Morgunblaðið - 13.11.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 41
Krabbamein í
blöðruhálskirtli
Allt ónæm-
iskerfíð
virkjað
Baltiniore. AP.
VÍSINDAMÉNN við Æxla-
fræðimiðstöð Johns Hopkins-há-
skóla í Bandaríkjunum hafa þró-
að bóluefni sem hjálpar ónæmis-
kerfl líkamans að verjast krabba-
meini í blöðruhálskirtli, að því er
fram kemur í bandaríska tímarit-
inu Cancer Research. Rannsókn
vísindamannanna leiddi í ljós að
bóluefnið getur fengið ónæmis-
kerfíð til að verjast krabbamein-
inu með sama hætti og það verst
sýkingum af völdum örvera, að
sögn Jonathans Simons, sem
stjórnaði rannsókninni.
„Menn hafa sagt árum saman
að ógjörningur sé að beina
ónæmiskerfínu gegn krabba-
meini í blöðruhálskirtli," sagði
Simons.
Okkm* til mikillar fm-ðu
komumst við þó að því að öllu of-
næmiskerfinu var gert viðvart og
hrundið af stað“.
Vísindamennirnh- sprautuðu
erfðabreyttu bóluefni í ellefu í
sjúklinga með krabbamein í
blöðruhálskirtli, sem hafði verið
fjarlægður án þess að útbreiðsla
krabbameinsins stöðvaðist.
Rannsóknin leiddi í Ijós að æxlin
minnkuðu í átta sjúklinganna.
Við kenndum ónæmiskerfínu
að bera kennsl á krabbameins-
frumurnar sem hugsanlega sýk-
ingu og ráðast á þær,“ sagði
Simons.
Bólusetningin varð ekki að-
eins til þess að eitilfrumur leyst-
ust úr læðingi, eins og vísinda-
mennirnir höfðu vonað, heldur
mynduðust einnig mótefni gegn
krabbameininu, að sögn Simons.
Hann tók þó fram að of snemmt
væri að draga ályktanir af rann-
sókninni.
William J. Catalona, sérfræð-
ingur í þvagfæraskurðlækning-
um við Washington-háskóla,
sagði að rannsóknin virtist lofa
góðu en ki’abbameinssjúklingar
ættu ekki að binda vonir við slík
bóluefni í náinni framtíð.
Vísindamenn hafa áður beitt
erfðatækni til að þróa bóluefni
gegn ýmsum krabbameinsteg-
undum en þetta er í fyrsta sinn
sem tekist hefur að virkja allt
ónæmiskerfið gegn krabba-
meini. Vísindamenn Johns Hop-
kins-háskóla undirbúa nú viða-
meiri rannsóknir á bóluefninu.
Colon Cleanser örvar
meltinguna og tryggir að fæóan
fari hratt og örugglega
í gegn um meltingarfærin.
eilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
Rannsókn á áhrifum hjartaáfalls á rottur
Reuters
Hófleg neysla víns sýnist hin mesta heilsubót en maðurinn á myndinni
er ekki þekktur fyrir hófsemi í þeim efnum enda hefur hann átt við
hjartveiki að glíma.
Alkóhólið varði
hj artavö ð vann
Medical Tribune News Service.
RANNSÓKN vísindamanna við
Stanford-háskóla í Bandaríkjunum
bendh- til þess að alkóhól sé gott
fyrir hjartað, en í þetta sinn var því
sprautað beint í hjartavöðva á til-
raunarottum.
Niðurstaða rannsóknarinnar var
birt í Proceedings of the National
Academy of Sciences (www.pnas,-
org). Hún leiddi í ljós að ef vísinda-
mennirnir sprautuðu alkóhóli í
hjartað á rottunum 10-20 mínútum
áður en þeir komu af stað hjarta-
áfalli skemmdust hjartavöðvarnir
allt að 70% minna en ella hefði orð-
ið. Alkóhólmagnið jafngilti því að
einu glasi af rauðvíni eða einum
viskísnafsi af vínanda væri spraut-
að í menn.
Aður hafa verið gerðar rann-
sóknir sem renna stoðum undir þá
kenningu að hófleg áfengisdrykkja
minnki hættuna á hjartaáfalli þar
sem hún auki blóðstreymið um
hjartaslagæðirnar. Þetta er hins
vegar fyrsta tilraunin sem leiðir í
Ijós að hæfilegt magn af alkóhóli
getur haft góð áhrif á hjarta-
vöðvann sé því sprautað í hann.
ítarlegar rannsóknir
á mönnum nauðsynlegar
Verði hægt að beita þessari að-
ferð á menn í lækningaskyni er lík-
legt að hún verði fyrst notuð við
hjartaígræðslur og skurðaaðgerð-
ir. Vísindamennirnir leggja þó
áherslu á gera þurfi ítarlegar
rannsóknir á mönnum áður en
slíkt verði hægt. Fara þurfi mjög
varlega því rannsóknir bendi til
þess að of mikið alkóhól skaði
hjartað.
Rodman Starke, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri vísinda- og læknis-
fræðisviðs American Heart Associ-
ation í Dallas, sagði niðurstöðuna
lofa góðu en bætti við að miklu
rannsóknarstarfi væri ólokið.
Þetta hefur ekki verið sannað
með rannsóknum á mönnum en
þetta er mjög áhugaverð niður-
staða sem kann að leiða af sér eitt-
hvað gagnlegt."
NYTTHAR
ÁN LYFJA
AP
VÍSINDAMENN hafa grætt
frumur úr hársverði manns í
hársvörð annars og þannig tek-
ist í fyrsta skipti að fá nýtt hár
til að vaxa á manni án þess að
gefa honum lyf. Segja vísinda-
mennirnir að með þessari aðferð
verði unnt að láta hár vaxa á
hvaða höfði sem
er.
Einnig vekur
þetta vonir um að
einhverntíma
verði hægt að
koma af stað vexti
nýs vefjar eða
jafnvel heilla líf-
færa í sjúklingum,
til dæmis í liðum
sem skemmst hafa
vegna gigtar.
„Það er hægt að
nota fáeinar frum-
ur til að endur-
skapa heilt líffæri.
Það finnst mér
ótrúlegt við
þetta,“ sagði Ang-
ela Christiano,
sérfræðingur í
skalla við Col-
umbiaháskóla í
Bandaríkjunum,
sem vann að til-
rauninni.
Vísindamenn-
irnir, undir sljórn Colins Jaho-
das, líffræðings við Durhamhá-
skóla í Bretlandi, tóku fnunu
neðst við rót í hársverði Jahodas
sjálfs og úr hársverði samstarfs-
manns hans. Þessar frumur voru
síðan græddar í framhandlegg
eiginkonu Jahodas. Eftir tæpar
fimm vikur höfðu fimm hár vax-
ið af ígræddu frumunum.
Nývöxnu hárin voru að upp-
lagi karlmannshár. Þau voru
lengri, þykkari og dekkri en
handleggshár, en í þeim voru
einnig nokkur einkenni bæði
gefanda og þiggjanda. Þessi ár-
angur hafði áður aðeins náðst í
tilraunum á dýrum. Greint var
frá niðurstöðum rannsóknarinn-
ar í tímaritinu Nature. Þær með-
ferðir, sem nú eru notaðar við
skalla, fela í sér hárígræðslu og
tiltekin lyf. Lyf geta hægt á hár-
losi og jafnvel komið af stað hár-
vexti, en einungis
hjá sumu fólki.
Við ígræðslu er
hár tekið úr ein-
um hluta hár-
svarðarins og flutt
á hárlausan stað í
hársverðinum.
Þetta er seinvirk,
kostnaðarsöm og
jafnvel kvalafull
aðferð.
Einræktun
möguleg?
Með nýju að-
ferðinni kann að
verða hægt að
taka frumur úr
hársverði þiggj-
andans sjálfs, eða
úr hársverði ann-
ars manns, og
fjölga þeim með
einræktun áður en
þær yrðu græddar
í. Ekki er að fullu
ljóst hversu vel
svona nýtt hár myndi endast,
hvort það myndi vaxa í rétta átt
eða verða með ýmsum öðrum
hætti í samræmi við útlitskröfur.
Vísindamennirnir völdu eigin-
konu Jahodas sem þiggjanda
meðal annars vegna þess að hún
er hvorki blóðskyld Jahoda né
hinum gefandanum. Ekki varð
vart neinnar vefjahöfnunar. Til-
raunin rennir stoðum undir þá
kenningu, að ígræddar hárfrum-
ur séu með einhverjum hætti
ónæmar fyrir því hvernig líkam-
inn hafnar yfirleitt utanaðkom-
andi vefjum.
Reuters
Marga karlmenn dreymir
um reglulegar ferðir til
háskerans og kann nú
hagur þeirra að vænkast.
á fæðubötaefnið Zinaxin, sem
ég tek daglega. Þökk sé Zinaxin.
Nú liður mér miklu betur og þarf
ekki að hafa neinar áhyggjur af
aukaverkunum. Með hjálp Zinaxin
vonast ég til að geta lifað eðlilegu lifi,
án óþæginda, allt til æviloka".
Lewis.
Þótt þú hafir ekki unnið 9 Ólympíugull
eins og Carl Lewis, getur þú samt átt við
bólgur og stirðleika að stríða, eins og
hann átti, en íþróttaiðkun og þrotlausar
æfingar voru verulega farnar að setja
mark sitt á liðamót hans. Með heilsusam-
legu iíferni og hollu mataræði sem m.a. inni-
heldur staðlaða engiferextraktinn Zinaxin,
heldur Carl Lewis sér í góðu formi.
z\
n a x i a
Fæst
apótekum, lyfja-
og heilsubúðum