hetjunni", hnefaleikameistaran- um og rustamenninu Jake La Motta, er margverðlaunuð skoðun á uppsprettu valdniðslu og yfir- gangs. í The King Of Comedy, (‘83) er umQöllunarefnið af allt öðrum toga. Mislukkaður spaugari (De Niro) sem grípur til örþrifa- ráða til að koma sér á framfæri, þannig að þessi háðska gaman- mynd fjallar á sinn hátt um dekkri hliðar borgarlífsins. The Color OfMoney, (‘86) er síð- Martin Scorsese í dag: Virtur, fijáls og fremstur. búið framhald The Hustler, (‘61) mun betri myndar um spillt líf og sjúskað umhverfi ballskákarmanna. Varð þó til þess að Paul Newman fékk loksins Óskarsverð- launin, þó hann hafi oft verið betri, ekki síst í fyrri myndinni. Þá var komið að umdeildustu mynd leikstjór- ans frá upphafi, The Last Tempta- tion Of Christ, (‘88) sem fylgir ná- kvæmlega sagnfræðilegri skáld- sögu Nikosar Kazantzakis og lýsir Jesúm sem viðkvæmum og tilfinn- ingaríkum manni, þjáðum af innri átökum og efaserndum. Rimman náði inn í umræðuna og fjölmiðl- ana hérlendis og dæmi hver fyrir sig um ágæti þessarar umdeilan- legu ímyndar af Frelsara vorum. / GoodFellas, (‘90) og síðar, í Casino, (‘95) er Scorsese aftur kominn á slóðir ofbeldis og skipu- lagðrar glæpastarfsemi og fylgi- kvilla þessara meinsemda þjóðfé- lagsins. Víghöfði - Cape Fear, (‘91) er hins vegar endurgerð myndar um fyrrverandi fanga (De Niro) sem hugsar lögfræðingnum sem kom honum bak við lás og slá (Nick Nolte) þegjandi þörfina. Markaðsvænasta mynd leikstjór- ans og sú vinsælasta, þéttur, góður þriller, en fjarri hans bestu verk- um. ‘93 kúvendir Scorsese enn og velur til meðferðar aðra endur- gerð, skáldsöguna The Age Of Innocence (e. Edith Wharton, 1862-1937) um bældar tilfinningar í stéttskiptu borgarþjóðfélagi New York á ofanverðri síðustu öld. Óaðfinnaleg fyrir augað, Scorsese sannar sig sem fær leikstjóri bún- ingamynda en ristir ekki djúpt. Enn rær Scorses á ný mið í Kund- un, (‘97) um stormasaman uppvöxt núverandi leiðtoga Búddatrúar- manna, Dalai Lama liins 14. Á næsta ári er von á sjálfsævisögu- legri mynd um Dean Martin; Dino, og Gangs Of New York, titillinn segir allt sem segja þarf. Spurst hefur út að framleiðandinn, gamla fjölskyldumyndafyrirtækið Disney, hafi þótt nóg um og látið gera hana undir nafni Miramax og fái annað fyrirtæki til liðs við sig við heimsdreifinguna. Ekki verður Scorsese yfirgefinn öðruvísi en að minnst sé á trausta og hæfa samstarfsmeim hans til fjölda ára. Allir þekkja nána sam- vinnu hans, De Niros og Harvey Keitels, færri er kunnugt um sam- starf hans við klipparann Thelmu Schoonmaker. Hún var skólasystir leikstjórans við NYU, og hefur ráð- ið miklu um útlit velflestra mynda Scorsese frá ‘68. Fékk m.a. Óskarsverðlaunin lyrir sinn þátt í Raging Bull, (‘80) og hlaut tilnefn- ingu fyrir GoodFellas, (‘90). Hún á ekki lítinn þátt í geigvænlegri ásýnd Bringing On the Dead. Sama máli gegnir um kvikmyndatöku- sfjórana Michael Chapman og Mich- ael Ballhaus og handritshöfúndinn Paul Schrader. Tónskáldin Bemard Herrmann, Robbie Robertson (fyrr- verandi aðalsprauta The Band) og Elmer Bemstein. Allir hafa þessir ágætu listamenn lagt honum lið. Sígild myndbönd THE KING OF COMEDY (‘83) irkirk Leikstjórinn tekur þráhyggjuna fyrir í svartri gamanmynd um Rupert Pupkin (De Niro) hæfileika- lítinn, treggáfaðan en sjálfumglaðan grínara sem vill ólmur komast í sjónvarpsþáttinn hjá goðinu sínu og fyrirmynd (Jerry Lewis). Áhuginn er hins vegar ekki gagnkvæmur svo Pupkin grípur til örþrifaráða; rænir goðinu og kúgar til samstarfs. Nýt- ur fulltingis gufuruglaðrar leikkonu (Sandra Bemhard) í svipaðri tilvist- arkreppu og Pupkin. Efnið er á mörkunum, kolbikasvart háð um frægðardrauma og skemmtanaiðn- aðinn. Handrit Pauls D. Zimmermans (fyrrverandi kvik- myndagagnrýnanda Newsweek) gengur óvenjulangt í skefjalausu spotti sem þau De Niro, og ekki síð- ur hin sjaldséða Bernhard, flytja með glæsibrag. Lewis er ekki sem verstur heldur, í eina nokkumveg- inn eðlilega hlutverki myndarinnar. GOODFELLAS (‘90) irkk'h. FyiTverandi mafíósi (Ray Liotta) rifjar upp síðustu þrjá áratugi ævi sinnar - eftir að hann er kominn undir vemdarvæng Ali-íkislögregl- unnar. Lýsir því hvemig hann sem lítiil drengur vill ganga í augun á goðunum sínum, mafíumönnunum (Roebert De Niro, Joe Pesci, Paul Sorvino). Hvemig hann síðan potai’ sér upp metorðastigann, ávinnur sér traust yfirboðaranna. Harðsoðin lýsing á andhverfu Ameríska draumsins, þar sem lífið er martröð vilji menn njóta hans. Hann étur sig inn í einkalíf nýliðans, spillir öllu sem gott er í kringum hann og skilur eft- ir sem útbmnnið flak. Miskunnar- laus mynd sem býr yfir einhverjum hrikalegustu atriðum kvikmynda- sögunnar, sem tæpast hefur verið slegið við, nema ef vera skyldi í Casino, sem Scorsese gerði ‘95. Einkar óþægileg, þar sem leikstjór- inn notar ofbeldi umbúðalaust til að ófegra þá sem beita því í hagnaðar- skyni. Ekki fyrir viðkvæma. KUNDUN (‘97) ■kkk'k Scorsese sýnir á sér enn eina hlið í dulúðugri sögu og litríkri, bæði myndrænt og efnislega, af Dalai Lama 14., þeim sem enn er leiðtogi búddatrúarmanna. Hefst á því er tí- betskir munkar finna hann, lítinn stúf, eftir leit meðal almúgans. Taka sveininn með sér til höfuðborgar- innar, Lhasa, þar sem hann er bú- inn undir sitt veigamikla ævistarf. Hernám Kínverja um miðja öld- ina raskar framtíðaráætlunum, myndin endar á flótta hins unga helga manns til Indlands. Aldrei þessu vant ríkir friður og ró yfir vötnunum, Scorsese tekst mun bet- ur að setja áhorfandann inn í undar- lega veröld hálfguðsins en Ber- tolucci, sem gerði mynd um sama efni um svipað leyti. Það sem gerir gæfumuninn er að myndin er laus við allt Hollywood-prjál, leikaramir „ósviknir“, enda óþekktir og frá- sagnarmátinn einfaldur án útúr- dúra. Það er greinilegt að Scorsese er ekkert viðfangsefni ofviða. Sæbjörn Valdimarsson MYNPBÖNP Tveir heimar Dóttir hermanns grætur ei (A Soldier’s Daughter Never Cries) Drama ★★★ Framleiðandi: Ishmael Mfrcliant. Leikstjóri: James Ivory. Handrit: James Ivory og Ruth Prawer Jhabvala. Kvikmyndataka: Jean-Marc Fabre. Aðalhlutverk: Kris Kristoffer- ** son, Barbara Hershey, Leelee Sobieski og Jesse Bradford. (124 mfn.) Bandaríkin. Háskólabió, október 1999. ÖUum leyfð. KVIKMYNDATEYMIÐ Mersc- hanf/Ivory (Ishmael Merchant og James Ivory) á að baki vel heppn- aðar tíðaranda- myndir á borð við „Howard’s End“ og „Remains of the Day“. Dóttir hermanns grætur ei sver sig í ætt við þær en hefur þó nútímalegri umgjörð. Þar er sagt frá uppvaxt- arárum Channe (Leelee Sobieski) með bóhemískum foreldrum sínum í París á sjötta áratugnum. Þegar fjölskyldan svo flytur til Banda- ríkjanna við upphaf þess sjöunda reynist henni aðlögunin erfið. Myndin er byggð á sjálfsævisögu- legri bók Kaylie Jones, en hún er dóttir James Jones (sem skrifaði m.a. The Thin Red Line). Leikarar standa sig vel í túlkun litríkra per- sóna þessarar margslungnu sögu r sem spannar tvo áratugi. Áherslan sem lögð er á að draga fram menn- ingarlegan mismun tveggja þjóð- landa, Frakklands og Bandaríkj- anna, gefur myndinni aukið gildi og óhætt er að mæla með henni fyrir þá sem vilja tilbrigði við hið hefðbundna stef fjölskyldumynda. Heiða Jóhannsdóttir ------------- Tarantino- eftirherma Fimmtudagur ^ (Thursday)____________ Spennumjnd k'/á Framlciðandi: Alan Poul. Leikstjóri og handritshöfundur: Skip Woods. Kvikmyndataka: Denis Lenoir. Aðal- hlutverk: Thomas Jane, Aaron Eck- hart og Paulina Porizkova. (83 mín.) Bandarísk. Háskólabíó, október 1999. Bönnuð börnum innan 16 ára. FIMMTUDAGUR skipar sívax- andi flokk Tarantino-eftirhermu- mynda þar sem reynt er að skjóta ofbeldið sniðug- heitum og kald- hæðni. Myndin segir frá afdrifa- *■" ríkum degi í lífi Casey Wells (Thomas Jane) þegar fortíðin sem hann flúði mörgum árum fyrr birtist í dyra- gættinni í líki gamals félaga. Við tekur blóðug atburðarás þar sem hlé er reglulega tekið fyrir skondn- ar samræður, eins og tíðkast hjá Quentin. Persónusköpun myndar- innar á títtnefndum ungleikstjóra allt að þakka en kaldhæðin kímni- 4L gáfa hans skilar sér hingað í formi mannfyrirlitningar og asnalegrar samsömunar milli ofbeldis og karl- mennsku. Hér er ekkert nýtt á ferð og ráðlegg ég Tarantino-aðdáend- um að bíða eftir næstu mynd hans frekar en að eyða tíma og pening- um í svona fölar eftirlíkingar. ^ _ Heiða Jóhannsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.