Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsetar ASÍ leggja fram ályktun um skipulagsmál á sambandsstjórnarfundi
Brenndust
Tillögur í skipulagsmálum
tilbúnar fyrir aprillok
Morgunblaðið/Sverrir
Frá sambandsstjdrnarfundi ASI í gær, en honum verður fram haldið í dag.
Hveragerðisbæ vantar framkvæmdafé
Þrjú tilboð
í dreifikerfi
rafveitunnar
FORSETAR Alþýðusambands ís-
lands lögðu sameiginlega fram til-
lögu að ályktun um skipulagsmál á
sambandsstjómai’fundi sambands-
ins í gær, sem er ætlað að vera
gmnnur að vinnu í skipulagsmálum
sambandsins í vetur. Ekki er í
ályktuninni að finna efnislegar til-
lögur, en gert er ráð fyrir að sam-
bandsstjórn feli forsetum ASI að
vinna að þeim markmiðum sem þar
komi fram og kalla til formlegs
samráðs fulltrúa aðildarfélaga og
sambanda til að vinna að tillögu-
gerð.
Tillögurnar eiga að vera tilbúnar
fyrir lok apríl. Þær verði þá ræddar
í miðstjórn og lagðar fyrir til kynn-
ingar á sérstökum formanna- og
sambandsstjómarfundi í maímán-
uði, en verði síðan teknar til af-
greiðslu á þingi Alþýðusambands-
insí nóvember að ári.
Ályktun forsetanna fékk misjafn-
ar undirtektir og urðu nokkrir
fundarmenn til að kalla eftir nánari
skýringum á einstökum atriðum
sem þar er að fínna samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Skipulagsmálin verða áfram til um-
ræðu á fundinum í dag, en sam-
bandsstjórnafundur ASI fer með
æðsta vald í málefnum sambands-
ins milli þinga þess.
Tilefni harðra deilna
síðastliðið vor
Skipulagsmálin urðu tilefni
harðra deilna á vettvangi Alþýðu-
sambandsins síðastliðið vor og
lyktaði þeim deilum með því að
Rafiðnaðarsambandið taldi sér
ókleift að starfa innan ASÍ. Deil-
urnar tengjast inngöngu Félags ís-
lenskra símamanna í RSI og að um-
sókn Matvís um inngöngu í ASÍ var
hafnað og liggja fyrir sambands-
stjórnarfundinum spurningar frá
miðstjórn RSI í tengslum við þetta.
I ályktun forsetanna segir m.a. að
sambandsstjórn telji mikilvægt að
tryggja að það skipulag sem verka-
lýðshreyfingin velji sér til að marka
ramma um starfsemina verði sveigj-
anlegt og einfalt. Skipulagið megi
ekki koma í veg fyrir að starfsemi
hennar og einstakra stéttarfélaga
geti breyst og þróast í takt við
breytingar á starfsumhverfinu. í
þvi sambandi sé nauðsynlegt að ná
algerri sátt um tvö grundvallar-
markmið. Annars vegar að allt
launafólk eigi aðild að viðurkennd-
um stéttarfélögum sem uppfylli
grunnskilyrði sem slík félög verði
að fullnægja og hins vegar að öll
stéttarfélög eigi aðild að sterku Al-
þýðusambandi sem sé samnefnari
og geti komið fram út á við gagn-
vart stjórnvöldum og atvinnurek-
endum og inn á við til að fylgja því
eftir að aðildarfélögin uppfylli þau
skilyrði sem séu forsenda aðildar.
Síðan segir í ályktuninni: „Sam-
bandsstjórn telur að með því að
sammælast um þessi meginmark-
mið og líta svo á að önnur markmið
verði að víkja fyrir þeim, sé mikil-
vægum áfanga náð til að ná sam-
stöðu um hlutverk og framtíðar-
skipulag ASI. Þannig er Ijóst að
þær reglur sem gilda innan Alþýðu-
sambandsins verða að taka mið af
heildarhagsmunum. Einnig verður
ljóst að það, með hverjum hætti
einstök félög eða sambönd eiga að-
ild að Alþýðusambandinu, getur
aldrei orðið samkvæmt einni
ósveigjanlegri reglu sem gildi fyrir
alla. Markmiðin fela hins vegar í
sér að allir verða að skuldbinda sig
til að lúta tilteknum grundvallar-
reglum. Um nánari útfærslu þeirra
krafna sem gera verður til félag-
anna þarf að fjalla í lögum sam-
bandsins."
Viðbrögð við ályktuninni
nokkuð góð
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
sagðist telja að viðbrögð við álykt-
uninni hefðu verið nokkuð góð á
fundinum í gær og hann teldi yfír-
gnæfandi líkur á því að hún yrði
samþykkt í dag. Hvort einhverjar
minniháttar breytingai' yrðu gerð-
ar á henni væri önnur saga og ekki
nema gott um það að segja ef það
væri til bóta.
Hann sagði aðspurður að hann
teldi að með samþykkt ájyktunar-
innar væri lagður grunnur að vinnu
sem gæti leitt til sátta innan Al-
þýðusambandsins um skipulags-
mál. „Að vísu kemur það ekki í ljós
fyrr en undir vor hvernig okkur
tekst til en það er þó verið að leggja
grunn að því lenda þessu máli sam-
eiginlega," sagði Grétar.
ÞRJÚ tilboð voru opnuð í dreifi-
kerfi rafveitunnar í Hveragerði í
gær. Hæsta tilboðið var 200,9 millj-
ónir króna.
Gísli Páll Pálsson, forseti bæjar-
stjórnar Hveragerðis, flutti tillögu
um það á fundi bæjarstjórnar í
október sl. að kannaðir yrðu mögu-
leikar á sölu dreifikerfis rafveitunn-
ar í Hveragerði til RARIK. Fram
kom breytingartillaga sem fól í sér
að rætt yrði við alla aðila sem sýndu
málinu áhuga. Tillagan var sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæð-
um.
Eigum eftir að fara
út í miklar framkvæmdir
„Það er ljóst að við eigum eftir að
fara út í miklar framkvæmdir. Við
eigum eftir að byggja upp þjónustu-
mannvirki, fráveitukerfi og einsetja
skólann. Til að hraða framkvæmd-
um, eins og æskilegast væri, þyrft-
um við að óbreyttu að taka hærri
lán en við viljum. Þá kom þessi hug-
mynd um sölu á dreifikerfinu,“ seg-
ir Hálfdán Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Hveragerði.
Þeir sem lýstu yfir áhuga voru
Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita
Suðumesja, Rafmagnsveitur ríkis-
ins, Landsvirkjun og Selfossveitur
bs. Hveragerðisbær óskaði eftir
frekari upplýsingum og verðhug-
myndum. Tilboðin voru síðan opnuð í
gær og segir Hálfdán að þau séu ólík
innbyi'ðis. Tilboð komu frá Orku-
veitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suður-
nesja og Selfossveitum bs. RARIK
lýsti því hins vegar yfir að stofnun-
inni væri ekki heimilt að gera slíkt
tilboð nema með heimild Alþingis og
samþykki iðnaðarráðherra. For-
svarsmenn RARIK lýstu sig jafn-
íramt tilbúna til frekari viðræðna.
Hálfdán segir að bæjarstjórnin
ætli að vera búin að reikna út til-
boðin nk. miðvikudag og hvað felist
í þeim fyrir Hveragerðisbæ.
illa eftir
sprengingu
FJÖGUR ungmenni, tvær stúlkur
og tveir piltar á aldrinum 15 til 17
ára, slösuðust mikið í gasspreng-
ingu í bifreið við eyðibýlið Bæjar-
sker á Stafnesvegi skammt sunnan
við Sandgerði á sunnudagskvöld.
Ungmennin brenndust öll illa en
komu sér sjálf undir læknishendur
á sjúkrahúsinu í Keflavík. Þaðan
barst tilkynning um slysið til lög-
reglunnar skömmu fyrir klukkan
22 á sunnudagskvöld. Ungmennin
voru öll flutt á Landspítalann og
lögð þar inn og var einn piltanna
tveggja lagður inn á gjörgæslu-
deild Landspítalans en útskrifaður
þaðan í gær.
Hin ungmennin hlutu annars
stigs brunasár á höndum, fótum og
í andliti.
Ökufær þrátt fyrir
miklar skemmdir
Þótt bifreið ungmennanna hafí
skemmst mikið eftir sprenginguna
var hún ökufær og gat ökumaður
hennar því ekið til sjúkrahússins í
Keflavík.
Lögreglan í Keflavík segir
sprenginguna hafa verið mikla
enda brotnuðu rúður í bifreiðinni
og hurðir á henni gengu til.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Keflavík hefur tekið málið til rann-
sóknar og telur hún að orsakir
slyssins megi rekja til þess að við
meðferð gaskúts inni í bifreiðinni
hafi lekið út gas, sem sprakk með
miklum krafti er kveikt var í vind-
lingi inni í bifreiðinni.
Sérstakur
Stoke-
vefur
á mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ á Netinu
opnar í dag sérstakan vef sem
helgaður er enska knatt-
spyrnufélaginu Stoke City.
Eins og kunnugt er keyptu ís-
lenskir fjárfestar meirihluta í
félaginu fyrir skömmu og í
kvöld leikur liðið sinn fyrsta
deildarleik undir stjóm Guð-
jóns Þórðarsonar, knatt-
spymustjóra Stoke City.
Leikskýrslur úr leikjum
Á Stoke-vefnum er að fínna
fréttir af Stoke City, upplýs-
ingar um félagið og leikmenn
þess, leikskýrslur úr öllum
deildarleikjum liðsins, stöðu-
töflu ensku 2. deildarinnar og
heildaryfirlit yfii- leiki Stoke í
vetur. Stoke-vefurinn bætist í
fjölskrúðugt safn sérvefja á
mbl.is og er slóðin að honum
www.mbl.is/spoi-t/stoke/.
Einnig er hægt að nálgast
vefinn frá aðalsíðu mbl.is.
Sérblöð í dag
SH bikarmeistari í sundi
fimmta árið í röð /C4, C5
Tryggvi Guðmundsson
áfram hjjá Tromsö /C3
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimili
lASTlK.MK
SPRÆKUR
----avaaa