Morgunblaðið - 13.11.1999, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN
Sítengt samfélag
UNDANFARIÐ
hefur verið fjallað á
síðum Morgunblaðs-
ins um tímamælingu
eða skrefatalningu int-
ernetsímtala. Þessi
umfjöllun er til komin
vegna umræðna í
Bretlandi, þar sem
símafélög eru gagn-
rýnd fyrir að hindra
framþróun Internets-
ins með of hárri verð-
~iagningu og með því
að tímamæla símtöl
vegna internetsamsk-
ipta. I framhaldi af
þessari umfjöllun vill
Landssíminn leitast
við að eyða misskilningi og upplýsa
lesendur Morgunblaðsins betur um
hverjar eru framtíðaráætlanir fyr-
irtækisins um nettengingar fyrir
viðskiptavinina.
Heimsmet í nettengingum
í raun er fráleitt að líkja saman
stöðunni hér og í Bretlandi hvað
varðar notkun Internetsins og
símakostnað. Samkvæmt könnun-
um eru tæplega 20% Breta með að-
~>gang að Internetinu. Aftur á móti
eru yfir 80% Islendinga með Int-
ernetaðgang heima, í vinnu eða
skóla. Helmingur íslenzkra heimila
er nettengdur. Hvort tveggja er
heimsmet; íslendingar standa
framar öðrum þjóðum hvað varðar
internettengingar.
Svipað er uppi á teningnum þeg-
ar litið er á það hversu lengi netnot-
endur eru tengdir. Brezkir netverj-
ar eru tengdir að meðaltali í um 17
mínútur á sólarhring, en banda-
^rískir í um klukkustund. íslenzkir
netnotendur fylgja þar fast á eftir
með tæplega 50 mínútna tengitíma
á sólarhring. Hér nota 32% fullorð-
Silki-damask
í metratali
í úrvali
Póstsendum
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050.
inna einstaklinga Int-
ernetið a.m.k. viku-
lega en í
Bandaríkjunum er
sambærilegt hlutfall
28%.
Allt sýnir þetta að
verð á internetteng-
ingum hefur sízt stað-
ið í vegi fyrir því að Is-
lendingar tengist
Intemetinu og noti
það, enda sýna kann-
anir OECD að í fáum
löndum er ódýrara að
nota Netið en einmitt
á Islandi. Kostnaður
við 20-25 stunda notk-
un á mánuði, sem ætla
má að sé meðalnotkun Islendings
eða Bandaríkjamanns, er lægri á
Islandi en bæði í Bretlandi og
Bandaríkjunum ef miðað er við
upphringiaðgang í gegnum al-
menna símakerfið á afsláttartaxta.
Landssíminn vinnur stöðugt að
því að lækka kostnað við internett-
engingar. Þannig er ný leigulínu-
verðskrá afar hagstæð fyrir intem-
etþjónustufyrirtæki og önnur
fyrirtæki, sem vilja tengjast intem-
etgátt beint. (Það er misskilningur
hjá leiðarahöfundi Morgunblaðsins
sl. þriðjudag að nýja leigulínuverð-
skráin hafi „snarlækkað" af því að
samgönguráðherrann hafi „gripið í
taumana“. Hún hafði verið lengi í
vinnslu ásamt Póst- og fjarskipt-
astofnun og er byggð á útreikningi
á raunkostnaði við að veita þjónust-
una.) Framundan er talsverð verð-
lækkun á aðgangi netþjónustuíyr-
irtækja að internetgátt til útlanda.
Yfirburðir íslendinga á þessu
sviði breyta ekki því að við verðum
að fylgjast vel með þróun Intem-
etsins og vera fljót að tileinka okk-
ur nýjungar, ætlum við að halda
þessari forystu. Þar skiptir auðvit-
að mjög miklu máli að Landssíminn
sé með á nótunum og komi til móts
við þarfir viðskiptavina sinna. Þeir,
sem nota Netið mest, gera nú ekki
sízt kröfu til Landssímans um
tvennt, annars vegar meiri band-
breidd eða vinnsluhraða á Netinu
og hins vegar möguleika á síteng-
ingu, þ.e. að geta alltaf verið tengd-
ir Internetinu fyrir viðráðanlegt
gjald. Þetta er krafan víða um heim
og framtíðin í internetsamskiptum
er sú að bandbreiddin sé verðlögð,
en ekki tengitíminn.
Sítenging um ADSL
og breiðband
Þessum kröfum mun Landssím-
inn mæta innan skamms, í fyrstu
með ADSL-tengingum, sem byggj-
Sími
íslendingar, segír
Ólafur Þ. Stephensen,
eiga að halda
yfirburðum sínum
í netsamskiptum.
ast á bandbreiðum gagnaflutningi
um símalínuna, sem nú þegar ligg-
ur inn á hvert heimili, og síðar með
gagnvirkum tengingum um breið-
bandið. Það er hins vegar útbreidd-
ur misskilningur, bæði hér á landi
og annars staðar, að auðvelt sé að
koma sítengingu við í almenna sí-
makerfinu. Kerfið er hannað þann-
ig að um 25% notenda geta verið í
sambandi í einu. Alla jafna er það
yfrið nóg. En í landi, þar sem helm-
ingur heimila og yfir 80% fyrir-
tækja hafa internettengingu, gæti
það hreinlega sprengt almenna sí-
makerfið á einni nóttu að taka upp
fast gjald, sem hvetti til þess að all-
ir netnotendur væru sítengdir.
Oft er vísað til þess að þetta sé
hægt í Bandaríkjunum, en málið er
ekki alveg svo einfalt. Frá fyrri tíð
hefur sú venja verið víða þar í landi
að símtöl innan gjaldsvæðis séu
innifalin í afnotagjaldi en langlínu-
samtöl tímamæld. Þetta fyrirkomu-
lag hvatti vissulega til netnotkunar
þegar Intemetið hélt innreið sína,
að því gefnu að internetþjónustan,
sem viðskiptavinurinn tengdist,
væri á sama gjaldsvæði. Vestra eru
gjaldsvæðin oft mjög lítil, í ferkfló-
metrum talið. A Islandi er allt land-
ið eitt gjaldsvæði.
Þetta fyrirkomulag hefur hins
vegar valdið mörgum símafyrir-
tækjum í Bandaríkjunum veruleg-
um vandræðum. Þar sem netnotk-
unin er mest, t.d. í Kalifomíu, hafa
sítengdir netnotendur valdið gífur-
legu álagi á kerfið. I sumum tilfell-
um urðu afleiðingarnar þær að í
fimmta hvert skipti, sem símnot-
andi reyndi að ná sambandi, fékkst
einfaldlega enginn sónn. Viðbrögð
fjölmargra símafyrirtækja, víðs
vegar um Bandaríkin, hafa verið að
boða DSL-lausnir af ýmsu tagi,
sambærilegar við ADSL-tenging-
una, sem Síminn mun byrja að
bjóða hér á landi eftir fáeinar vikur.
Landssíminn er í hópi fyrstu síma-
fyrirtækja, sem bjóða þessa þjón-
ustu á almennum markaði. Nú þeg-
ar eru tilraunir hafnar með
þjónustuna og 50 starfsmenn
Landssímans hafa notað hana í
Ólafur Þ.
Stephensen
haust með góðum árangri.
ADSL-tengingin er óháð núver-
andi símstöðvakerfi og notast í
staðinn við ATM-gagnaflutnings-
kerfi Landssímans. Með henni
verður ekki eingöngu hægt að
bjóða upp á sítengingu fyrir fast
gjald, heldm- einnig margfalt meiri
bandbreidd en með núverandi mót-
alds- og ISDN-tengingum í al-
menna símakerfinu. Fyrir kröfu-
harða netnotendur, sem eyða
löngum tíma á netinu, verður
ADSL án nokkurs vafa mjög hag-
kvæm lausn, fyrir nú utan
ánægjuna, sem fylgir auknum
vinnsluhraða.
ADSL er lausn, sem brúar bilið á
milli ISDN-tenginga dagsins í dag
og breiðbandslausna framtíðarinn-
ar. Síminn er nú að hefja tilraunir
með gagnvirkan internetaðgang
um breiðbandið og gerir ráð fyrir
að bjóða slíka þjónustu á næstu
misserum, enda fer verð endabún-
aðar, sem til þessa hefur gert hana
óhagkvæman kost, ört lækkandi. í
framtíðinni má ætla að bæði fyrir-
tæki og heimili verði sítengd Int-
ernetinu og margs konar öðrum
margmiðlunarveitum í gegnum
breiðbandið, en nú þegar eiga rúm-
lega 30% heimila á Islandi kost á að
tengjast því.
Netið í hvers manns vasa
Ekki má gleyma möguleikum
farsímatækninnar, sem Islending-
ar hafa verið flestum þjóðum fljót-
ari að tileinka sér. Með svokölluð-
um GPRS-gagnaflutningsstaðli,
sem Síminn áformar að taka upp í
GSM-kerfi sínu innan eins til
tveggja ára, gefst kostur á síteng-
ingu við Intemetið í gegnum farsí-
mann, á sambæriiegum hraða og
nú er mögulegur með ISDN-teng-
ingu. Með þriðju kynslóð farsí-
manna, sem kemur sennilega á
markað eftir þrjú til fjögur ár, gefst
kostur á sítengingu og miklu meiri
bandbreidd, allt að 2 megabitum á
sekúndu.
í framtíð, sem er nær en margur
heldur, verður ísland þess vegna
orðið sítengt samfélag, þar sem
Internetið verður orðið hreyfanlegt
og komið í hvers manns vasa.
Landssíminn ætlar sér að gegna
áfram lykilhlutverki við uppbygg-
ingu þessa öfluga upplýsingasam-
félags.
Höfundur er forstöðumaður upp-
lýsinga- og kynningarmála Lands-
símans.
Raunir Páls
SANNLEIKUR-
INN er greinilega
einskis virði í augum
núverandi félagsmál-
aráðherra. Sjálfsagt
er það bara tímasóun
að elta ólar við fyluna í
honum. Páli er greini-
lega fyrirmunað að
skilja sannleikann. I
Mbl. í gær heldur
hann áfram að
skrökva og hagræða
sannleikanum um hús-
næðismál láglauna-
fólks.
Páll gleymdi 4.038
íbúðum
Staðreyndin talar auðvitað sínu
máli um sannleiksást ráðherrans
sem telur sig vera á þessu ári búin
að leysa þriðjung af þörfinni fyrir
leiguíbúðir. Sannleikurinn er sá að
Húsnæðismál
Svo lágt leggst ráðherr-
ann, segir Jóhanna
Sigurðardóttir,
að leggja að jöfnu fyrir
láglaunafólk 20-25%
viðbótarlán í markað-
skerfíð með 4,38% vöxt-
um og 90-100% lán
með 1-2,4% vöxtum.
nálægt tvö þúsund manns eru á
biðlista eftir leiguíbúðum og frekar
mun bætast í þá biðröð á þessu ári
en fækka í henni. Því miður. Það er
auðvitað bein afleiðing fólksflóttans
af landsbyggðinni og ekki síst að fé-
lagslegt íbúðakerfí var lagt niður
um sl. áramót. I makalausum sam-
anburði sínum í Mbl.
sleppir ráðherrann
fjölda lána til endur-
söluíbúða, sem komu
til endurúthlutunar í
félagslega íbúðakerf-
inu á árunum 1988-
1995, auka lána til
kaupa á notuðum íbúð-
um sem gengu inní fé-
lagslega kerfið. Sam-
tals var hér um að
ræða hvorki meira né
minna en 4.038 íbúðir.
Hálfsannleikur - ær
og kýr Páls
Samtals var því
heildarúthlutun til fé-
lagslegra eignar- og leiguíbúða á
árunum 1988-1995 tæplega 7.900
íbúðir en ekki 3.800 eins og ráð-
herrann heldur fram. Hálfsannleik-
ur virðist því vera ær og kýr Páls
bónda á Höllustöðum. I stað þess
að taka brúttóúthlutun eða heildar-
úthlutun á þessum árum, tekur
hann út hluta íbúðanna sem úthlut-
að var til eða aðeins tæplega helm-
inginn. Þennan helming ber Páll
síðan saman við heildarúthlutun á
þessu ári í markaðskerfi sem ráð-
herrann hefur komið og ekki er
ætlað láglaunafólki. Þar eru vaxta-
kjör rúmlega þrefalt hærri en
þekkst hefur á leiguíbúðum, sem lá-
glaunafólk eins og lífeyrisþegar,
einstæðir foreldrai- og námsmenn
munu ekki ráða við. Það sést best á
því hve lágt ráðherrann getur lagst
að leggja að jöfnu fyrir láglauna-
fólk 20-25% viðbótarlán í markað-
skerfi með 4,38% vöxtum og 90-
100% lán með 1-2,4% vöxtum eins
og var í félagslega íbúðakerfínu
sem ráðherrann lagði niður.
Vonandi hlífir ráðherrann mér
og öðrum við meira af svona vit-
leysu. Hún er varla ráðherra sæm-
andi.
Höfundur er alþingismaður.
Jóhanna Sigurðar-
dóttir