Morgunblaðið - 13.11.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Upplýsingar um
öll símanúmer
í einu númeri
NÝR upplýsingasími um símanúmer, 1818,
var tekinn í notkun á fimmtudaginn.
Það voru eineggja tvíburarnir Rakel og
Hrefna Sigurðardætur sem hringdu fyrsta
símtalið, en þær eru einmitt 18 ára, fædd-
ar 18. október ‘81. Fyrsta sólarhringinn
sem síminn starfaði, voru innhringingar
um 1200 talsins.
Fyrirtækið Markhúsið rekur 1818 og
hefur tryggt sér aðgang að tölvusíma-
skrám bæði Landssímans og Tals sem báð-
ar eru uppfærðar daglega. Þetta er í
fyrsta sinn sem hægt verður að fá aðgang
að öllum þessum simanúmerum í sama
númeri en símanúmer viðskiptavina Tals
eru ekki skráð sjáifkrafa hjá þjónustusíma
Landssimans, 118. Tal hefur eigin þjón-
ustusíma, 1414, og hefur hingað til verið
hægt að fá upplýsingar um símanúmer
viðskiptavina þar, en vegna tilkomu 1818
verður sú þjónusta felld niður innan
skamms, en önnur þjónusta Tals verður
áfram veitt í 1414.
Sverrir Hauksson, framkvæmdastjóri
Markhússins, segir að í þessari viðbót við
starfsemi fyrirtækisins felist fyrst og
fremst betri nýting á þeim tækjum og
þeirri aðstöðu sem þar sé þegar til staðar,
sem er alhliða símsvörunar- og úthring-
ingarþjónusta fyrir fyrirtæki. Gert er ráð
fyrir því að starfsfólk í um fimmtán stöðu-
gildum komi til með að sinna svörun í
1818, þjónustan verður veitt alla daga árs-
ins, allan sólahringinn og í kjölfarið mun
Markhúsið einnig fara af stað með þjón-
ustu á öðrum sviðum allan sólarhringinn.
Lögð verður áhersla á hraða og örugga
þjónustu og segir Sverrir tilkomu nýja
upplýsingasimans mikla þjónustubót því
nú sé hægt að nálgast upplýsingar um öll
simanúmer í einu númeri.
Reikna með 25-30%
markaðshlutdeild
Það einfaldi leitina mikið að hafa allar
upplýsingar á einum stað, sérstaklega
þegar von er á nýjum sfmafyrirtækjum
eins og Islandssíma og jafnvel enn fleir-
um, en öllum simafyrirtækjum stendur til
boða að setja númer sín á skrá hjá 1818.
Rakel og Hrefna Sigurðardætur eru 18 ára eineggja tvíburar, fæddar 18. október ‘81, og
hringdu þær fyrstar í upplýsingasímann 1818 í gær. Hjá þeim sitja Anna Huld Óskarsdótt-
ir, þjónustustjóri Tals, og Marteinn Jónasson, stjómarformaður Markhússins. Sverrir
Hauksson, framkvæmdastjóri Markhússins, stendur hjá.
Ómar Geir Þorgeirsson, fjármálastjóri
Markhússins, segir fyrirtækið reikna með
að fá um 25 til 30% hlutdeild á þessum
markaði innan þriggja mánaða. Hann seg-
ist reikna með að hópur farsímanotenda
fari enn stækkandi og að þeir verði þeirra
helstu viðskiptavinir í framtíðinni. Hann
segist ekki óttast að símaskrá á Netinu
eigi eftir að koma í staðinn fyrir þjónustu
af þessu tagi því farsímanotendur séu oft-
ast nær ekki með tölvu við hendina. Þegar
sá tími komi að síminn og tölvan renni
saman í eitt komi til greina að útvíkka
þjónustuna í einhveijar áttir en enn sem
komið er sé mikil eftirspurn eftir svona
þjónustu.
Gjald fyrir símtal í 1818 er það sama og
í upplýsingasíma Landssímans 118, fast
gjald er 9,96 krónur og mínútan kostar
39,90 krónur.
Umhverfisvinir nota
nýjar Ieiðir við
söfnun undirskrifta
Hægt að taka
þátt í síma
og með
tölvupósti
TVÆR nýjar leiðir við söfnun undir-
skrifta hafa verið teknar upp í undir-
skriftasöfnun Umhverfisvina, þar
sem þess er krafist að stjómvöld láti
fara fram formlegt mat á umhverfis-
áhrifum Fljótsdalsvirkjunar. Hægt
er að rita nafn sitt og kennitölu á
hefðbundinn undirskriftalista en auk
þess er fólki boðið upp á að taka þátt
í síma eða með tölvupósti.
Ef hringt er úr tónvalssíma í núm-
er 595 5500 getur fólk slegið inn
kennitölu sína eftir að hafa hlustað á
stutt skilaboð af símsvara. Kennital-
an er svo lesin upp af tölvurödd svo
sá sem hringir geti verið viss um að
hann hafi slegið inn réttar tölur.
Staðfestir hringjandi með því að
leggja á en hafi hann slegið inn
ranga kennitölu ýtir hann á umbeð-
inn takka og slær svo inn kennitölu
sína að nýju. Einnig er hægt að
senda kennitölu sína með tölvupósti
á netfangið umhverfisvinir-
@mmedia.is.
Nöfnum og kennitölum allra sem
hafa tekið þátt, hvort sem er á blaði,
í síma eða með tölvupósti, verður svo
safnað saman og þau skráð í tölvu-
kerfi Umhverfisvina. Kerfið er
þannig úr garði gert að hver
kennitala skráist bara einu sinni.
Öi’yggi ekki minna
Jakob Frímann Magnússon, fram-
kvæmdastjóri undirskriftasöfnunar-
innar, segist ekki óttast að öryggi
hennar verði minna með þessum
hætti. Hann bendir á að ekki sé auð-
veldara að svindla með því að slá
kennitölu einhvers annars inn í síma
eða tölvu en það sé með því að rita
rangt nafn á blað, nema síður sé.
Vissulega sé ekki hægt að gæta
sama öryggis í söfnun af þessu tagi
og á kjörstað til dæmis, en hann seg-
ir að gerðar verði vissar ráðstafanir
til að tryggja að öryggi og þar af
leiðandi trúverðugleiki undirskrifta-
söfnunarinnar verði sem mestur. At-
hugað verður hvort nöfn og kennitöl-
ur passi saman og einnig verða tekn-
ar stikkprufur þar sem hringt verður
í fólk og athugað hvort það hafi sjálft
skráð sig.
Skulda yfír 27 milljónir í húsaleigu hjá Félagsbústöðum
Dæmi um að leigjendur
hafí ekki borgað í tíu ár
ÁSDÍS Leifsdóttir, fjármálastjóri
hjá Félagsbústöðum, segir að það sé
fjarri því að íyrirtækið ætli að senda
bjargarlaust fólk út á leigumarkað-
inn, eins og segir í ályktun stjórnar
Leigjendasamtakanna, sem sagt var
frá í Morgunblaðinu í gær. Ásdís
segir að dæmi séu um það að leigj-
endur hjá Félagsbústöðum hafi
skuldað leigu til tíu ára. 50 manna
hópur hefur ekki greitt leigu í 12
mánuði eða lengur og skuldar nú Fé-
lagsbústöðum yfir 27 milljónir kr. í
húsaleigu.
Um 1.000 manns eru leigjendur
hjá Félagsbústöðum, sem er fyrir-
tæki Reylyavíkurborgar. Ásdís segir
að þessi 50 manna hópur hafi ekki
greitt leigu síðustu tólf mánuði eða
lengur. „Mér þykir óeðlilegt að slík
sjálftaka viðgengist sem verið hefur.
Sé fólk það illa statt að það geti ekki
greitt húsaleigu á það að leita til Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar.
Þaðan fara erindi til Ráðgjafarstofu
heimilanna og greiðslugeta er reikn-
uð út eftir ákveðnum stöðlum. Reyn-
ist menn hafa það lágar tekjur að
þeir eigi ekki fyrir framfærslu greið-
ir Félagsþjónustan það sem upp á
vantar. Þarna er hins vegar um hóp
að ræða sem ákveður sjálfur að
greiða ekki leigu. Ég hef sent bréf til
þessara aðila frá því í ársbyrjun 1998
og reynt hefur verið að nálgast þá á
allan mögulegan hátt. Þeir hafa ekk-
ert gert til að koma skikkan á þessi
mál,“ segir Ásdís.
Hækkun leigu mætt
með húsaleigubótum
Hún segir að þessi 50 manna hóp-
ur, sem hefur fengið hótun um út-
burð, skuldi Félagsbústöðum 27
milljónir króna í leigu án dráttar-
vaxta og kostnaðar. 35 manns úr
þessum hóp njóti ekki húsaleigubóta
sem Ásdís segir að bendi til þess að
þeir hafi ekki hirt um að sækja um
þær eða fengið synjun vegna of
háira tekna.
Ásdís segir að vissulega hafi leig-
an hækkað hjá Félagsbústöðum en á
móti komi að teknar hafi verið upp
húsaleigubætur. „Greiðslubyrði
leigutakans hefur í reynd lækkað.
Leigjendur í Austurbrún 6 greiða
t.a.m. 202 kr. minna á mánuði í húsa-
leigu en þeir myndu greiða miðað við
óbreytt kerfi,“ segir Asdís.
Opið al
Rýmum fyrir jóla- og
áramótafatnaði
30-70% afsláttur
10% afsláttur af nýjum vörum
Opiö
virka daga 10-18
föstudaga 10-19
108 Reykjavík
Faxafeni 8
laugardaga 10-18
sunnudaga 13-17