Morgunblaðið - 13.11.1999, Page 2
2 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heiðraður
á afmælinu
Norðmenn landa 200 þúsund tonnum af sfld framhjá vigt
„Gerir samninga um
nýtingu tilgangslausa“
KNATrSPYRNUKAPPINN Rík-
harður Jónsson á Akranesi varð
sjötugur í gær. Á herrakvöldi
Fram í gærkvöldi var hann sér-
staklega heiðraður á þessum
merku tímamótum.
Ríkharður hefur mætt á herra-
kvöldin hjá Fram frá upphafi og
kvaðst hann örugglega hefðu séð
eftir því ef hann hefði sleppt
kvöldinu því þarna hitti hann sína
gömlu félaga úr knattspymunni.
Ríkharður hyggst fara í afmælis-
ferð til London eftir nokkra daga
með fjölskyldunni. Hann lék
einmitt með Arsenal árið 1959,
m.a. æfingaleik gegn enska lands-
liðinu sem Arsenal vann 3:1 og
skoraði hann eitt af mörkunum.
Lengst lék Ríkharður með ís-
lenska landsliðinu og Skagamönn-
um, en hann var maðurinn bak við
hið sigursæla gullaldarlið þeirra,
bæði sem leikmaður og þjálfari.
Meðal gesta á herrakvöldinu í
gærkvöldi var dóttursonur Rík-
harðs, nafni hans Daðason, núver-
andi miðheiji íslenska landsliðsins,
sem leikur með Viking í Noregi.
NORÐMENN veiða um 25%
metra úr norsk-íslenska sfldar-
stofninum en aflatölur þeirra gefa
til kynna. Það gera þeir með því að
landa meiri afla en þeir fá í raun
borgað fyrir. Þetta kemur fram í
norska blaðinu Fiskaren í gær.
Formaður LÍÚ segir þessa fram-
komu Norðmanna óviðunandi og
gera samninga um nýtingu stofns-
ins ómerka.
Norsku sfldarsölusamtökin taka
á hverju vori ákvörðum um lág-
marksverð á sfld. Norskir sjómenn
segja að nú sé verðið of hátt miðað
við markaðsaðstæður og þvf stundi
margir að landa meiri afla en þeir
fái í raun borgað fyrir. Þeir sem
ekki geri það lendi á svörtum lista
hjá kaupendum. í Fiskaren er full-
yrt að Norðmenn hafi þannig á
þessu ári landað um 25% umfram
leyfilegan heildarafla sinn úr
norsk-íslenska sfldarstofninum.
Norðmönnum var á þessu ári
heimilt að veiða um 800 þúsund
tonn úr stofninum. Miðað við það
hafa Norðmenn landað framhjá
vigt því sem samsvarar leyfflegum
heildarafla Islendinga úr stofnun-
um á þessu ári eða um 200 þúsund
tonnum. Ætla má að verðmæti
þess afla velti á milljörðum ís-
lenskra króna þegar sfldin hefur
verið unnin til manneldis.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir verðlagskerfi, líkt og
það sem Norðmenn nú búa við,
hafa verið lagt af hérlendis fyrir
nærri áratug. Lágmarksverð á sfld
sé nú greinilega of hátt og leiði til
þess að menn afhendi meira magn
en þeir fái borgað fyi'ir.
Svindlið á kostnað
físksins í sjónum
„Það er á kostnað fisksins í
sjónum því þannig veiða menn
umfram heimildir. Þetta er skað-
legasta aðferð sem hægt er að
beita við verðlagninu á fiski og
nálgast raunverulegt verðgildi
þeirra afurða sem um er að ræða.
Þetta þekkjum við sem betur fer
ekki, enda búum við við frjálsa
verðlagningu."
Kristján segir menn lengi hafa
grunað að slíkar aðferðir væru við-
hafðar í Noregi. Núna fái menn
svindlið staðfest. „Þetta er einkan-
lega slæmt þegar um er að ræða
fískistofn sem fjórir aðilar hafa
samið um nýtingu á. Þetta er óvið-
unandi og við hljótum því að gera
þá kröfu að á málinu verði tekið,
ella hefur samkomulag um nýtingu
á stofninum engan tilgang. Það
sama á sér stað í þorskveiðunum
hjá Norðmönnum, verið er að af-
henda meira magn en tilskilið er,“
segir Kristján.
Félag járniðnaðarmanna með
aðgerðir við Sultartangavirkjun
Vinna tékkn-
eskra starfs-
manna stöðvuð
en þeir tékknesku yrðu trúlega eitt-
hvað að sýsla um helgina.
Öm sagði að erlendu starfsmenn-
irnir hefðu fengið atvinnuleyfí sem
rafíðnaðannenn en síðan gengið í
störf íslenski-a jámiðnaðarmanna í
Sultai'tangavirkjun án þess að hafa
til þess atvinnuleyfi. „íslenskum
málmiðnaðarmönnum hefur fækkað
við Sultartanga að undanförnu og
verður fækkað enn frekar í næstu
viku. A sama tíma hefur réttinda-
lausum erlendum starfsmönnum
fjölgað," segir Örn.
íslenskir iðnaðarmenn
verði ráðnir í staðinn
Jámiðnaðarmenn segjast hafa
gert Vinnumálastofnun grein fyrir
stöðu mála fyrir mánuði og að stofn-
unin hafi staðfest þetta með bréfi til
Isól ehf. 29. október, en fyrirtækið
hefur umboð fyrir tékkneska fyrir-
tækið. Farið var fram á að þegar í
stað yrðu ráðnir íslenskir málmiðn-
aðarmenn til að sinna verkefnunum
en að öðram kosti yrðu atvinpuleyfi
afturkölluð og óskað eftir að Útlend-
ingaeftirlitið vísaði mönnunum úr
landi.
Tveimur vikum síðar hafi ís-
lenskum málmiðnaðarmönnum í
Sultartangavirkjun verið fækkað
um fjóra og framundan sé meiri
fækkun, en erlendum starfsmönn-
um Skoda í málmiðnaðarstörfum
hafi fjölgað.
FÉLAG jámiðnaðarmanna segir að
starfsmenn tékkneska fyrirtækisins
Skoda, sem unnið hafi málmiðnað-
arstörf í tengslum við uppsetningu
rafala í Sultartangavirkjun án at-
vinnuleyfis, hafi lagt niður vinnu í
gær eftir að rætt var við þá. Fyrst
hafi mennirnir horfið frá vinnu
tímabundið en snúið síðan tfl starfa
á ný. Aftur hafí verið rætt við þá og
þeir þá lagt niður vinnu.
„Við ræddum við mennina og
þetta voru svona fyrstu aðgerðir hjá
okkur,“ sagði Öm Friðriksson, for-
maður Félags jámiðnaðarmanna.
Hann sagði að ekkert yrði aðhafst
um helgina enda væra íslensku
málmiðnaðarmennimir famir heim
Morgunblaðið/Sverrir
Karlmaður fundinn sekur um kynferðisbrot gegn þremur stúlkubörnum
15 mánaða fangelsi
Dæmdur í
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt
karlmann í fimmtán mánaða fangelsi og alls 900
þúsund króna greiðslu miskabóta fyrir kynferðis-
brot gegn þremur stúlkubömum í fyrra og á
þessu ári. Dómurinn var kveðinn upp á mánudag ;
af fjölskipuðum dómi héraðsdóms. ;
Maðurinn var ákærður og sekur fundinn um að ;
hafa sýnt elstu stúlkunni, þá átta ára gamalli,
kynferðislega áreitni í fyirasumar á heimili sínu
og játaði ákærði þá háttsemi skýlaust. Dæmdi
héraðsdómur ákærða til að greiða baminu 400
þúsund krónur í miskabætur.
Maðurinn var ennfremur ákærður og sekur
fundinn um að hafa haft kynferðismök við fimm
ára gamalt stúlkubarn í febrúar sl. er hann var
að gæta hennar heima hjá móður hennar, en
ákærði var heimilisvinur þar á bæ. Akærði fór í
bað með baminu þar sem brotið átti sér stað, en
ákærði neitaði sök. Krafist var 1,5 mflljóna króna
í miskabætur vegna brotsins, en maðurinn var
dæmdur til að greiða 300 þúsund krónur í miska-
bætur.
Fyrir brot gegn þriðja stúlkubarninu, sem fætt
er árið 1994, var ákærði dæmdur til að greiða 300
þúsund krónur í miskabætur, en hann var ákærð-
ur og sekur fundinn um að hafa sýnt baminu
kynferðislega áreitni einhvem tíma á tímabilinu
frá nóvember 1998 og fram í aprfl sl. þegar hann
var að gæta hennar og bróður hennar. Játaði
ákærði þá háttsemi skýlaust.
Sérblöð í dag
ÁLAUGARDÖGUM
LIjöDOii
Með Morg-
unblaðinu í
dag er
dreift blaði
frá Hans
Petersen,
„Taktu nýja
tækni inn í
myndina".
Yfirtöku íslendinga
beðið með óþreyju B/1
Hólmganga á Hampden
Park í dag B/2